Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 1
8. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. landinu og hefðist nú við utan höfuðborgarinnar. Sakaði furstinn núverandi valdhafa í Phnom Penh um að vera leppa Hanoistjórnar- innar. Afstaða Öryggisráðsins óljós Óvíst var í kvöld hvort Öryggis- ráðið tekur málefni Kambódíu til umræðu. Níu ríki af fimmtán í ráðinu verða að fallast á að taka málið á dagskrá, en Sovétríkin og stuðningsríki þeirra í ráðinu hafa mjög lagzt gegn því aö málið verði rætt. Sihanouk sagði þó í kvöld að hann teldi að meirihluti væri fyrir því í ráðinu að taka beiðni hans til umræðu. Sjá „Aðeins Rúmenía .. á bls. 16 í Mbl. í dag. Uppreisnarmenn í Kambódíu lcggja undir sig hina öldnu konungshöll í höfuðborginni Phnom Penh. Mynd þessi er frá víetnömsku fréttastofunni og var send til Tokyo. Stmamynd AP. Kambódía: kné fylgja kviði Óvíst um árangur Sihanouks hjá S.Þ. Bangkok, New York, 10. janúar — AP-Reuter. VÍETNAMSKI herinn hélt í dag áfram framrás sinni innan Kambódíu í átt að thailenzku landamærunum, en óskipulegur liðsafli stjórnar Pol Pots veitti nokkra mótspyrnu á stöku stað og er enn talinn ráða yfir fimmtungi landsins. Öll ríki Varsjárbandalagsins að Rúmeníu undanskilinni hafa viðurkennt stjórn hinna nýju valdhafa í Phnom Penh og sama er að segja um Eþíópíu, Afganistan og ýmis önnur ríki, þar sem marxistar fara með völd. Sihanouk fyrrum þjóðarleiðtogi Kambódíu sést hér eftir komu sína til Sameinuðu þjóðanna í gær. Ilann er umkringdur aðstoðarmönnum, lífvörðum og fréttamönnum. stmamynd ap. Fregnir stangast á um afdrif Pol Pots, leiðtoga rauðu khmeranna, og eru fregnir á kreiki um að hann hafi verið ráðinn af dögum, en sendiherra stjórnar hans í Kína lét það berast í dag að hann væri í fullu fjöri og færi enn með stjórnartaumana. Eitthvað hefur dregið úr loft- árásum víetnamska flughersins á svæði sem rauðu khmerarnir ráða enn, og telja vestrænir stjórnarer- indrekar í Thailandi að skammt verði að bíða þess að Víetnamar og stuðningsmenn þeirra í Kambódíu hafi landið allt á valdi sínu. Víetnamar hafa náð á sitt vald miklu af vopnum, þ.á m. 25 herflugvélum, sem Kínverjar höfðu látið stjórn Pol Pots í té og einnig gamlar bandarískar sprengj uflugvélar. Bréí írá stjórn Pol Pots Hermenn úr röðum rauðu khmeranna afhentu í dag bréf á landamærum Kambódíu og Thai- lands, sem ætlað var stjórn Thailands. Er talið að í bréfinu hafi verið leitað hælis fyrir leiðandi menn í stjórn rauðu khmeranna. Thailandsstjórn hefur sagst mundu heimila þessum aðilúm að hafa stutta viðkomu í landinu á leið til þriðja lands, sem að öllum líkindum yrði Kína. Búizt var við því að hópur forystumanna úr stjórn Pol Pots kæmi til Thailands yfir landamærin í dag og með þeim hópur kínverskra ráðgjafa þeirra, en af því varð þó ekki. Víetnamar láta Hætta er á herfor- ingjabyltingu í íran — segir Bakhtiar forsætisrádherra Teheran, 10. janúar. AP, Reuter. Sihanouk ræðir við Waldheim Sihanouk fursti fyrrum þjóðar- leiðtogi í Kambódíu ræddi í dag við Waldheim framkvæmdastjóra S.Þ. og Donald Mills, sendiherra Jamaica, sem er forseti Öryggis- ráðsins í þessum mánuði. Sihan- ouk sagðist mundu fara þess á leit að Öryggisráðið legði fyrir Viet- nama að snúa til síns h'eima og láta Kambódíumenn sjálfa um að leysa sín deilumál ef einhver væru. Sagðist Sihanouk hafa verið í beinu talstöðvarsambandi við háttsetta menn í stjórn Pol Pots sem væri hin eina rétta stjórn í SHAPUR Bakhtiar, hinn nýi forsætisráðherra írans, sagði í kvöld að hætta væri á því að herinn gerði byltingu í landinu, en hann vonaði engu að síður að keisarinn léti það ekki aftra sér frá því að fara úr landi í frí. íranski herinn hafði fyrr í dag borið til baka ummæli, sem franska blaðið Le Figaro hafði eftir írönskum hershöfðingja, sem staddur er í París, þess efnis að bylting hersins til stuðnings keisaranum væri yfirvofandi. Meiri háttar rafmagnsbilanir bættu í kvöld gráu ofan á svart í erfiðleikum Iransstjórnar og varð að skammta rafmagn víða í landinu, m.a. í höfuðborginni, en þar undirbýr Bakhtiar nú harða baráttu til þess að fá báðar deildir þingsins til að samþykkja trausts- yfirlýsingu á stjórn sína. Nauðsyn- legt er fyrir Bakhtiar að fá traust þingsins til að stjórn hans geti raunverulega tekið við völdum og keisarinn haldið úr landi í leyfi. Upplýst var í dag að auðæfi þau, sem keisarinn hefur sagst munu láta af hendi, nema um 50“ miiljónum Bandaríkjadollara, en hann og fjölskylda hans eru talin eiga margfaldar eignir á við það erlendis. Hyggst keisarinn leggja eignir sínar í íran til Pahlavi-stofnunarinnar, sem hann hefur sjálfur stjórPað til þessa, en stofnunin beitir sér fyrir ýmsum góðgerðarmálum. Þessar ráðstafanir hafa þó ekki nægt til að lægja óánægjuna með keisar- ann og voru víða mótmæli gegn honum í íran í dag þrátt fyrir kulda, en ekki kom til átaka. Bandarísk flugsveit send til Saudi-Arabíu Washington, 10. jan. — AP-Reuter. BANDARÍKJASTJÓRN ákvað í dag að tilmælum stjórnar Saudi-Arabfu að senda 12 orrustuþotur af fulikomnustu gerð til Saudi-Arabíu til að kenna heimamönnum meðferð þeirra og sýna fram á náið samband ríkjanna og áhuga Bandarikja- manna á að tryggja öryggi Saudi-Arabíu. Flugvélarnar eru af gerðinni F-15 og hafa Saudi-Arabar pant- að 60 slíkar vélar fyrir jafnvirði 2,5 milljarða dollara, en afhend- ing þeirra á ekki að hefjast fyrr en eftir þrjú ár. Ráðamenn í Saudi-Arabíu hafa haft vaxandi áhyggjur af ólgunni í íran og óttast að óeirðirnar kunni að breiðast til þeirra. Ýmsir frétta- menn í Washington telja að tilgangur heimsóknar flugsveitar- innar til Saudi-Arabíu sé að styðja við bakið á stjórninni þar. VerkfaU bjargar tugum frá dauöa Montreal. 10. janúar — AP. FIMM menn fórust og einn slasaðist alvarlega, þcgar sprenging varð í mang- an-verksmiðju Union Carbide-fyrirtækisins í borg- inni Beauharnois, um 25 kfló- metra frá Montreal í Kanada. Fjórir starfsmenn komust lífs af í slysinu. en það varð með þeim hætti að sprenging varð í risastórum mangan-ofni og breiddist eldur þegar út um verksmiðjuna. Þeir sem fórust voru allir yfirmenn og verkstjórar í verksmiðjunni, en þeir hafa séð um allan reksturinn frá því 25. nóvember sl. er almennir starfsmenn, 400 að tölu, fóru í verkfall. Ekki er talið að um skemmdarverk hafi verið að ræða, en lögregla rannsakar nú slysið. Verkfallsmenn stóðu vörð utan við verksmiðjuna til að meina utanaðkomandi að- gang og sagði lögreglan í dag, að mildi hefði verið, að verkfall var á vinnustaðnum, því annars hefðu tugir manna, sem vinna við ofninn að staðaldri, beðið bana. Sænska fjárlaga- frumvarpið: Methalli a fjar- lögunum Stokkhólmi. 10. janúar. Reuter, AP. Minnihlutastjórnin. sem með völd fer í Svíþjóð. lagði í dag fram fjárlagafrumvarp sitt og er þar gert ráð fyrir methalla. sem nemur 45 milljörðum sænskra króna, eða einum fjórða af niður- stöðutölum frumvarpsins. Inge- mar Mundebo efnahagsmálaráð- herra fvlgdi frumvarpinu úr hlaði og kvað þennan halla á fjárlögum nauðsynlegan þar eð Svíar væru að vinna sig upp úr verstu efnahagserfiðleikum sem yfir þá hefðu dunið frá því á fjórða áratugnum. Ekki er gert ráð fyrir neinum skattahækkunum í frumvarpi stjórnarinnar. en hins vegar auknum framlögum til félags- mála og þróunarhjálpar við bágstödd ríki. sem valda því. að fjárlagahallinn eykst úr 32 milljörðum króna í 45 milljarða. Sænska stjórnin hyggst verja 4,37 milljörðum sænskra króna til aðstoðar við þróunarlönd, sem er rétt rúmlega 1% af áætluðum þjóðartekjum. Mest aðstoð rennur til Víetnams eða 400 milljónir sænskra króna, en önnur ríki sem miklá aðstoð fá eru Tanzanía, Indland, Mozambique og Bangla- desh. Þá fá Kúbumenn 30 milljónir sænskra króna í aðstoð, þrátt fyrir að hörð gagnrýni hafi komið fram í Svíþjóð á afskipti þeirra af málefnum Afríku. Aðstoð Svía við Víetnama hefur einnig sætt mik- illi gagnrýni í Svíþjóð að undan- förnu vegna atburðanna i I Kambódíu síðustu vikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.