Morgunblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 27 fjallsbrúninni. Valdimar Örn- ólfsson rennir sér brosandi úr og lyftuverðir fylgjast öllu. Elín Pálmadóttir, fyrrverandi formaður Bláfjallanefndar, og núverandi formaður, Gestur Jónsson, hýr í bragði og augsýnilega ánægð með þann áfanga sem náð hefur verið. Elín vann ötullega að framgangi mála varðandi lyftuna meðan hún var formaður. fara með lyftunni upp á topp og skoða allar aðstæður. Keyptur hefur verið mjög vandaður snjótroðari og á hann ýmsir aukahlutir, m.a. plógur til að gera göngubrautir, og ýtutönn til að ýta snjó. Þá hefur verið keyptur voldugur vélsleði til að flytja fólk sem slasast kann í skíðabrekkunum. Bílastæði eru mikil og góð í Bláfjöllum og vegurinn hefur verið endurbættur verulega. Þrátt fyrir að mikið verk hafi nú þegar verið unnið á Bláfjallasvæð- inu eru enn mörg verkefni óleyst. Verkefni næstu ára eru meðal annars að lýsa brekku þá, sem stólalyftan stendur við, byggja þjónustumiðstöð, stökkpalla og fleira mætti telja. - Þ.r. Lyftan er hið mesta mannvirki og stórkostlegt átak hefur verið gert fyrir skfðaíþróttina, svo og allan almenning sem hana stundar. Gerbreytir lyftan allri aðstöðu fyrir skiðafólk í Bláfjöllum. Opnunartími lyftna Opnunartími lyftna Bláfjallanefndar verður sem hér segir: Laugardaga, sunnudaga og frídaga kl. 10.00-18.00 Mánudaga og föstudaga kl. 13.00-18.00 Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 13.00-22.00 Verð aðgöngumiða Verð aðgöngumiða í lyftur Bláfjallanefndar eru sem hér segir: Ferðamiðar: 1 ferð fullorðnir kr. 80.00 1 ferð börn kr. 40.00 I stólalyftu er tvöfalt gjald. Selt er minnst fyrir kr. 400.00 hjá fullorðnum og kr. 200.00 hjá börnum. Dagkort: Dagkort gilda virka daga frá kl. 13.00-18.00 Fullorðnir kr. 1.600.00 Börn kr. 800.00 Árskort: Fullorðnir kr. 23.000.00 Börn kr. 11.500.00 Árskortin gilda eingöngu í dráttarlyftur Bláfjallanefndar. Handhafar þessara árskorta fá aðgang að stólalyftu á hálfu verði. Börn teljast þeir unglingar, sem fæddir eru 1963 og síðar. inusé hálfu nauðsynjar þess, að gerður sé frekari reki að máli þessu." Bréfið er dagsett 29. desember 1978. • Verölagsstjóri slapp meö skrekkinn Morgunblaðið ræddi við Örn Johnson til þess að fá nánari upplýsingar um það, hvað honum hafi gengið til með upphringingu sinni til Ólafs síðastliðið sunnu- dagskvöld. Örn kvað sér hafa gengið það eitt til að hann hefði viljað vekja athygli á málinu að nýju. Verðlagsstjóri hefði verið búinn að mæla með hækkun fyrir dagblöðin úr 100 krónum í 110 krónur, síðdegisblöðin hefðu hækkað í 125 krónur og brugðist þar með hart við. Þau hefðu haft alla pressuna á bak við sig og lagt fram öll gögn í málinu. Þetta væri sérstakt mál, mörg fyrirtæki hefðu barizt við verðlagsstjóra, en aldrei náð svo langt að verða kærð. Kvað Örn það byggjast fyrst og fremst á því að verzlunarfyrirtæki vildu ekki standa í eilífu stríði við verðlagsstjórak því að lentu þau upp á kant við embættið, gerðist nákvæmlega hið sama og fyrir þeim, sem lenda upp á kant við starfsmenn í tollinum — þeir fá ekki aðstoð við eitt eða neitt. Örn sagði að þótt málið hefði verið látið niður falla hefði verðlags- stjóri að sínu viti sloppið með skrekkinn í þetta skipti, án þess að borgararnir fengju vitneskju um það, hvernig opinber starfsmaður getur haft í hendi sér atvinnutæki- færi mörg hundruð manna og gjörsamlega lagt þau í rúst með einni ákvörðun án röksemda. • Blööin vega ótrúlega pungt í vísitölu I samtali forsætisráðherra og Arnar sagði ráðherrann að vel gæti verið að, að verðlagsnefnd hætti að skipta sér af verðlagi blaða, en ef slíkt ætti að koma til, yrði nefndin sem slík að taka þá ákvörðun. Hins vegar væru blöðin undir verðlagseftirliti vegna þess, „að þau vega svo ótrúlega þungt í vísitölu og þess vegna er nú verið að halda þessu niðri.“ Örn kvaðst líta svo á að þetta skipti engu í þessu tiltekna máli. Verðlagsnefnd hefði á þessum tíma ákveðið að skipta sér af þessu, ákveðið 110 krónur fyrir eintakið, sem síðdegisblöðin hefðu haft að engu. Því þyrfti að fá dóm í málinu um það hvort ákvörðun verðlagsstjóra hefði verið rétt á þessum ákveðna tíma, þegar ákvörðunin var tekin. Með ákvörðun saksóknara fær hins vegar verzlunin í landinu ekki dóm á störf verðlagsstjóra og verðlagsnefndar. Morgunblaðið spurði Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, hvort hann teldi mögulegt, eins og fram kom hjá Ólafi í útvarpinu, að verðlagsnefnd hætti afskiptum af verðlagi blaða. Svavar sagði að blöðin væru undir verðlagsákvæð- um og í gildi væru lög um kjaramál, sem ríkisstjórnin hefði sett í haust. í einni grein laganna væri kveðið á um, að engin vara eða þjónusta mætti hækka án þess að stjórnvöld legðu blessun sína yfir það. Það ákvæði hlyti að ganga yfir blöðin eins og annað. „Hitt er aftur annað mál,“ sagði Svavar, „að ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar sjálfur og er það enn, að blöðin eigi að verðleggja sig sjálf, þau hafi hagsmuni af því að gæta þess, að fara ekki of langt í hækkunum á þjónustu sinni. Því hef ég talið að þau ættu að vera þarna fyrir utan. Við höfum ekki skipt okkur af verðlagningu á bókum og það hefur heyrzt hjá mörgum, að það orki tvímælis gagnvart ákvæðum stjórnarskrár- innar að skipta sér af verðlagn- ingu á dagblöðum eins og stjórn- völd hafa neyðzt til að gera. Blöðin vega ótrúlega þungt í vísitölunni. Ég minni og á það, að þegar síðasta hækkun átti sér stað fór . hún að heita mátti afskiptalaust í gegnum viðkomandi stofnanir." é „Rak upp stór augu“ Svavar kvað ekki hægt að taka neitt út úr vísitölunni öðru vísi en að beita löggjafarvaldinu, eða að ná um það samkomulagi milli ríkis og verkalýðshreyfingar. Hafi menn verið tregir til að krukka í vísitöluna með þessum hætti. Þvi sagðist hann tæplega hafa trú á að menn yrðu ýkja hrifnir af því. „Mín skoðun er þó sú, að eðlilegast væri að blöðin væru bæði utan verðlagsákvæða og utan vísitölu." Um ákvörðun ríkissaksóknara sagði viðskiptaráðherra: „Ég lít það alvarlegum augum, eins og einn maður sagði hér forðum, og ég rak upp stór augu, þegar ég frétti af þessu. Ég hef ekki sjálfur fengið gögn í hendur, þannig að ég veit ekki á hvaða forsendu sak- sóknari byggir þetta. Það er augljóst mál, að verðlagsnefnd og ríkisstjórn eru bærir aðilar til þess að ákveða tiltekið hámarks- verð á vöru og þjónustu sam- kvæmt kjaramálalögunum, sem ég minntist á áðan, þannig að það vekur furðu mína, að þessi skuli vera niðurstaða saksóknara. Ég hef hins vegar ekki skoðað gögn málsins, en ég mun kynna mér þau.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.