Morgunblaðið - 21.12.1978, Síða 1
48 SÍÐUR
293. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1978
Prentsmiöja Morgunblaósins.
Járnbraut-
arslys við
Brighton
Brighton, Englandi, 20. des. AP.
Reuter.
TVÆR íarþegalestir rákust á
skammt fyrir utan Brighton á
Suður-Englandi í morgun og er
talið að þrjátfu manns að minnsta
kosti hafi slasast. Ekki ber fregn-
um saman um hversu margir hafi
látizt, ýmist talað um að tveir eða
fimm hafi dáið.
Areksturinn varð skammt frá
Patcham, um 8 km norður af
Brighton. Samkvæmt fréttum munu
um 150 manns hafa verið í lestunum.
Talið er að lestin sem á undan fór
hafi numið staðar til að bíða
ljósaskipta og hafi þá hin lestin
komið að og lent á henni. Lestar-
stjóri aftari lestarinnar var í hópi
þeirra sem biðu bana.
Fyrstu stúdentarnir voru útskrifaðir úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholtí í gær og var myndin tekin við þá
athöfn. Sjá frásögn á bls. 22. Ljósn’ Mbl Kris,inn
Fangelsun Indiru vekur reiði:
Allt logar í óeirðum
þúsundir handteknir í gær og nokkrir létust
Nýju Delhi, 20. des. AP. Reuter.
GEYSILEG fjöldamótmæli vegna fangelsunar Indiru Gandhi,
fyrrverandi forsætisráðherra. voru á mörgum stöðum í landinu í gær
og mögnuðust óeirðirnar heldur er á daginn leið. Fjórir létust þegar
lögregla skaut að hópi æstra stuðningsmanna Indiru í Bangalore og
þúsundir voru handteknar hér og hvar, meðal annars í Madras.
Bombay og Hyderabad.
Arizona
Tuccson. Arizona ?0. des. Reuter
EKKI er vitað hversu margir
hafa drukknað í Tuccson í
Arizona en stíflugarður brast
þar f gærkvöldi eftir að miklar
rigningar höfðu verið linnulaust
í þrjá daga.
Björgunarþyrlur voru sendar á
vettvang en allt var óljóst um
manntjón í kvöld. Þessar miklu
og sjaldgæfu rigningar í þessu
eyðimerkurríki hafa valdið
flóðum víðar í Arizona og
þúsundir hafa orðið að flýja
heimili sín. I Tuccson er og búizt
við að í ljós komi að miklar
eignaskemmdir hafi einnig orðið.
Spáö var áframhaldandi
rigningu á þessum slóðum.
15 milljón ára
nashyrningur
fannst í Kína
Peking, 20. des. Reuter.
KÍNVERSKIR fornleifafræðingar
hafa fundið mjög heillega beina-
grind af hornlausum nashyrningi
sem lifað hefur fyrir fimmtán
milijónum ára.
Sömuleiðis er hermt að steingerv-
ingar af tveimur fuglum af áður
óþekktri tegund hafi fundizt á
svipuðum slóðum. Þetta var í
austurhluta Shantunghéraðs. Á
þessu svæði var hitabeltisloftslag
fyrir milljónum ára. Aður hafa
fundizt þar ýmsir steingervingar af
dýrum og jurtum að því er frétta-
stofan sagði.
Flugvél af gerðinni Boeing 737
frá Air India með 126 mönnum
innanborðs var rænt á leið frá
Delhi til Kalkútta og látin lenda í
hinni heilögu borg Varansi. Far-
þegi sem slapp þar frá borði skýrði
frá því að ræningjarnir krefðust
þess að Indira Gandhi yrði látin
laus skilmálalaust og þeir fengju
að halda blaðamannafund með
helztu ráðamönnum þar sem þeir
kynntu málstað sinn. I símtali
mun sama krafa hafa verið sett
fram til forráðamanna Air India. I
kvöld voru hermenn á leiðinni til
Varansa og var ekki vitað hvort
ætlunin væri að reyna að gera
áhlaup á vélina.
í Bangalore fór allt í bál og
brand síðdegis og munu einna
hörðust átök hafa orðið þar. Fjöldi
manna fór um götur borgarinnar,
lét öllum illum látum, grýtti bíla
og strætisvagna og reyndi að
kveikja í húsum. Þar voru hand-
teknir um 4 þúsund menn.
Víða þar sem mótmælafundir
voru haldnir hleypti lögreglan af
skotvopnum upp í loftið til að
reyna að hafa stjórn á hópunum og
sums staðar var gripið til þess að
beita táragasi. í Nagpur dreifði
lögreglan til dæmis mannfjölda
sem ófriðlega lét með því að skjóta
af byssum upp í loftið.
Félagar úr Congressflokki
Indiru hafa skipulagt setumót-
mæli í báðum deildum indverska
þingsins. Tólf félagar eru í
hungurverkfalli og sitja í innri
forsal Neðri deildarinnar og
sextán hafa byrjað setumótmæli í
efri deild. Krefjast þeir rannsókn-
ar á spillingarkærum sem bornar
hafa verið fram á hendur syni
Desai, Kanti Desai.
Félagar í flokki Indiru hafa og
tilkynnt að þeir hafi ákveðið að
Tel Aviv, Jerúsalcm, Tyre.
Líhanon. 20. des. AP — Reuter
TALSMAÐUR ísraelsku stjórnar
innar greindi frá því í kvöld að
Moshe Dayan utanríkisráðherra og
Mustapha Khalil. forsætisráðherra.
| gangast fyrir fjöldagöngu til
heimilis Desai.
í Kalkútta kom og til alvarlegra
átaka og var þar kveikt í strætis-
vögnum og flutningatækjum.
Nokkrir lögreglumenn særðust.
Víða var verzlunum lokað í borg-
um þar sem mest var reiðin og
menn lögðu víða niður vinnu í
verksmiðjum og úti á ökrunum til
að taka þátt í fundum til stuðnings
Indiru Gandhi.
Egyptalands, mundu að öllum
líkindum hittast um eða fyrir
helgina og í sumum fregnum sagði
að fundurinn yrði á morgun,
fimmtudag. Er líklegt að fundur
þeirra verði í Briissel.
Þráðurinn verður
tekinn upp að ný ju
Átök í Teheran í gær
102 frammámenn hafa flutt gjaldeyri úr landi upp á síðkastid
Tehcran, 20. des. — Reuter
IIERMENN flykktust á Bazaar-
svæðið í Teheran í dag til að
dreifa örgum mannfjölda sem
hafði kastað lögreglumanni fram
af svölum svo að hann hlaut bana
af og skorið cyra af öðrum áður
en hann gat bjargað sér á flótta.
Lögreglumaðurinn sem lézt hafði
áður skotið tvo kaupmenn til
hana.
Sjónarvottar segja að tildrög
hafí verið slík að um eitt hundrað
kaupmenn hafi safnast saman við
Bazaarsvæðið og haft uppi hróp
gegn keisaranum. Einhver þeirra
hafi þótzt þekkja tvo lögreglu-
menn i hópnum, hafi þeir gert
aðsúg að þeim, höggvið eyrað af
öðrum, en hinn forðað sér inn í
verzlun, skotið þar tvo kaupmenn
og hlaupið upp stiga. Múgur og
margmenni fór á eftir honum og
hafði engar vöflur á, heldur
varpaði lögreglumanninum út af
svölunum með greindum afleið-
ingum. Bazaarsvæðið hefur
verið algerlega lokað síðan um
síðustu helgi en ætlunin hafði
verið að opna að minnsta kosti
nokkrar verzlananna í dag. Af því
varð ekki. Örstuttu síðar komu
hermenn vopnaðir vélbyssum og
rifflum á vettvang og dreifðist þá
mannfjöldinn von bráðar.
Við háskólann í Teheran kom
einnig til nokkurra átaka í dag og
voru hermenn þar á verði. Skólinn
hefur verið lokaður sl. 6 vikur.
Saksóknari Irans birti í dag
lista yfir 102 þekkta aðila, þar á
meðal eru tveir systursynir keis-
arans, sem flutt hafa gjaldeyri úr
landi þessa síðustu mánuði, sem
ólgan hafur verið hvað mest.
Hægagangsaðgerðir eru enn við
olíuframleiðsluna og var dags-
framleiðslan í dag um 56% af því
sem eðlilegt er.
Heimildir nánar keisaranum
sögðu að hann hefði áætlun á
prjónum sem myndi fara langt
með að leysa vanda landsins, en að
líkindum yrði áætlunin ekki end-
anlega fullgerð fyrr en eftir 10
daga eða svo.
Staðfest hefur verið að þessum
fundi hafi verið komið á fyrir
meðalgöngu Cyrus Vance, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og er líka
vitað að Bandaríkjastjórn hefur
kappsamlega reynt að leita leiða til
að þráðurinn yrði tekinn upp að
nýju. Dayan fór í dag til Genfar að
sitja SALT-ráðstefnu og mun þar
meðal annars hitta Gromyko, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna. Við
brottförina kvaðst Dayan ekki hafa
nein áform á prjónunum um að hitta
egypska ráðamenn, en nokkru eftir
að Dayan var farinn birti talsmaður
stjórnarinnar ofangreindar fréttir.
Fyrr í dag gerðu ísraelskar
orrustuvélar árás á þrjár stöðvar
PLO í S-Líbanon. Óvíst er um
mannfall. Eru þetta hefndaraðgerðir
vegna þriggja sprengjuárása sem
PLO hefur staðið að í austurhluta
Jerúsalem, tvær í dag við Jaffa og
Herodes-hlið og slösuðust margir.