Morgunblaðið - 01.12.1978, Page 16

Morgunblaðið - 01.12.1978, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978 16 ÍWí>£pl Utgefandí hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. Askriftargjald 2500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakiö. 1. desember Idag minnumst viö þess, að 60 ár eru liðin síðan fullveldi var lýst yfir hér á landi. 1. desember 1918 rann upp í skugga mannskæðrar landsfarsóttar, sem setti sinn ömurlega svip á þá miklu atburði, sem þá voru að gerast. En í Islandssögunni verður alltaf bjart yfir þessum degi. Þá var unninn stórsigur í baráttu okkar fyrir fullu og óskoruðu sjálfstæði. Að baki atburðanna 1918 lá hörð barátta, löng saga. Ymsir mikilhæfir og glæsilegir stjórn- málamenn höfðu þar haft for- ystu og hæst allra bar Jón Sigurðsson forseta. Óeigingirni, ótrúlegt starfsþrek og óbifanleg trú á framtíð Islands voru þeir eðliskostir sem mótuðu afburða- manninn, sem Islendingar munu minnast um ókomnar aldir sem síns bezta sonar. Þá er einnig óhætt að nefna fyrsta ráðherr- ann, Hannes Hafstein. Fullveldisviðurkenningarinnar verður ekki minnzt án þess að nafn Jóns Magnússonar for- sætisráðherra sé nefnt. Hann þótti að vísu ekki skörungur af ýmsum samtímamöhnum sínum. Enginn vafi er þó á, að hann var, þegar hann gegndi forystuhlut- verki, fremsti stjórnmálamaður síns tíma hér á landi og búinn flestum þeim kostum, sem leið- togi þarf að hafa. Þess vegna reyndust störf hans svo gifturík sem raun bar vitni, — þess vegna tókst honum og sam- starfsmönnum hans með hyggni og samningalipurð að skila þjóðinni lengra áleiðis til fulls sjálfstæðis en mörgum öðrum. Samningar Sambandslaganefnd- arinnar héngu einatt á bláþræði, en vegna færni þeirra, sem þar stóðu í fararbroddi, var þeim áfanga náð, sem sköpum skipti. Svo skjótt sem fullveldissátt- málinn frá 1918 heimilaði, neytt- um við íslendingar uppsagnar- ákvæðis hans og stofnuðum lýðveldi í landi okkar 17. júní 1944. „Vertu ei við sjálfa þig að berjast” egar 50 ára fullveldis var minnzt hér í Morgunblað- inu var þeirri spurningu varpað fram, hvernig þjóðinni hefði vegnað á því skeiði, sem liðið var, síðan íslenzki fáninn var dreginn að húni á stjórnarráðs- húsinu 1. desember 1918. Og henni var svarað svofelldum orðum: „Þessi spurning mun koma upp í huga margra Islendinga í dag. Sem betur fer verður svarið við henni jákvætt. Með full- veldinu var grundvöllur lagður að nýju og betra þjóðfélagi á íslandi. Þjóðin fann til máttar síns og neytti hans til þess að hefja stórfellda sókn fyrir al- hliða uppbyggingu í landi sínu. Sú saga verður ekki rakin að þessu sinni. Þótt Islendinga greini á um margt, eru þeir allir sammála um það, að frelsið var hinn mikli aflgjafi. Þjóðin rétti úr kútnum, brauzt úr sárri fátækt til bjargálna og velsæld- ar. Margvíslegir erfiðleikar hafa að sjálfsögðu steðjað að henni sl. 50 ár. En á þeim hefur verið sigrazt og baráttunni haldið áfram á öllum sviðum íslenzks þjóðlífs. Þótt á móti blási í íslenzku efnahagslífi í dag, kemur engum Islendingi annað til hugar en upp úr þeim erfiðleikum komi nýir og betri tímar. En vel mættum við á þessum tímamótum minnast orða skáldsins, sem svo mælti árið 1938 á 20 ára fullveldisafmælinu: „Litla þjóð, sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast." Ef íslenzka þjóðin hefur þessi orð í huga, mun hún ávallt kunna sér hóf í innbyrðis deilum. Hún mun þá aldrei tefla á tæpt vað um varðveizlu and- legs og efnahagslegs sjálfstæðis síns.“ Því miður hefur síðasti ára- tugur ekki reynzt jafn farsæll og efni stóðu til, en þar höfum við ekki við neina að sakast nema okkur sjálf. Við höfum ekki kunnað okkur hóf í innbyrðis deilum m.a. með þeim afleiðing- um, að verðbólgan hefur komizt á annað og hærra stig hér á landi en nokkru sinni fyrr og virðist það ástand ætla að vara lengur en góðu hófi gegnir. Við erum jafnvel orðin dæmi í heimsblöðum um verðbólguþjóð- félag — og þykja undur mikil hvað okkur reiðir þó vel af(!). Þannig hefur hver verðbólguhol- skeflan á fætur annarri riðið yfir og grafið undan rótum atvinnulífsins og gæðamats, ekki sízt ungs fólks, því hefur svo fylgt meiri órói á öðrum sviðum þjóðlífsins en áður. Morgunblaðinu í dag fylgir ljósrit af tölublaðinu 1. desem- ber 1918, en þar segir m.a.: „Island á meiri ónotaða fjár- sjóðu en flest önnur lönd. Það er undir þjóðinni komið, hvort ísland verður íslenzkt framtíðarland. íslendingar eiga betri menn- ingargrundvöll en flestar aðrar þjóðir. Það er undir þeim sjálfum komið, hvort þar rís sú bygging, sem fortíðarmenning- unni er samboðin." Undir þessi orð vill Morgun- blaðið taka nú. Hvort sem við bjuggum við fullveldi eða búum við lýðveldi, byggist allt á þjóðinni sjálfri, hyggni hennar og samheldni. A það minnir 1. desember, hinn góði heilladagur mitt í svartasta skammdeginu. Togarar og ísjakar valda flestum slitum á Scotice off Icecan „ÉG var nú einmitt að fá telex um það að skipinu Alert hefði þegar seinkað svo ég er ekki eins bjartsýnn og áður um það að Scotice komist í lag á sunnudaginn svo við sleppum nú öllum veðrum,“ sagði Jón Kr. Vaidimarsson deildar- tæknifræðingur Pósts og síma er Mbl. ræddi við hann í gær. Sæsímastrengirnir Scotice og Icecan voru teknir í notkun með árs millibili; Scotice sem er með 32 rásum í janúar 1962 og Ieecan sem er með 24 rásum 1963 en fram til þess tíma voru loft- skeytarásir eina samband ís- lands við umheiminn. Scotice liggur frá Vestmannaeyjum um Þórshöfn í Færeyjum til Gair- loch á Skotlandi og þaðan liggur sambandið suður um til London. 1972 var lagður sæsímastrengur frá Þórshöfn um Leirvík til Kirkwall í Skotlandi og eftir það höfum við haft mun minni óþægindi af bilunum á syðri hluta Scotice, þar sem hægt hefur verið að fara inn á hinn strenginn, en bilunin nú er á nyrðri hluta Scotice, Icecan liggur frá Vestmannaeyjum um Friðriksdal á Grænlandi til Corner Brook á Nýfundnalandi og síðan liggur sambandið um Beaver Harbour í Kanada til Montreol. Jón Kr. Valdimarsson deildar- tæknifræðingur. Á borðinu standa iíkön af Icecani það stærra er bútur af landtakinu í Vestmannaeyjum og það minna sýnir hvernig strengurinn milli landa litur út. sambandi má geta þess að slit verða oft á okkar strengjum sem liggja innanfjarðar, til dæmis í Eyjafirði og hefur það meira að segja hent að kaupskip hafi sett í þá ankerin og slitið þá.“ — Hvað verður um strengina, þegar jarðstöðin verður tekin í notkun? „Þeir verða reknir áfram um einhver ár. Við reiknum með því að viðskiptin við Bretland fari áfram um Scotice og viðskiptin við Ameríku fari eitthvað áfram um Icecan. Jarðstöðin verði þá notuð fyrir önnur viðskipti og þá um Tanum í Svíþjóð og einnig reiknum við með sam- skiptum við stöðvar í Þýzka- landi og Bretlandi og í Banda- ríkjunum sennilega um stöðina í Itam. Og við verðum að hafa í huga, að þótt jarðstöðin sé komin, þá er gott að hafa fleiri útganga, ef svo má segja. Hér geta komið þau veður, að þessi stóri diskur, sem á jarðstöðinni verður, geti ekki staðið í þeim lága vinkli, sem til þarf, og að þá verði að velta honum upp í loft, sem þýðir að stöðin fer úr sambandi. Við reiknum að vísu ekki með því að margir dagar falli úr af þessum sökum, en þegar þeir koma, verður gott að geta gripið til sæsímastrengjanna.“ Meðan Scotice er slitinn hefur Póstur og sími tólf línur til IJvrópu um Icecan: tvær öryggislínur fyrir flugmála- stjórn, tölvulínur fyrir Flug- leiðir og Veðurstofuna, tvær línur sem varnarliðið leigir, tvær telexlínur: aðra til Bretlands og hina til Kaup- mannahafnar, og tvær talrásir Bilanir á strengjunum Jón Kr. Valdimarsson tók saman fyrir Mbl. bilanir sem hafa orðið á Scotice og Icecan allt frá árinu 1964 og þá bæði fjölda bilana og dagana. sem þær stóðu. til Bretlands og tvær til Kaup- Scotice Icecan mannahafnar. Auk þess eru svo Ár bilanir dagarbilanir dagar tvær stuttbylgjurásir í gegn um 1964 1 7 8 159 Gufunes og nú er unnið að því að 1965 5 12 9 98 fá talrás til Kaupmannahafnar 1966 2 10 10 96 gegn um jarðstöð á Grænlandi. 1967 2 6 12 33 1968 3 S20 9 142 Mbl. spurði Jón hver væri 1969 1 S26 16 226 helzta orsök þess að sæsíma- 1970 1 2 4 137 strengirnir slitna. „I langflest- 1971 8 150 um tilfellum eru það togarar og 1972 6 186 togbátar sem slíta strengina og 1973 4 N14 6 144 einnig hendir það oft, að ísjakar S41 fari það djúpt að þeir risti á 1974 6 123 Icecan," sagði Jón. „Mér þykir 1975 3 17 9 151 rétt að taka fram að fæst slitin 1976 7 S24 7 94 hafa orðið í íslenzkri landhelgi, N8 þótt það hafi komið fyrir að 1977 1 4 2 10 íslenzkir bátar slitu strengina. 1978 2 S15 9 91 Það virðist ákaflega erfitt að N25+ komast að þessu, enda þótt S og n á Scotice þýða suðurhluti og norðurhlutii sunnan eða strengirnir séu tryggilega norðan Þórshafnar. Vegna gossins á Heimaey 1973 duttu niður 7 merktir inn á kort og í því dagar. Boavpr Harbour Þetta kort sýnir hvernig sæsímastrengirnir liggja frá Vestmannaeyjumi Icecan vestur um haf og Scotice um Færeyjar til Skotlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.