Morgunblaðið - 21.12.1978, Síða 16

Morgunblaðið - 21.12.1978, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1978 Hluti af myndum scm hanga uppi i vinnustofu Halldórs. en Fjóla er þarna með myndir af Kristjáni Eldjárn og Jónasi Arnasyni. Sýnir Karikatura o g frummyndir Halldórs Péturssonar „Erfitt að hýsa alla þessa kalla“ Halldór Pétursson list- málari skildi eftir sík þúsundir mynda sem hann hafði teiknað af mönnum úr þjóðlífi landsins á undanförnum áratug- um. Sumar þessara mynda eru skissur sem hann teiknaði eftir minni, hann teiknaði mikið eftir sjónvarpinu og síðan fullgerði hann margar þessara mynda í karikaturstíl og nú hefur ekkja Halldórs, Fjóla Sigmundsdóttir, komið hluta af þessum myndum fyrir í vinnustofu listamannsins að Drápuhlíð 11 og mun hún hafa opið hús þar daglega til jóla milli kl. 12.30—2 daglega og frá kl. 6—7, en þessar myndir eru til sölu og eru þar á ferð margir þjóðkunnir menn. Þá mun Fjóla einnig hafa til sýnis að Drápuhlíð 11 hluta af and- litsmyndasafni Halldórs og nokkrar styttur af víkingum og hestum Halldórs eru til sölu í vinnustofunni. „Eg vona að fólk hafi áhuga á að fá þessar myndir af vinum og kunningjum," sagði Fjóla, „og ætla ég að hafa hér möppur með ljósmyndum sem fólk hefur átt hér jafnvel áratugum saman eða frá 30 ára tímabili sem Halldór teiknaði þúsundir manna og í þessum möppum eru einnig handrit að ýmsu sem snerti starf Halldórs í myndskreyting- um, m.a. mikið af hestavísum. Fólk getur því sótt þessar Ijósmyndir hingað um leið og það getur skoðað teikningarnar. Ef fólk sýnir áhuga á myndun- um sem eru á boðstólum þá er mögulegt að ég haldi þessu áfram, því hjá mér eru möppur með morgum þúsundum mynda af íslenzku fólki sem Halldór teiknaði og það er erfitt að hýsa alla þessa kalla, þeir taka mikið pláss. M.a. eru hér nokkur hundruð myndir af leikurum frá síðustu áratugunum og þettd eru bæði svarthvítar myndir og litmyndir, en síðasta bókin sem út kom með verkum Halldórs áður en hann lézt var einmitt litmyndabókin Helgi skoðar heiminn. Halldór gerði þann myndaflokk árið 1975 og þegar kom að útgáfu í bók var ákveðið að fá Njörð P. Njarðvík til þess að gera bókartexta með mynd- unum. Venjulega var Halldór fenginn til þess að myndskreyta bækur, en Helgi skoðar heiminn varð til með hinni aðferðinni, j).e. Halldór teiknaði myndasögu sem síðan var settur texti við.“ - á.j. Fjóla með víkinga og hestastyttur Halldórs. Ljósmynd Mbl. Efst er sjálfsmynd af llalldóri ungum, en fyrir neðan eru Emilía. Þorsteinn Erlingsson og Ólafur Thors. Þessar myndir eru málaðar í litum. Sýnishorn af karikaturmyndum Halldórs sem nú eru til sýnis að Drápuhlíð II.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.