Morgunblaðið - 03.12.1978, Síða 37

Morgunblaðið - 03.12.1978, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978 37 •æikarar og sviðsmenn Leikfélags Vestmannaeyja í Góðir eiginmenn sofa heima. Fremstur á myndinni er Sigurgeir Scheving leikstjóri. Góðir eiginmenn vinsælir í V estmannaey jum LEIKFÉLAG Vestmannaeyja sýnir um þessar mundir gamanleikritið Góðir eigin- menn sofa heima eftir W. Ellis í þýðingu Ingu Laxness og Einars Pálssonar. Leikstjóri er Sigurgeir Scheving. Magnús Magnússon gerir leikmyndina. Leikritið hefur verið sýnt 4 sinnum á liðlega viku og næstu sýningar eru á sunnudag og þriðjudag. I Góðum eiginmönnum eru 12 hlutverk, en helztu hlutverk eru í höndum Sveins Tómassonar, Eddu Aðalsteinsdóttur, Andrés- ar Sigurvinssonar og Magnúsar S. Magnússonar. Gróskumikið starf er hjá Leikfélagi Vest- mannaeyja og um þessar mund- ir er félagið að hefja æfingar á barnaleikritinu Línu Langsokk og verður það sýnt upp úr áramótunum, en seinni hluta vetrar verður. einnig tekið fyrir íslenzkt verkefni. Leikfélag Vestmannaeyja stóð fyrir leik- listarnámskeiðum í haust og komust færri að en vildu á þrískiptum námskeiðum, en leiðbeinandi þar er Andrés Sigurvinsson. Runólfur Gíslason og Baldvina Sverrisdóttir í hlutverkum herra X og Alisu þjónustu- stúlku. Einars saga Guðfinnssonar Saga Einars Guðfinnssonar er tví- mælalaust ein merkasta ævisaga síðari tíma. Saga hans er þróunar- saga sjómennsku, allt frá smáfleyt- um til stærstu vélbáta og skuttogara og saga uppbyggingar og atvinnu- lífs í elztu verstöð landsins. Einar Guðfinnsson er sjómaður í eðli sínu, öðlaðist þrek við árina og vandist glímunni við Ægi á smáfleyt- um. Af óbilandi kjarki og áræði sótti hann sjóinn og af sama kappi hefur hann stýrt fyrirtækjum sínum, sem til fyrirmyndar eru, hvernig sem á er litið. Saga Einars Guðfinnssonar á vart sinn líka. Hún er sjór af fróðleik um allt, er að fiskveiðum, útgerð og fiskverkun lýtur, hún er saga afreksmanns, sem erfði ekki fé, en erfði dyggðir í því ríkari mæli. Staðreyndir sem halda gildi Þjóðlifsþættir eftir Pál Þorsteinsson fyrrum alþingismann frá Hnappavöllum / þessarí bók eru 15 þættir úr ís- lensku þjóðlífi að fornu og nýju, þar sem Austur-SkaJ'tafellssýsla og mannlíf þar kemur einkum við sögu. !\afn bókarinnar — ÞJÓÐLÍFS- ÞÆTTIR — gefur þetta til kynntt. I bókinni er sagt frá staðreyndum sem eiga að halda gildi þótt tímar líði. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Heildsöludreifing: IÐUNN ifl am Ævintýraheimur tónanna opnast börnunum á nýjan og að- laðandi hátt í tónverkunum Tobbi túba og Pétur og úlfur- inn, sem Sinfóníuhljómsveit íslands gefur út á vandaðri LP hljómplötu. Leyfið börnunum að njóta þroskandi og skemmtilegrar tónlistar. Stjórnandi Páll P. Pálsson; sögu- menn leikararnir Guðrún Stephensen og Þórhallur Sig- urösson. Börn um allan heim þekkjaTobba og Pétur. Góö plata fyrir ótrúlega gott verð. Starfsmarmafélag Sinfóníuhljómsveitar íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.