Morgunblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978
67
spurt hvort sjálfstæðismenn vildu
greiða 14,3% launahækkun. Nú-
verandi meirihluti hefði alltaf
haldið því fram, að ekki skyldi á
neinn hátt skerða sjálfar launa-
greiðslur til borgarstarfsmanna.
Borgarstjórn yrði því eftir sem
áður að fara eftir settum reglum
og þýðingarlaust væri að beita
borgarstjóra fyrir sig. Borgar-
stjórnarmeirihlutinn hefði átt að
sýna kjark og taka upp viðræður
við Starfsmannafélagið.
Mesta óvirðing
við launþega
Magnús L. Sveinsson (S)
sagðist hafa trúað því í júní, að
meirihlutinn ætlaði að setja samn-
ingana í gildi ,í áföngum.
Magnús kvaðst hyggja, að eftir
loforðin, sem óspart hefðu verið
höfð í frammi af hálfu meirihluta-
mannanna, hefðu menn verið
farnir að trúa þeim, að samning-
arnir skyldu settir í gildi. Einn af
meirihlutamönnum hefði sagt fyr-
ir kosningar: „Reykjavíkurborg
ber að standa við gerða samninga
og greiða fullar vísitölubætur á öll
laun.“ Þá hefði sagt í borgarmála-
ályktun Alþýðubandalagsins fyrir
kosningar: „Gerða kjarasamninga
ber skilyrðislaust að virða sam-
kvæmt samningum hverju sinni."
Magnús minnti á, að hér væri ekki
sagt, „að gerða kjarasamninga
skuli virða samkvæmt lögum." Þá
hafi Guðmundur Þ. Jónsson skrif-
að í blað Iðju eftirfarandi: „Sífelld
afskipti ríkisins að kjarasamning-
um eru með öllu óþolandi."
Magnús L. Sveinsson sagði, að
verkamenn hefðu svo sannarlega
fagnað tillögu borgarstjórnar frá
15. júní, þeir hefðu trúað því, að
hún myndi koma til framkvæmda
og hann kvaðst hafa trúað því líka
enda hefði hann stutt hana þar
sem hans (Magnúsar) eigin tillaga
sem tryggði meiri kjarabætur náði
ekki fram að ganga, þá hefði
samþykktin frá 15. júní verið í
áttina.
Magnús L. Sveinsson kvaðst
vona, að verkamenn fylgdust vel
með nýja borgarstjórnarmeiri-
hlutanum og gjörðum hans í
þessum málum. Öll stóru fyrirheit
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks frá 15. júní
voru nú gleymd og nú væri gengið
harkalega á samningsrétt verka-
fólks.
Að skrúfa frá krana
Magnús L. Sveinsson sagði, að
haldið væri fram, að félagslegar
aðgerðir og skattalækkanir jafn-
giltu launahækkunum. Það væri
eins og menn héldu að með því að
skrúfa frá krana fengjust pening-
ar fyrir niðurgreiðslum. Það væru
engir aðrir en launþegar sem eftir
allt borguðu niðurgreiðslur, að
vísu ekki í búðinni heldur með
sköttum. Bæði vinstri og hægri
ríkisstjórnir hefðu skert kjara-
samninga með lögum og nú væru
enn í fersku minni lög fyrri vinstri
stjórnar Ólafs Jóhannessonar frá
22. maí 1974. Þá hefði Björn
Jónsson og Eðvarð Sigurðsson
látið hafa eftir sér, að efnahags-
ráðstafanirnar þá hefðu verið
blekking ein.
Það keyrir þó um þverbak, sagði
Magnús, og er mesta óvirðing sem
launþegum er sýnd að selja þeir..
félagslegar umbætur fyrir lækkuð
laun. Fram til þessa hefðu þær
kröfur verið gerðar til ríkisvalds-
ins, að framlög til húsbygginga
ættu ekki að skerða laun. Magnús
L. Sveinsson sagði, að það þyrfti
kokhreysti til að segja við fólk með
143.000 kr. í laun, að taka ætti
3.000 krónur af. til félagslegra
umbóta. Það væri hámark ósvífn-
innar að taka af umsömdum
launum til að tryggja, að viðun-
andi vinnuaðstaða væri á vinnu-
stöðum.
Að lokum kvaðst Magnús L.
Sveinsson vilja undirstrika, að þau
8% sem tekin væru af umsömdum
launum og sögð væru eiga skila sér
í öðru, Það gerðist alls ekki og
væri aðeins blekking. Þetta orð
hefði Björn Jónsson notað 1974 um
aðgerðir þáverandi vinstri stjórn-
ar og það væri rétta orðið um
aðgerðir núverandi vinstri stjórn-
ar.
Gylfi Þórðarson framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar:
Beiðni um hækkun lögð
fram um miðjan ágústmánuð
„VIÐ lögðum inn þessa
hækkunarbeiðni upp á 20% í
ágúst síðastliðnum," sagði
Gylfi Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Sementsverk-
smiðju ríkisins, sem gerði
athugasemd við ummæli
Guðmundar J. Guðmunds-
sonar, formanns VMSI í Mbl.
„og síðan hefur þetta verið að
velkjast í milli manna, við
stöðugt rekið á eftir, og er því
vart unnt að segja að óstjórnin
og ráðdeildarleysið sé hjá
okkur.“
Gylfi kvað Guðmundi hafa
átt að vera í lófa lagið að
kanna stöðu verksmiðjunnar,
Áramótaferð
og
þrettándaferð
— meðal efnis hjá
Útivist um jólin
LAGT verður upp í 3ja daga
áramótaferð Útivistar laugar-
daginn 30. des. kl. 13. Gist
verður við Geysi í Haukadal
og er sundlaug á staðnum.
Á dagskrá verða göngu- og
skoðunarferðir m.a. verður
gengið á Bjarnarfell en þaðan
er útsýni yfir Suðurland. Þá
verður farið að gamla
höfðingjasetrinu í Haukadal,
Berþórsleiði, Gullfossi í klaka-
böndum, Brúarhlöðum og
víðar. Kvöldvökur verða bæði
kvöldin og flugeldar og brenna
á gamlárskvöld. Heimkoma er
áætluð síðdegis á nýársdag.
Þann 29. des efnir Útivist til
skemmtikvölds í Skíðaskálan-
um í Hveradölum og verður
farið frá BSÍ kl. 7.30. Þátttaka
tilkynnist fyrirfram á
skrifstofu Útivistar.
Stuttar gönguferðir verða
farnar á annan í jólum og
laugardaginn 30. des. og
hefjast þær báða dagana frá
BSI (vinstra megin) kl. 13.
Fyrsta útivistarferð nýja
ársins verður Þrettándaferð í
Herdísarvík. Hún hefst
föstudaginn 5. janúar kl. 20 og
stendur fram á sunnudag. En á
sunnudag verður farin hin
árlega nýjárs og kirkjuferð
Útivistar. Þá verður einnig
komið við í Herdísarvík og
síðan verður Strandakirkja eða
Hjallakirkja heimsótt en sem
kunnugt er bjó Einar skáld
Benediktsson í Herdísarvík
síðustu ár ævi sinnar. Hús
hans er nú í eigu Háskólans en
hefur verið gert upp. Landslag
í Herdísarvík býður upp á
göngumöguleika um strönd og
fjöll.
„og varla er það hagur verka-
lýðsforingjanna, að verk-
smiðjan stöðvist," sagði hann.
Hann kvað sementshækkun
koma inn í byggingarvísitölu,
sem verið váeri að reikna út nú
og taka ætti gildi um áramót.
Varðandi 10-daga regluna,
sem búin var til í sambandi við
sólstöðusamningana, þá er
hún tengd vísitölu fram-
færslukostnaðar, sem reiknuð
er út 1. nóvember fyrir
hækkanir, sem koma eiga 10
síðustu daga október-
mánaðar.„Okkar beiðni er
fram komin löngu fyrir það,
sem þar fyrir utan eru deilur
um það, hvort sementsverð
fellur þar undir, því að
hækkun þessi kemur ekki
beint inn í vísitölu fram-
færslukostnaðar, heldur
óbeint eins og fram kemur
síðast í fréttagrein Morgun-
blaðsins. Eru skiptar skoðanir
um þetta atriði og hafa menn
haldið því fram að sement
væri þar ekki inni, því að talað
er um hækkanir á þjónustu.
Sement er samkeppnisiðn-
aðarvara en ekki þjónusta,"
sagði Gylfi Þórðarson.
A Þorláksmessu
bjóöum viö þennan glæsilega kalda „kabarett-bakka" meö ýmsu góögæti s.s.
gravlax m/sinnepssósu, grísasultu, Roast-beef, skinku, kjúklingum, kartöflusalati,
rauörófum, hrásalati, brauöi, smjöri og Mocca triffle í desert.
kr. 2.800.
Allt þetta aöeins
Góð
Þjónusta
í jóla-
Spariö ykkur tíma
og fyrirhöfn.
— Viö sendum
heim
osinni
Okkar vec
pantiö