Morgunblaðið - 24.12.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 24.12.1978, Síða 1
56 SÍÐUR 296. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. O 108 fórust við strönd Palermo, Sikiley, 23. des. AP — Reuter í flugslysi Sikileyjar FLOTI horskipa. fiskibáta og þyrilvæntíja leitaði í morRun að farþoKum som komust lífs af og likum þoirra sem fórust þegar þota af gerðinni DC-9 frá flug- félaginu Alitalia hrapaði í hafið or hún átti skammt eftir ófarið til Sikileyjar, on óttast var að 108 manns hofðu farizt með flug- vélinni sem var að flytja fólk í jólaloyfi. Flugmálayfirvöld á Ítalíu skýrðu frá því fyrir hádegið að 21 hefði komist af úr slysinu og að lík 24 hefðu fundist, en þá var enn óttast um afdrif 84 til viðbótar. Flestir farþeganna voru Italir. Slysið varð skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt laugardags. Flugvélin var í sérstakri ferð frá Róm til Palermo og Kataniu á Sikiley. Sjónarvottar söðgu að vélin hefði lenl á hafinu um fimm kílómetra frá flugvellinum. Einn þeirra sem komust af sagði að skrokkur vélarinnar hefði 'brotnað í lendingunni, og að vélin hefði sokkið á nokkrum sekúndum. Ekki vannst tími til að setja út björgunarbáta. Annar sem komst lífs af úr slysinu sagði að mikil skelfing hefði gripið um sig meðal farþega þegar þeir urðu þess áskynja að flugvélin var að lenda á sjónum. Hann sagði að rétt eftir lendinguna hefði sprenging orðið í framhluta vélarinnar og efaðist viðkomandi að áhöfn, og þeir sem fremstir sátu, hefðu komist lífs af. Ekkert var vitað um orsakir slyssins í morgun. Talsmenn flug- vallarins í Palermo sögðu að vélin hefði verið í aðflugi í talsverðum vindi þegar samband skyndilega rofnaði. Opinber rannsókn á til- drögum slyssins hefur verið fyrir- skipuð, en þetta er annað meiri háttar flugslysið sem verður í nágrenni Punta Raisi flugvallarins í Palermo á nokkrum árum. Árið 1972 fórst vél af DC-8 gerð í fjallshlíð við flugvöllinn og fórust allir sem um borð voru, alls 115 manns. Toppfundur Carters og Breznevs Moskvu. 23. desember — AP MOSKVUÚTVARPIÐ skýrði frá því í dag að samningamenn Bandarikjanna og Sovétríkj- anna í svonefndum SALT-við- ræðum í Genf þar sem rætt er um gagnkvæma minnkun kjarn- orkuvígbúnaðar þjóðanna hafi orðið ásáttir um að fresta viðræðum sem komnar voru á lokastig og ákveðið va'ri að stofna til fundar æðstu manna ríkjanna í næsta mánuði til að undirrita samninginn. Þetta er í fyrsta sinn sem eitthvað heyrist frá Sovétmönn- um frá, því að sendinefndir ríkjanna hófu viðræður sínar í Genf fyrir viku síðan en þeim lauk með sameiginlegum fundi Cyrus Vance utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Andrei Grom- yko utanríkisráðherra Sovétríkj- anna í morgun. Þeir sögðu eftir fund sinn að báðir aðilar væru sammála um að allir stærstu erfiðleikarnir í samningunum væru yfirstaðnir og því væri ekkert annað eftir en að fínpússa nýtt uppkast og undirrita nýjan SALT-samning á fundi æðstu manna ríkjanna sem haldinn yrði í næsta mánuði. Þridji heimurinn: Lágmarkslífsskilyrði barna ekki f y rir hendi WashtnKton. 23. desember. Reuter. FULLTRIJAR Alþjóðalninkans tilkynntu á fundi með fréttamönnum í dag að hundruð milljóna barna í löndum þriðja heimsins lifðu við aðsta'ður sem með engu móti gætu talist uppfylla lágmarks-lífsskilyrði. Sérstaklega væri ástandið sla'mt í Afríku- og Asíulöndum þar sem tugir milljóna barna dæju árlega úr fæðuskorti. Upplýsingar þessar eru byggðar á mjög umfangsmikilli skýrslu sem bankinn hefur unnið fyrir Sameinuðu þjóðirnar um stöðu barnsins á hinum ýmsu stöðum í heiminum vegna Barnaárs Sam- einuðu þjóðanna á næsta ári. I skýrslunni kemur fram að aðeins um 58% barna í hinum fátækari löndum fá einhverja lágmarksmenntun en í hinum iðnvædda heimi fá yfir 80% allra barna grunnmenntun, sem þó er töluvert meiri en sú sem börnin í hinum fátækari löndum fá. — Þá eru um 32% barna í þróunarlönd- unum farin að vinna fulla vinnu áður en þau ná 14 ára aldri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.