Morgunblaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978 11 A A áf r Pétur Gunnarsson ÉG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN l' skáldsögunni Ég um mig frá mér til mín halda persónur og leikendur úr Punktinum áfram feröalagi sínu gegnum lífið, og nýir farþegar slást í hópinn. í miðju atburöarásarinnar stendur Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins — búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fulloröins- skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út- gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður en það verður um seinan. ÉG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN PÉTUR GUNNARSSON Bræóraborgarstíg 16 Sími 12923-19156 Ólafur Gunnarsson AIILLJÓN PRÓSENT AIENN Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður, peningafursti og milljón prósent maður með dollaramerki í augunum og uppá- tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and- stæða hans og á milli þeirra stendur Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að verða milljón prósent, en hann langar líka til aö verða skáld. Milljón prósent menn er þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi peningamannsins á gráglettinn hátt og af óbeislaðri gamansemi. Þórarinn Eldjárn VÍAK&y/UJMWL „Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru spegill gerður úroróum ...“ Ó.M.J. / Vísir „Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft eins gaman af að lesa upphátt...“ A.l. / Dagblaðið „Samtíminn með róttækri félagslegri út- tekt á fjölmiðlum er viöfangsefni skálds- ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla belgi rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er gamansamur í besta lagi... Disneyrímur eru ortar af ærnum hagleik .. Á.B. / Þjóöviljinn ÞÓRARINN ELDJÁRN IÐUNN Þorsteinn Antonsson Sálumessa Þau áttu allt til alls — einbýlishús og nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir- tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann- vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari aðstöðu dottið í hug að fyrirfara sér? Er kannski hægt að krefjast einhvers meira af lífinu? Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík. Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta slys? Óhappatilviljun? Morð? Daginn eftir er handtekinn maður og hnepptur í gæslu- varöhald. — En er hann sá seki? SkáldaÖ i skörðin Ási í Bæ iegir frá aflaklóm og andansmönnum Af sinni alkunnu frásagnargleði og góð- látlegu kímni bregður Ási upp hverri svip- myndinni annarri fróðlegri og skemmti- legri af göldróttum forfeðrum, vinum, kunningjum, furðufuglum, skáldum og skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson, Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson, Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson, Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. að ógleymdum öllum yndislegu konunum sem koma vió sögu í þessari bráð- skemmtilegu og fróðlegu bók. Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af sannri viröingu fyrirefni hennarog anda. Thor Vilhjálmsson KJARVAL Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins mesta og einkennilegasta listamanns, sem uppi hefur verið hér á landi, í með- ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóðar. Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum hans og list á afar persónulegan hátt, gerir hvert smáatriði lifandi og sögulegt, þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft endranær í verkum hans. Að miklu leyti er bókin sprottin af nánum kynnum þessara manna, löngum samtölum þeirra og feröa- lögum saman. Bókina prýða margar af hinum listrænu Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af Kjarval. BroddiJóhannesson O‘blttur Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga og frásagna. ( öguðu, listrænu ritformi lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les- anda, iðulega með því að hnita saman veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu eða minnileg atvik. Náin tengsl við náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a. starfshætti hennar, birtast hér með af- brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram- lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum toga. Broddi Jóhannesson Qíblitur Iðunn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.