Morgunblaðið - 03.12.1978, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.12.1978, Qupperneq 45
-V. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978 45 Frá stofnfundi HeilbrigdiumálaráAs Reykjaneshéraðs. Ljósm.: Heimir Stígsson. Heilbriðgðismálaráð Reykianeshéraðs STOFNFUNDUR Heilbrigðis- málaráðs Reykjaneshéraðs var haldinn 23. nóv. s.l. Formaður, Kjartan ólafsson héraðsiæknir í Reykjanesheraði, stj,órnaði fundi. Jósef ólafsson læknir í Hafnar- firði var kjörinn varaformaður og Vilhjálmur Heiðdal ritari. Aðrir fulltrúar í ráðinu voru mættir: Eiríkur Pálsson, Sigurður Þórðarson og Rafn Sigurðsson frá Hafnarfirði, Jón M. Guðmundsson frá Mosfellshreppi, Ólafur Jónsson frá Kópavogi, Kristján Sigurðsson frá Keflavík og Sólrún Einarsdótt- ir, Stefán Friðbjarnarson og Jón Gunnlaugsson frá Seltjarnarnesi. Heilbrigðismál héraðsins voru rædd og skipulag starfseminnar. Voru gerðar nokkrar ályktanir í þeim efnum. Ákveðið var m.a. að halda kynningarfundi í hverju sveitar- félagi, og verður næsti kynningar- fundur haldinn í Hafnarfirði. Fundur um hlut- verk kirk junnar í nútí maþ jóðf élagi Jazzvakningi Mezzo Forte á tónleikum HLJÓMSVEITIN MEZZO FORTE kemur fram á tónlistarkvöldi hjá Jazzvakningu á Hótel Sögu á þriðjudaginn. þann 5. desember. Mun hljómsveitin þar leika nýtt, frumsamið efni, en Mezzo Forte skipa eftirtaldir hljóðfæraleikarari Friðrik Karlsson, gítar, Eyþór Gunnarsson, píanó, Jóhann Ásmundsson, bassi, Gunnlaugur Briem, trommur og Andrés Helga- son, flauta og trompet. Allir eru þessir menn þekktir hljóðfæraleikarar. Þá kemur Gunnar Reynir Sveinsson, tónskáld og víbra- fónleikari, fram ásamt félögum sínum, og munu þeir leika nokkur lög af fingrum fram. Gunnar hefur ekki leikið opinberlega árum saman, en kemur nú fram í tilefni útkomu plötu með verki hans, Samstæður, en það samdi hann sérstaklega fyrir Listahátíðina í Reykjavík árið 1970. Tónlistarkvöldinu á þriðjudaginn lýkur svo með „jam-session“, sem ráðgert er að standi fram yfir miðnætti. MÓÐIR MÍN — HÚSFREYJAN Fyrra bindi þessarar bókar seldist mest allra bóka okkar í fyrra. Nú er komið út nýtt safn, um nýjar mæður, fimmtán þættir um mæður úr hinum ólíkustu stéttum þjóðfélagsins, skráðir af börnum þeirra. Þetta nýja bindi af Móðir mín — Húsfreyj- an er ekki síður fróðlegt og skemmtilegt en hið fyrra. Hver þáttur bók- arinnar er tær og fagur óður um umhyggju og ljúfa móðurást. FÉLAG sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogs- hverfi heldur almennan fund í safnaðarheimili Bústaðakirkju n.k. miðvikudagskvöld kl. 20.30. Fundarefnið er hlutverk kirkjunn- Séra Ólafur Skúlason ar í nútímaþjóðfélagi, og eru framsögumenn séra Ólafur Skúla- son dómprófastur og Pétur Sigurðsson, varaþingmaður. Fundurinn er öllum opinn og verður boðið upp á kaffiveitingar. Pétur Sigurðsson Aðventukyöld í Stokkseyrarkirkju í Stokkseyrarkirkju verður haldið aðventukvöld næstkomandi þriðjudag kl. 21. Verður það flutt samfelld dagskrá sr. Guðmundur Óla Ólafssonar sóknarprests í Skálholti, í máli og myndum um ísrael. Þá verður einnig flutt hebresk tónlist. Auður Eir Vilhjálmsdóttir flytur í lokin hugvekju. Sjúkraflug frá Króksfjarðarnesi ÞAÐ slys varð að bænum Ingunn- arstöðum f Dalasýslu að maður er vann við smíðar á svonefndri flatgryfju á fimmtudag féll niður af þaki hennar og slasaðist nokkuð í baki. Var maðurinn sóttur í sjúkraflugvél í Króks- fjarðarnes og annar læknirinn frá Búðardal sem þar var staddur bjó um hann í vélinni. Sjúkraflugvélin, sem var frá Örnum á ísafirði, lenti á 500 m langri flugbraut við Króksfjarðar- nes og lýstu bílar upp brautina laust fyrir kl. 22 á fimmtudags- kvöld. Flutti vélin manninn til Reykjavíkur. Var hann fluttur á Landspítalann og hafði hann brákast nokkuð í baki. II ' lm| lii Við bjóðum sérstaklega hagstætt verð á takmörkuðum birgðum TELEFUNKEN sjónvarpstækja. Stærðir 20”, 22", 26”. Verð frá kr.: 410.000.- Nýjung í greiðslukjörum þ.e.a.s. styttri lánstími, lækkun á verði. Ath. Takmarkaðar birgðir. Leitið nánari upplýsinga BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.