Morgunblaðið - 03.12.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.12.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978 Gunnar Gunnarsson útibússtjóri Útvegsbankans í Hafnarfirði ásamt starfsfólki sínu, þeim Aðalbjörgu Reynisdóttur, Aðalheiði Halidórs- dóttur og Gylfa Árnasyni. w Utvegsbankiim opnar útibú 1 Haf naríirði ÚTVEGSBANI íslands opnar eftir helgina útibú að Reykjavíkurvegi 60 í Hafnarfirði. Útibússtjóri er Gunnar Gunnarsson, sem áður gegndi starfi deildarstjóra í gjald- eyrisdeild bankanna. Auk alhliða bankaþjónustu mun útibúið sjá um kaup og sölu á erlendum gjaldeyri, taka við inn- og útflutningsskjölum til afgreiðslu og annast opnun bankaábyrgða. Þá verður á næstunni boðið upp á afnot af geymsluhólfum. Ólafur Bjðrnsson formaður banka- ráðs Útvegsbankans flutti ávarp við opnun útibúsins. Hann gat þess að Utvegsbankinn hefði lengi haft áhuga á að opna útibú í Hafnarfirði bæði vegna þess að það væri stefna bankans að koma upp útibúum í öllum kaupstöðum landsins og einnig vegna viðskipta hafnfirzkra fyrir- tækja við Útvegsbankann. Stefán Jónsson forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar bar kveðjur bæjar- stjóra og bæjarstjórnar og bauð Útvegsbankann velkominn í bæinn. Afgreiðsla bankans er um 200 fm að stærð, og hefur Gunnlaugur G. Björnsson annast alla skipu- Iagningu. Smíðastofa Jónasar Sólmunds- sonar hefur smíðað innréttingar eftir teikningum Guðmundar Jónas- sonar, tæknifræðings, og uppsetingu á þeim hefur Sveinn Guðmundsson, húsasmíðam., framkvæmt. Aðrar framkvæmdir höfðu með höndum: Kristján Jónsson, múraram., Guðjón Júlíusson, pípulagningam., Jón Bjarnason, rafvirkjam., Anton Guðmundsson, vélvirki, Ólafur Ólas- son, veggfóðraram., Jón Ingi Ragnarsson, málaram., Jóhannes Guðmundsson, húsgagnasm. og Baldur Ágústsson, framkv. stj. Vara h.f, sem sá um uppsetningu á eldvarna- og aðvörunarkerfum. Umsjón með innréttingum hefur umsjónarmaður bankans Guðjón Guðmundsson, húsasmíðam. haft með höndum. Fjórar lit- prentaðar barnabækur SETBERG hefur gefið út þessar barnabækur: „Anna er dugleg stúlka", „Pétur og Tommi", „Dísa og dúkkan hennar" og „Gunnar hjálpar dýrunum". Anna fer að tína ber og villist á leiðinni, en það sannast í bókinni, að Anna er dugleg stúlka. En Pétur og Tommi eru góðir félagar og bralla margt. Svo er það Gunnar sem þýtur ásamt hvolpin- um Gutta út í skóginn til að hjálpa dýrunum. Og loks í fjórðu bókinni segir frá því hvernig Dísa hugsar um dúkkuna sína, klæðir hana og gefur henni matinn sinn, — og svo getur Dísa raunverulega vaggað henni í svefn, því að allt eru þetta „tikk-takk-bækur“. Málverka- sýning í Festi í Grindavík í DAG, sunnudag. verður opnuð sýning í félagsheimilinu Festi í Grindavík á verkum nokkurra fra'gra íslenzkra myndlistar- manna og eru öll verkin á sýningunni til sölu. Rennur ágóði af sölunni óskiptur til að koma upp minnisvarða um drukknaða menn frá Grindavík. Stendur sýningin yfir til 7. desember og er opin í dag kl. 14—22 en mánudag til fimmtudags kl. 20—22. Fjallfoss var hér í vikunni og lestaði 900 tonn síldar er fara eiga til Póllands. Atvinna hér hefur verið með mesta móti, næg vinna við síldina. Þá hafa verið hér sýningar á leikritinu Deleríum búbónis og var það sýnt í gær, en það er leikfélagið í Garðinum, sem stend- ur að henni, og hefur henni verið mjög vel tekið af heimamönnum. — Guðfinnur Eigum nú I _ fyrirliggjandi eftirtaldar UU&MM bifreiöar árg.’78 FIAT 127 L 2ja dyra L 3ja dyra CL 2ja dyra CL 3ja dyra Áætlað verð á Verð 4 dag næstu sendingu 2.410.000.- 2.975.000 2.500.000.- 3.087.000 UPPSELDUR 3.112.000 UPPSELDUR 3.375.000 FIAT128 L 2ja dyra 2.760.000,- 3-362.000 L Station 2.940.000.- 3.562.000 CL 4ra dyra 3.010.000.- 3.700.000 CL 2ja dyra 3.550.000.- 4.260.000 CL 4ra dyra 3.610.000.- 4.368.000 SUPER 4ra dyra AUTOM. UPPSELDUR 4.980.000 FIAT 132 1600 4.030.000.- 4.668.000 2000 UPPSELDUR 5.316.000 2000 AUTOM. UPPSELDUR 5.556.000 Fólksbíll Station 2.110.000.- 2.612.000 UPPSELDUR 2.750.000 Ef þiö geriö verösamanburð á þeim bílum sem fáanlegir eru í dag kemur í Ijós að þú færö mest fyrir peninginn þegar þu kaupir FIAT. FIAT ER BILL SEM BORGAR SIG FÍAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI DAVÍÐ SIGURÐSSON hf. SlOUMÚLA 35, SÍMI 85855.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.