Morgunblaðið - 09.12.1978, Side 45

Morgunblaðið - 09.12.1978, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978 45 unum. Er við töluðum saman bar margt á góma og meðal annars skaut hann að mér vísum sem hann hafði ort í tilefni stjórnmála- ástandsins á íslandi í sumar (1978). Boðar brotnuðu stórir í búlkann kom mikið skarð flokkarnir voru fjórir en fórna þeim stærsta varö. Þó mikill sé íslands menning og mikil sé íslands fórn heilaga þurfti þrenning tii þess að mynda stjórn. Ólafur endurborinn æðstur tign þar ber þjóðarskútuna þorinn þungum áföllum ver. Benedikt Gröndal glaður glæða vill nýjan sið Einars er eftirmaður hans embætti tók hann við. Hjá Lúðvík er lítil kæti hann liggur í fletinu einn Öðrum voru úthlutuð sæti en að honum hlynnti ei neinn.“ E.V. • Meira popp „Eg er ein af þeim sem finnst of lítið gert fyrir stóru krakkana í sambandi við sjónvarp. Þessir poppþættir sem eru þar einstaka sinnum eru góðir og það mætti vera meira af þeim og hafa til dæmis Smokie, Bay City Rollers og Abba svo eitthvað sé nefnt. En hvernig er það með þessa sjónvarpsmenn, tóku þeir ekki myndir af hljómleikum Smokie í Laugardalshöllinni? Mér finnst það allavega tilvalið efni til að hafa eitthvert laugardagskvöldið og eins að endursýna frá Evrópu- söngvakeppninni lög eins og Wat- erloo með Abba og Manjana með Bay City Rollers. Ég veit að það eru margir krakkar sem hefðu ánægju af að sjá þetta og því skora ég að sjónvarpsmenn að taka þetta til athugunar sem fyrst. Poppaðdáandi." Svo mörg voru þau orð um poppið og að lokum er hér pistill um málverkasýningu, sem kona úr vesturbænum vildi koma á fram- færi: • Góð sýning „Ég fór á listaverkasýningu um helgina sem var haldin að Vagnhöfða 11, þar sýndi Jóhann G. verk sín. Ég vil að sem flestir viti um þessa sýningu, en henni lýkur á sunnudaginn. Ég var mjög ánægð með sýning- una og tónlistin sem leikin var þar fannst mér alveg frábær. Þarna var hægt að kaupa jólakort, plaköt og ljóðabók." Þessir hringdu . . . • Enn ráðist á benzínið I fyrirsögninni birtist í hnot- skurn álit bíleiganda nokkurs er kvað brátt koma að því að menn legðu bílum sínum endanlega þar sem enn hækkaði benzínverð og menn hlytu brátt að taka að mótmæla því kröftuglega. — Um margra ára skeið hefur Félag ísl. bifreiðaeigenda reynt að mótmæla sífelldum benzínhækk- unum og öðrum álögum á bíleig- endur, en fremur lítið hafa menn sinnt því mótmælatali. Hvernig væri að leigubílstjórar og aðrir atvinnubílstjórar, t.d. sendibíl- stjórar, og allur almenningur reyndi að koma sér saman um einhverjar aðgerðir. Aðgerðir sem SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á opna alþjóðlega skákmótinu í Lone Pine í vor kom þessi staða upp í skák Bandaríkjamannanna Peters, sem haföi hvítt og átti leik, og Ervin 29. Hg5++! - Kxgó 30. Dg4+ - KÍ6 31. De6+ - Kg5 32. f4+ - IIxf4 33. IIe5+ — Dxe5 34. Dxe5+ - Hf5 35. h4+! - Kg4 36. De4+ - Hf4 37. Dg6+! - Kxh4 38. Dg3+ og hvítur vann auðveldlega. Ástæða er til að benda skákáhuga- mönnum á nýjasta hefti tímarits- ins Skákar, en þar skrifar Bent Larsen ýtarlega grein um Lone Pine mótið. annað hvort miðuðu að því að benzínverðið lækkaði eða að kraf- ist yrði skýrrar og greinilegrar vegaáætlunar, mun ítarlegri en nú er að því leyti að ráðist yrði í miklu meiri framkvæmdir til lagningar bundins slitlags á vegi en nú er. Það er greinilegt að grípa verður til aðgerða og hér með auglýsi ég eftir aðila er vill hafa forgöngu um þau mál. F.Í.B. boðaði fyrir nokkru undirskrifta- söfnun til að fara fram á betri vegi, en hvað hefur orðið um hana? Er ekki með henni hægt að stíga eitt skref í þessa átt og hefja hálfgerða aðför að ráðamönnum og vekja þá til umhugsunar og framkvæmda, því það er kannski löngu búið að vekja þá til umhugs- unar og mál til komið að vekja þá til aðgerða. HÖGNI HREKKVÍSI % Hann er rftem,AÐ koha með FoM Demantshringar • Draumaskart KJARTAN ÁSMUNDSSON Gullsmíðav. — Aðalstræti 8 Bjóöum eitt fjölbreyttasta kjötúrval landsins. fff Veriö velkomín. CS=D^TTö^]D{E)©U®DO[R£] Lœkjarveri. Laugafæk 2. simi 3 50 20 Góð matarkaup Lambahamborgarhryggur kr. kg. 1.200- Kindahakk kr. kg. 1.210- Saltkjötshakk kr. kg. 1.210- Ærhakk kr. kg. 915- Folaldahakk kr. kg. 1.150- Nautahakk kr. kg. 1.980- 10. kg nautahakk kr. kg. 1.670- Svínahakk kr. kg. 2.280- Kálfahryggir kr. kg. 650- Kálfa kótilettur kr. kg. 967- Kálfalæri kr. kg. 962- 10 unghænur kr. kg. 1.075- 10 kjúklingar kr. kg. 1.470- Söltuö rúllupylsa kr. kg. 950- Reykt rúllupylsa kr. kg. 1.150- Útb. hangi frampartar kr. kg. 1.890- Útb. hangikjötslæri kr. kg. 2.350- Ódýra baconiö kr. kg. 2.400- Nautaframpartar til- búnir í frystinn kr. kg. 928- Opiö föstudaga til kl. 7. Opiö öll hádegi í desember. Opiö laugardag kl. 7—6.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.