Morgunblaðið - 21.12.1978, Side 10

Morgunblaðið - 21.12.1978, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1978 Sigurjón Jónsson: Rannsóknamefnd Alþingis um félagsyísindadeild háskólans Nokkrar umræður hafa spunnizt í blöðum út af greinum mínum varðandi vinnubrögð Ólafs Ragn- ars Grímssonar, er hann annaðist svonefnda hlustendakönnun Ríkis- útvarpsins og fékk í sinn hlut nokkra tugi þúsunda, enda þótt könnunin væri liður í kennslu hjá svokallaðri „félagsvísindadeild“ (fínt skal það vera) háskólans. Ég hefi á margan hátt orðið þess vár, að greinarnar hafa vakið feikna athygli út um allt land. Þá þótti mönnum og mál til komið, að flett væri ofan af vinnubrögðum þess manns, sem að áliti gamals starfsmanns alþingis hefur vaðið þar og víðar uppi af mestri drýldni og hroka (sbr. enn fremur ýmsa sjónvarpsþætti), og sérlega óvönd- uðu orðbragði um menn og málefni (t.d. um forráðamenn Eimskips og Loftleiða). Hefur og enginn orðið til þess að reyna að verja vinnú- brögð þingmannsins við áður- nefnda hlustendakönnun, enda óverjandi (tel hér ekki skýringar fjármálastjóra útvarpsins, enda sýnilega ekki gerðar með glöðu geði, og kveðst hann ekki vera þar neinn „apologizer"). — Svona í framhjáhlaupi vildi ég mega skjóta því inn hér, að í grein sinni í Morgunblaðinu varð Pétri mínum Péturssyni það á, að telja orðið apologizer vera af engilsaxneskum uppruna. Það mun vera rangt. Orðið er af latneskum stofni, en er komið inn í ýmis mál, þ.á m. ensku. Af framansögðum ástæðum geri ég hér með að tillögu minni, að flutt verði í sameinuðu þingi, samkv. heimild í þingsköpum, svohljóðandi tillaga: Alþingi ályktar að kjósa sjö manna rannsóknarnefnd, er taki til athugunar, hvort félagsvísinda- deild háskólans eða einstakir starfsmenn hennar hafi oftar en þegar er upplýst, tekið við sérstök- um greiðslum frá opinberum stofnunum eða einstökum fyrir- tækjum, vegna kannanna eða athugana, sem verið hafa liður í námi og kennslu fyrrnefndrar deildar. Þá fari og fram könnun á því, hvort verk þau, er þar eru unnin, séu að jafnaði á svo vondri íslenzku, „að firnum og býsnum sæti“, eins og komizt hefur verið að orði í ritdómi, og jafnframt það illa af hendi leyst, að líta verði á þau sem „Víti til varnaðar“, eins og þar er sagt. — Geta slík verk að sjálfsögðu haft mjög slæm upp- eldisáhrif á námsfólk. Greinargerð: Komið hefur í ljós, að einn af starfsmönnum félags- vísindadeildar háskólans fékk fyrir nokkrum árum greidda tugi þúsunda króna fyrir svonefnda hlustendakönnun, er þó var unnin sem liður í námi þar og kennslu. Mjög orkar tvímælis, hvort talizt getur viðeigandi, að maður á fullum launum hjá ríkisstofnun taki þóknun frá annarri ríkis- stofnun og/eða einstökum fyrir- tækjum fyrir verkefni utan úr bæ eða af landsbyggðinni, þegar verkið er unnið sem liður í námi eða kennslu, sem greidd er fullu og ríflegu verði. Einkum verður slíkt að teljast vafasamt, ef verkið er illa unnið eða skilað á verra máli en menn vita dæmi. Með tilvísun til ritdóms dr. Halldórs Guðjóns- sonar verður hér sýnt fram á, hvernig verk þetta var af hendi leyst: „Fyrsti og augljósasti galli skýrslunnar er sá, að hún er naumast skrifuð á íslenzku, né heldur á neinu máli, sem líkur eru til að höfundar eða aðrir kunni. Ef málið á skýrslunni er fyrir misk- unnar sakir kallað íslenzka, þá er það svo vond íslenzka, að firnum og býsnum sætir. Það er varla nokkur setning í skýrslunni, sem telja má rétta. Hér á eftir fara nokkur sýnis- horn úr skýrslunni. Á blaðsíðu 55 stendur: „Þessar niðurstöður sýna, að þjóðin gerir þá meiginkröfu til sjónvarpsins, að það geri henni dagamun, þegar hvílzt er frá störfum." Á blaðsíðu 59 stendur: „Einnig kjósa karlar föstudaginn meira en konur.“ Á blaðsíðu 46 stendur: „Hvað Ensku knattspyrn- una snertir, sker stundum hlust- unin sig úr; hún er heldur hærri en alltaf og oft til samans." Ef til vill er ekki rétt að ætlast til þess, að opinberar skýrslur sem þessi séu að öllu leyti til fyrir- myndar um íslenzkt mál, enda eru gömul og ný fordæmi um hið gagnstæða augljós öllum þeim ógæfusömu mönnum, sem vel eru lesnir í þessari ömurlegu bók- menntagrein. En þeir, sem borga vel fyrir gerð slíkra verka, eiga kröfu á, að þau séu ekki svo illa skrifuð að þau séu til athlægis og skammar og valdi skyldulesendum andlegum kvölum umfram þær, sem efnið hlýtur að valda. En þótt allar málvillur og ambögur skýrsl- unnar væru leiðréttar væri hún samt illa skrifuð, hún er illa skipulögð, óskýr og orðmörg. Það er til dæmis ómögulegt að finna einstök efnisatriði án þess að lesa skýrsluna alla, reyndar er líka erfitt að finna einstök atriði að lestrinum loknum, þau renna öl’ saman í graut. En þetta gerir nú kannski ekkert til, líklega vill enginn fletta upp í einstökum efnisatriðum skýrslunnar. Afburðamenn og örlagavaldar Bárður Jakobsson skráði AFBURÐAMENN QG ÖRLAGAVALDAR AFBURÐAMENN OG QRLAGAVALDAR /r»i«nm tuiiugu MIKIIMENHH SÖGUUM* KVIÞKTIIR TUTTUGU MIKILMEHNA SÖGUNNOR AFBURUAMENN OG ÖRLAGAVALDAR ÆVIÞÆTTIR TUTTUGU MIKILMENNA IS0GUNNAR V og síöasta bindiö í þessum bóka- flokki er komið út. Samtals hafa þá birst 100 æviþættir manna sem markaö hafa spor í sögunni og margir veriö örlagavaldar í ýmsum efnum. Þaö er ekki ofsagt aö þetta sé eigulegt safn á hverju heimili, í senn skemmti- legt og fræðandi. Sem stendur eru öll bindin fáanleg fyrir aöeins kr. 12.000.-, aö viöbættum söluskatti, innbundin í snoturt band. Ægisútgáfan. í öðru lagi eru upplýsingar í skýrslunni svo ónákvæmar að óhugsanlegt væri að treysta þeim, þótt þær þættu forvitnilegar. Þetta stafar meðal annars af því, að láðst hefur að geta þess, hvað átt er við með ýmsum mikilvægum en margræðum orðum og hugtök- um. Sem dæmi má nefna, að það er aldrei skýrt hvers konar fólk tilheyrir þeirri stétt, sem í skýrsl- unni er valið nafnið stjórnendur og æðri menntunarstörf. Enn- fremur hafa þau einkenni, sem notuð eru til að flokka svarendur, afar takmarkað félagsfræðilegt gildi og flokkunareinkennin eiga oft illa við spurningarnar. Það er ómögulegt að ímynda sér aðila, annan en Útvarpið, sem þyrfti á upplýsingum skýrslunnar að halda í einhverjum nytsamleg- um tilgangi. Og skýrslan hefur ekki heldur fræðilegt gildi eins og næst verður að vikið. Þriðji og versti galli skýrslunn- ar er nefnilega sá, að hún hefur varla nokkurt fræðilegt gildi nema sem víti til varnaðar, og ber þar margt til. Fyrst er það, að könnunin miðaði ekki að neinu fræðilegu marki, svo að upplýs- ingasafnið er einna líkast ósundurgreindum frímerkjasöfn- um, sem byrjandi safnarar kaupa í litlum umslögum hjá pröngurum." Hér verður látið staðar numið með tilvitnanir í ritdóm dr. H.G. En minna má á, að vinnubrögð af þessu tagi hafa þegar hlotið nafnið „öldurhúsaspeki" og „grautargerð" í munni fólks (sbr. grein, er birtist nýlega í dagblaðinu). Vinnubrögð af framansagðri gerð eru hvar- vetna forkastanleg, en sérstaklega ber að fordæma, ef vond verk eru unnin í æðri menntastofnunum, sem vera ættu öðrum til fyrir- myndar að því er varðar vand- virkni og óhlutdrægni. Þá gerir alþýða manna og þær kröfur, að þeir, sem þar veljast til starfa, séu öðrum fyrirmynd um háttvísi og siðgæði í orðum og athöfnum (gerist t.a.m. ekki opinberir verj- endur sænskra klámsagna), enda hafa ýmsir þeirra mörg orð um siðgæði annarra. Vonandi eru þar ekki að störfum menn þeirrar gerðar, sem sagt var frá í Þjóðvilj- anum fyrir allmörgum árum, en þar kom nefnilega frásögn af manni, sem verið hafði við nám erlendis; hitti þar landa sinn og furðaði sig mjög á því, hvað námsmaðurinn var framlágur að morgni á öldurhúsi nokkru, en í ljós kom, að hann hafði þá tekið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.