Morgunblaðið - 09.12.1978, Side 13

Morgunblaðið - 09.12.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978 13 Basar Umsjónarfélags einhverfra bama „UmsjónarféláK einhveríra barna“ heldur basar í safnaðar- heimili Laugarneskirkju laugardaginn 9. desember kl. 14. Basarinn er haldinn tii fjáröflunar fyrir sjóð meðferð- arheimilis einhverfra barna. Á boðstólum verður jólaskraut, kökur og ýmislegt fleira. Umsjónarfélag einhverfra barna var stofnað fyrir rösku ári til að vinna að málefnum einhverfra barna. Fyrsta og aðaltakmark félagsins er að koma upp meðferðarheimili sem gæti tekið við börnunum að lokinni dvöl þeirra á barnageð- deild þar sem hætta er á að árangur sá sem næst á deildinni tapist ef börnin fá ekki mark- vissa áframhaldandi kennslu og þjálfun. Síðast liðinn sunnudag lögðu ýmsir hljómlistarmenn málefni þessu lið sitt með tónleikahaldi til ágóða fyrir sama efni. Hans og Gréta sýnt í Hveragerði sunnudag Hveragerði 6.12. Leikfélag Hveragerðis frumsýn- ir barnaleikritið Hans og Grétu í Hótel Hveragerði næstkomandi sunnudag kl. 21. Leikstjóri er Sigurgeir H. Friðþjófsson em með helztu hlutverk fara Unnur Svavarsdóttir, Guðmundur Lárus- son og Aðalbjörg M. Jóhannsdótt- ir. Næstu sýningar verða miðviku- daginn 13. desember, laugardaginn 16. og sunnudaginn 17 desember. Fyrirhugað er að sýna Hans og Grétu á Selfossi milli jóla og nýárs og e.t.v. víðar er fram líða stundir. Höfundur leiksins er Willi Kriiges og þýðinguna gerði Halldór Ólafs- son. Þessi ævintýraleikur hefur verið sýndur áður hér á landi við miklar vinsældir, siðast í flutningi Leikfélags Vestmannaeyja. Georg. Pétur Gunnarsson ÉG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN „Pétur Gunnarsson vakti mikla og veröskuldaöa athygli, er hann sendi frá sér bókina Punktur punktur komma strik. . . og enn sem komiö er finnst mér hann komast meö ágætum frá verki sínu. Það hefur oröiö ákveöin stígandi frá fyrri bók, söguþráðurinn oröiö þéttari í sér, betur spunninn. . . eins og eftirvæntingin var mikil eftir Punktinn þannig verður hún enn meiri eftir þessa bók. . .” Heimir Pálsson (Visir) „. . . enn hnitmiðaðri saga en Punktur punktur komma strik ... hér er greinilega unniö á markvissan listrænan hátt. ..” Jóhann Hjálmarsson (Morgunblaóið) „. . . ný kynferöisleg vitund rafmagnar andrúmsloftiö. . . stórskemmtileg í sprettum og óborganleg lýsing á þeim furóulegu uppátækjum sem fylgja þessu skeiói... Fyrir svona nokkuó þakkar maöur kærlega.” W n Aóalsteinn Ingólfsson (Dagblaðiö) m*íiu' Bræðraborgarstíg 46 Sími 12923-19156 ÉC UM MlG FRÁMÉRm MlN PRISMA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.