Morgunblaðið - 09.12.1978, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978
39
ekki dans á rósum hjá ekkjunni er
stóð nú ein uppi með dæturnar
ungar. En hún missti ekki kjark-
inn. Dreif sig í fiskvinnu og annað
er til féli. Kom hún dætrunum
öllum upp hjálparlaust, því ekki
voru tryggingar komnar til skjal-
anna á þeim árum. Tvær þær
yngri kostaði hún í skóla. Það var
hreint ótrúlegt hverju þessi smá-
vaxna kona fékk áorkað. Fyrir
utan það að hún vildi helst alltaf
vera að gefa af sínum litlu efnum.
Hún var alin upp frá 8 ára aldri
hjá afa mínum og ömmu að
Stóruborg í Grímsnesi! Þar var
hún börnum þeirra sem elsta
systir og rofnuðu þau tryggðabönd
sem þá mynduðust aldrei meðan
þau lifðu öll. Guðrún dó háöldruð
hjá dætrum sínum Júlíönu og
Ulfhildi á Kjarlaksvöllum. Þar
hafði hún verið í skjóli þeirra
síðustu árin. Það er óhætt að segja
að þær hafi ásamt manni Júlíönu
og dóttur þeirra og tengdasyni
borið hana á höndum sér.
Júlíana lauk kennaraprófi 1927
og næstu árin sá hún sér farborða
sem farkennari á ýmsum stöðum
m.a. hjá Halldóri á Hvanneyri og
átti hún þaðan margar góðar
minningar.
En 1932 fór hún sem farkennari
í Saurbæinn og þar giftist hún
1935 Sigurði Ólafssyni og hófu þau
búskap að Kjarlaksvöllum. Eftir
það var Saurbærinn hennar
starfsvettvangur meðan heilsa og
kraftar entust. Fyrst sem farkenn-
ari og síðan byggðu þau hjónin af
eigin efnum yfir skólann og héldu
hann í mörg ár heima hjá sér. I því
sem öðru reyndist Sigurður henni
stoð og stytta. Einnig Úlfhildur
systir hennar meðan hennar naut
við en hún lést ,1961. Júlíana og
Sigurður eignuðust eina dóttur,
Helgu Björgu, sem gift er Reyni
Guðbjartssyni og eiga þau 5 börn.
Einnig áttu þau eina fósturdóttur,
Báru Guðmundsdóttur, búsetta á
Akranesi. Á hún 3 börn en maður
hennar lést sviplega síðastliðið
Ágúst Sveinsson bóndi
í Ásum — Minning
Stöðugt fækkar þeim bændum
sem settu svip sinn á Gnúpverja-
hrepp á fyrri hluta þessarar aldar.
Allir höfðu þeir sín sérkenni og
persónuleika, og verða ekki
auðgleymdir þeim, sem urðu þeim
samferða um lengri eða skemmri
tíma.
Ágúst Sveinsson fyrrum bóndi
og símstöðvarstjóri í Ásum lést í
Reykjavík 7. þessa mánaðar á
nítugasta og öðru aldursári. Hann
var fæddur í Syðra- Langholti
Hrunamannahreppi 27. ágúst 1887
sonur Sveins Einarssonar bónda
þar og Guðbjargar Jónsdóttur
konu hans. í uppvexti vandist
Ágúst fljótt á að vinna venjuleg
sveitastörf eins og þá var títt, en
naut stuttrar skólagöngu eins og
margir aðrir á þeim árum, en
snemma kom í ljós að hann var
greindur vel og fjölhæfur eins og
síðar-átti eftir að sannast.
Hann kvæntist Kristínu
Stefánsdóttur frá Ásólfsstöðum
árið 1917, hinni glæsilegustu konu
og hófu þau búskap í Ásum sama
ár. Þrjú börn þeirra komust til
fullorðinsára, Þorvaldur gjaldkeri
ríkisféhirðis, Sveinn kennari og
Stefanía húsfreyja í Ásum og hafa
þau vissulega ekki farið varhluta
af kostum foreldra sinna. Þau
Ágúst og Kristín bjuggu rausnar-
búi í Ásum yfir fjörutíu ára skeið
en Kristín lézt árið 1963.
Margir eru þeir, sem hafa átt
leið að Ásum fyrr og síðar ýmissa
erinda, sem ætíð var leyst úr með
þeirri alúð og gestrisni, sem
þessari fjölskyldu er í blóð borin. í
dag búa stórbúi í Ásum
Guðmundur Ámundason frá Sand-
læk tengdasonur Ágústs og dóttir
hans Stefanía og halda uppi hróðri
Ásaheimilisins með reisn og sóma.
Ágúst í Ásum lagði á margt
gjörva hönd um dagana. Hann var
stöðvarstjóri landssímans í
fimmtíu ár og rækti það starf af
einstakri árvekni og lipurð, þótt
oft hafi það verið bæði ónæðis-
samt og þreytandi. Hann gegndi
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína og taldi aldrei eftir sér
að vinna fyrir aðra. Prófdómari
var hann við Ásaskóla um árabil,
og færði þá ávallt til betri vegar,
þótt kunnáttu væri eitthvað ábóta-
vant hjá nemendum. Meðhjálpari
var Ágúst við Stóra-Núpskirkju
um áratuga skeið, lét sér alltaf
annt um kirkjuhald í Stóra-Núps-
sókn, og kannski er það engin
tilviljun, að síðustu störf hans við
símstöðina voru að boða guðsþjón-
ustur.
Ekki var Ágúst gamall er ljóst
var, að hann var óvenju natinn við
skepnur og fór svo að hann tók að
stunda dýralækningar, enda dýra-
læknar fáir og strjálir á þeim
árum. Mun óhætt að fullyrða að
hann var mjög góðum hæfileikum
gæddur á þessu sviði og heppn-
uðust störf hans vel, þótt ekki væri
hann langskólagenginn í þessum
fræðum. Jafnvel á síðustu árum
hans leitaði ég oft ráða hjá honum,
ef veikindi voru í fénaði og ávallt
dugðu ráð hans vel. Ekki mun
Ágúst hafa orðið auðugur af
dýralækningum sínum og lítið
fengið í aðra hönd annað en
þakklæti þeirra, sem til hans
leituðu. Þar réði eðlislæg
greiðvikni hans og hjálpsemi við
náungann. En ófáir eru þeir gripir
orðnir, sem hann hefir komið til
heilsu og vakið til lífs á ný. Ágúst
var góður ferðamaður og eftir-
sóttur fylgdarmaður þeirra, sem
fara vildu um óbyggðir landsins.
Hann var aðgætinn, kastaði ekki
höndum til hlutanna, en þó
kappsfullur að ferðin gengi eins og
ætlað var, og farnaðist jafnan vel.
Hann ferðaðist einnig allmikið um
landið á vegum sauðfjárveikivarna
og kom sér þá oft vel einbeitt og
hressileg framkoma hans, því ekki
voru allir bændur hrifnir af
þessum sauðfjárveikirannsóknum.
Ágúst í Ásum var röskur
meðalmaður á hæð, þéttvaxinn og
vorpulegur. Viðmótið einart,
frjálslegt og hressilegt. Hann var
léttur í máli, hafði næmt auga
fyrir því skoplega, sagði skemmti-
lega frá og kunni ógrynni af
hnyttnum sögum af ýmsu því, sem
orðið hafði á vegi hans-um dagana
en ætíð græskulausum. Glettni
hans og kímni var jafnan jákvæð.
Ekki finnst mér það harmsefni
að aldnir menn kveðja og hverfa
til feðra sinna eftir langan dag. En
ég er þakklátur fyrir að hafa átt
þess kost að eiga samleið með
Ágústi í Ásum meira og minna allt
frá barnæsku og njóta hollráða
hans og velvildar í minn garð.
Ágúst mun ekki hafa gengið þess
dulinn síðasta misserið að hverju
fór og lét svo um mælt fyrir
nokkrum vikum, að hann væri að
leggja upp í langferð. Hann var
alla tíð ódeigur að ferðast og mun
hafa lagt upp í þessa ferð sáttur og
óttalaus og skyldi hann ekki líka
eiga góða heimvon svo mörgum
sem hann var búinn að rétta hönd
á langri ævi, bæði mönnum og
málleysingjum, — og þar bíða
vinir í varpa, sem von er á gesti.
Haraldur Bjarnason.
sumar. En þar með er ekki öll
sagan sögð. Öll sumur voru mörg
börn hjá þeim í sumardvöl. Meðal
annarra urðum við systurnar þess
aðnjótandi að koma til þeirra
börnum. Við fáum seint fullþakkað
það sem þau voru þeim og veit ég
að margir hafa þar sömu sögu að
segja. Það var rétt að börnin
tylldu í skólanum á vorin svo
mikið lá þeim á að komast í
sveitina til Sigga og Júllu. Og helst
vildu þau koma sem seinast á
haustin í bæinn. Ekki var nú
stjórnað með hávaða eða ofstopa-
gangi á bænum þeim en allt gekk
þetta nú samt. Heimilisbragurinn
var alltaf svo einstaklega
skemmtilegur. Siggi Ijúfur og
kátúr og alltaf að hrósa krökkun-
um og húsfreyjan hæg og prúð,
sívinnandi frá morgni til kvölds.
Enginn mátti fara þar hjá garði
án þess að þiggja góðgerðir og þær
ekki af verri endanum. I þessu
voru þau samhelt hjónin eins og
fleiru. Svo voru gestir helst leystir
út með gjöfum líka. Eg veit það
verður tómlegt að koma að Völlum
í sumar þótt ég viti að þar bíða nú
sem áður vinir í varpa.
Engum sem þekkti heimilis-
braginn á Kjarlaksvöllum kom á
óvart hve aðdáunarlega vel
Sigurður reyndist konu sinni í
veikindum hennar. Síðustu vikurn-
ar sat hann hjá henni allar stundir
sem hann mátti.
Honum og öðru heimilisfólki á
Kjarlaksvöllum votta ég einlæga
samúð.
Aldís Jóna Ásmundsdóttir.
„UPPGJOR RI$A“-
.UPPSKURÐUR'
í Laugardalshöll í dag laugardag kl. 3
íslandsmeistarar VALS og Rúmensku meistararnir DYNAMO BUKAREST í
fyrri leik liöanna í 2. umferö í Evrópumeistarakeppninni í handknattleik.
Rúmenar eru margfaldir heimsmeistarar og Valsmenn margfaldir
íslandsmeistarar. Þetta er því uppgjör tveggja risa liöa. 9 af leikmönnum
VALS hafa leikið meö landsliöi.
..UPPSKURÐUR * I HALFLEIK
Hinn snjalli töframaöur Baldur Brjánsson „sker
upp“ frægan íslenzkan dómarabúk í fyrsta sinn fyrir
opnum tjöldum. ATRIÐI SEM ÞJOÐIN HEFUR
BEÐIÐ EFTIR.
Aögöngumiöasala hefst kl. 13.00 í Höllinni.
Undirritaöir hvetja alla til að mæta og hvetja VAL
og hrópi:
ÁFRAM VALUR
versiunin ValgarÖur Leirubakka
Skattaþjonustan sf. Langholtsvegi 115 Bergur Guönason hdl. s. 82023.
Þvottahúsið rONIN 'SF 8 22 20 'I Husafel! LútvikHalldórsson I FASTBKWASALA LarK,honsvs<» 115 Aialstetnn Pélursson I ■■■■ 1Bæn**m*húsinu 1 simi 8 10 66 Benjúr Guonason hdl
FERÐASKFUFSTOFAN '■“"J ^ urval%BF viö Austurvöll Söluturninn Sunnutorg
Trésmiöja Jóns Gíslasonar Skemmuvegi 38, Kóp. s. 75910. «T fs LAUBALXK 2. ■iml 3BOSO