Morgunblaðið - 09.12.1978, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.12.1978, Blaðsíða 4
 ALLT MEÐ EIMSKIF A næstunni fferma skip vor til íslands sem hér segir: ANTWERPEN: Skógafoss 13. des. rieykjafoss 18. des. Skógafoss 27. des. ROTTERDAM: Skógafoss 14. des. Reykjafoss 20. des. Skógafoss 28. des. FELIXSTOWE: Mánafoss 11.des. Dettifoss 18. des. Mánafoss 27. des. Dettifoss 2. jan. HAMBORG: Mánafoss 14. des. Dettifoss 21. des. Mánafoss 29. des. Dettifoss 4. jan. PORTSMOUTH: Hofsjökull 19. des. Bakkafoss 20. des. Goðafoss 5. jan. Brúarfoss 8. jan. Bakkafoss 15. jan. GAUTABORG: Háifoss 11,des. Laxfoss 18. des. Háifoss 27. des. Laxfoss 2. jan. KAUPMANNAHÖFN: Háifoss 12. des. Laxfoss 19. des. Háifoss 28. des. Laxfoss 3. jan. HELSINGBORG: Bæjarfoss Grundarfoss Álafoss MOSS: Bæjarfoss Grundarfoss Álafoss 12. des. 20. des. 27. des. 11. des. 21. des. 28. des. KRISTIANSAND: Stuólafoss Bæjarfoss Álafoss STAVANGER: Stuðlafoss Grundarfoss GDYNIA: írafoss VALKOM: írafoss Skip RIGA: Múlafoss 7. des. 13. des. 29. des. 8. des. 22. des. 14. des. 12. des. 27. des. 20. des. WESTON POINT: Kljáfoss 6. des. Kljáfoss 27. des. Reglubundnar feröir alla mánudaga frá Reykjavík til ísafjaröar og Akureyrar. Vörumóttaka í A-skála á föstudögum. ALLT MEÐ EIMSKIP MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978 Utvarp í kvöld kl. 21.20: Gleðistund Gleðistund, í umsjá Guðna Einarssonar og Sam Daniels Glad, hefst í útvárpi í kvöld kl. 21.20. Meðal annars efnis er, að kynntur verður söngleikur um hjónin Jimmy og Carol Owens. Leikurinn er eins konar tónlist- arleg tjáning á safnaðarlífinu í Kirkjunni við veginn, sem er kirkja í Kaliforníu, sem ýmsir fyrrum skemmtikraftar og stjörnur úr kvikmyndaheimin- um sækja. í uppfærslu söng- leiksins fer meðal annars Pat Boone með stórt hlutverk, en hann og Owens eru safnaðar- bræður. Þá verða leikin jólalög, sem ýmsar Gospel-stjörnur hafa sungið inn á plötur. Einkum verða leiknar plötur frá Norður- löndunum, meðal annars með Evie Tornquist og Samuelsons, en þeir hafa komið til Islands. Lögin eru ýmist flutt í poppstíl eða upprunalegri útsetningu. Þá munu sænsku kirkjueinsöngvar- arnir Jan Sparring og Göran Stenlund einnig syngja jólalög. Þátturinn stendur yfir í um hálfa klukkustund. Sjónvarp í kvöld kl. 22.00: Barbarella Barbarella nefnist sjón- varpskvikmyndin, sem hefst í kvöld kl. 22.00. Myndin er frönsk-ítölsk bíómynd frá árinu 1967, byggð á vinsælli vísinda- skáldsögu eftir Jean Claude Forest. Sagan gerist um árið 40.000. Ungri stúlku, Barbar- ellu, er falið að hafa uppi á vísindamanni einum, sem befur horfið, en á leið sinni um geiminn lendir hún í ýmsum ævintýrum. Brotlendir hún flauginni og lendir í höndunum á illum börnum, en þau siga á hana dúkkum sínum, sem bíta. En til sögunnar kemur barna- veiðimaður, sem bjargar henni úr klóm þeirra. Einnig lendir hún í völundarhúsi nokkru, þar sem þrælar næturborgarinnar búa og kynnist ýmsu skrítnu fólki þar. Myndin tekur röska eina og hálfa klukkustund í sýn- ingu. Jane Fonda, en hún leikur aðalhlutverkið í myndinni Bar- barellu, sem er á dagskrá sjónvarps kl. 22.00 í kvöld. Cr myndinni Lífsglaður lausamaður. en í aðalhlutverki er John Alderton. sem áhorfendur munu kannast við úr myndaflokknum Gengið á vit Wodehouse, sem sjónvarpið hefur nýlokið við að sýna. Sjónvarp í kvöld kl. 20.35: Lofa skal mey að morgni Lofa skal mey að morgni nefnist fyrsti þáttur í nýjum, brezkum gamanmyndaflokki, sem hefur göngu sína í sjónvarpi í kvöld kl. 20.35. Segir í þessum þætti frá ungum manni í Lundúnum, en sá er heimilislaus, en hefur þó hálfgert aðsetur á járnbrautar- stöð, þar sem hann geymir eigur sínar. Ungi maðurinn hefur það að yfirskyni, að hann sé rit- höfundur, en tekur að sér alls konar störf, sem til falla. Fjallar myndin um það, hvernig honum tekst að útvega sér gistingu, en það er svo undir kvenhyllinni komið í það og það skiptið, hvernig til tekst. Myndin er röskrar hálfrar stundar löng. Útvarp Reykjavík L4UG4RD4GUR 9. desember MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi 7.20 Bæn 7.25 Ljósaskipti. Tónlistar- þáttur í umsjá Guðmundar Jónssonar píanóleikara. 8.00 Fréttir. Forustugr dagbl. (útdr.) Dagskrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin vali. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.20 Leikfimi. 9.30 Óskalög sjúklinga. Kristín Sveinbjörnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). 11.00 Hitt og þetta. Ásdís Rósa Baidursdóttir og Kristján Sigurjónsson sjá um barna- tíma. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónlcikar. 13.30 Ivikulokin. Blandað efni í samantekt Eddu Andrés- dóttur, Árna Johnsens. Jóns Björgvinssonar og Ólafs Geirssonar. 15.30 Á grænu ljósi, Óli H. Þórðarson framkv.stj. um- ferðarráðs spjallar við hlustcndur. 15.40 íslenzkt mál. Guðrún Kvaran cand. mag. talar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Vinsælustu popplögin, Vignir Sveinsson kynnir. 17.00 Trúarbrögði — IV. þáttur. Um gyðingdóm. Kristinn Agúst Friðlinnsson og Sigurður Árni Þórðarson tóku saman. Rætt við dr. Þóri Kr. Þórðarson prófessor. 17.45 Söngvar í léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDID 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Skollaleikur á Ströndum. Finnur Torfi Iljörleifsson talar við Pál Hersteinsson líffræðing um rannsóknir á íslenzka refnum. 20.00 Hljómplöturabb. Þor- steinn Hannesson kynnir sönglög og söngvara. 20.45 „Kona á hvítum hesti“, smásaga eftir Maríu Skag- an. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona les. 21.20 Gleðistund. Umsjónar- menni Guðni Einarsson og Sam Daniel Glad. 22.05 Kvöldsagan. Saga Snæbjarnar í Hergilsey, rit- uð af honum sjálfum. Agúst Vigfússon les (19). Orð kvöldsins á jólaföstu 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.45 Danslög. (23.50 Fréttir). 01.00 Dagskrárlok. nm LAUGARDAGUR - 9. DESEMBER 1978 16.30 Fjölgun í fjölskyldunni Þriðji þáttur er m.a um fæðingu í heimahúsum, erf- iða fæðingu og fyrstu daga í ævi ungbarnsins. Þýðandi og þulur Arnar Hauksson læknir. 16.50 lþróttir Umsjónarmaður Bjarni Fel- ixson. 18.30 Við eigum von á barni Annar þáttur. Marit saknar mömmu sinn- ar sem er á fæðingardeild- inni. Þýðandi Trausti Júlíusson. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 18.55 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Lífsglaður lausamaður Nýr breskur gamanmynda- flokkur í sjö þáttum um ungan rithöfund í Lundún- um, sem á hvergi heima, en geymir eigur sínar í farang- ursgeymsiu lestarstöðvar. Aðalhlutverk John Alder ton. Fyrsti þáttur. Lofa skal mey að morgni Þýðandi Ellert Sigurbjörns- son. 1 21.10 Myndgátan ; Getraunalcikur. Stjórnendur Ásta R. Jóhannesdóttir og Þorgeir Ástvaldsson. Umsjónarmaður Egill Eð- varðsson. 22.00 Barbarella Frönsk-ítölsk biómynd frá árinu 1967, byggð á vinsælli vísindaskáldsögu. Leikstjóri Roger Vadim. Aðalhlutverk Jane Fonda, John Phillip Law, Anita Pallenberg og Milo O’Shea. Sagan gerist um árið 40.000. Ungri stúlku, Barbarellu, er falið að hafa uppi á vísindamanni sem hefur horfið, og á leið sinni um geiminn lendir hún í margvfsiegum ævintýrum. Þýðandi Björn Baldursson. 23.35 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.