Morgunblaðið - 09.12.1978, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978
Kristín Áskelsdótt-
ir—Minningarorð
Fædd 30. ágúst 1939
Dáin 1. desember 1978
Sú harmafregn barst okkur 1.
des. að Kristín Áskelsdóttir hefði
látist af slysförum þann hinn
sama dag. Fimm barna móðir í
blóma lífsins er í skyndi burt
kölluð. Það er erfitt að átta sig á
svo snöggum umskiptum, átta sig
á því að Stína skuli ekki vera
lengur í tölu lifenda. Þessi reynsla
er okkur erfið, frændum og vinum
en þó erfiðust hennar nánustu,
börnum og eiginmanni.
Kristín var fædd á Litlu-Laug-
um í Reykjadal 30. ágúst 1939 og
var því 39 ára er hún lést. Hún ólst
upp hjá foreldrum sínum, Áskeli
Sigurjónssyni bónda í Laugafelli
Reykjadal og konu hans Dagbjörtu
Gísladóttu.r. Hún var næst yngst í
hópi sex systkina. Hún ólst upp í
glaðværum hópi systkina og
frænda og krakkarnir á Lauga-
bæjunum voru eins og einn
systkinahópur. Hún var snemma
mjög hænd að öllum skepnum ög
var sannkallað náttúrubarn. Þegar
hún komst á framhaldsskólastig
valdi hún Eiðaskóla. Hana langaði
til að kynnast öðrum stöðum þó að
framhaldsskóli væri í hlaðinu á
Laugafelli. Hún lauk landsprófi
frá Eiðum og dvaldi síðan á
Hallormsstað við skógræktarstörf.
Þaðan lá leiðin suður og hafði hún
hug á frekara námi en af því varð
ekki. Hún hafði tengst Austur-
landi sterkum böndum, því að þar
kynnstist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum Sigurðir Magnússyni
frá Jaðri, nýbýli frá Vallanesi.
Þegar hann hafði lokið námi sínu í
Reykjavík flytjast þau til Egils-
staða og byggðu húsið Bjarkarhlíð
5 sem var þeirra heimili eftir það.
Þau voru gefin saman 25. júní
1960. Þegar þau fluttust austur
voru synirnir orðnir tveir, Magnús
og Áskell. Á Egilsstöðum fæddust
þrjú seinni börnin, Dagbjört,
Björg og Sindri sem nú er aðeins
fimm ára. Kristín vann með
heimili sínu við hjúkrunarstörf
undanfarin ár. Það átti vel við eðli
hennar að sinna sjúkum og öldr-
uðum. Þegar ég sá hana nú síðast i
haust þá hafði hún orð á því hvað
henni líkaði þetta starf vel og lei't
björtum augum til framtíðar-
innar.
Á slíkum kveðjustundum, sem
maður fær ekki við ráðið hvenær
verða, leitar margt á hugann.
Þungur missir ástvinar er jafn-
framt þakklæti fyrir kynningu og
samfylgd. Þakklæti fyrir að hafa
átt þess kost að kynnast jafn góðri
og heilsteyptri manneskju og
Kristín var. Það var sama undir
hvaða kringumstæðum maður
hitti hana, æðruleysi hennar var
sérstakt. Eg kynntist henni fyrst á
fermingarári hennar er atvikin
höguðu því svo að hún varð
mágkona mín og fylgdist með
hénni ætíð síðan. Hún hafði til að
bera þá eiginleika sem vekja
traust, eiginleika sem oft er erfitt
að útskýra en hafa þetta ómeðvit-
aða aðdráttarafl. Ein af þessum
konum sem nágranninn getur
alltaf leitað til, ein af þeim konum
sem ýta sínum persónulegu áhuga-
málum til hliðar, án þess að hafa
orð á þegar aðrir leita aðstoðar
Hún var afskaplega mikill félagi
barna sinna, mikill vinur í fjöl-
skylduhópnum, skilningsrík.
Henni var mjög eiginlegt að vega
og meta hluti og atburði að manni
fannst alltaf á svo skynsamlegan
hátt. Hún hafði gaman af ferða-
lögum, ekki síst að dvelja með
fjölskyldunni inni í óbyggðum. Þar
naut hún samlífs við náttúruna á
sama hátt og hún naut þess að lesa
góðar bækur.
Allt þetta kemur fram í hugann
og margt fleira sem sýnir hennar
góðu eðliskosti. Það er því erfitt að
standa frammi fyrir því að vera
sviptur þessari góðu móður og
eiginkonu, þessari ágætu dóttur og
tengdadóttur, þessari elskulegu
systur. En minningin um hana
gefur styrk þeim sem eftir lifa,
þakklætið fyrir að hafa átt hana
að meðan sú stund mátti vara. Við
kveðjum hana öll með heitri bæn
til drottins um að hann blessi
heimili hennar, gefi Sigurði og
börnunum styrk til að þola þetta
mikla áfall, svo og foreldrum,
tengdaforeldrum og öðrum
ættingjum. I guðs friði.
Kári Arnórsson
Þungt er reitt til höggs þegar
kona í blóma lífsins er á einu
andartaki hrifin frá eiginmanni og
fimm börnum. Við spyrjum um
tilgang og verður fátt um svör.
Kristín Áskelsdóttir fæddist 30.
ágúst 1939. Hún var fimmta í
röðinni af sex börnum hjónanna
Dagbjartar Gísladóttur frá Hofi í
Svarfaðardal og Áskels Sigurjóns-
sonar frá Litlu-Laugum í Reykja-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu. Þau
hjónín byggðu nýbýlið Laugafell í
Litlu-Laugatúninu og búa þar enn
ásamt elsta syni sínum.
Við Stína vorum systkinabörn
og jafnöldrur, og í æskuminning-
um mínum á hún stærra rúm en
flestir aðrir. Við gerðum bókstaf-
lega allt saman fyrstu 16 ár ævi
okkar, lékum okkur saman úti og
inni, stunduðum búskap uppi á
Bæjarhól, veiddum hornsíli í ánni,
leituðum eggja, lærðum að synda,
háðum íþróttakeppni á eyrinni
ásamt hinum krökkunum á bæjun-
um riðum saman berbakt til að
skoða undur Þegjandadals, sömd-
um mergjaðar smásögur í samein-
ingu, sátum saman í skóla og
slóðadrógum og stýrðum hey-
vinnuvélum á samhliða túnum.
Ég dáði frænku mína og vinkonu
mikið, enda var hún mér fremri í
flestu, sem við tókum okkur fyrir
hendur. Hún var dugnaðarforkur
og sinnti margvíslegum störfum
heima á Laugafelli, annaðist
hænsnin, hljóp fyrir kindur og
hamaðist í heyskapnum á sumrin,
dró í sundur í réttunum á við
fullorðna og rogaðist með kart-
öflupoka ofan úr garði. Ég undrað-
ist það oft, hvað hún var sterk og
dugleg. Á þessum árum urðu mér
fyllilega ljósir þeir eiginleikar,
sem prýddu hana alla ævi, hug-
rekki æðruleysi, þrautseigja og
ósérhlífni, auk þess sem hún var
ákaflega skapgóð og vinföst. Fleira
mætti nefna, en þessir eiginleikar
fundust mér einkenna allt hennar
líf.
Leiðir okkar skildu, þegar við
vorum 16 ára. Stína vann fyrir sér
við ýmis störf, en hafði svo lokið
fyrsta bekk í Kennaraskólanum,
þegar hún giftist eftirlifandi
manni sínum, Sigurði Magnússyni
frá Vallanesi á Héraði, slökkviliðs-
stjóra á Egilsstöðum. Þeim fædd-
ist fljótlega fyrsta barnið, og
aðstæður leyfðu ekki frekara nám
húsmóðurinnar, enda húsbóndinn
enn í námi og nóg að gera við að
annast frumburðinn, auk þess sem
börnunum fjölgaði brátt.
Þau Sigurður settust að á
Egilsstöðum, þar sem þau komu
sér upp myndarlegu húsi og
sköpuðu börnum sínum gott heim-
ð
leikföng
liiatiMlligiW
Gullfallegar vandaöar dúkkur.
Dúkkur meö ekta hár.
Dúkkur sem gráta.
30 tegundir hver annarri fallegri.
Opiö tii kl. 6.
Vörumarkaðurinnhf.
Ármúla
1 A
ili, en þau eru: Magnús, 18 ára,
Áskell, 16 ára, Dagbjört, 14 ára,
Björg, 9 ára, og Sindri, 5 ára.
Mér fannst alltaf, að Stína hlyti
að verða bóndakona, enda hafði
hún allt til þess, yndi af skepnum
og útiverkum og þann dugnað og
þrautseigju, sem þarf til að yrkja
jörðina. Én hún undi hag sínum
vel á Egilsstöðum. Hún stundaði
þar ýmis störf, þegar tími gafst
frá heimilinu, vann í skógerð, á
sjúkrahúsinu og nú síðast á
elliheimilinu. Veit ég, að þeir
kunnu vel að meta, sem fengu að
njóta starfskrafta hennar.
Við sáumst ekki oft seinni árin,
frænkurnar, þar sem heimili
okkar urðu hvort á sínu lands-
horni. Þó hittumst við yfirleitt
einu sinni á ári, þegar við leituðum
heim á æskuslóðirnar til lengri og
skemmri heimsókna með barna-
hópana okkar. Þau Sigurður komu
á hverju sumri og tjölduðu í
Laugafellstúninu og töldu ekki
eftir sér sporin að heimsækja
gamla vini. Við Varmahlíðar-
mæðgur söknum þess sárt að eiga
ekki oftar eftir að sjá Stínu Áskels
koma sunnan túnið, oftast með
yngsta barnið á háhesti og annað
sér við hlið og kannski fleiri
skoppandi á eftir.
Sárastur mun mun þó söknuður
Sigurðar og barnanna fimm.
Blessun fylgi þeim, og megi
minningin um góða eiginkonu og
móður verða þeim leiðarljós um
ævina. Ég votta þeim, svo og
foreldrum og systkinum, téngda-
foreldrum og öllum öðrum vanda-
mönnum og vinum mína dýpstu
samúð.
Ég kveð vinkonu mína með
virðingu og þökk.
Kristín Halldórsdóttir.
Guðjón Ingimars-
son - Minningarorð
Fæddur 8. maí 1961.
Dáinn 29. nóvember 1978.
Ungur vinur er horfinn héðan af
heimi. Sautján ára lífsganga er
ekki löng ævi, en samt getur slíkt
æviskeið skilið eftir svo margar og
skírar minningar hjá þeim, sem
átt hafa samleið um veginn.
Hann Guðjón var ekki fyrir að
trana sér fram, hann var hægur og
hlédrægur en það duldist engum,
sem af honum hafði kynni, að þar
fór góður drengur með hreint
hjarta og því er gott að minnast
orða frelsarans: Sælir eru hjarta-
hreinir því þeir munu Guð sjá.
Hann fæddist í Keflavík 8. maí
1961 og var yngstur fjögurra
barna þeirra hjónanna Elinrósar
Jónsdóttur og Ingimars Þórðar-
sonar, Hátúni 8, Keflavík.
Frá fyrstu bernskuárunum eru
mér ofarlega í minni minningar
um það, þegar Guðjón litli var að
leik við frændsystkini sín og vini,
þá lék vorið um hug og vanga.
En eftir því sem árin liðu
breyttust leikirnar og hinir mót-
andi þættir persónuleikans fóru að
segja betur til sín. Þá fannst mér
oft að hlédrægnin væri helst til
mikil. En það var nú kannski
einmitt á þeim árum, að vináttu-
bönd okkar frændanna tengdust
þeim traustu böndum, sem entust
svo vel. í okkar árlegu haustferð-
um þegar við hjónin fengum
frændsystkinahópinn til helgar-
dvalar í Fjallakofann og farið var í
leiki og íþróttakeppni, þá naut
hann sín svo vel, því hann var
kvikur og frár á fæti.
Svo þegar hann var farinn að
vinna fyrir sér, má með sanni
segja að hann hafi verið fyrirmynd
sinna jafnaldra um reglusemi og
vinnusemi og það veit ég að hann
kom sér vel meðal vinnufélaganna
sem annars staðar. Guðjón var
heimakær drengur og það var oft
hin síðari árin þegar ég leit við á
Hátúninu að hann tók fram
nýjustu plötuna eða snælduna til
að lofa mér að heyra, um leið og
hann gat fagnað yfir því að
stöðugt væri hann að auka og bæta
hljómflutningstækin sín. Já, þann-
ig koma minningarnar ein af
annarri og ekki gleymist það
heldur hversu einlægur og ræktar-
samur hann var við hana ömmu
sína á Túngötunni. Á þeim vett-
vangi kom það kannski hvað best í
ljós hvern innri mann hann hafði
að geyma.
Álla tíð hafði hann yndi af því
að ferðast og á liðnu hausti fór
hann með foreldrum sínum til
Spánar. Sú ferð hafði verið
ákveðin með löngum fyrirvara og
markvisst undirbúin.
En í þeirri ferð tók hann að
kenna til í höfðinu og skömmu
eftir að heim kom lagðist hann inn
á sjúkrahús í Reykjavík en var
síðan sendur á sjúkrahús í London,
þar sem framkvæmd var höfuðað-
gerð. En það var ekki á mannlegu
valdi að ráða við það mein, sem
búið hafði um sig. Dauðinn kom
þann 29. nóv. Við banabeðinn var
elsti bróðurinn, Þórður. Hann
fylgdi bróður sínum utan og studdi
hann og styrkti í hinum þungu
raunum.
Um leið og innilegustu samúðar-
kveðjur eru fluttar ástvinum sem
syrgja sveininn unga, minni ég á
orðið sem segir: Sælir eru syrgj-
endur því þeir munu huggaðir
verða. Hinar björtu minningar um
hjartahreina drenginn munu þeg-
ar frá líður breyta sorg í sælu,
sælu yfir því að vinurinn ungi
gengur með Guði.
Kristján A. Jónsson.
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast
á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra
daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með
góðu línubili.