Morgunblaðið - 29.12.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1978
31
Ljósm. Kristján.
Ólafur Jónsson skorar glæsilega eitt af 6 mörkum sínum í leiknum í gærkvöldi.
Auðveld bráð
ÍSLENSKIR áhorfendur geta sannarlega huggað sig við þaö, að Þó að landsliöiö í handknattleik hafi
verið í nokkrum öldudal aö undanförnu, eru hlutirnir ekki svo djúpt sokknir, að við séum sestir á
bekk með peim pjóðum sem minnst kunna í ípróttinni. Þaö kom meira en berlega í Ijós pegar
íslendingar unnu hlægilega auöveldan sigur á Bandaríkjamönnum í gærkvöldi. Lokatölurnar uröu
næstum ótrúlegar, 38—17 íslendingum í vil.
i
s Síðari landsleik-
j urinn á Selfossi
Til gamans má geta þess,
að íslenskur handknattleikur
hefur áður verið rislægri en
nú, því að á móti einu í
Bandaríkjunum fyrir nokkr-
um árum, unnu Bandaríkja-
menn tvívegis sigur á Islend-
ingum. Þá hefur íslenskur
handbolti líklega sokkið hvað
lægst, því að það þarf ekkert
að skafa utan af því, að
bandaríska liðið er eitthvert
það lélegasta sem stigið hefur
á fjalir Hallarinnar. Þeir
voru svo slakir, að maður gat
hæglega ímyndað sér jafnvel
SÍÐARI landslcikur íslcndinga
ok Bandaríkjamanna fer fram
á Sclfossi í kvöld og hcíst hann
kl. 20.15. Sætaferðir verða frá
B.S.Í. kl. 18.00 og strax til baka
að leik loknum.
íþróttahúsið á Selfossi tekur
um 800 manns og er gólfflötur
hússins 22x44 metrar. Er þetta
fyrsti meiri háttar íþrótta-
viðburðurinn sem fram fer í
húsinu, og væntanlega fjöl-
menna Selfyssingar á þennan
fyrsta landsleik sem þarna fer
fram.
^Koncilia til Man. Utd.?
Maier til Bristol C.?
3 ENSK 1. deildarlið hafa nú
erlenda leikmenn alvarlega í
sigtinu, en í hyrjun þessa
kcppnistímabils var í Engiandi
loks heimild gefin fyrir því að
tefla fram erlendum leikmönn-
um. Þegar leika alinokkrir
leikmenn ba'ði frá Argentínu
og Evrópu í ensku deildinni og
nú eru verulegar horfur á að
þeim fjölgi á næstunni.
Manchester Utd. reyndi fyrir
skömmu að tryggja sér argen-
tínska landsliðsmarkvörðinn
Ubaldo Fillol, auk Daniels
Pasarella. Það mistókst, en
United gafst ekki upp. Nú hefur
félagið boðið í austurríska
landsliðsmarkvörðinn Friedl
Koncilia, en hann hefur leikið 43
landsleiki fyrir Austurríki.
Koncilia var talinn einn af bestu
markvörðum HM í Argentínu í
sumar sem leið.
Bristol City er á höttunum
eftir Gert Maier, vinstri útherja
Ajax í Hollandi. Maier kom til
Bristol fyrir skömmu þar sem
áætlað var að hann dveldi í viku
og kynnti sér aðstæður með
samning fyrir augum.
Middlesbrough hefur þegar
sótt um atvinnuleyfi fyrir Bozo
Jankovic, leikmann með
Sarajevo í Júgóslavíu. Jankovic
er ýmist tengiliður eða fram-
herji. Talið er að kaupverð
Jankovic verði um 100.000 sterl-
ingspund og sömu sögu er að
segja um Friedl Koncilia. Hins
vegar er áætlað að Maier muni
kosta Bristol City um 150.000
pund.
sterkari liðin í 3. deild myndu
skella þeim nokkuð örugg-
lega. Vel getur þó verið að
bandaríska liðið sé hér dæmt
of hart, kannski átti liðið
aðeins slæman dag. Það getur
komið fyrir bestu menn eins
og við Islendingar vitum af
biturri reynslu. Það kemur í
ljós þegar liðin leika á Sel-
fossi í kvöld, hvort gæða-
munurinn á liðunum er virki-
lega svona rosalegur.
Gangur leiksins var í stuttu
máli sá, að jafnræði var
fyrstu mínúturnar eins og
venja er, jafnt í 3—3. A
þessum tíma misnotuðu ís-
lendingar hvert dauðafærið
af öðru. Síðan fór að draga í
sundur með liðunum og stað:
an í hálfleik var 15—8. I
síðari hálfleik dró enn í
sundur og lék þá íslenska liðið
oft stórkostlega góðan
sóknarleik. Það þarf ekki að
orðlengja, að í sundur dró þar
til að 21 mark skildu á milli,
38-17.
Sóknarleikur íslenska liðs-
ins var oft sérlega glæsilegur,
en þess ber þó að geta, að
vörnin sem við var að etja, lék
eins og um fyrsta skipti væri
að ræða. Varla ætti maður að
tína neina sérstaka úr fyrir
góða framgöngu í sókninni,
nema ef vera skyldi horna-
mennina Erlend Hermanns-
son og Ólaf Víking Jónsson.
Báðir skoruðu þeir falleg
mörk og mörg, enda var
spilað mikið upp á að opna
fyrir þá leiðina. Erlendur lék
þarna sinn fyrsta landsleik og
fleiri hljóta að fylgja í
kjölfarið. Þá voru Axel, Ólaf-
ur H. og Páll Björgvinsson
góðir í sókn.
Varnarleikurinn var hins
vegar ekki til að hrópa húrra
fyrir og markvarslan var enn
slakari. Óli Ben. gætti marks
j fyrri hálfleik og varði lítið.
Jens reyndi sig í síðari
hálfleik og varði lítið nema
rétt í lokin. Það er mikið að
láta jafn lélegt lið og það
bandaríska skora 17 mörk,
allt of mikið.
Joe Storey, smávaxinn og
eldsnöggur hornamaður og
Zoney Urem, spilstjórnandi,
voru þeir helstu sem risu úr
meðalmennskunni hjá gestum
okkar. Ýmsir hinna virtust
varla kunna að grípa og engin
frambærileg skytta er í lið-
inu. Gott ef ekki hefur verið
afturför hjá Bandaríkja-
mönnum, síðan þeir sóttu
okkur síðast heim.
Allir íslensku leikmennirn-
ir utan Árni Indriðason skor-
uðu mark eða mörk í leiknum,
Árni fékk þó sín færi og hefði
átt að skora 2—3 mörk
léttilega. Mörkin skiptust
þannig: Axel 12 (6 víti),
Ólafur Jónsson 6, Þorbjörn
Guðmundsson 5, Páll Björg-
vinsson og Erlendur Her-
mannsson 4 hvor, Ólafur H.
Jónsson 3, Sigurður Gunnars-
son 2, Viggó og Stefán
Gunnarsson 1 hvor.
Mark Wright skoraði mest
Bandaríkjamannanna, 4
mörk, Joe Storey 2, Zoney
Urem, Mike Lenard, Alex
Hagans, Bob Djakovic og Jim
Buehning eitt hvor. Og ekki
má gleyma Bill Johnson með
sín 2 mörk.
Gunnlaugur Hjálmarsson
og Björn Kristjánsson dæmdu
prýðilega, enda einkar prúð-
mannlegur leikur, aðeins ein
áminning, Árni, og enginn
rekinn útaf. — gg.
446.600 ji
kr. fyrir j
10 rétta 5
í 18. leikviku getrauna
komu (ram 10 réttir í 3 röðum
og vinningur fyrir hverja röð
kr. 416.500.- og 97 raðir
reyndust með 9 rétta leiki og
vinningurinn (yrir hverja röð
kr. 5.800.-
Eftir að seðillinn var prent-
aður, barst tilkynning frá
ensku deildakeppninni um, að
leikur Bolton og Manchester ^
United færi fram á föstudags- W
kvöld, sennilega hefur forráða- ^
mönnum Bolton ekki litist á að
leika á sama tíma í nokkurra
km fjarlægö frá leik Manchest-
er City — Nottingham Forest.
Þess vegna komu ekki til greina
nema 11 leikir á seðlinum, en
þar sem 3 leikjanna hinna var
frestað, varð að grípa til
teningsins, scm sagði, að Wolv-
es mundi fá bæði stigin á
útivelli gegn Liverpool. Fæst-
um mun hafa fallið sá úrskurð-
ur í geð, en heimasigur hjá
teningnum hefði litlu breytt,
aðeins flutt þá seðla, sem
reyndust með 10 rétta, upp í 11
rétta.
í
Stjarnan
setti met 8
!
I
S
STJARNAN í Garðabæ setti
um helgina nýtt íslandsmet í
maraþonknattspyrnu 1
iþróttahúsinu Ásgarði. 8 pilt-
ar léku þá í 27 kíukkusUindir
og einni mínútu betur. Nýtt
met.
I maraþonleikjum þessum er
aðeins tekin 5 mínútna hvíid
hvern klukkutíma og voru
menn því eðlilega þrekaðir
mjög í leikslok. Eins og fyrri
maraþonkeppnir í vetur og þær
mörgu, sem eru vafalaust fram-
undan, var hér um fjáröflunar-
leið að ræöa. Og Stjarnan
græddi vel, rúma milljón.
Keegan
vinsæll S
ENSKI knattspyrnusnilling- £
urinn Kevin Keegan, leikmað-
ur með vestur þýska liðinu
Hamburger SV, var í fyrradag ^
kosinn ieikmaður ársins í
Þýskalandi.
Það voru leikmenn þýsku
liðanna sjálfir sem kusu
Keegan. Keegan hefur leikið
frábærlega meö Hamburger í
vetur og það er af sem áður var,
fyrst þegar Keegan var hjá
Hamburger, að leikmenn liðs-
ins vildu ekki þekkja hann,
sendu knöttinn ekki til hans og
létu yfirieitt eins og hann væri
ekki með í leiknum. Nú er hann
burðarás liðsins og að flestra
dómi vel að nafnbótinni kom-
1
Handbolti á 4
I
Skaganum
IIRAÐMÓT í handknattleik
fer fram á Akranesi á morgun
og hefst fyrsti leikurinn
klukkan 13.00 í íþróttahúsinu
Það eru 4 lið sem þátt taka,
landsliðið, Víkingur, Valur og
gestgjafarnir ÍA. Leikið verður
í 2x20 mínútur og leika fyrst
landsliðið og Víkingur. Síðan
eigast við Valur og ÍA. Sigur-
vegararnir leika síðan um
1.—2. sætið, en tapliðin saman
um 3.-4. sætið.
s
I