Morgunblaðið - 03.12.1978, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
41
Fulltrúar stjórnar og starfsráðs Bandalags íslenskra skáta en þau
sátu fyrir svörum á blaðamannafundinum. Talið frá vinstrit Sigurður
Halldórsson, Matthías Pétursson, Margrét Tómasdóttir og Páll
Gíslason skátahöfðingi.
, ,Skátalíf
er þjóðlíf”
Nýtt starfsár hafið hjá skátum
NÝTT starfsár skáta hófst í
haust og er kjörorð þess „Skátalíf
er þjóðlíf“.
A blaðamannafundi sem stjórn
og starfsráð Bandalags íslenskra
skáta hélt kom það fram að
markmið þessa skátaárs væri
þríþætt. í fyrsta lagi að gefa öllum
skátum tækifæri til að láta skoðun
sína í ljós á nánasta umhverfi sínu
og þjóðlífinu með hjálp ákveðinna
verkefna. I öðru lagi að vekja
athygli fullorðinna á þvi að börn
hafi rétt á að láta í ljós skoðun
sína og vert sé að taka tillit til
þeirra. I þriðja lagi er markmið
skátaársins að gefa skátum lands-
ins kost á að vinna sömu verkefnin
þannig að þeir geri sér grein fyrir
að þeir eru hluti af stærri heild og
efla um leið samtakamátt hreyf-
ingarinnar.
Verkefnum skátanna á þessu
starfsári er skipt í þrjú stig eftir
aldri þeirra sem eiga að vinna þau.
Vex umfang verkefnisins eftir
aldri skátans. Verkefni 9—10 ára
skáta, ljósálfa og ylfinga, nefnist
„Bærinn minn". Verkefni 11—14
ára skáta, áfangaskáta, nefnist
„Sveitin mín“ og verkefni 15—17
ára skáta, dróttskáta, nefnist
„Landið mitt“.
Bandalag íslenskra skáta hefur
gefið út leiðbeiningarbækling fyrir
hvert aldursstig með ýmsum
verkefnum sem falla að markmiði
starfsins. Framkvæmd einstakra
atriða er svo í höndum félags-
stjórna og foringja skátafélaganna
á hverjum stað og hafa þau flest
verið heimsótt til að tryggja að
sem flestir komist af stað með
verkefnin.
I lok maí er gert ráð fyrir að
ljósálfar og ylfingar ljúki starfsári
sínu með ljósálfa- og ylfingadegi í
hverjum bæ landsins. Áfangaskát-
ar munu ljúka starfsári sínu með
flokkamótum hjá hverju félagi.
Þar verður besti flokkurinn valinn
og fær hann að fara á sérstakt
flokkamót sem haldið verður á
Austurlandi í júlí.
Dróttskátar munu ljúka starfs-
ári sínu með hópferð til Noregs á
næsta sumri. Þar verður farið á
dróttskátamót, land og þjóð kynnt
og vinabæir heimsóttir.
Á öllu landinu eru nú 40
skátafélög og 3500—4000 skátar.
Talið frá vinstri Steindór Ólafsson hótelstjóri á Esju, Guðmundur
Thorarensen, þjónn. Snorri Bogason kokkur og Sveinn Sæmundsscn
hlaðafulltrúi Flugleiða. í baksýn er glerlistaverk Leifs Breiðfjörð.
Ljósm. Mbl. Emilía.
Jólaglögg á Esjubergi
GESTUM Esjubergs gefst nú
kostur á jólaglöggi þriðja árið í
röð. Þessi heiti og kjarngóði
drykkur, að sögn, mun veittur
verða ásamt piparkökum í
hádeginu og á kvöldin fram til
jóla. Að sögn yfirmanna Esju-
bergs hefur jólaglöggið reynst
kærkomin upplyfting fyrir íólk í
verzlunarleiðangri. Esjuberg
verður skrcytt á viðeigandi hátt
fyrir jólin og mun Jónas Þórir
leika þar á bíóorgel í hádeginu og
um kvöldmatartima á laugar-
dögum og sunnudögum.
Glerlistaverk „Vorblót" eftir
Leif Breiðfjörð sem tekið var niður
í haust og sent á listasýningu í
New York hefur á ný verið sett
upp á Esjubergi. Leifur sýndi tvö
verk á sýningunni og hlutu bæði
góða dóma. Blaðaverkfall í New
York var þess hins vegar valdandi
að minna var skrifað um
sýninguna en ella.
Á Skálafelli 9. hæð Hótels Esju
hafa að undanförnu verið tísku-
sýningar á fimmtudagskvöldum en
á 2. og 3. hæð eru veislusalir, bar
og fundarsalir.
Iliiillii!
Dagskammtur fyrir
þessa PHILCO
þvottavél!
a(og hún þvær þaó!)
Tíu manna fjöl-
skylda þarf aö eiga
trausta þvottavél,
sem getur sinnt dag-
legum þvottaþörfum
fjölskyldunnar.
Þessi tíu manna
fjölskylda sést hér á
myndinni meö dag-
skammt sinn af þvotti.
Og þetta þvær Philco
þvottavélin daglega,
mánuöum og árum
saman.
Þvottavél, sem
stenst slíkt álag
| þarfnast ekki frekari
\ meömæla.
Þvottavél í þjónustu
tíu manna fjölskyldu
veröur líka aö vera
sparsöm. Philco
þvottavél tekur inn á
sig bæöi heitt og kalt
vatn, sem sparar raf-
magn og styttir
þvottatíma.
Philco og fallegur
þvottur fara saman.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655