Morgunblaðið - 09.12.1978, Síða 25

Morgunblaðið - 09.12.1978, Síða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978 25 fMtogusilritafrtfÞ Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuói innanlands. j lausasölu 125 kr. eintakið. Skipbrot vinstri manna í háskólanum Skömmu fyrir stúdentauppreisnina í Frakklandi í maí 1968 samþykkti Alþingi lög um Félagsstofnun stúdenta viö Háskóla Islands. Stofnunin hefur það hlutverk, aö annast hvers konar þjónustu í þágu stúdenta. Má þar nefna rekstur stúdentagarðana, matsölu, bóksölu og barnaheimila. Með því að koma stofnuninni á fót var stigið mikilsvert skref til að bæta aðstöðu stúdenta og á fyrstu starfsárum hennar var ráðist í stórframkvæmdir. Félagsheimili stúdenta var reist, tveimur barnaeimilum komið upp og ráðist var í byggingu hjónagarða, sem nú hafa verið teknir í notkun. Stúdentaráð Háskóla íslands kýs meirihluta stjórnar Félagsstofnunar stúdenta. Þegar áhrifa stúdentabyltingarinnar var farið að gæta verulega hér á landi og vinstri menn höfðu náð meirihluta í stúdentaráði gerðu þeir að sjálfsögðu gangskör að því að bylta stjórn Félagsstofnunar stúdenta. Starfsemi hennar skyldi verða í samræmi við byltingarkennda „umbótastefnu" hinna róttæku afla. Árangur „umbótastefnunnar" blasir nú við öllum. Frá því að byltingin var gerð hefur ekki verið ráðist í neinar nýjar framkvæmdir í þágu stúdenta. Ekki hefur einu sinni tekist að halda í horfinu á stúdentagörðunum og eru þeir í hinni mestu niðurníðslu. Þannig hefur verið staðið að málum gagnvart fjárveitingarvaldinu, að fjárveitingar hafa dregist saman ár eftir ár. Nú er svo komið.að stúdentar verða að borða kaldan mat við kertaljós í félagsheimili sínu nema fjármálaráð- herra þóknist að láta stofnuninni í té fjármagn til að greiða rafmagnsreikninga sína. Á það má einnig minna, að eftir efnahagsráðstafanir fyrrverandi ríkisstjórnar í febrúar s.l. ákvað stjórn félagsstofnunar að hafa þau lög að engu og greiða laun eins og lögin hefðu aldrei verið samþykkt. Við starfsfólkinu blasir nú, að það fær engin laun greidd vegna gjaldþrots. Þessi lýsing á skipbroti vinstri aflanna við störf í þágu stúdenta er ömurleg en hún er því miður sönn. Skýringin á því, hvers vegna þannig hefur farið er ekki einföld. Vafalaust ræður óraunsæi forystumanna stúdenta miklu. Að almenningi snýr sú hlið af félagsstarfsemi stúdenta, sem líklega endurspeglar mestu öfgarnar meðal þeirra. Boðskapur stúdenta á fullveldisdeginum 1. desember er síst af öllu til þess fallinn að auka þeim virðingu og skilning meðal almennings, sem nú er leitað til í því skyni að bjarga fjárhag Félagsstofnunar stúdenta. Undrun vekur, hve lengi vinstri mönnum hefur liðist að ráðskast með hag stúdenta að eigin geðþótta og einungis til ills. Þótt þeir hafi nú siglt allri þjónustustarfsemi í þágu stúdenta í strand má það ekki verða til þess, að hún falli niður. Sorphirðugjaldið Ein fyrsta stofnunin, sem skattheimtuflokkarnir settu á fót, var hugmyndabanki um að finna nýjar leiðir til þess aö fara ofan í vasa skattborgaranna. Svonefnt sorphirðugjald var ávöxtur þeirrar viðleitni. Það hefur vakið athygli, að annar af borgarfulltrúum Alþýðuflokksins kaus að standa nieð Sjálfstæðisflokknum um að fella það, sem að sínu leyti er virðingarvert. Á-hinn bóginn er þetta áþreifanlegt dæmi um þá ringulreið, sem nú ríkir í herbúðum skattheimtuflokkanna. Annars vegar togast þar á harðsnúinn hópur marxista, sem einskis svífst til þess að koma hér á sósíalískum búskaparháttum. Hins vegar eru hræddir kratar, sem ekki hafa haft einurð til þess að standa við stóru orðin. Milli þeirra og allt um kring er svo Framsóknarflokkurinn, sjálfum sér líkur og opinn í báða enda. Skattheimtuflokkarnir hafa nú sýnt sitt rétta andlit. Markmið þeirra er að brjóta niður hið frjálsa framtak og hefta umsvif einstaklingsins í atvinnulífinu og þjóðfélaginu yfirleitt. Alþýðubandalagsmenn gera sér ljóst, að þessu er ekki hægt að hrinda í framkvæmd nema með síendurteknum árásum á eignarréttinn og með því að skerða möguleika launafólks til þess að koma fótunum undir sig. Þess vegna kjósa þeir hin smáu skrefin í viðureigninni við verðbólguna. Með því að vekja sama drauginn upp á þriggja mánaða fresti, hyggjast þeir nota kverkatök sín á verkalýðshreyfingunni til þess að veikja og brjóta niður atvinnulífið og þar með efnahagskerfi þjóðarinnar. Fulltrúar Alþýðuflokksins á þingi og í bæjarstjórn hafa áþreifanlega orðið varir við, að hinir nýju kjósendur þeirra sl. vor þykjast illa sviknir. Þess vegna vita þeir naumast, í hvorn fótinn þeir eiga að stíga, afstaða þeirra verður æ reikulli og þeir reyna að bjarga sér með gusugangi í hinum smærri málum eða með því að bæta enn nýjum sýr.darfrum- vörpum og tiláögum við þá sópdyngju þingmála, sem eftir þá liggur. Afstaða borgarfulltrúa Alþýðuflokksins sl. fimmtudag, sem úrslitum réð um að fella sorphirðugjaldið, var vissulega tekin með hliðsjón af þessari veiku stöðu Alþýðuflokksins, — en hún sýndi líka manndóm, sem ekki hefur orðið vart hjá hinum ungu þingmönnum Alþýðuílokksins. ÞEGAR ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar setti lög í febrúar mánuði síðastliðnum gaf Alþýðusamband íslands út sérstaka töflu og línurit, sem sýndi „kauprán* ríkisstjórnarinnar. Morgunblaðið hefur lesendum til fróðleiks reiknað með sama hætti, hvað aðgerðir núverandi ríkisstjórnar, hafa í för með sér og hefur sett upp á sama hátt. Þar er gert ráð fyrir 35% verðbólgu á næsta ári, en eins og fram hefur komið hjá Ásmundi Stefánssyni hagfræðingi ASÍ má gera ráð fyrir að verðbólgan 1979 geti verið á bilinu 35 til 70%. Því má segja að ekki sé ofreiknað í þessum útreikningi Morgunblaðsins. Þá mun miðstjórn ASÍ hafa samþykkt tillögu frá Birni Þórhallssyni um að setja upp á sama hátt áhrif aðgerða núverandi ríkisstjórnar á útborgað kaup. Sá útreikningur hefur enn ekki séð dagsins ljós. mmMm FYRSU SKREFIÐ: 5-6 muuw........ þannig ut mioao v. ____— 25 þús. 25 þús. 25 þús 16 þús. febr. Samtals 114 þús. 159 þús. 30 þús. 222 þús 40 þús. 287 þús. 290 TAP MÁNOÐl M.DAU V® *>0 I HKBR4 AK 280 Svörl l.,.u óskcrtir kjarasumninga, Rauð lína - skertir kjarasamningar 270 \ Mismuiuir TAP 260 40.000 29.000 250 2MH 220+ 19.000 11.000 210+ _______—1— __— -------*--;—1 Toi i Aciost stP1 MARS APR. MAl Jl,N1 MEIRA EM mMUÐARIWJHUM Tafla þessi er unnin á þann hátt, að sömu launastærðir og eru í töflu ASI eru teknar og færðar til núvirðis, þ.e.a.s. fremsti dálkurinn sýnir sömu launastærðir að viðbættum áfanga og vísitöluhækkunum frá í febrúarmánuði. Síðan er gert ráð fyrir um 35%verðbólgu á næsta ári eða verðbólgu í samræmi við þær spár, sem Þjóðhagsstofnun hefur gert. Á vísitölutímabilinu fram í marz er gert ráð fyrir 9% hækkun, þá 8% hækkun og loks 7% hækkun, en að aðeins 5% komi til með að hækka kaupstigunum, sem umfram eru, verði eytt hverju sinni, svo sem gert var nú 1. desember, er 8 stigum var eytt. Mánaöar ti'kjur í nóvrmhor ÞÚ TAPAR Á EINU ÁRI 143.5 dí's. 11.481 jan. 11.481 írhr. 11.481 marz 17.681 apr. 17.681 maí 17.681 júní 22.517 júlí 22.517 átfúst 22.517 scpt. 25.832 okt. 25.832 nóv. 25.832 samtals 232.533 167.6 13.407 13.407 13.407 20.646 20.646 20.646 26.294 26.294 26.294 30.165 30.165 30.165 271.536 199.3 15.941 15.941 15.941 24.549 24.549 24.549 31.264 31.264 31.264 35.866 35.866 35.866 322.860 262.6 21.008 21.008 21.008 32.353 32.353 32.353 41.203 41.203 41.203 47.269 47.269 47.269 425.499 312.6 25.008 25.008 25.008 38.513 38.513 38.513 49.048 49.048 49.048 56.269 56.269 56.269 506.514 362.6 29.008 29.008 29.008 44.673 44.673 44.673 56.893 56.893 56.893 65.269 65.269 65.269 587.529 Þriðja skipið komið á bilunarstaðinn til aó gera vió Scotice: Kostnaður Mikla norræna þegar orðinn 250 milljónir ÞAÐ gengur ekki áíallalaust að gera við sæsímastrenginn Scotice, sem nú hefur verið bilaður í rúman mánuð. í gær kom þriðja viðgerðarskipið á vcttvang, en hin tvö haía ekki getað sinnt viðgerðinni. Við- gerðarkostnaður Mikla norræna símafélagsins, sem á strenginn, er nú orðinn um 250 milijónir króna og sú upphæð á sjálfsagt eftir að hækka áður en viðgerð lýkur. Margir aðrir aðilar hafa orðið að taka á sig fjárhagslegt tap vegna þessarar hilunar og má t.d. reikna með að tap Pósts og síma, erlendra símastjórna og Mikla norræna nemi hátt í 100 milljónir króna þar sem ekki hefur verið hægt að sinna símtölum milli íslands og ann- arra landa eins og ef allt hefði verið mcð fclldu. Scotice-strengurinn bilaði 5. nóvember og tveimur dögum síðar kom viðgerðarskipið Iris á vett- vang. Skipið var á staðnum í þrjár vikur, en varð þá að fara til Glasgow végna bilunar og skemmda, sem skipið varð fyrir á bilunarstaðnum. ; . • .. A þeim tima, sem Iris var á staðnum, gaf tvívegis veður til viðgerðarinnar, en í annað skiptið var skipið inni í Þórshöfn til að taka vatn og vistir og í hitt skiptið í höfn vegna sjúks skipverja þannig að sá tími nýttist ekki. Þá var mun stærra skip, Albert, sent á vettvang, en meðan skipið var á staðnum, þ.e. frá 28. nóvember þangað til í gær, gaf ekki veður til að gera við bilunina. I gær kom svo skip Mikla norræna á staðinn. Heitir það Northern og er ævinlega notað þegar bilanir sem þessar verða. Það hefur ekki fyrr komist til viðgerðarinnar þar sem það var í slipp og þegar það átti að fara niður nokkrum dögum eftir að bilunin varð, kviknaði í skipinu, þannig að segja má að þarna sé röð af óhöppum. Taisímasambandi við útlönd er nú þannig háttað að 2 línur eru til London, 2 til Kaupmannahafnar og 2 stuttbylgjurásif, Telex- þjónusta er með eðilegum hætti. Varnarliðið í Keflavík hefur lánað tvær af línum sínum og einnig hafa fengizt línur í gegnum jarðstöð í Grænlandi. Þrátt fyrir bilunina og að nú sé algjörlega stuðst við Ice-Can strenginn tókst að afgreiða 72 þúsund talmínútur í nóvember- mánuði. í október voru til saman- burðar afgreiddar 117 þúsund talmínútur. Bið eftir símtali til útlanda er mjög mismunandi eftir dögum og einnig á hvaða tíma dags samtalið er pantað. Algengt er þó að það taki 4—6 tíma að ná til annarra landa. Fimmtugasta uppbodid hjá KJausturhólum FIMMTUGASTA uppboð Klausturhóla, listmunaupp- boðs Guðmundar Axelsson- ar, verður haldið í dag og hefst klukkan 14 í uppboðs- sal fyrirtækisins við Lauga- veg 71. Seldar verða bækur og rit, alls 170 og er ýmislegt af gömlum og fágætum bókum á uppboð- inu, m.a. 1. útgáfa af Njáls- sögu — útgáfa Olaviusar. Ýmislegt markvert gerðist á vettvangi borgarmála í þessari viku, en s.l. fimmtudag var haldinn langur og strangur fundur í borgarstjórn, sem stóð í rúmlega 9 tíma. Tvennt hefur vafalaust vakið mesta athygli. Annarsvegar sú ákvörðun vinstri flokkanna að stórhækka skatta á fasteignir borgarbúa og hinsvegar sú stað- reynd að borgarstjórn felldi tillög- ur fulltrúa vinstri flokkanna í borgarstjórn um að taka upp nýjan fasteignaskatt í formi sorphirðugjalds. Sorphirðugjaldið úr sögunni S.l. laugardag gerði ég hér í blaðinu nokkra grein fyrir tillög- unum um sorphirðugjaldið, en það Birgir Isl. Gunnarsson. / Birgir Isl. Gunnarsson: Atlagan að átvinnu- rekstrinum gjald hefði aukið álögur á borgar- búa um 300 millj. kr. Þau óvæntu tíðindi gerðust í borgarstjórn að meirihlutinn kom ekki tillögum sínum í gegn. Annar borgarfull- trúi Alþýðuflokksins. Sjöfn Sigur- björnsdóttir, lýsti því yfir að hún væri andvíg þessum nýja skatti og greiddi því atkvæði gegn honum ásamt okkur sjálfstæðismönnum. Það mál er því úr sögunni og var það augljóst á fundinum, að aðrir fulltrúar meirihlutans sátu eftir með sárt enni, fullir vonbrigða. Stórhækkun fasteignagjalda S.l. þriðjudag komu fram tillög- ur um stórfellda hækkun annarra fsteignagjalda, þ.e. fasteigna- skatts, lóðarleigu og vatnsskatts. Fasteignamat á milli ára hækkar um 42%, en vinstri flokkunum í borgarstjórn finnst þar ekki nóg að gert. Þeir hafa ákveðið ennþá meiri hækkun. Fasteignaskattar af íbúðarhúsnæði eiga að hækka um 68.6%. Fasteigna-skattar at- vinnuhúsnæðis eiga að hækka um 110.8%. Vatnsskattur að hækka um 65%. Allar eru þessar hækk- anir með ólíkindum. I mörg ár höfum við sjálfstæðis- menn ekki viljað breyta álagning- arreglum fasteignagjalda. Við höfum meira að segja sum árin ekki að fullu fylgt hækkun fast- eignamats. Þannig var það t.d. árið 1976. Ástæðan er sú að við töldum að fasteignir sem skatt- stofn væri fullnýttur. Það væri því ósanngjarnt gagnvart borgarbú- um að leggja á þá hærri fasteigna- skatta. Þessa stefnu áréttuðum við í borgarstjórn s.l. fimmtudag. Grundvallarmunur á stefnu Hér kemur fram megin munur á stefnu sjálfstæðismanna og vinstri flokkanna í borgarstjórn. Ef sjálfstæðismenn hefðu haldið meiri hluta sínum í borgarstjórn s.l. vor hefðu Reykvíkingar ekki nú þurft að greiða stórhækkuð fasteignagjöld. Þessu þurfa Reyk- víkingar að taka eftir og muna. Við sjálfstæðismenn höfðum þann hátt á við gerð fjárhagsáætl- unar að gera okkur fyrst grein fyrir tekjunum, sem fyrri álagn- ingarreglur gáfu og sveigja síðan útgjöldin, bæði rekstur og fram- kvæmdir undir tekjurnar. Vinstri menn hafa greinilega annan hátt á. Þeir vilja fyrst kanna, hvað hægt er að kreista fram af nýjum tekjum með illu eða góðu. — Ástæðan er sú að allt aðhald skortir hjá þeim í fjármálastjórn- inni og þeim finnst að fjárþörfin sé nánast ótæmandi. Þetta er meginástæðan fyrir þessum grundvallarmun á vinnubrögðum. Sorfið að atvinnurekstrinum Sérstaka athygli vekur af hversu mikilli hörku vinstri menn ganga nú að atvinnurekstrinum í borginni. Nokkur raunhæf dæmi skulu nefnd (húsnúmerum er sleppt). Eigendur iðnaðarhúss við Súðavog greiddu í fasteignaskatt og lóðarleigu á þessu ári 863.437.-. Þurfa að greiða nú samkvæmt ákvörðun vinstri meirihlutans 1.893.960.-. Iðnaðarhús við Skeif- una greiddi í ár 1.331.654.-. Þarf nú að greiða 2.934.150.-. Iðnaðar- og verslunarhús við Síðumúla greiddi í ár 593.503.-. Þarf nú að greiða 1.281.070.-. Iðnaðar og verzlunarhús við Ármúla greiddi í ár 847.788.-. Þarf nú að greiða 1.837.145.-. Þessi dæmi eru tekin af algjöru handahófi og sýna glögglega hvaða hækkanir at- vinnurekstrinum er ætlað að bera. En er þetta tilviljun? Svo hygg ég ekki. Hér er augljóslega um að ræða sameiginlegt framtak Al- þýðubandalagsins í borgarstjórn og á Alþingi. Nú á að sverfa að öllum einkaatvinnurekstri. I borg- arstjórn skal það gert með stór- hækkun þeirra skatta, sem borgin ræður yfir. Á Alþingi skal það gert með auknum álögum í formi rikisskatta. I greinargerð með frumvarpi tii „laga um tíma- bundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu" er drepið á hugsanlega nýja skatta. Þar er rætt um „veltuskatta á ýmiskonar rekstur", fjárfestingarskatt og eignaskatt. Öllu er þessu stefnt gegn þeim einstaklingum sem atvinnurekstur stunda í einu eða öðru formi. Hér ræður Alþýðu- bandalagið ferðinni, en framsókn- armenn og Alþýðuflokkur fylgja bláeygir S eftir. Hér er um alvarlega atburði að ræða. Þessi atlaga að atvinnuveg- unum getur fyrr en varir riðið atvinnufyrirtækjum borgarbúa og reyndar allra landsmanna að fullu. Þá er skammt í atvinnuleysi og uppdráttarsýki í þjóðfélaginu. Eitt meginverkefni borgar- stjórnar er að örva atvinnurekstur borgarbúa. Stuðla að þróttmiklu ög fjölþættu atvinnulífi. Tillögur þær, sem nú hafa verið samþykkt- ar í borgarstjórn ganga í þveröf- uga átt og sama má segja um tillögur þær, sem sömu flokkar hafa boðað á Alþingi. Þessari alvarlegu atlögu að atvinnulífinu verður að hrinda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.