Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 15 Stjórn BHM: Ekkert mark tekið á tiUögum visitölimefndar BANDALAG háskólamanna mót- mælir harðlega því, að þak skuli vera haft á vísitölugreiðslum — segir í ályktun írá Stjórn BHM. í ályktuninni segir að neíndar- menn í nefnd. sem kannar breyt- ingar á vísitölukerfinu hafi verið sammála um að hlutfallslegar verðbætur kæmu á öll laun og segir að vandséð sc hver tilgang- ur nefndarinnar sé, þegar ákvarðanir séu teknar þvert ofan í tillögur nefndarinnar. Ályktun stjórnar BIIM er svohljóðandii Nefnd sem ríkisstjórnin skipaði hinn 26. september s.l. til að gera tillögur um endurskoðun viðmið- unar launa við vísitölu, lagði fram drög að áliti í nóvember s.l. Þar er m.a. fjallað um svonefnt þak á verðbætur. Þar er bent á að þakið kemur mjög misjafnlega niður á hinum ýmsu launþegahópum en talið er að engir félagsmenn ASI verði fyrir skerðingu vegna þaks- ihs, en hins vegar 80% félags- manna BHM. Þá er bent á að vegna þess hve launakerfin í landinu eru sundurleit og hve sömu heildarlaun fyrir sama vinnutíma myndast með margvís- legum hætti feli núgildandi regla um þak á verðlagsbætur í sér mismunun milli manna, sem ann- ars sæta sömu eða hliðstæðum kjörum. Niðurstaða álitsdraganna er sú að greiða skuli hlutfallslegar verðbætur eins á öll laun ef sama regla eigi að gilda fyrir alla í þessu efni. Nokkrir nefndarmanna lögðu fram bókanir þar sem gerðar voru athugasemdir við ýmsa af þeim 8 tillöguliðum sem fram komu í margnefndum drögum. Enginn gerði þó athugasemd við lið þar sem lagt er til að verðbætur greiðist sem hlutfallslegar bætur á öll laun. Virðast fulltrúar í vísitölunefnd því vera sammála um þennan lið. Þrátt fyrir þetta ákvað rikisstjórnin í lögum nr. 103/1978 um tímabundnar ráð- stafanir til viðnáms gegn verð- bólgu að ákvæði um þak skyldu haldast óbreytt. Bandalag háskólamanna mót- mælir því harðlega að slíkar ákvarðanir skuli vera teknar utan við vísitölunefnd og þvert ofan í fyrstu tillögur nefndarinnar, enda vandséð hver tilgangur slíkrar nefndar er ef ekkert mark er tekið á tillögum hennar. Vinnuslys VINNUSLYS varð í fyrirtækinu Ýtutækni í Hafnarfirði á þriðju- daginn. Starfsmaður fyrirtækisins vann að því að raspa hjólbarða fyrir sólningu og vildi þá svo illa til að raspurinn fór í vinstri hendi mannsins og slasaðist hann mikið á hendinni. AUGLYSIN'CASIMIN'N ER: 22480 jUergnnbfatiib Rakarastofan Klapparstíg Klapparstíg 29, sími 12725. ptnrgíiiEÍífaírlli óskar eftir blaðburðarfólki AUSTURBÆR: □ Baldursgata □ Hverfisgata 63—121 □ Skipholt 1—50. VESTURBÆR: □ Nýlendugata □ Grenimelur 26—49 □ Hávallagata □ Garöastræti □ Túngata UPPL. I SIMA 35408 L—— i — ii. *~**" i) ■ - - ==Ji ^—1 —1 — E Við bjoðum lika allttil I pípulagna Ifyrsta lagi: JÁRNRÖR OG TENGI til vatnslagna, ásamt GLERULLARHÓLKUM og öðru tilheyrandi efni. ( öðru lagi: HITAÞOLIN FRÁ- RENNSLISRÖRog tengi úr plasti. ( þriðja lagi: PLASTRÖR OG TENGI til grunnlagna. (fjórða lagi: DRENLAGNIR OG TENGI úr plasti. f fimmta lagi: PLASTRÖR OG TENGI til kaldavatnslagna. í sjötta lagi: DANFOSS HITASTILLA 1 í sjöunda lagi: ÞAKRENNUR ÚR PLASTI. Þar sem fagmennirnir verzla er yður óhætt. BYGGINGAVÖRUVERZUJN BYKO KÓPAV0GS SF NÝBÝLAVEGI8 SÍMI:41000 bat,- Peysur á alla fjölskylduna. Bútar og garn. Allskonar fatnaöur. Opiö 1—6 LESPRJ0N H.F., Skei(an6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.