Morgunblaðið - 29.12.1978, Side 28

Morgunblaðið - 29.12.1978, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1978 VtEÍ> M0RödK/-íp^_ RAff/nu 1 fa -ivK]# □□ \ L/o i -TeT/7' «o« A' Það væri skemmtilegt að ' bregða sér á ball í kvöld? Svona veður er ekki einu sinni hundaveður! Víkiiralltfyrir peningum? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í jólaþraut númer tvö þurfti að finna örugRa leið til að fá níu slagi í þrem Kröndum, lokasögn, sem margir hafa sjálfsagt verið hissa á og þótt fjögur hjörtu eðlilegri. I»að má til sanns vegar færa en þá hefði viðfangsefnið heldur ekki verið fyrir hcndi. Gjafari suður, allir á hættu. Norður S. KDG53 H. G632 T. KG „ L. 74 Vestur Austur S. 84 S. Á1096 H. Á1098 H. 4 T- 74 Suöur T-98652 L. KG853 g 72 L. 962 T. KD75 T. ÁD103 L. ÁDIO Andstæðingarnir höfðu allt af sagt pass og vestur spilaði út lauffimmi. Slaginn fékkstu á tíuna og síðan þurfti að velja leið sem gæfi þrjá slagi á hálitina og tryggði þannig vinninginn. Nú sjáum við öll spilin og auðvelt er að sjá hvað skeður sé spaðanum spilað. Austur tekur þá slras á ásinn, spilar laufi og úr því vestur á hjartaásinn verður ekki hægt að vinna spilið. Við höfum þá búið til fjóra slagi á hálitina en áöur en við getum notið jæirra hefur vörnin tekið sína fimm. Þannig dugir ekki að spila spöðunum nema vestur eigi ásinn og slík skilyrði nægja okkur ekki. Eins og spilið liggur nægir að spila lágu hjarta að gosanum og þegar hann fær slaginn má snúa sér að spaðanum. En þettá er eingöngu vegna þess, að hjartás- inn er á hendi vesturs. Hefði austur valdið á hjartanu væri uppi sama staða og eftir spaðasókn. Eina örugga leiðin er því að spila hjörtunum frá borðinu. Og því var rétta lausnin að spila lágum tígli frá hendinni eftir að hafa tekið fyrsta slaginn með lauftíu. Ætti austur hjartaásinn þýddi ekki fyrif hann að taka slaginn þegar lágu er spilað frá borðinu. Þar með fengjust slagirn- ir þrír, sem þarf til að vinna spilið, allir á hjarta. En vestur má eiga hjartaásinn. Hann getur ekki gert neitt mein og að lokum fáum við tíu slagi. COSPER Eg sakna ætíð æskustöðvanna! „Orðið nægjusemi er fallegt orð. Það lýsir fögrum einkennum hvers manns sem af sér lætur leiða fagrar athafnir innan ramma þess. Að kunna að elska og bera virðingu fyrir umhverfi sínu og miðla þeim sem skortir af því sem maður á nóg af sjálfur er dásamleg manngerð, — og að lifa í hæfilegri fátækt er fallegt líferni og í raun eftirsóknarvert vegna þess að mikið vill ætíð meira og þeir menn eru því miður orðnir of margir sem sett hafa gullkálfinn á altari lífs síns. Við Islendingar erum orðnir hátt skrifaðir á lista yfir vel- megunarþjóðir heimsins og mein velmegunarinnar eru fyrir löngu í ljós komin. Afleiðingarnar eru ískyggilegar. Streitan og áhyggj- urnar yfir öllum eignunum og lausafénu gera orðið að víta- hring ringulreiðar, hroka, eigin- girndar og brjálæðis. Fólk vill fá allt upp í hendurnar. Allt er sjálfsagt. Það vill stórt og rúmgott húsnæði með öllum hugsanlegum þægindum, fleiri en einn bíl til afnota, nógan fatnað, mat, vín og skemmtanir. Ekkert kemst að nema peningar og aftur peningar. Allt skal víkja fyrir þeim. Ástin, kærleikurinn, friðurinn, fjölskyldan, mennirn- ir og Guð, já — og Guð. Hvílíkur vítahringur. Eru það ekki ávextir streitunnar og áhyggnanna sem knýja fólkið til þess að éta sig fullt af pillum, drekkja þeim í áfengi að kvöldi dags og leggja heimilislíf fólks í rúst? Eru það ekki þeir sem éta gat á magann og græðgin sem uppétur friðinn? Já, við ættum að hugsa okkur að minnsta kosti þrisvar um áður en við veljum það að renna okkur niður rennibraut þessara lífshátta. Því mikið eiga þeir gott sem lifa sínu einfalda lífi og þurfa ekki að hafa áhyggjur af biluðu þvottavélinni sinni og þurfa ekki að keppast við að moka inn peningurri fyrir nýjum „Fjólur — mín ljúfa“ Framhaldssaga eftir Else Fischer Jóhanna Kristjónsdóttir pýddi 19 Eftir að hafa spíið vært og rölega hallaðist Susanne að því morguninn eftir að hyggilegast væri að afskrifa með öllu hinar hvimleiðu uppiifanir dagsins áður. Að vfau varð kúlan á enninu æ litskrúðugri og minnti hana á svo að ekki varð um villzt að atburður hafði gerzt í raun og veru. En núna í birtunni og blíðunni fannst henni ógerningur að taka þetta eins alvarlega og daginn áður. Vissulega var það fráleitt að láta sér detta f hug að maðurin á veginum hefði verið dauður eða særður. Hann hafði auðvitað — eins og þau hin héldu fram — verið hlindfullur og hann hafði verið á flakki með öðrum af því sauðahúsi og af einhverri ástæðu kærði sá sig ekki um að hún færi að bianda sér í málið. Hún þurfti að minnsta kosti ekki að óttast að særðir eða meðvitundarlaus- ir menn lægju þarna á skógar- stignum, nú þegar bæði lög- reglan og ýmsir úr fjölskyld- unni höfðu farið um allt nágrennið Susanne teygði úr sér í rúminu og lét fara vel um sig. Klukkan var ekki nema átta að morgni og Susanne ákvað að fara á fætur svo að hún gæti notið dagsins sem lengst og mest — þessa indæla dags sem hún átti að eiga með Martin. Hún stakk fótunum í inniskóna og fór í slopp og hugðist fara fram í baðherbcrgið en fyrst ætlaði hún að loka glugganum, svo að hlýnaði eilítið í herberginu. Hún stóð við gluggann og dáðist að útsýninu þegar hún allt í einu kom auga á einhvern nálgast húsið. Fyrst var hún sannfærð um að þar hlyti Gitta að vera á ferð og hefði hún verið í morgun- göngu, en þegar hún hugði nánar að kom í ljós að það var Lydia. Hún glæsilega og fullkomna Lydia var þá morgunhani og náttúruunn- andi. Lydia í gömlum síðbuxum og regnkápu, en snyrtileg og fáguð sem fyrr. Hún smeygði sér inn í litla stfginn svo að hún þyrfti ekki að fara yfir hlaðið og þegar Susanne heyrði dyr falla að stöfum gerði hún þvi skóna að Lydia hefði farið inn eldhúsmegin í húsið. begar Susanne kom niður stigann klukkutíma siðar mætti hún ringlaðri en ákveðinni Mögnu frænku í forsalnum. Hún var að draga upp stóru Borgundarhólms- klukkuna og þegar hún varð vör við Susanne hætti hún verki sínu og Susanne tók eftir því að hún hafði gleymt að loka og taka lykilinn úr þegar hún kom hröðum og ögn fátlegum skrefum til móts við Susanne. — Já, ég sendi Martin inn í þorpið eftir rjóma, svo að við tvær verðum að skemmta hvor annarri, sagði hún og leiddi Susanne aftur til herbergis hennar. Syfjuleg Gitta birtist á gang- inum en þegar hún sá þær var eins og birti yfir andliti henn- ar. Hún hafði sveipað um sig slopp og kom á eftir þeim inn f herbergi Susanne. — Við þurfum ekki á fleir- um að halda. Magna frænka leit hálfreiðilega á Gittu og það augnaráð hefði dugað til að hrekja flesta á braut. — Susanne og ég þurfum að tala saman undir fjögur augu, Gitta. — Ég held ég þekki þig, þegar þú þarft að tala við cinhvern undir fjögur augu. Gitta dró upp lúinn sfgar ettupakka upp úr vasanum á sloppnum og rétti að Susanne áður en hún fékk sér sígarettu. — Susanne á auðvitað að gera eitthvert viðvik fyrir þig það þykist ég nokkurn veginn vita... Hún dró að sér reykinn og horfði hugsi á Mögnu frænku. — Ef þú vilt endilega blanda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.