Morgunblaðið - 29.12.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1978
Nýbygging að Pósthússtræti 13:
Viðkvæmur staður en fram-
komnar hugmyndir jákvæðar
„PERSÓNULEGA finnst mér
að þcssar tcikninnar bcri það
mcð sér að mennirnir hafi
rcynt að aðlaga sík staðháttum
ok þótt ég sé ckki reiðubúinn
cnnþá til þess að taka endan-
lcna afstöðu til þessara teikn-
inga þá gct ég strax viðurkennt
viðleitnina, sem í þeim felst,“
sajfði Ililmar Guðlaugsson full-
trúi í bygginganefnd Reykja-
víkurborgar er Mbl. spurði
hann í gær um fyrirhugaða
hyKKÍngu að Pósthússtræti 13.
Ililmar sanði að málið hefði
verið lagt fram í byggingar-
ncfnd í fyrirspurnarformi og
ncfndin vísað því til skipulags-
ncfndar til umsagnar. Sigurð-
ur Harðarson formaður skipu-
lagsnefndar sagði að málið
Ijcfði verið lagt fram á síðasta
fundi en það hcfði ekkert verið
rætt ennþá.
„Þetta er gífurlega viðkvæmt
mál, þannig að ég á ekki von á
því að það verði afgreitt í hasti,"
sagði Sigurður. „Þessi bygging
verður á mörkum lágu byggðar-
innar umhverfis Dómkirkjuna
og háu byggðarinnar, þar sem
Hótel Borg er, þannig að teng-
ing þarna á milli er engan
veginn auðleyst mál.“
Sigurður sagði að samkvæmt
staðfestu aðalskipulagi Reykja-
víkurborgar 1962—83 ætti
Kirkjustræti að liggja þarna í
gegn og tengjast við Amtmanns-
stíg, en hins vegar væri borgar-
stjórn búin að samþykkja þá
breytingu að gatnaskipan héld-
ist óbreytt og svæðið milli
Pósthússtrætis, Lækjargötu,
Austurstrætis og Skólabrúar
yrði svonefnt framkvæmda-
svæði eins og Hallærisplanið.
Þessi breyting biði nú staðfest-
ingar skipulagsstjóra ríkisins og
vissi hann ekki til þess að nein
sérstök atriði stæðu í vegi fyrir
henni. Sigurður sagði að sam-
kvæmt gamla skipulaginu væri
nýtingarhlutfall á svæðinu
1,5—2 en aftur 2,5 samkvæmt
þeirri breytingu, sem borgar-
u
r-H
a
4>
■P
stjórn hefði samþykkt, og rætt
væri um að lóðarhafar gætu
fengið „bónus þar ofan á“, ef
íbúðir væru hafðar með og
kvöðum þar um þinglýst.
„Það var nú meiningin að fá
fram hugmyndir um heildar-
uppbyggingu svæðisins eins og
varðandi Hallærisplanið," sagði
Sigurður. „En fari einn lóðar-
hafi að byggja þarna verður
spurningin auðvitað sú, hvort
hann fær leyfi til að byggja
svona mikið eða hvort leitað
verður samkomulags um eitt-
hvað minni byggingu. Um þetta
get ég ekkert sagt á þessu stigi
málsins.“
XXX
„Ég er jákvæður gagnvart því
að þarna verði byggt og mér lízt
vel á að blanda saman íbúðum,
skrifstofum og verzlunum, því
ég held að miðbærinn þurfi á
slíkri byggð að halda," sagði
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarfulltrúi og fulltrúi í
skipulagsnefnd er Mbl. leitaði
álits hans á teikningum þeim
um byggingu að Pósthússtræti
13 sem kynntar hafa verið.
„Þetta er hins vegar óskaplega
viðkvæmur staður," sagði Birg-
ir. „Og ég er ekki reiðubúinn til
þess að segja af eða á nú um það
hvort í þessum teikningum felst
nákvæmlega rétta lausnin. En
hugmyndin er góðra gjalda
verð.“
Birgir sagði að hann vildi
taka það fram, að hann hefði
aðeins skoðað teikningarnar
lauslega og fengið upplýsingar
hjá byggjanda, en hins vegar
hefði hann ekki séð líkan af
byggingunni og umhverfi henn-
ar, þannig að honum væri ekki
alveg fullljóst hvernig útkoman
væri. x x x
Sigurður G. Tómasson for-
maður umhverfismálaráðs sagði
að málið hefði ekki komið til
kasta ráðsins og persónulega
væri honum ekki kunnugt um
fyrirhugaða byggingu á þessu
svæði.
cð
■§
tö
ð
Þessi teikning sýnir afstöðu fyrirhugaðrar byggingar að Pósthússtræti 13 úr suðri miðað við Dómkirkjuna, Hótel
Borg og Skólabrú 1.
Tveir borar fast-
ir í Eyiafirði
STARFSMENN Jarðboranadcild-
ar Orkustofnunar hafa að mcstu
vcrið í lcyíi síðan íyrir jól, en er
þcir yfirgáfu vcrkfæri sín á
tvcimur stöðum norður í Eyja-
firði voru borar fastir bæði á
Svalharðseyri og við Ytri Tjarnir
í Eyjafirði.
A Svalbarðseyri hefur borinn
Glaumur að undanförnu borað og
er árangur af holunni þegar orðinn
það góður að vatn úr henni mun
vera ríflega það, sem þorpið á
Svalbarðseyri þarfnast. Skömmu
ÁTVR lokað
á morgun
Fjármálaráðuneytið hefur
ákveðið að útsölur ÁTVR verði
opnar til klukkan 18 í dag,
föstudag, en að lokað verði á
morgun, laugardaginn 30. desem-
ber. Þá verður jafnframt lokað
hinn 2. janúar vegna vörutalning-
ar,- rétt eins og í flestum öðrum
verzlunum.
fyrir jól festist borinn og tókst
ekki að ná honum upp fyrir
jólaleyfi.
I holum þeim, sem boraðar hafa
verið við Ytri Tjarnir í Eyjafirði
fyrir Hitaveitu Eyjafjarðar hefur
gengið á ýmsu og auk hruns í
holum hafa önnur vandamál
komið til. Nú í nokkurn tíma hefur
borinn Narfi verið fastur þar og
auk stanganna, sem eru dýrar,
hefur það kostað tíma, fé og
fyrirhöfn að reyna að ná þeim upp.
Það tókst þó ekki fyrir jólaleyfi og
er um mánuður liðinn frá því að
þetta stapp hófst þar.
Borinn Jötunn hefur að undan-
förnu verið á Framvellinum í
Reykjavík og lauk borun þar fyrir
jól. Að jólaleyfi loknu verður hann
settur á holu fyrir neðan Hótel
Esju og verður hún dýpkuð fyrir
Hitaveitu Reykjavíkur. Þá er
áformað að bora eina holu fyrir
Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi
og verður væntanlega farið í það
verk undir vorið. Engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar um boranir
við Kröflu á næsta ári.
Viðvörun
Blaðinu hcfur borist eftirfar-
andi frá Heyrnardcild Heilsu-
vcrndarstöðvar Rcykjavíkur.
Vegna áramóta þykir sérstök
ástæða til að vara fólk við
afleiðingum sprenginga. Munið
að heyrnartap, sem þær kunna
að valda, er algerlega óbætan-
legt. Auk þess geta ýmiskonar
önnur slys hlotist af sprenging-
um.
Foreldrar. Reynið að koma í
veg fyrir að börnin séu með.
kínverja eða aðrar sprengjur og
að þau forðist þá, sem hafa slíkt
um hönd.
Athugiö að flugeldar geta
einnig verið hættulegir. Þeir
eiga það til að springa með
háum hvelli í stað þess að fara á
loft.
Blys, sólir og annað þess
háttar hefur einnig valdið alvar-
legum slysum, ef fyllstu varúðar
er ekki gætt. Fjölmargir, eink-
um börn og unglingar, hafa
hlotið varanlegt heilsutjón af
sprengjum og öðru slíku um
áramót. Látið það ekki endur-
taka sig í þetta sinn.
Heilsan er fyrir öllu.
Gætið ýtrustu varúðar.
Hún veit
hvað hún
GJafasetíin
frá Glit:
Matarsctt
Kaffisctt
ídvfusett