Morgunblaðið - 21.12.1978, Side 25

Morgunblaðið - 21.12.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1978 25 Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins: Sérstakar aðgerðir í málefnum þroska- heftra barna 1979 Á FUNDI borgarstjórnar í dag verður tekin fyrir tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins þess efnis að Reykja- Sídustu sölur ytra fyrir jól IIAFFARI frá Grundarfirði land- aði rúmlega 43 tonnum af fiski í Fleetwood í gar og fékk 18 milljónir króna fyrir aflann, meðalverð 417 krónur. Þetta var síðasta sala íslenzks fiskiskips erlendis fyrir jól, en einhver skip munu selja ytra milli jóla og nýárs. í fyrradag seldu tvö skip afla sinn í Grimsby. Frigg landaði 70 tonnum og fékk 28,9 milljónir fyrir aflann, meðalverð 413 krónur, Sindri landaði 90 tonnum og fékk 35,7 milljónir, eðalverð 398 krónur. víkurborg leggi á næsta ári sérstaka áherzlu á aðgerðir í málefnum þroskaheftra barna í tilefni barnaársins 1979. I tillögunni er meðal annars gert ráð fyrir aðgerðum varðandi dagvistun á almennum dagvistunarstofnunum. í þessu felst meðal annars sérþjálfun fóstra, samræming á fóstru- og þroskaþjálfanámi. í byrjun er gert ráð fyrir vistun barna á tilteknum dagvistunarstofnun- um en síðar munu allar dag- vistunarstofnanir taka við börnunum. Tillagan gerir einnig ráð fyrir aðstoð við foreldra þroskaheftra barna varðandi skammtímavistun svo að þeir geti notið orlofs. Þá er og gert ráð fyrir eflingu heimilishjálpar. Tillaga sjálfstæðismanna er í samræmi við samþykkt félags- málaráðs, sem gerð var 1976. Talsverðar skemmdir urðu á gluggaumhúnaði í setustofu í húsi aldraðra við Lönguhlið og hér hefur smiður hafið lagfæringar, en skemmdir urðu einnig nokkrar af sóti. Hugsanleg íkveikja í íbúð- ÞORSKVEIÐIBANN hjá báta- flotanum tók gildi í gær og stendur það til áramóta. Á þessu tímabili má hlutfall þorsks í aflanum ekki fara yfir 15%, en bátaflotinn verður að langmestu leyti stopp fram yfir áramótin. Hjá togaraflotanum var bannið með þeim hætti að togurunum var bannað að stunda þorskveiðar í 21 dag á tímabilinu frá 15. nóvember til áramóta. Mjög er misjafnt hvort togararnir hafa lokið þessu banni og hvað þeir hafa gert á banntimabilinu. Margir togaranna fóru á aðrar veiðar eins og ufsa, karfa, ýsu og grálúðu og margir sigldu með aflann. Einhver skipanna hafa verið sett í klössun og önnur hafa legið bundin við bryggju hluta tímabilsins. Um hátíðarnar verða sjómenn á togurum undir 500 tonnum í landi samkvæmt lögum, en þar er kveðið á um að þrjá sólarhringa yfir jólahátíðina skuli þeir vera í landi. Stóru togararnir geta hins vegar verið á veiðum þennan tíma. Þannig verða allir togarar Út- gerðarfélags Akureyrar að veiðum meira og minna yfir jólin að sögn Vilhelms Þorsteinssonar. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hluti skipanna væri búinn með þorskveiðibannið og hefðu skipin farið á karfaveiðar, ufsa, ýsu, grálúðu og steinbít. Akureyr- artogararnir hefðu hins vegar ekki siglt nemá tvisvar á þessu ári, einu sinni til V-Þýzkalands og einu sinni til Englands. Að öðru leyti hefði afli skipanna verið unninn á Akureyri. Aðspurður um hvernig gengi að manna skipin yfir hátíð- arnar, sagði Vilhelm að það væri ekki vandamál. Hins vegar væri það vandamál hversu mikið fram- boð væri af mönnum á skipin og væri það meira um þetta leyti árs en yfirleitt á öðrum tíma ársins. Það væri meðal annars vegna skólafólks, sem vildi ná sér í aukapening í jólafríi. Jón Páll Halldórsson á ísafirði sagði í samtali við Morgunblaðið að flestir togaranna væru búnir með um helming banntímans og sagðist Jón Páll reikna með að allur flotinn yrði inni um jól og áramót. Hann sagði að undanfarið hefði tíð verið erfið og því lítill afli borizt á land. Atvinna hefði þó verið nokkuð stöðug og dagvinna regluleg í húsunum. Þó hefðu dagpartar fallið úr í vinnu. Jón Páll sagði að línubátunum væru allar bjargir bannaðar fram til áramóta. Enginn þeirra hefði náð kauptryggingu í desember, en til að ná henni þyrftu þeir 95 tonn. Þeir hefðu hins vegar aflað frá 69 tonnum og upp í 74 tonn fram til þess tíma er þorskveiðibannið tók gildi. Flakahækkunin ætti að vega upp oliuverðhækkun ÝTARLEGAR upplýsingar um áhrif fiskverðshækkunar á Bandarikjamarkaði á íslenzkt efnahagslff liggja enn ekki fyrir, en af þeim upplýsingum sem fyrir liggja sýnist vera hækkun, sem nemur 10 til 12% á allstórum hluta freðfiskframleiðslunnar, sem gæti verið miðað við samsetningu framleiðslunnar f fyrra á miili 35 og 40% af heildartekjum fiskfrystingarinn- ar. Það þýðir að þetta er 4 til 5% hækkun á tekjum frystihúsanna — sagði Jón Sigurðsson þjóð- hagsstjóri í samtali við Morgun- hlaðið í gær. Jón kvað þessa hækkun að sjálfsögðu vera kærkomna, en í því sambandi kvaðst hann vilja minna á, að flökin, sem nú hækka um 10 til 12% hafa ekki breyzt á verðskrám í Bandaríkjunum í meira en ár og því kvaðst hann telja ólíklegt að verð á þeim breyttist aftur á næstu misserum og því sé hér í raun og veru hækkunin fyrir árið sem í hönd fer. I þjóðhagsspánni var áætlun um 6% hækkun i erlendri mynt á útflutningsvöruverði. Enn hefur það ekki náðst fyrir freðfiskinn, nema eitthvað fleira hækki og koma þar til álita Rússlandsvið- skiptin. Litlar líkur eru á að blokkin hækki, þar sem síðasta hækkun fól í sér hækkun á henni eingöngu og flökin og flaka- pakkarnir fylgdu ekki í kjölfarið. Þó getur verið að þetta komi eitthvað öðru vísi fram við samsetningu framleiðslunnar 1978. Þetta munu þó vera fjár- hæðir í námunda við 2'A til 3 milljarða króna á fob-verði á ári. Er þetta með fyrirvara um að enn liggur ekki fyrir nákvæm sundir- liðun á samsetningu framleiðsl- unnar í ár. I framhaldi af þessu vildi Jón minna á að nú síðustu daga hafa borizt fréttir af hækkun olíuverðs. Hækkun, sem OPEC-ráðherrarnir tilkynntu, er að sögn sérfróðra að hluta þegar komin fram í Rotter- damskráningunni, sem okkar verð á olíu er miðað við, enda hefur ekki farið dult að þegar hefur orðið hækkun á olíu. Olíuvöruinn- flutningur Islendinga er mikill að vöxtum, líklegast á milli 25 og 30 milljarðar á árinu 1978, þ.e.a.s. heldur hærri fjárhæð en út- flutningsverðlagið á flökum þeim, sem hækkuðu nú. Jón kvaðst ekki vilja gera úr þessu nakvæmt dæmi, er Morgun- blaðið spurði hann, hvort þessir tveir liðir vægju hvor annan upp efnahagslega hérlendis, en taldi nauðsynlegt að menn skoðuðu þessa fiskverðshækkun í ljósi þessara staðreynda. Auðvitað hafa viðskiptakjör okkar vænkazt, þar sem við vissum um olíuverðs- hækkunina fyrir nokkrum vikum en þessa hækkun vissum við ekki um fyrir víst fyrr en nú nýlega — sagði Jón. Hann sagði að hann teldi ekki að svo stöddu þessa þróun rísa upp úr fyrri spám um útflutningsverðlag, en hins vegar sagðist hann telja að innflutnings- verðlag vegna olíuverðbreyting- anna sé frekar vanmetin í spám. „Þetta er mjög mikilvæg verð- breyting fyrir okkur, en þegar maður lítur til innflutningsverð- breytinga og til þess að þegar hafði verið gert ráð fyrir verðbreytingum, sem aldrei gerast alveg jafnt, þá tel ég þetta ekki vera neinn búhnykk, en velkomna búbót,“ sagði Jón Sigurðsson. Eitthvað á þessi breyting að auðvelda ákvörðun fiskverðs, en í því sambandi má minna á að olíukostnaður er hærra hlutfall í útgerðarskostnaðinum en í þjóðar- búskapnum og gerir það málið erfitt og er þetta því engin lausn úr þeirri klípu, sem fiskverðs- ákvörðun er í, þótt segja megi að málið sé betur vaxið eftir en áður. um aldraðra við Lönguhlíð NOKKllIR vistmanna í dvalar- hcimili aldraðra við Lönguhlíð urðu varir við að citthvað óvenjulegt var á seyði aðfarar- nótt miðvikudagsins og í ljós kom að eldur var laus í gluggatjiildum í setustofu á þriðju hæð hússins. Þrjátíu vistmenn búa á hcimilinu. 26 konur og 4 karlar og sagði húsvörðurinn Friðrik Ingþórs- son að kona á þriðju hæðinni hefði fyrst orðið vör við að eitthvað torkennilegt væri á ferðinni og þau húsvarðarhjón- in hefðu einnig vaknað við brothljóð og farið til að huga að hvaðan það hefði komið. — Þegar ég kom upp stigann þá sá ég hvar konan kom á móti okkur og spurði hvað um væri að vera og hringdum þegar á slökkviliðið sem kom eftir ör- skamma stund. Maður með reykgrímu var sendur í reykhaf- ið, en hurðir inn á gangana voru lokaðar svo og niður stigagang- inn þannig að reykur barst ekki um húsið út frá setustofunni, sagði Friðrik. Mjög fljótt tókst að slökkva eldinn, en skemmdir urðu miklar á gluggatjöldum, gluggakarmi og rúður brotnuðu. Þá urðu veggir og loft svört af sóti og senda verður öll húsgögn María Magnúsdóttir var ein þeirra er vaknaði við brothljóð. Ljósm. Kristján. í setustofunni í hreinsun, þannig að tjónið er allmikið. — Ég var nýlega sofnuð þegar ég heyrði einhvern hávaða, sagði María Magnús- dóttir í samtali við Mbl., en stundum kemur fyrir að hávaði berst inn af götunni. Mér fannst þó rétt að athuga nánar hvað um væri að vera og fór því ofan og þegar ég opna fram á gang sé ég að ekkert ljós er þar sem er þó yfirleitt og um leið heyri ég að gengið er um og ég fékk að vita að eldur væri laus í setustofunni. Það kom strax í ljós að ekkert hættulegt var á ferðinni og enginn reykur barst til okkar. Friðrik Ingþórsson sagði að talið væri að um íkveikju hefði verið að ræða, einhver hlyti að hafa komizt inní húsið og sett eld í gluggatjöldin, því útilokað væri að kveikt hefði verið í utan frá. Friðrik sagði húsið vera læst allan daginn, en hver og einn vistmaður gæti opnað með dyrasíma, og nefndi Friðrik að neyðarútgangur í norðurenda hússins hefði verið opinn sem bent gæti til þess að þar hefði einhver farið út. Reykskynjur- um hefur verið komið fyrir alls staðar í húsinu, en eftir var að tengja þá. Rannsóknarlögregla ríkisins rannsakar nú þetta meinta íkveikjumál, en sem kunnugt er hefur verið mikið um íkveikjur í höfuðborginni að undanförnu og a.m.k. tvisvar áður í haust hefur verið reynt að kveikja í heil- brigðisstofnunum, þ.e. í fæð- ingadeild Landspítalans og endurhæfingardeild Klepps- spítala. Aldrei meiri ef tirspurn ef tir skipsplássi en um hátíðarnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.