Morgunblaðið - 11.01.1979, Page 28

Morgunblaðið - 11.01.1979, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 Óperugleði í Háskólabíói ÓPERUGLEÐI hoft í Iláskóla- hiói lauKardax 13. janúar kl. 15.00. Fluttar vorða aríur og samsönKvar úr óporum og óporottum. þar á moðal úr Töfraflautunni oftir Mozart. Carmon Bizots. Ævintýrum Hoffmanns og Góncvieve de Bramhant oítir Offonbach og Loðurblökunni cftir Strauss. Tónloikarnir oru mcð óvcnju- logu sniði. oru okki í venjulegu konscrtíormi. cn kaflarnir. som toknir oru úr verkunum. oru sottir á svið og söngvarar oru í tilheyrandi loikbúningum miðað við hlutvork. Engin hljómsvoit loikur moð. cn spil- að or undir á píanó og annast Carl Billich og Ólafur Vignir Albortsson undirloik. Gestur á „Gloðinni" vorður Guðrún A. Símonar. on kynnir or María Markan. Allur undirbúningur og efnis- val er í höndum Sigríðar Ellu MaKnúsdóttur, sem jafnframt tekur þátt í tónleikunum, en aðrir söngvarar, sem koma fram, eru Elín Sigurvinsdóttir, Elísabet ErlinKsdóttir, Svala Níelsen, Már Mafjnússon, Sig- urður Björnsson, Símon VauKhan og þrjár ungar söng- konur, Berglind Bjarnadóttir, Sigrún K. Magnúsdóttir og Signý Sæmundsdóttir. Söngmál á islandi flókin í stuttu rabbi við Sigríði Ellu sagði hún meðal annars: „Komið var að máli við mig, hvort ég vildi halda einsöngstónleika, en þar sem góðir aðilar vildu gjarnan standa að þessum tón- leikum og greiða fyrir þá laun, fannst mér sjálfsagt að fá fleiri til liðs við mig, þar sem skemmtilegra er að syngja fleiri saman. Ég vissi afskaplega lítið, hvað beið mín, þegar ég byrjaði á þessu. Söngmál á Islandi virðast vera afar flókin, en maður er vanur því í útlöndum, ef haft er samband við söngvara, að hann segi já takk og bregðist glaður við. Ég þurfti að leita dálítið eftir söngvurum og velta efnis- skránni rækilega fyrir mér, en það er mestur vandi að setja saman efnisskrá eins og í þessu tilviki, þegar eingöngu er spilað undir á píanó. Reynt er að velja þannig að verkið missi ekki gildi sitt og einnig að allir geti notið sín í sem bestu ljósi. Samvinnan við söngvarana hefur verið einstök. Þeir hafa allir lagt sig fram og er mjög gott að vinna með íslenzkum söngvurum, þeir kunna sitt. Ég er nú á leiðinni til frekari starfa í útlöndum, en vonast í framtíð- inni til að eyða fríunum mínum hér og fái þá tækifæri til að syngja. Simon Vaughan, eiginmaður Sigríðar, er einn þeirra, sem þátt tekur í tónleikunum. Hann er brezkur og hefur starfað víðs vegar í heimalandi sínu og sungið bæði í oratoríum og óperum, þar á meðal Papageno í Töfraflautunni, sem hann hefur fengið hvað mest lof fyrir. Hann vann á sínum tíma Richard Tauber-verðlaunin í Englandi. Af nógu að taka „Mér finnst þetta afskaplega skemmtilegt uppátæki,“ sagði Svala Níelsen, er samband var haft við hana. „En ef eitthvað á að gerast í söngheiminum hjá okkur, verðum við að gera það upp á eigin spýtur. Ég hef ákaflega gaman af þessu, þetta er aukastarf hjá mér, maður hleypur í þetta. Ef tækifæri, tími og stuðningur væri gefinn, þá er ég viss um að söngvarar myndu gera fleira af þessu tagi, því af nógu er að taka og söngvarar okkar margir. Ljóm- andi gott samstarf er milli söngvara og áhuginn mikil! enda stendur óperutónlistin þessu fólki næst. Söngurinn er hjá mér áhuga- mál, þár sem ég vinn við annað og hef alltaf gert, en söngurinn stendur næst hjarta mínu, og ég mun reyna að vinna að þessum málum, meðan ég hef vilja og getu til. Tónlistin lifir ekki án söngs, og ég vona að þeir íhugi það gaumgæfilega, sem eitthvað vinna að þessum málum.“ Þrjár ungar söngkonur Þrjár ungar söngkonur koma einnig fram á konsertinum. Signý Sæmundsdóttir, Sigrún K. Magnúsdóttir og Berglind Bjarnadóttir. Aðspurð kvaðst Signý hafa verið við söngnám í 2 ár hjá Elísabetu Erlingsdóttur eins og þær stöllur hennar Berglind og Sigrún, í Tónlistarskólanum í Kópavogi. En hún er einnig við nám í tónmenntadeild Tónlist- arskólans í Reykjavík. Berglind Bjarnadóttir byrjaði söngnám 16 ára í Tónlistar- skólanum í Kópavogi og útskrif- aðist þaðan á sl. ári. Sagði hún að til stæði að fara út fyrir landsteinana til frekara náms en ekki væri ráðið hvort yrði fyrir valinu Svíþjóð eða Þýzka- land. Sigrún K. Magnúsdóttir hefur verið í söng í 6 ár. Eftir nám hér dvaldist hún í ár við Tónlistarháskóla í Vín undir handleiðslu Svanhvítar Egils- dóttur. Hún er nú við nám í Osló í tóniistarfræðum. Fleiri söngleiki Már Magnússon tenór sneri sér að sögnum í Vín 1968 og lauk prófi þar á sl. ári. Hefur hann meðal annars sungið sem Pygmalion í óperunni Hin fagra Galathee eftir í Vín. Hann hefur þegar haldið tvenna sjálf- stæða tónleika. Aðspurður um væntanlegan konsert á laugardag sagði hann meðal annars: „Þetta er mjög gaman og mikil og sönn ánægja að taka þátt í þessum flutningi. Hins vegar mætti hafa stöðugri flutning á söngleikjum í Þjóð- leikhúsinu. Einnig mætti koma til opinber aðstoð við söngvara og þeir sýna meiri samstöðu." Skemmtilegt framtak „Þetta er ákaflega skemmti- legt framtak," sagði Elísabet Erlingsdóttir form. Félags ís- lenzkra einsöngvara. „Þetta er reyndar í fyrsta skipti, sem þetta er gert á slíkan hátt, þar sem í sumum atriðunum verðum við í leikbúningum og setur það vonandi skemmtilegan svip á tónleikana. Það er ekki svo oft, sem tækifæri gefst til þess að syngja saman. Ég held, að grundvöllur sé fyrir flutningi sem þessum, allir vilja vinna saman og hafa virkilega ánægju af þessu.“ Efnilegt fólk „Þetta er nýtt hér,“ sagði María Markan, sem er kynnir á tónleikunum, „og vel til þess fallið að reyna þetta og sjá til hvernig gengur. Ég vona að okkur verði vel tekið, þetta er ungt og efnilegt fólk og verður að þreifa fyrir sér. Undir- búningur er í góðum höndum hjá Sigríði og áhuginn brennandi hjá þessu fólki öllu saman. Öll viðleitni er góð og allur stuðningur líka.“ Spor í rétta átt „Það er gaman að prófa þetta, það er ólíkt því, sem við höfum gert áður, mér finnst þetta spor í rétta átt,“ sagði Elín Sigur- vinsdóttir. „Ahugi fyrir söng virðist hafa aukist mikið og ég vona að framhald verði á óperuflutningi sem þessum, þó vandamál séu mörg hvað varðar aðbúnað söngvara. Mér finnst það ætti að vera hægt, af nógu er að taka.“ Góö byrjun „Ég er með sér prógram," sagði Guðrún Á. Símonar, sem er heiðursgesturinn á tónleikun- um. „Ég ætla að syngja tvö lög ítölsk, annað frá Napólí eftir Curtis og hitt, sem sjaldan heyrist, A1 di la eftir Donida. Nú á ég bráðum 40 ára starfsafmæli og syng ekki einn falskan tón. Mér finnst að óperur eigi rétt á sér, ein, tvær eða þrjár, alveg eins og leikhús, og vona að það verði án rifrildis. Við eigum góða söngvara bæði yngri og eldri og ég vona að áframhald verði á óperugleði eftir þessa tónleika, sem mér finnst vera mjög góð byrjun," sagði Guðrún í lokin. Tónleikarnir hefjast eins og áður segir á laugardag, Miða- sala er í bókaverzlunum Lárusar Blöndal. Signý, Már, Elín, Simon, Sigurður, Sigrún, Berglind, Svala og Sigríður Ella á æfingu. Carl Billich leikur undir. / S.I.S. er stærsta fyrirtæki landsins með 1414 starfsmenn SAMBAND íslenskra samvinnu- félaga er stærsta fyrirtæki lands- ins, Póstur og sími er annað stærsta og Flugleiðir eru þriðja stærsta fyrirtæki á íslandi, samkvæmt skrá er tímaritið Frjáls verzlun heíur birt. Er í skránni, sem unnin er út frá gögnum Hagstofunnar, reiknað út frá slysatryggðum vinnuvikum og meðalfjölda starfsmanna. Miðað er við árið 1977. Hafa verður í huga þegar litið er á stærð fyrirtækjanna, að þessi við- miðun kann að vera gagnrýnisverð, og hugsanlega hefði átt að leggja annan mælikvarða á stærð þeirra. Til dæmis gæti velta þeirra verið réttari mælikvarði, þótt ekki sé hann einhlítur heldur. Þá er einnig sá annmarki hér á, að þær tölur sem byggt er á frá Hagstofunni eru ekki endanlegar, en ekki er þó talið að endanlegar tölur muni breyta röð fyrirtækjanna. Fram kemur, að hjá tíu stærstu fyrirtækjum landsins vinna um 11% af vinnandi fólki í landinu. Hjá 100 stærstu fyrirtækjunum vinnur hins vegar líklega um 27 til 28% vinnandi fólks í landinu. Listi sá, sem Frjáls verzlun birti, fer hér á eftir: Fyrirtæki Tryggðar Meðalfjöldi vikur starfsmanna 1. Samhand íslenskra samvinnufélaga 73.546 1.414 2. Póstur og sími 70.358 1.353 3. Flugleiðir 70.205 1.350 4. Eimskipafélag íslands 50.899 978 5. Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri 47.949 922 6. Landsbankinn 40.004 769 7. íslenska Álfélagið 35.612 685 8. Sláturfélag Suðurlands 28.700 551 9. íslenskir Aðalverktakar 22.287 429 10. Útgerðarfélag Akureyrar 22.009 423 11. Skeljungur 13.554 261 12. Norðurtanginn h.f. ísafirði 13.303 256 13. Olíufélagið h.f. 13.205 254 14. Mjólkursamsalan 13.082 252 15. Kaupfélag A-Skaftfellinga 12.945 249 16. Álafoss 12.845 247 17. Slippstöðin Akureyri 12.788 246 18. Kaupfélag Borgfirðinga 12.267 236 19. Kaupfélag Árnesinga 12.051 232 20. Kaupfélag Skagfirðinga 11.841 228 21. Olíuverslun íslands 11.479 221 22. Síldarvinnslan Neskaupstað 11.455 220 23. Meitillinn Þorlákshöfn 11.153 214 24. Þormóður Rammi 10.883 209 25. Búnaðarbankinn 10.724 206 26. Áburðarverksmiðja rikisins 10.575 203 27. Sementsverksmiðja ríkisins 10.498 202 28. Útvegsbankinn 29. Reykjalundur 30. ísbjörninn 31. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar 32. Haraldur Böðvarsson og Co. 33. Hampiðjan 34. íshúsfélag Bolungavíkur 35. Vélsmiðjan Héðinn 36. Hagkaup (Pálmi Jónsson) 37. Fiskiðjan hf. Vestmannaeyjum 38. Hraðfrystihús Eskifjarðar 39. íshúsfélag ísfirðinga 40. Breiðholt h.f. 41. Freyja h.f. Suðureyri 42. Kirkjusandur 43. Fiskiðjusamlag Húsavíkur 44. Kaupfélag Héraðsbúa 45. Kassagerð Reykjavíkur 46. Kaupfélag Þingeyinga 47. Árvakur (Morgunblaðið) 48. Bæjarútgerð Reykjavíkur 49. Hafskip h.f. 50. Þorgeir og Ellert, Akranesi 51. Seðlabanki íslands 52. Kaupfélag Rangæinga 53. Mjólkurbúa Flóamanna 54. Ishúsfélag Vestmannaeyja 55. Stálvík, Hafnarfirði 56. Hjálmur h.f. Flateyri 57. K.R.O.N. 58. íslenskt Verktak 59. Kaupfélag Dýrfirðinga 60. Ölgerðin Egill Skallagrímsson 10.066 194 9.609 185 9.293 179 9.247 178 9.245 178 9.167 176 9086 175 8.900 171 8.576 163 8.450 162 8372 161 8.308 160 8.177 157 8.153 157 7.989 154 7.884 152 7.823 150 7.785 150 7.595 146 7.355 141 6.934 133 6.921 133 6.882 132 6.752 130 6.727 129 6.470 124 6.359 122 6.215 120 6.208 119 6.087 117 6.065 117 6041 116 5.991 115

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.