Morgunblaðið - 29.12.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
298. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hnútur fljúga
milli Kairó
og Jerúsalem
Kairó. Jerúsalem 28. des. Reuter.
ENN á ný kom afturkippur
í friðarmál Egypta og
ísraela er utanríkisráð-
herra Egypta Boutros
Ghali sagði í dag að eitt af
markmiðum Egypta í
friðarsamningunum væri
að stofnað yrði sjálfstætt
ríki Palestínumanna.
Sagði hann að vitaskuld myndu
ísraelar reyna að koma í veg fyrir
þetta. Hann sagði að meginaf-
stöðumunur fælist í því að ísraelar
vildu ekki að það leiddi til
stofnunar Palestínuríkis ef sjálfs-
stjórn yrði fengin í hendur Aröb-
um á Vesturbakkanum og á
Gazasvæðinu.
Talsmaður ísraelsstjórnar brá
við hart er þessi ummæli voru birt
og sagði það fráleitt að ísraelar
myndu nokkru sinni sætta sig viö
lausn sem gæti falið slíkt í sér.
Aukin heldur væri ástæða til að
harma að slíkar yfirlýsingar væru
gefnar þegar málið væri á jafn
viðkvæmu stigi og raun bæri vitni
um.
AtviimuMð er lamað og
matarskortur yfírvofandi
TRILLAN HANS BJÖSSA á Ægissíðunni kúrir þarna í nausti klár fyrir skakið og grásleppuúthaldið, en
það eru margir borgarbúarnir sem hafa keypt grásleppu af Ægissíðuköppunum. Myndina tók Emilía
ljósmyndari Mbl. í kyrrðinni í gærdag, en að undanför'nu hefur Ægissíðan ekki farið varhluta af því
undurfagra vetrarveðri sem hefur ríkt víðast á landinu, síbreytileg litadýrð um himin, haf og land og
álfareiðir um allan sjó.
Teheran draugaborg líkust í gær:
Hálf millj.
í verkfalli
Nýju Delhi, 28. des. AP
INDVERSKIR bankastarfsmenn
byrjuðu tveggja daga verkfall í
dag til að fylgja eftir kröfum um
hærri laun. Raskaöi það mjög
allri peningastarfsemi víðs vegar
í landinu.
Þetta verkfall sem um hálf
milljón bankastarfsmanna tekur
þátt í fylgir í kjölfar margra
annarra hjá ýmsum stéttum í
landinu síðustu daga og segir
AP-fréttastofan að öngþveitið í
innanríkismálum sé nú meira en
nokkru sinni fyrr.
Mánaðariaun bankastarfsmanns
með tveggja ára reynslu er nú um
tuttugu og átta þúsund krónur auk
árlegrar bónusgreiðslu sem svarar
til mánaðarlauna.
Kennedymorðið:
Hljóðsér-
fræðingar
birta skjöl
Washington, 28. des. Reuter.
TVEIR hljóðsérfræðingar
munu í dag birta nýjar niður-
stöður um morðið á John
Kennedy Bandaríkjaforseta
og setja fram þá kenningu að
morðið hafi verið samsæri.
Sérfræðinganir munu birta
nefnd fulltrúadeildarinnar
niðurstöður sínar og skýra
hljóðupptöku frá morðinu, þar
sem þeir telja sig sanna að
fjórum skotum hafi verið
hleypt af — eða einu fleira en
Lee Harvey Oswald er sagður
hafa skotið. Vitnisburður
þeirra er talinn hinn drama-
tískasti og vinnubrögð þeirra
hafi verið vísindaleg í hvívetna.
Moskvu, 28. des. AP.
í DAG birtist í Pravda, málgagni
kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna. löng fréttaskýring í tilefni
þess að nýlokið er í Kína þingi
miðstjórnar kommú istaflokksins
þar. I fréttaskýringu þessari er
því spáð að til nýrra átaka komi
meðal æðstu ráðamanna í Peking
og að „víðtækar hreinsanir“
verði gerðar innan kínverska
flokksins. Segir blaðið að leiðtog-
ar Kína eigi við mikla erfiðleika
að stríða.
Pravda segir að miklar deilur
séu milli ráðamanna í Kína um
það m.a. hvort birta eigi almenn-
ingi sannleikann um „gildislausar
kenningar" Mao Tse-tungs, og
blaðið bætir því við að stefna
formannsins látna hafi verið mjög
spillandi fyrir þjóðina tvo síðustu
áratugina, sem Mao lifði.
„Auðvelt er að sjá að leiðtogarn-
ir í Peking hafa alvarlegar
áhyggjur af vandanum við að
Teheran, 28. des. Reuter.
MJÖG alvarlegt ástand var í
Teheran, höfuðborg Irans, í kvöld,
vegna verkfalla en þau beinast að
því að lama svo atvinnu- og
efnahgslíf landsins, að keisarinn
neyðist til að iáta af völdum.
Seint í kvöld urðu nokkur átök í
borginni.
draga úr — bæði í raun og í
orðavali — miklum ágreiningi
meðal forustumanna," segir
Pravda. Þessu til sönnunar nefnir
blaðið að margar af ákvörðunum
miðstjórnarþingsins staðfesti
„valdaflutninginn“ frá Hua Kuo-
feng formanni yfir til Teng
Fréttaritarar segja að Teheran
hafi verið eins og draugaborg í dag,
nánast allar skrifstofur, bankar og
þjónustufyrirtæki lokuð og þeir einu
sem voru á ferli voru menn að reyna
að ná í bensín eða olíu og mynduðust
víða geysilegar biðraðir við olíusölu-
staði. Því hefur verið spáð að
olíubirgðir endist aðeins í viku, enda
Hsiao-pings varaforsætisráðherra
og fylgismanna hans. Einnig
bendir blaðið á að margir af
nánustu fylgismönnum Tengs hafi
verið kosnir í stjórnmálaráð
flokksins, sem bendi til þess að
hann sé í raun valdamesti maður-
inn.
liggur nánast öll olíuframleiðsla
landsins niðri.
Eftir að útgöngubannið gekk í
gildi í kvöld kl. 21 (17.30 ísl. tími) var
óttast að til óeirða kæmi, en á því
bar ekki fyrr en síðar í kvöld.
Búizt er við að fjárskorts fari að
gæta hjá fólki fljótlega, bílaumferð
um Teheran hefur þegar stórminnk-
Þrátt fyrir þetta, segir Pravda,
sitja þeir menn enn í valdastöðum,
sem mest hafa verið gagnrýndir á
veggspjöldum að undanförnu.
„Allt bendir þetta til þess að nýrra
átaka sé að vænta meðal ráða-
manna í Peking.“
Pravda segir að ráðamenn í
Peking hafi til þessa ekki ráðið við
helztu vandamál þjóðarinnar, sem
fari vaxandi, og nefnir blaðið í því
sambandi efnahagserfiðleika, vax-
andi óánægju meðal verkamanna
og bænda, mikið atvinnuleysi, og
bág lífskjör almennings. í stað
þess að snúast gegn þessum
vandamálum segir blaðið að leið-
togar Kína hafi einblínt á að gera
landið að „hernaðarlegu risa-
veldi“. Þá segir blaðið að kín-
versku leiðtogarnir á þinginu hafi
mjög hampað utanríkisstefnu
sinni, sem miði að bættri sam-
stöðu og samskiptum við helztu
árásaröflin meðal ríkja heims-
valdasinna og andstöðu við Sovét-
ríkin og bandamenn þeirra.
að og reynt er að spara upphitun
húsa sem mest, en kalt er nú í veðri.
Innflutningur er enginn því að
tollverðir eru í verkfalli og enginn
póstur var borinn út. Trúlegt er að
flugsamgöngur við Iran erlendis frá
stöðvist vegna þess að ekki verður
hægt að veita þá þjónustu og
öryggiseftirlit sem krafist er. Iran-
air hefur þegar hætt öllu flugi.
Framleiðsla í iðnfyrirtækjum og
verksmiðjum var víðast í lágmarki,
bæði vegna orkusþarnaðar og verk-
falla starfsfólks. Búizt er við að
ástandið eigi enn eftir að versna og
heilbrigðisþjónustan fari í mola og
matarbirgðir í Teheran eru taldar
aðeins til örfárra daga. Símritarar
og telexstarfsmenn íhuga að leggja
niður vinnu og þar með væri Iran
orðið gersamlega sambandslaust við
umheiminn.
I fréttum frá Teheran í dag sagði
að aldrei hefði verið eins mikill
einhugur með fólki og þó svo að
þessar aðgerðir kæmu mjög óþyrmi-
lega við borgara sjálfa sögðu frétta-
menn að flestir orðuðu það svo að
„fólkið væri sameinað í byltingu.
Enginn mun fara til vinnu fyrr en
keisarinn er farinn.“
Fréttaritarar sem eiga æ erfiðara
með að athafna sig í Teheran og
koma frá sér fréttum eru á einu máli
um að ekki geti margir dagar liðið
unz til úrslita dregur milli keisarans
og andstæðinga hans. Hefur þeirri
skoðun nú aukizt' mjög fylgi að um
annað sé ekki að ræða fyrir keisar-
ann en fara frá völdum.
53 handteknir
Istanbul, 28. des. Reuter.
OPINBERIR aðilar sögðu að 53
menn hefðu verið handteknir í
Istanbul í dag fyrir að brjóta á einn
eða annan hátt herlögin. Einn maður
nlnon Ai of
HÁRSNYRTING ALÞÝÐUNNAR — Mynd þessi er tekin í snyrtistofu
í Shanghai. Með auknu frelsi þar í landi að undanförnu hefur
„permanent“ náð miklum vinsældum. Lengst til hægri á myndinni er
kínverskur hermaður.
Pravda spáir átökum
og hreinsunum í Kína