Morgunblaðið - 29.12.1978, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1978
9
Halldór Guðjónsson:
Aætlanagerð
Jónas Ilaralz, bankastjóri,
gcrði hór í blaðinu hinn 7. þ.m.
nokkrar athugasemdir við tvær
grcinar sem ég skrifaði fyrir
nokkru í Frjálsa verzlun um
skýrslu verðbólgunefndar. Ég vil
hér svara þessum athugasemdum
bankastjórans lítillega og vona
að hann taki svörin sem efasemd-
ir sem beinast að sömu markmið-
um og honum eru vafalaust efst í
huga.
I lok greinar sinnar segir
bankastjórinn orð sem túlka má á
þann veg, að honum þyki líf,
tilvera og sjálfstæði Islands liggja
við að það takist að ná stjórn á
efnahagsmálum og draga úr verð-
bólgu. Eg er hjartanlega sammála
um þetta. En einmitt vegna þess
að það er um þjóðlífið allt að tefla
efast ég um að nokkur ráð sem
aðeins taka til eins þáttar þjóðlífs-
ins dugi til að ná þeim árangri sem
óskað er eftir.
Dagblaðagrein gefur ekki tæki-
færi til að gera þeim málefnum
sem bankastjórinn drepur á nein
viðunandi skil og þess vegna mun
ég takmarka mig hér við eitt atriði
sem hann nefnir: áætlanagerð. Það
er reyndar áreiðanlega rétt að hér
verður að leggja miklu meiri stund
á þessa iðju en hingað til hefur
verið gert. Það er vandséð með
hvaða öðrum hætti væri kleift að
safna og skipuleggja upplýsingar
sem nauðsynlegar eru við
ákvarðanir í efnahagsmálum. En
engu að síður er áætlanagerð
áhættusöm iðja og fremur ólíkleg
til árangurs.
Erfiðleikar
Það eru fyrst og fremst tvær
ástæður til að efast um, að
áætlanagerð verði árangursrík á
íslandi.
Annars vegar er ótrúlegt að hér
verði hægt að vinna áætlanir eins
nákvæmlega og vel og hægt er með
öðrum þjóðum stærri. Kostnaður
af ítarlegri áætlanagerð — bæði í
mannafla og fjármunum — yrði
okkur trúlega ofviða. Jafnvel þótt
við ættum hlutfallslega eins
marga hagfræðinga og aðrar
þjóðir — en það eigum við ekki —
og legðum jafnframt til áætlana-
gerðarinnar hlutfallslega eins
mikið fé af þjóðartekjum og aðrar
þjóðir dygði það ekki til að tryggja
það að við gætum sinnt þessum
viðfangsefnum sæmilega. Það sem
ræður umfangi áætlanaverkefnis-
ins er fyrst og fremst hversu
marga þætti þarf að taka til
greina, það skiptir minna máli nú
á dögum hversu miklar upplýsing-
ar falla undir hvern þátt. En
Islendingar eru heil þjóð og þess
vegna verður í heildaráætlunum
um efnahagslíf okkar að greina
viðfangsefnið í nánast eins marga
þætti og með miklu stærri þjóðum.
Þannig yrði allur kostnaður af
nákvæmari áætlanagerð með okk-
ur ekki í réttu hlutfalli við
mannfjölda og þjóðartekjur heldur
af svipaðri stærðargráðu og með
miklu stærri þjóðum sem hafa
meiri tekjur.
Ilalldór Guðjónsson.
Afleiðingin af þessu er sú að
einn maður yrði að vinna þau störf
sem margir menn vinna annars
staðar og þeir menn sem til greina
kemur að vinni þessi störf hafa
þegar mörg verkefni á höndum.
Það er óhugsandi að unnt sé að
leysa áætlunarverkefnin vel af
hendi við þessi mannaflaskilyrði.
Hversu ágætir sem íslenskir efna-
hagssérfræðingar eru þá geta þeir
ekki hver um sig sérhæft sig svo í
mörgum einstökum greinum að
vinna þeirra að þeim geti staðist
samjöfnuð við störf starfsbræðra
þeirra erlendis á öllum þeim
sviðum sem til áætlanagerðarinn-
ar þarf.
Hins vegar er líklega
einstaklega erfitt að gera traustar
áætlanir um íslenskt efnahagslíf
einmitt vegna þess að þjóðin er
lítil og upplýsingarnar sem falla
undir hvern greiningarþátt
áætlanagerðarinnar fáar. Smá-
atvik, smábreytingar í einni at-
vinnugrein, tilfærsla örfárra
manna milli atvinnugreina geta
hér valdið marktækum breyting-
um á samsetningu þeirra upplýs-
inga sem nota þyrfti til áætlana-
gerðarinnar. En jafnframt eru
stærstu afhafnasvið okkar — þau
svið þar sem magn upplýsinganna
er mest — undirorpin ófyrirsjáan-
legum sveiflum. Þetta tvennt
veldur því að þær aðferðir sem
aðrar þjóðir beita við áætlanagerð
og margar hverjar eru reistar á
staðtölulegum aðferðum munu
duga okkur illa.
Aætlahir gerðar eftir erlendum
fyrirmyndum yrðu hér því mjög
óvissar.
Hættur
Það eru þrjár meginástæður til
þess að áætlanagerð kynni að
verða hér varhugaverð, jafnvel
hættuleg og stefndi líklega að
stjórnarháttum sem ekki féllu að
óskum landsmanna.
I fyrsta lagi veldur óvissa
áætlanana, sem nefnd var hér að
ofan, því að ef við fylgdum
áætlununum eftir væru miklar
líkur til þess að við gerðum við og
við meiriháttar vitleysur, vitleysur
sem væru bundnar af áætluninni,
þ.e. kerfisbundnar vitleysur. Slík-
ar vitleysur eru mjög hættulegar
vegna þess að þær vinda gjarnan
upp á sig, það verður að fjárfesta
meira til að bjarga fyrri fjárfest-
ingum þótt óarðbærar séu. Þessi
nauðsyn yrði sjálf til þess að knýja
menn til að framfylgja gerðum
áætlunum, þannig að áætlunin
yrði ekki aðeins til þess að menn
ættu hægara með að átta sig á því
hvernig efnahagslífið er í raun
heldur yrði hún bindandi um
framkvæmdir og aðgerðir.
I öðru lagi verður mannfæðin,
sem að ofan var nefnd, og söfnun
upplýsinga og margra mismun-
andi tegunda verkefna á hendur
fárra manna til þess að þessir
menn verða mikilvægir aðilar
ákvarðana um áætlunina og fram-
kvæmd hennar. Það er reyndar
þegar svo að vegna mannafla-
skorts eru sömu mönnum falin
verkefni á öllum stigum málsmeð-
ferðar. Það eru hér gjarnan sömu
menn sem safna upplýsingum,
vinna úr þeim, leggja á ráðin um
hvaða viðbrögð skuli höfð, og
framkvæma ákvarðanir að lokum.
Þegar málum er þannig háttað er
óhjákvæmilegt að þessir menn
verði beinir aðilar að málum, það
er að málin fari að snúast að
einhverju leyti um þessa menn,
afstöðu þeirra og hagsmuni. Eg á
hér ekki við það að þessir menn
séu líklegir til að hagræða málefn-
um sem þeim eru falin sjálfum sér
til hagsbóta, heldur við hitt að
dskar eftir
blaðburöarfólki
AUSTURBÆR:
□ Laugavegur 1—33,
□ Bergstaöastræti
VESTURBÆR:
□ Nýlendugata
□ Vesturgata 2—45
□ Grenimelur 26—49
□ Hávallagata
UPPL. I SIMA
35408
ítarleg og umfangsmikil störf
þeirra, sem mótast af persónulegri
afstöðu meðal annars, verða sjálf-
stæður þáttur í málavöxtum.
I þriðja lagi er það að íslensk
stjórnvöld einkennast mjög af
átökum' hagsmunaaðila, eins og
sjá má á tillögum Verðbólgunefnd-
ar um samstarfsnefnd, og jafn-
framt á því að nú er lögð sérstök
áhersla á það að núverandi
ríkisstjórn sé hliðholl launþegum.
Það er mjög líklegt við þessar
aðstæður að þrýstingur hags-
munaaðila á ríkisvaldið yrði til
þess að þeir þættir áætlana sem
eru hagsmunaaðilum þóknanlegir
hverju sinni yrðu gerðir bindandi,
þ.e. mikilvægir hlutar áætlananna
yrðu ekki aðeins til glöggvunar
heldur yrði að áformum sem hrint
yrði í framkvæmd. Þeir sérfræð-
ingar sem áætlunina gerðu tækju
að sjálfsögðu tillit til þessara
stjórnmálalegu aðstæðna og það
styrkti enn persónulega aðild
þeirra að málum sem getið var um
hér að framan.
Öll þessi þrjú atriði virðast mér
benda til þess að áætlanagerð yrði
til þess að auka miðstýringu í
landinu og herða tök einkahags-
muna og einkahagsmunahópa á
ríkisvaldinu. Ég held að hvoru-
tveggja sé Islendingum almennt
ógeðfelit.
43466 - 43805
OPIÐ VIRKA DAGA
TIL KL. 19 OG
LAUGARDAGA KL.
t; 10—16. _
Úrval eigna á
_ söluskrá-
28611
Tálknafjörður
Trésmíðaverk-
stæði íbúö
286 fm trésmíðaverkstæði
(nýtt) á einni hæð ásamt öllum
nauösynlegum vélakosti, þá
fylgir einnig 3ja herb. 100 fm
íbúö. Skipti á fasteign á
stór-Reykjavíkursvæðinu
æskileg.
Matvöruverzlun
Til sölu er vel staösett matvöru-
verzlun í fullum rekstri. Mjög
hentugt tækifæri t.d. fyrir
samhenta fjölskyldu. Góður
lager. Eigið húsnæði. Verð
samtals 12,5 millj. Upplýsingar
aðeins á skrifstofunni, ekki í
síma.
Hannyrðaverzlun
Til sölu er hannyrðaverzlun í
gamla miöbæ Reykjavíkur.
Rúmgott húsnæði. Leiga til
langs tíma. Uppl. aðeins á
skrifstofunni, ekki í síma.
Efnalaug —
Góðar vélar
Til sölu er efnalaug í fullum
rekstri. Mjög vel staðsett. Allur
vélakostur er mjög til fyrir-
myndar og endurbættur af
hugviti og að öllum líkindum sá
besti í þessari iðn í landinu.
Fyrirtækið er í eigin húsnæði
og til greina kemur að selja
reksturinn og leigja húsnæðið
eða selja hvort tveggja. Verð á
rekstri er 8—8,5 millj. Verð
samtals 22 millj. Upplýsingar
aðeins á skrifstofunni ekki í
síma.
Fasteignasalan
Hús og eignir
Bankastræti 6
Lúðvik Gizurarson hrl
Kvöldsími 17677
43466
Kópavogur — einbýli
hæð og ris allt nýstandsett. Á hæðinni, stórar fallegar stofur,
3 svefnherb., gott eldhús og baö. Tvö herb. í risi, 50 fm
bílskúr. Stór og fallegur trjágarður. Laust 1. apríl.
Furugrund — 5 herb.
Sérstaklega falleg, fullbúin. Laus í byrjun janúar.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
------------- Hamraborg 1 - 200 Kópavogur • Simar 43466 & 43805
Sóluati. Hjðrtur Gunnaraa. Sölum. Vilhj. Einaraa. löglr. Pitur Elnaraaon.
SIMAR 21150-21370
SÖLUSTJ. LARUS Þ. VALDIMARS.
LÖGM. JÓH. Þ0RÐARS0N HDL
Til sölu og sýnis m.a.:
2ja herb. íbúö í háhýsi
efst viö Ljósheima á 8. hæð um 65 ferm., úrvals íbúð. Nýtt
tvöfalt verksmiðjugler. Mjög góö sameign, teppalögð,
vélasamstæður í þvottahúsi, lyfta, svalir. Stórkostlegt
útsýni.
3ja og 4ra herb. íbúöir við Hraunbæ
3ja herb. íbúð á 3. hæð um 90 term. búr og sér þvottahús,
bílskúr með 3ja metra lofthæð ffylgir.
4ra herb. á 3. hæö um 110 ferm., mjög góö íbúö, 3
svefnherb., miklir skápar, íbúðin er teppalögö með útsýni.
Hæð í príbýlishúsi — verkstæöi
4ra herb. hæð um 102 ferm. við Langholtsveg. Rúmgóð
sólrík, vel með farin. 50 ferm. verkstæði. Bílskúr fylgir.
Neöra Breiöholt — Fossvogur
Þurfum að útvega gott raðhús. Traustur kaupandi.
Góð íbúð óskast
í vesturborginní.
AtMENNA
FASTEIGNASAt AN
LAUGAVEGI 49 SIMAR 21150 21370