Morgunblaðið - 01.12.1978, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
7
„Ekkert þak
hjá borginni“
Fyrir tæpum premur
mánuðum birti Þjóðvilj-
inn viðtal viö Sigurjón
Pétursson, forseta
borgarstjórnar. Þar segir
orðrétt: „Meirihluti
borgarstjórnar ákvað í
sumar að taka
samningana í gildi í
áföngum, og pann 1.
september var fyrirhugað
að greiða verðbætur á
laun sem væru 170.000
krónur og lægri. Ef sett
verða bráðabirgðalög
sem kveða á um að
greiddar skuli verðbætur
frá 1. sept. á laun sem eru
230.000 krónur og lægri
mun Reykjavíkurborg
fara eftir Þeim. AD ÖÐRU
LEYTI STENDUR
ÁKVÖRÐUNIN FRÁ í
SUMAR ÓBREYTT OG
EFTIR ÁRAMÓT VERÐUR
GREITT KAUP SAM-
KVÆMT SAMNINGUM
MED FULLUM VERÐ-
BÓTUM Á LAUN.“
Og enn hnykkti for-
setinn á í viötalinu: „Nei,
við ákváöum aö taka
samningana í gildi á
pennan hátt og peirri
ákvörðun hefur ekki verið
breytt ... ÉG SÉ ENGA
ASTÆÐU TIL ANNARS
EN AÐ STANDA VIÐ
GEFNAR YFIRLÝSINGAR
AO ÞESSU LEYTI.“
Kollhnýs
borgarstjórnar
meirihlutans
Síðan gerist paö að
borgarstjórnarmeirihlutinn,
sem Alpýöubandalagið
leiðir, ákveður að við
næstu mánaðamót — 1.
desember— komi aöeins
6,13% af rúmlega 14%
veröbótum á laun, sam-
kvæmt vísitölu, til út-
borgunar. Þetta var gert
með tilvitnun til frum-
varps aö lögum, sem enn
var óafgreitt. Þetta frum-
varp er pess eðlis, sam-
kvæmt skilgreiningu
sjálfs forsætisráðherra,
að Þótt sampykkt verði,
bindur pað ekki hendur
neins vinnuveitenda,
hvorki Reykjavíkurborgar
neö annarra, um, að
greiða hærri verðbætur
eins og borgarstjórn
Reykjavíkur hafði gert
sampykkt um.
Hvorki borgarráð né
borgarstjórn hafði breytt
sampykkt hér um, sem
var Því í fullu gildí.
Meirihlutinn ákvað ein-
faldlega án Þess að bera
undir borgarráð og
borgarstjórn að nýta
skálkaskjól umrædds
frumvarps til að hlaupa
frá borgarstjórnarsam-
Þykkt „um samningana í
gildi“. Tylliástæða var
sem sé fengin til að
standa ekki við gefnar
yfirlýsingar. Og að sjálf-
sögðu var ekkert samráð
haft við Starfsmanna-
félag Reykjavíkurborgar.
Öll var Þessi máls-
meöferð meirihlutans hin
gerræðislegasta og létu
fulltrúar minnihlutans
bóka hörð mótmæli Þar
um.
Heimilt ef
mönnum
sýnist svo
Ólafur Jóhannesson,
forsætisráðherra, sagði á
AlÞingi sl. miðvikudag,
að Þann veg bæri að
skilja 4. grein stjórnar-
frumvarps, sem Þetta
mál varðar, að engum
væri skylt að greiða
hærri verðbætur á laun
en greinin segði til um
(Þ.e. skv. verðbótavísi-
tölu 151) en jafn heimilt
væri öllum að gera betur,
ef svo semdist um. Borg-
arstjórnarmeirihlutinn
gat Því, Þrátt fyrir Þessi
væntanlegu lög, staöið •
við stóru orðin og eigin
samÞykkt, ef vilji hefði
staðið til. Þann vilja
skorti einfaldlega. Kosn-
ingaloforö og eigin sam-
Þykktir í borgarstjórn
skipta engu máli. Þetta
var eínfaldlega allt svikið,
m.a.s. án Þess að hafa
fyrir að breyta sam-
Þykktunum, sem lágmark
var, Þ.e. að fara aö starfs-
reglum borgarstjórnar.
Vinstri meirihlutinn í
borgarstjórn er enginn
eftirbátur vinstri ríkis-
stjórnar í sviksemi. Og í
hugann kemur gömul
staka — frá fyrri vinstri-
stjórnartíma: „Það er
maigt sem veldur vá /
vandi er nú að ríkja /
Vinstri stjórnin ekkert á /
eftir til að svíkja. “ —
Sagan endurtekur sig
stendur einhvers staðar.
Kassettutæki
frá
flD PIONŒGR
CT-F-500 kassettutækió er eins og öll PIONEER
hljómtæki mjög vandaö og um leiö á hagstæöu veröi
miðað viö gæöi.
CT-5 500 er framhlaðiö kassettutæki, meö sjálfvirkum
stoppara, DOL8Y og ýmsum aukabúnaði sem
nauðsynlegur er í góöu tæki.
PIONEER hljómtæki hafa fyrir löngu sannaö ágæti sitt
hér á landi, sem annarsstaöar.
Við í Hljómdeild Karnabæjar höfum nú á boöstólum
mikið úrval af mögnurum, útvarpsmögnurum, plötu-
spilurum, kassettutækjum, hátölurum og fleiri úrvals
hljómtækjum.
Hvergj meira úrval af úrvals hljómtækjum á einum
stað.
KOMIÐ OG HLUSTIÐ
Austurstræti 22, sími frá skiptiborði 28155
íbúð til leigu
Til leigu 4ra herb. íbúö í Árbæjarhverfi frá byrjun
desember til 1. ágúst 1979.
Fyrirframgreiösla. Tilboö sendist Mbl. fyrir 5. des.
n.k., merkt: „Árbær — 119“.
efnahagsmál
eftir Ásmund Stefánsson og
Þráinn Eggertsson
Almenna bókafélagið
Austurstrasti 18, — sími 19707.
Skemmuvegi 39, — Kópavogi — sími 73055.
Þessi bók veitir yfirsýn yfir
helstu þætti og þróun íslenskra
efnahagsmála síöustu áratug-
ina, og skýrir hagfræöileg
hugtök. 97 skýringarmyndir
fylgja textanum. Bókin skiptist í
6 kafla sem heita: Hvaö er
veröbólga? Viðskiptin viö út-
lönd. Ostööug efnahagslíf.
Fjármál hins opinbera. Vinnu-
markaöur og tekjur. Þjóöar-
framleiösla og hagvöxtur. Bók-
in er upphaflega samin fyrir
sjónvarp og var efni hennar
flutt þar áriö 1978. Höfundarnir
eru báöir háskólakennarar í
hagfræöi og þjóökunnir fyrir
ritgeröir sínar og aöra umfjöll-
un um hagfræöileg efni.
OFSAGOTT
GLÓÐARSTEŒT
IAMBAIÆRI
MEÐ FRÖNSKUM KARTÖFLUM,
HRÁSALATI
OG BERNAISSÓSU.
KRAIN
VIÐ HLEMM