Morgunblaðið - 21.12.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.12.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1978 FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breiðholti brautskráði í gær sína íyrstu stúdenta. Einnig voru fyrstu sveinarnir sem brautskrást án þess að hafa verið á samningi hjá meistara útskrifaðir frá skólanum í gær. Brautskráningarathöfnin fór fram í Bústaðakirkju og hófst með ræðu skólameistara Guðmundar Sveinssonar. Guðmundur sagði m.a. að hrautskráning þessi markaði tímamót í sögu skólans og hoðaði jafnframt nýja tíma. I ræðu skólameistara kom það fram að 1120 nemendur voru skráðir við skólann í upphafi starfsársins í septem- ber síðast liðnum. Nú við lok haustannar eru 950 nemendur við skólann en 140 nýir nem- endur koma í skólann við upphaf vorannar. 64 nemendur útskrifuðust Fyrstu stúdentarnir og sveinamir frá Fjölbrauta- skólanum i Breiðholti Helga María Karls- dóttir hlaut hæstu einkunn á stúdents- prófi Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti. Hér tekur hún við verð- launum fyrir námsár- angur úr hendi skóla- meistarans Guðmund- ar Sveinssonar. ingunni söng Ingveldur Hjaltested nokkur lög við undirleik Guðna Þ. Guðnason- ar organleikara kirkjunnar. Að því loknu voru flutt ávörp. Ingi Þór Hermannsson for- maður nemendafélags Fjöl- brautaskóla Breiðholts talaði fyrir hönd nemenda og þakk- aði þeim sem útskrifuðust störf í þágu félagsins. Matthías Á. Guðmundsson talaði fyrir hönd þeirra er útskrifuðust og Ármann Ólafsson talaði af hálfu kenn- ara og starfsfólks skólans. Að lokum ávarpaði Guðmundur Sveinsson nemendurna sem útskrifuðust. — Sveinar útskrifaðir i fyrsta skipti án þess að hafa verið á samningi hjá meistara frá Fjölbrautaskólanum í gær, þar af 7 sveinar í húsasmíði og 21 stúdent á þremur náms- sviðum. 10 stúdentar útskrif- uðust í almennu bóknámi, 8 á heilsugæslu- og sjúkraliða- braut, 7 á heilbrigðissviði og 4 á viðskiptasviði. Frá öðrum deildum skólans útskrifuðust: 1 á listasviði, 2 á uppeldissviði, 16 nemendur með almennt verslunarpróf, 4 með sérhæft verslunarpróf ög 4 útskrifuðust úr rafvirkja- námi en eiga eftir menntun hjá meistara. Skólameistari sagði að stað- ið hefði verið við það sem lofað hefði verið er skólinn tók til starfa haustið 1975. í fyrstu hefði því verið lofað að veita nemendum hæfni og færni, veita þeim nám sem gerði þeim kleift að fá rétindi á sviði heilbrigðis- og viðskiptaþjón- ustu og í þriðja lagi að brautskrá stúdenta á öllum námsbrautum. „Fátt hefur hvatt nemendur eins til dáða og hrakspár og sögur um svik skólans við þá og brautskráningin í dag mun verða til þess að hrekja þessu baktali," sagði Guðmundur. Er skólameistari hafði lokið tali sínu afhenti hann próf- skírteini. Bestum árangri á stúdentsprófi á almennu bók- námssviði náði Helga María Karlsdóttir, hún lauk 138 einingum og hlaut 379 stig. Á heilbrigðisviði náði Laufey Oddsdóttir bestum árangri, hún lauk 133 einingum og hlaut 242 stig. Að lokinni skírteinaafhend- Fyrstu sveinarnir sem brautskráðir eru án þess að hafa verið á samningi hjá meistara. Myndir Kristinn. I hjólastól en lauk menntaskóla- námiá3i ári — og varð 3. hæstur á lokaprófi JÓHANN Pétur Sveinsson var meðal þeirra stúdenta senj útskrifuðust frá Mennta- skólanum í Ilamrahlíð i gær. Jóhann er 19 ára og lauk hann námi sínu á 3Vi ári en hanp er fatlaður og er í hjójastól. Er Jóhann var spurður að því hvernig gengið hefði að sækja skólann vegna fötlunarinnar sagði hann það hafa gengið tiltölulega vel og kvað hann skólafélaga sína hafa verið mjög hjálplega. Jóhann sem stundaði nám á félagsfræðisviði var 3. hæstur á lokaprófi við skólann og hefur hann í hyggju að setjast í Háskólann næsta ár. „Ég hef ekki ákveðið enn hvað ég mun leggja stund á. Ætli það verði ekki annað hvort lögfræði eða viðskiptafræði," sagði Jóhann. Jóhann er frá Varmalæk í Skagafirði en hann býr í húsi Sjálfsbjargar við Hátún. í gær héldu íbúar hússins honum veglega og fjölmenna veislu og fékk Jóhann fjölda gjafa í tilefni dagsins. „Ég vildi fá að koma fram þökkum til allra þeirra sem hafa stutt mig gegnum menntaskóla- árin og til hússins fyrir þessa veislu, ég hef átt mjög skemmti- legan dag hér,“ sagði Jóhann að lokum. Jóhann ásamt forcldrum sínum. Svcini Jóhannssyni og Ilcrdísi Björnsdóttur. Mynd Kristinn. Jólavaka í Dómkirkjunni JÓLAVAKA verður í Dóm- kirkjunni næstkomandi föstudagskvöld klukkan 22:10 og er hún í umsjá Kristilegra skólasamtaka og Kristilegs stúdentafélags. Á dagskrá vökunnar verður m.a. helgileikur, 2 sönghópar koma fram, almennur söngur og síð^n eins konar spurningaþáttur þar sem þátttakendur fjalla um viðhorf sitt til jólanna og boðskapar þeirra. Gert er ráð fyrir að dagskráin standi yfir í 45 mínútur og segja aðstandendur dagskrárinnar að þarna gefist fólki tækifæri til að staldra við að lokinni verslunarferð til að hugleiða það sem framundan er áður en jólahelgin gengur í garð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.