Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 19 LBÐBEININGAR við útfyllingu skattframtals árið 1979 Og SKATTMAT framtalsárið 1979 Inngangsorö EFNISRÖÐ LEIÐBEININGANNA OG SAMSVÖRUN HENNAR VIÐ FRAMTALIÐ í leiðbeiningunum er fyrst fjallaö um áritun framtalsins. Eðlilegt þykir að gera þvf næst grein fyrir útfyllingu þeirra reita á hægra helmingi 1. síðu framtalsins sem ætlast er til að framteljendur útfylli eftir því sem við getur átt. Því næst víkja leiðbeiningarnar óslitið að útfyllingu töluliða í I,—V. kafla á bls. 1 og 2 og þar næst að útfyllingu stafliða A—G á bls 3 og 4. Þó ber þess að gæta að eigi er unnt að fyllá út suma töluliði framtalsins fyrr en lokið er útfyllingu stafliöa. — O — 1. Áritun. Framtalseyðublaðið, sem áritaö er í Skýrsluvél- um, skal senda skattyfirvöldum, sbr. þó 3. mgr. Notið aukaeintak af eyöublaði til að taka afrit af framtali yðar og geymið afritið með þeim upplýsingum og gögnum til stuðnings framtali sem yður ber að geyma a.m.k. í 6 ár. Framteljanda skal bent á að athuga hvort áritanir, gerðar af skýrsluvélum, nöfn, fæðingardagar og -ár, svo og heimilisfang, póstnúmer og póststöð, séu réttar miðað við 1. des. sl. Ef svo er ekki skal leiðrétta það á framtalinu. Einnig skal bæta við upplýsingum um breytingar á fjölskyldu í desember, t.d. giftur (gift), hverri (hverjum), hvaöa dag, nafn barns og fæðingardagur eða óskírð(ur) dóttir (sonur) fædd(ur) hvaða dag. Ef áritanir eru ekki réttar miðaö við 1. des. sl. skal fremteljanda bent á að senda einnig leiöréttingu til Hagstofu íslands (þjóöskrá), Reykjavík. Ef áritað eyðublað er ekki fyrir hendi skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins sem ætlaöar eru fyrir nafn og nafnnúmer framteljanda, fæöingardag hans og -ár, svo og heimilisfang hans, póstnúmer og póststöð, 1. des. sl. Eyður fyrir nafn eiginkonu, nafnnúmer hennar, fæöingardag og -ár, svo og nöfn, fæðingardag og -ár barna, sem fædd eru árið 1963 og síðar, skal útfylla á sama hátt. Sérstök athugasemd varöandi „sambýlisfóik“ Viö áritun á framtalseyðublöö karls og konu, sem búa saman í óvígöri sambúö, hafa öll börn á heimili þeirra verið skrifuö á framtal sambýliskonunnar eins og áöur hvort sem hún er móöir þeirra eða ekki. Skattfrádrætti vegna barnanna var áöur skipt milli sambýliskonu og sambýlismanns í samræmi viö ákvæöi skattalaga eins og þau þá voru en skv. lögum nr. 11/1975 gildir nú eftirfarandi: a. Börn á heimili sambýlisfóks, sem átt hefur barn saman, skulu öll talin hjá sambýlismanninum hvort sem hann er faöir þeirra eöa ekki. b. Börn á heimili sambýlisfólks, sem ekki hefur átt barn saman, skulu talin hvert hjá sínu foreldri. 2. Fengið meðlag og barnalífeyrir Fengið meðlag og barnalífeyrir frá almannatrygg- ingum ef annað hvort foreldra er látið eða barn er ófeðrað er skattskyldar tekjur að hálfu hjá móttakanda nema um sé að ræða einstætt foreldri, sbr. tölulið 10, III. Fengiö meðlag með börnum, yngri en 17 ára, skal aö fullu færa í þar til ætlaða eyöu á bls. 1 neðan viö nöfn barna heima hjá framteljanda sem fædd eru árið 1963 eða síðar. Sé um að ræða fengið meðlag með börnum sem urðu 16 og 17 ára á árinu 1978, þ.e. með börnum, fæddum á árunum 1962 og 1961, skal það meðlag einnig talið í áðurnefndri eyðu á bls. 1 en nöfn þeirra barna skráð í G-lið á bls 4 og þar tekið fram að fengið meðlag með þeim sé talið á bls. 1. Sama gildir um barnalífeyri frá almannatrygging- um ef annað hvort foreldra er látið eða barn er ófeðrað. Sé um að ræða slíkan barnalífeyri eða meðlag með barni til móður, sem býr í óvígðri sambúð með manni sem hún hefur átt barn með, skal slíkur barnalífeyrir eöa meðlag talinn í áðurnefndri eyðu á bls. 1 á framtali sambýlismannsins. Á framtali sambýliskonunnar skal jafnframt tekið fram að barnalífeyririnn eða meðlagið sé talinn á framtali sambýlismannsins. Aðrar barnalífeyrisgreiðslur frá almannatrygging- um og allar barnalífeyrisgreiðslur frá öðrum (t.d. lífeyrissjóðum) skal hins vegar telja undir töluliö 13, III. „Aðrar tekjur", hjá móttakanda. Þó skulu þær greiðslur sem um ræðir í þessari mgr., greiddar til konu sem býr í óvígðri sambúð með manni sem hún hefur átt barn með, allar taldar til tekna í tölulið 13, III. á framtali sembýlismannsins. 3. Greidd meðlög Meölög, sem framteljandi greiðir með barni til 17 ára aldurs þess, eru frádráttarbær að hálfu hjá þeim sem greiðir, sbr. tölulið 7, IV. Upplýsingar um greidd meðlög með börnum til 17 ára aldurs skal framteljandi færa í þar til ætlaðan reit á fyrstu síöu framtalsins. 4. Greidd heimilisaöstoö Greidd heimilisaðstoö, sem ber aö gefa upp á launamiðum (eyðublöð fást hjá skattyfirvöldum), skal tilgreina í kr. dálk. 5. Álagt útsvar. Hér skal tilgreina í kr. dálk álagt útsvar á gjaldárinu 1978. 6. Greidd húsaleíga. Hér skal tilgreina í kr. dálk greidda húsaleigu og aðrar þær upplýsingar sem um er beðið í þessum reit. 7. Slysatrygging viö heimilsstörf. Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr. 67/1971 um almannatryggingar geta þeir, sem heimilisstörf stunda, tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf með því að skrá í framtal sitt ósk um það í þar til geröan reit. Ráögert er að ársiðgjald veröi 3.380 kr. Þeir sém atvinnurekstur hafa meö höndum geta tryggt sér og mökum sínum, sem með þeim starfa að atvinnurekstrinum, rétt til slysabóta, sbr. upplýsingar þar um á launamiðafylgiskjölum. Óski þessir aöilar aö tryggja sér eöa mökum sínum jafnframt rétt til slysabóta við heimilisstörf skulu þeir geta þess í umræddum reit. 1. Eignir 31. des. 1978. 1. Hrein eign samkv. meöfylgjandi efnahags- reikningi. Framtölum þeirra, sem bókhaldsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald, skal fylgja efnahagsreikningur. í efnahagsreikningi eða í gögnum með honum skal vera sundurliðun á öllum eignum sem máli skipta, svo sem innstæðum í bönkum og sparisjóðum, víxileignum og öðrum útistandandi kröfum (nafngreina þarf þó ekki kröfur undir 25.000 kr.), birgðum (hráefnum, rekstrarvörum, hálfunnum eða fullunnum vörum), skuldabréfum, hlutabréfum og öðrum verðbréfum, stofnsjóðsinnstæðum, fasteignum (nafngreindum á þann veg er greinir í 3. tl. — Fasteignir), vélum og tækjum og öðrum þeim eignum sem eru í eigu framteljanda. Allar fyrnanlegar eignir skulu tilgreindar á fyrninga- skýrslu. Greinargerð um mat birgða skal fylgja framtali á þar til gerðu eyðublaði, sjá 1. mgr. 1. tl. III. kafla leiðbeininganna. Á sama hátt ber aö sundurliöa allar skuldir, svo sem yfirdráttarlán, samþykkja víxla og aðrar viðskiptaskuldir (nafngreina þarf þó ekki viðskipta- skuldir undir 25.000 kr.), veðskuldir og önnur föst lán, svo og aðrar skuldir framteljanda. Einnig skal sýna á efnahagsreikningi hvernig eigið fé framteljanda breyttist á árinu. Ef í efnahagsreikningi eru fjárhæðir, sem ekki eru í samræmi við ákvæði skattalaga, svo sem tilfært verð fasteigna, eða eru undanþegnar eignarskatti, sbr. t.d. 21. gr. skattalaga, skal leiðrétta þá hreinu eign eða skuldir umfram eignir sem efnahags- reikningurinn sýnir, t.d. með áritun á reikninginn eða á eða með sérstöku yfirliti. Hreina skattskylda eign skal síöan færa á framtal í 1. tölulið I. kafla eða Skuldir umfram eignir í c-lið, bls. 3. 2. Bústofn skv. meöf. landbúnaðarskýrslu. Framtölum bænda og annarra, sem bústofn eiga, skulu fylgja landbúnaðarskýrslur og færist bústofn skv. þeim undir þennan lið. 3. Fasteignir. Fasteignir skal telja til eignar á gildandi fasteignamatsveröi, þ.e. skv. hinu nýja matsveröi fasteigna sem gildi tók 1. des 1978. Upplýsingar um matiö fást hjá sveitarstjórnum, bæjarfógetum og sýslumönnum, skattstjórum og Fasteignamati ríkisins, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík. Ef staöfest fasteignamat á fullbyggöu mannvirki er ekki fyrir hendi má þó áætla matsverð. Metnar fasteignir ber aö tilgreina í lesmálsdálk og kr. dálk á þann veg er hér greinir: Rita skal nafn eöa heiti hverrar sérmetinnar fasteignar í lesmálasdálk eins og þaö er tilgreint í Sjá nœstu l síðu ^gj

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.