Morgunblaðið - 21.12.1978, Page 33

Morgunblaðið - 21.12.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1978 33 Norrænt þing um heilsugæslu fyrirtækja sögn hans Guði í nytjahlut, og Teilhard de Chardin, sem er spámaður nokkurra nútíma- manna. Og hann deilir á þá, sem trúa á valdið, þjóðernis-sam- hyggjumenn (fasista) og bylt- ingar-samhyggjumenn (kommúnista). Vestræna lýðræðisskipulagið á fleiri óvini að sögn Johnsons. Þeir Heimspekingar, sem stíga út úr raunveruleikanum inn í hugveruleikann, missa allt sam- batíd við iðandi mannlífið, eru ekki vinir þess. Johnson deilir á Ludwig Wittgenstein, en læri- sveinar hans fást fremur við það að greina hugtök en að glima við vanda mannanna í heiminum, heimspeki þeirra er innantóm véfréttarspeki. Þeir, sem stunda gervivísindi, eru óvinir þess. Hann tekur undir kenningu Karls R. Poppers, kunnasta vísindaheimspekings samtím- ans, um þær ströngu kröfur, sem gera verði til kenningu, til þess að þær teljist vísindalegar. Hann deilir á tvo áhrifamikla gervivísindamenn, Marshall McLuhan og Herbert Marcuse, og á þá fjölmennu söfnuði, sem kenna sig við gervivísindamenn- ina Marx eða Freud, en þeir kunna skýringar á öllu og engu. Óvini skipulagsins er einkum að finna í háskólunum að sögn Johnsons. Þeir eru „Vinstrifas- istar“, ungir, róttækir kennarar og nemar, margir í „félags- vísindum", sem eru i flestu gervivísindi. Þeir fela það ekki, að þeir stefna að því að ná valdi á háskólunum og nota þá til þess að fella skipulagið, bæði siða- kerfið og stjórnkerfið. Johnson bendir á það, að róttæklingarnir reyna að hræða hófsama háskólamenn frá gagnrýni með ofsókn í ræðu og riti (en íslenzkir háskólamenn eru eins sekir um hræðslugæði og brezk- ir). Og þeir stefna líka að því að ná valdi á barna- og unglinga- skólum, innræta nemum hatur á markaðskerfinu, skopast að kristinni trú, gera lítið úr vestrænu lýðræði. Johnson telur hættulegastan þann missi borgaralegs mæli- kvarða, sem hefur orðið á Vesturlöndum vegna almennrar lausungar, verðbólgu og of- sköttunar, en hún kemur eink- um niður á millistéttinni. Þeir, sem boða siðferðilega afstæðis- kenningu, eru óvinir skipulags- ins, þeir afsaka alla glæpi, kenna, að þeir, sem séu geðveik- ir, séu heilbrigðir, og hinir, sem séu heilbrigðir, séu geðveikir. Johnson deilir á Michel Foucault, R.D. Laing og Claude Lévi-Strauss, sem hafa ráðist á hinar gömlu og góðu borgara- legu dygðir í nafni gervivísinda sinna. En verstu afkvæmi af- stæðiskenningarinnar eru hryðjuverkamennirnir, „hinir helteknu". Johnson deilir á Jean-Paul Sartre og Herbert Marcuse, sem eru heimspekileg- ir málflutningsmenn hryðju- verkamannanna, lærisveinar þýsku heimspekinganna Hegels og Marx, þeir boða ofbeldi í nafni skynseminnar. Hann skor- ar að bókarlokum á vestræna menn að muna það, að menning- in sé „skynsamleg leit að sannleikanum innan reglukerf- is“ og að einstaklingsfrelsið sé frumskilyrði fyrir öllum fram- förum. Johnson kemur víða við í bókinni, og ég hef aðeins nefnt nokkur viðfangsefni hans, og tek undir það, sem leikskáldið Tom Stoppard reit um hana í Times Literary Supplementr „Johnson er bæði víðlesinn sagnfræðingur og ágætur blaðamaður. Hann er menntamaður, sem berst gegn rökhatri, og siðapostuli, sem berst gegn afstæðiskenningu. Sagnfræðileg; vel skrifuð og skýrleg gagnrýni ráðvilltrar aldar okkar hlaut að verða til, þegar allt þetta kom saman í einum manni og hún er bókin Óvinir skipulagsins.“ NORRÆNT þing um heilsugæslu fyrirtækja var haldið í Svíþjóð 5.-7. júní síðastliðinn. Gestgjafi var sænska atvinnuverndarstofn- unin og var forstjóri hennar forseti þingsins sem haldið var á ráðstefnuhóteli sænska alþýðu- sambandsins í Táljöviken skammt frá Stokkhólmi. A -þinginu var fjallað um heilsu- gæslu fyrirtækja á Norðurlöndum og áunna reynslu með tilliti til framtíðarskipulags innan hvers lands en einnig með hliðsjón af samnorrænum vinnumarkaði. Þingið sátu fulltrúar aðila vinnu- markaðarins, eftirlitsstofnana, læknafélaga, ráðuneyta og fleiri aðila frá Danmörku, Finnlandi, Islandi, Noregi og Svíþjóð, auk fulltrúa Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar. Af hálfu Islands sóttu þingið: Barði Friðriksson, Guðjón Jóns- son, Hrafn V. Friðriksson, Júlíus Kr. Valdimarsson og Ólafur H. Oddsson. Umsjón með þátttöku af íslands hálfu hafði Hrafn V. Friðriksson sem einnig flutti framsöguerindi um skipan heilsu- gæslu fyrirtækja á Islandi og eftirlits með aðbúnaði, hollustu- háttum og öryggi á vinnustöðum og tók þátt í pallborðsumræðum. Norræna ráðherranefndin styrkti þingið fjárhagslega en ákvörðun um að halda norrænt þing um heilsugæslu fyrirtækja var tekin í Norrænu embættis- mannanefndinni sem fjallar um vjnnuverndarmálefni á fundi hennar í Kaupmannahöfn 12. okt. 1977. Fulltrúi íslands í embættis- mannanefndinni er Hallgrímur Dalberg ráðuneytisstjóri í félags- málaráðuneytinu. TilGtssemi kostar ekkert Ragnar Þorstcinsson þau yrðu hjón. Denni hefur gjarnan viljað gerast sjómaður, en auðugir og ráðríkir foreldrar hafa þvingað hann inn á aðrar brautir. En þar eð Silja tekur ekki í mál að ganga í hjónaband fyrr en hún hafi náð því takmarki sínu og að komast í fremstu röð skipstjóra á hinum sívaxandi fiskiflota og Denni stundi áfram nám sitt, fyllist hann meiri og meiri óánægju og afbrýðisemi, og þegar þar er komið, aö hún er orðin skipstjóri, fréttir hún það, að hann sé hættur að sinna náminu og haldi sig í hópi slarkara og lauslátra kvenna. Það verða henni svo gleðitíðindi, þegar hún kemur úr Þýzkalandsförinni, að hann er orðinn háseti á einum af hinum stóru skuttogurum og hefur unnið þar björgunarafrek. Eg læt svo lesandann einan um að fá vitneskju um það, hvernig örlögin spinna þráð mjög spenn- andi atburða, sem leiða til sam- funda og sátta þeirra Daníels Daníelssonar og Silju Örlygsdótt- ur. Ýmsum kann að þykja sú atburðarás með nokkrum ólíkind- um, en af kunnáttusemi um björgunartækni og sjómennsku er frá henni sagt. A þessum tímum bölsýni í íslenzkum sagnaskáldskap mun það gleðja margan lesanda, hve sagan „fer vel.“ Og ég er einn í þeirra hópi, þar eð ég tel mig eiga lífinu margt gott að launa. En fullmikils sætleika þykir mér kenna í viðtali þeirra Silju og Denna undir sögulokin. ... En hvað sem því líður er sagan öll vel og skemmtilega skrifuð og kynnir sjómennsku okkar tíma allrækilega. Svo er nú það, að í henni felst slíkur kvenréttindaáróður, að mér þætti vel til fallið, að hinn sjötugi höfundur væri kosinn heiðurs- félagi þeirra samtaka, sem kenna sig við rauða sokka! Guðmundur Gíslason Hagalin XK=3>IK~ XK— -----------—xir---H$e—.MV XK >ÍK f r i i Bókaverztun, Austurstræti 10 /o 3 / O / O Bókaútgáfa, Þingholtsstræti 5 VILLIGÆSIRNAR Þessi metsölubók fjallar um valdatafl í Afríku og mála- liða, sem ráðnir eru til þess að bjarga fyrrverandi forseta úr klóm þess nýja. Þessir menn hafa það eitt sameigin- legt að berjast fyrir borgun. N ú hefur kvikmynd verið gerð eftir sögunni, og er hún væntanleg til landsins bráð- lega. Antony Trew Skipalestin =XIC 3UC IX tc SKIPALESTIN Það er langt liðið á árið I944. Síðasti vetur stríðsins fer í hönd. Kafbátar Þjóðveija hafa goldið mikið afhroð í Atlants- hafi, en hxttan er þó engan veginn hjá liðin. Bókin segir frá skipalest á lcið til Murmansk og þeim hætt- um og hörmungum, sem af henni leiða. Hún er rituð af næmum skilningi á lífi þeirra manna, sem tóku þátt í þessum hildarleik. IX K----XKZ TtK---^ ■ýóów_£2 ZájZSS-2J m Lítil og lipur er Kodak A-1 vasamyndavélin Það fer ekki mikið fyrir henni, en þú getur tekið skemmtilegar myndir á hana til ánægju fyrir sjálfan þig og fjölskylduna. Lítið inn — við erum á 3 stöðum í borginni, Verð kr. 8.550.— Vélin er í fallegum jólaumbúðum og fylgir með 20 mynda filma og taska. Skemmtileg gjöf í jólapakkann. HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI — GLÆSIBÆ —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.