Morgunblaðið - 11.01.1979, Page 35

Morgunblaðið - 11.01.1979, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR11. JANÚAR 1979 35 umHORP Umsjón: Tryggvi Gunnarsson og Anders Hansen. „Afturvirk skattalög hafa nokkuð tíðkast hér á landi, en það er þó munur á þeim og afturvirku skattalögunum sem ríkisstjórnin setti með bráða- birgðalögum í haust. Þau skattalög sem áður hafa tíðkast mætti kalla „hálfgildings" aft- urvirk sem felst í því að breytingar á skattalögum hafa verið gerðar um áramót, í lok „Setning afturvirkra laga er brot á megin- reglu réttarríkisins“ — Er slík lagasetning brot á hugmyndinni um réttarríkið? „Með því að setja íþyngjandi afturvirk lög er verið að þver- brjóta eina meginreglu réttar- ríkisins. Regluna sem kölluð samræmi við hagsmuni og þetta tvennt getur raunar stangast algjörlega á. Réttlæti bannar að lög séu afturvirk, en einhverjir hagsmunir eða nauð- syn geta krafist þess. í lögfræði er það kennt að stjórnskipunarlög séu ekki aðeins þau ákvæði sem prentuð eru í stjórnarskránni. Ólafur Jóhannesson heldur því fram í bók sinni Stjórnskipun íslands. sem er kennslubók við lagadeild Háskólans, að til séu grundvallarreglur sem ekki séu skráðar í stjórnarskránni en njóti eigi að síður verndar 79. greinar hennar. Dæmi um slíka reglu er sjálf þingræðisreglan og reglan um að dómstólar meti gildi laga. Armann Snævarr Réttlæti bannar að lög séu afturvirk Garoar Gisiason borgar- dómari. Garóar stundaði fram- haldsnám { róttarheimspeki vió Oxfordháskóla og hann er stundakennari í almennri Iðg- fræói vió Háskóla íslands. vinni hann að því leyti fyrir ríkið. Á sama hátt má segja að þegar menn eru farnir að greiða 70% tekna sinna til ríkisvaldsins að þá séu þeir orðnir þrælar þess. Til eru þeir sem halda þvl fram að ríkið hafi engan rétt til að taka meiri peninga af mönnum en þarf til að halda þjóðfélaginu gangandi, til þess að halda uppi lögum og reglu, samgöngukerfi skólum og spítölum. Að ríkið hafi engan rétt til þess að taka af mönnum fé umfram lágmarksþarfir þjóðfélagsins. Þessi kenning er mjög umdeild og felst höfuð gagnrýnin í því að ríkið eigi einnig að sjá fyrir þeim sem ekki geta séð fyrir sér sjálfir. Þessu er ég sammála en þar tel ég að einnig eigi að setja mörkin og fæ því til dæmis ekki séð að niðurgreiðslur á land- búnaðarvörum og styrkir til iðnaðar eða lista falli innan þessa ramma, svo dæmi séu tekin." þess tímabils er menn öfluðu teknanna. Menn vissu að þeir áttu eftir að fá þennan skatt og borga hann og höfðu nokkra hugmynd um hvað hann yrði hár þegar álagningin kæmi. Þetta getum við kallað „hálf- gildings" afturvirkni, sem í raun ætti ekki að tíðkast, en verðbólgan og launahækkanir eru sú ástæða sem allir viður- kenndu að væri fyrir hendi, auk annarra sjónarmiða. En að taka nýjan skatt af mönnum eftir að álagning hefur farið fram er eðlismunur og hrein afturvirkni. Það sem réttlætir tekju og eignarskatt yfirleitt er að menn ráða því sjálfir hvort þeir afla hárra tekna eða ekki og að þeir vita, að því meiri tekna sem þeir afla, þeim mun hærri verður tekjuskatturinn. Aftur- virkni býður ekki upp á siíkt. Þar er verið að taka fjármuni af fólki sem líkja mætti við eignarnám, sem fara verður eftir 67. grein stjórnarskrár- innar". Þannig komst Garðar Gísla- son að orði við blaðamenn Umhorfssíðunnar um aftur- virku skattalögin sem ríkis- stjórnin stóð fyrir í september. Garðar er sérmenntaður í réttarheimspeki og okkur lék forvitni á að kynnast viðhorf- um hans til lagasetningar af þessu tagi og skattamála al- mennt. Garðar Gíslason er borgardómari og stundakenn- ari í almennri lögfræði við lagadeild Háskólans. hefur verið „legalitetsprinsipp" eða um lagaáskilnað, en hún krefst þess að íþyngjandi regl- ur verði að setja með settum lögum af hálfu löggjafans og þær þurfa að vera almennar og skýrar vegna þess að þeim er ætlað að hafa áhrif á hegðan ákveðins hóps manna. Aftur- virk lög geta ekki, eðli sínu samkvæmt haft áhrif á hegðun manna og eru því andstæð meginsjónarmiðum um réttlæti og sanngirni — réttarríkið gildir ekki þar sem sett eru lög um liðna tíma. Afturvirk lög eru afsakanleg ef um neyðar- ástand er að ræða eða mjög óvenjulegar aðstæður eins og til dæmis í stríðslokin, en engin slík rök voru færð fram af stjórnvöldum er setning um- ræddra laga var til umræðu, enda var ekki um neyðarástand að ræða frekar en endra nær hér á landi“. heldur því fram að reglan um bann við afturvirkum lögum sé meginregla í íslenskum rétti og það er almenn skoðun meðal lögfræðinga. Lagasetningar- valdið virðir og þessa megin- reglu yfirleitt í lagasetningum sínum. Þó að dómstólar hafi hingað til látið löggjafann um mat á „brýnni nauðsyn" og „almanna- þörf“ þá hefur engin regla skapast um þetta atriði. Það hefur hingaö til ekki verið vitað til þess að löggjafinn hafi sett hrein íþyngjandi afturvirk lög, en nú er spurning hvort þessi regla hafi ekki verið brotin.". Um mörkin milli einstaklinga og ríkisvalds „Hafi reglunnar um bann við afturvirkni einhverntíma verið þörf, þá er það nú“ „Réttlæti þarf ekki alltaf að vera í samræmi við hagsmuni“. — Því hefur verið haldið fram að þegar dæma á um hvort afturvirk lög fái staðist verði að meta tvennt, annars- vegar hagsmuni borgaranna og hinsvegar nauðsyn stjórnend- anna. Telur þú að fleira komi til greina og er ekki „nauðsyn stjórnendanna" nokkuð teygj- anlegt hugtak? „Jú, ég tel að þarna komi fleira til greina. Sanngirnis- sjónarmiðið hlýtur að vega þarna þungt á metunum. Rétt- læti þarf ekki alltaf að vera í — Þá hefur því verið haldið fram að vegna breyttra þjóð- félagsaðstæðna sé reglan um bann við afturvirkni laga ekki eins mikilvæg og áður. Hvað segir þú um þessa röksemd? „Ég tel að hafi reglunnar einhverntíma verið þörf þá sé það nú, á tímum síaukinna ríkisafskipta". — Telur þú ekki að reglunnar væri betur gætt með ákvæði í stjórnarskránni svo sem tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt til á Alþingi? „Það er alveg sjálfsagt að setja regluna í stjórnarskrána, en ég tel að hún sé samt sem áður gildandi grundvallarregla á sama hátt og þingræðisreglan og reglan um að dómstólar meti gildi laga.“ „Aukin skattheimta eykur skattsvik“ — Hvaða tryggingu hafa menn fyrir því, ef unnt er að setja afturvirk skattalög, að ríkið setji ekki afturvirk lög á öðrum sviðum? „í 67. grein stjórnarskrárinn- ar er bannað að taka eignir af mönnum nema almenningsþörf krefjist og komi fullt verð fyrir. Við getum tekið dæmi. Ef nú væru sett lög um meiri sölu- skatt af hlutum sem keyptir voru 1978 — er það ekki hrein eignaupptaka? Þetta tel ég hliðstætt því sem gerðist með bráðabirgðalögunum í haust. En ef lög fara útfyrir reglur stjórnarskrárinnar þá hefur dómstóll vald til að meta það. Þetta er grundvallarregla sem ekki er í stjórnarskránni, en er eigi að síður varjn af 1. meðgreiðn 79. greinar."* — Er ekki ríkið komið býsna langt í skattheimtunni þegar einstaklingur samkvæmt hæsta núverandi skattþrepi, eftir bráðabirgðalögin, greiðir 50—70 krónur af hverjum hundrað sem hann aflar í beina skatta og þarf einnig að borga ríkinu mjög stóran hlut þeirra 30—50 sem eftir eru í formi söluskatts og allskyns annarra skatta? „Þessi spurning er efnislega hversu langt á ríkið að seilast í vasa einstaklinganna, hvar sétja eigi mörkin milli ein- staklinga og ríkisvalds. Það má segja að þegar ríkisvaldið tekur 10, 20 eða 30% af tekjum manna í formi skatta, að þá — Telur þú að kröfur fólks til ríkisvaldsins um opinber afskipti á öllum sviðum og slagorðin um „félagslegar lausnir" séu í raun krafa um auknar skattaálögur? „Það er alveg klárt að fólk getur ekki bæði greitt stóran hlut tekna sinna til ríkisins og leyst málin sjálft. Þess vegna er það í sjálfu sér ekki óeðlilegt að fólk leitar til ríkisvaldsins vegna þess að ríkið er alltaf að skipta sér af fleiru og fleiru. Afleiðingin er síðan útþensla í ríkiskerfinu sem síðan krefst aukinnar skattheimtu, sem kallar á meiri kröfur og koll af kolli.“ — Hvaða áhrif hefur aukin skattheimta á skattsvik? „Ég tel að það séu viss takmörk sem skattheimta á hvern einstakling má ekki fara yfir. Þessi takmörk felast í því að þegar vissu stigi er náð fer skattheimtan að hafa óæskileg áhrif á skattgreiðandann. Ég get tekið undir það sem Sveinn Jónsson hefur bent á að fólk bregðist við á þrjá vegu, sumir reyna að berjast áfram, aðrir hreinlega gefast upp og enn aðrir freistast til að svíkja undan skatti." — Hvert er álit þitt á hugmyndum nokkurra Álþýðu- flokksmanna á þingi um sér- stakan skattadómstól til að fyrirbyggja skattsvik? Sérstakir dómstólar hafa aldrei bætt, neitt. Ef menn telja að málin gangi of hægt ættu menn að stefna að því að bæta almennu dómstólana.“ G.S.G./H.L. Gróska í f élagslífi á Sauðárkróki SAMGÖNGUR við Sauðárkrók hafa verið erfiðar á þessu ári sakir snjóþyngsla. og hafa til dæmis ekki komið bifreiöar þangað frá Reykjavík síðan fyrir áramót, að því er Guðjón Sigurðsson fréttaritari Morgun- blaðsins sagði í samtali við blaðið í fyrradag. Sauðkræklingar hafa þó tkki verið alveg einangraðir frá umheiminum, því að Flug- félag íslands heldur uppi sam- göngum við Sauðárkrók fjórum sinnum í viku. Atvinnuástand hefur verið nokkuð gott á Sauðárkróki í vetur. Togararnir fiska nú fyrir heima- markað og skapa því atvinnu í frystihúsunum. Frá Sauðárkróki eru gerðir út skuttogararnir Drangey, Hegranes og Skafti. Aflinn skiptist milli þriggja húsa, tveggja á Sauðárkróki og eins á Hofsósi. Ekki hefur því orðið atvinnuleysi á Króknum í vetur að sögn Guðjóns. Félagslíf á Sauðárkróki hefur löngum verið líflegt yfir vetrar- mánuðina, og er veturinn að þessu sinni þar engin undantekning. Mikið er um árshátíðir hinna ýmsu félaga og þorrablót. Af félögum sem -starfa á Sauðárkróki má nefna Lions, Rotary, Stanga- veiðifélag, verkalýðsfélög og leik- félag, en auk þess eru ýmis fyrirtæki með skemmtanir fyrir starfsfólk sitt. Þá er nýbúið að stofna Kiwanisklúbb á Sauðár- króki, þannig að ekki virðist skorta fjölbreytni í félagslífi bæjarins. Ibúar kaupstaðarins eru nú rúmlega 2000 talsin® Þá hefur leikfélagið starfað af miklum krafti undanfarin ár, og er nú í bígerð að setja upp nýtt leikrit þegar líður á veturinn. Þá fer að styttast í sæluvikuna sem er landskunn gleði. Verður hún trúlega síðari hlutann í mars. Veðurfar hefur verið framúr- skarandi gott á Sauðárkróki í vetur að sögn Guðjóns, alveg þangað til nú eftir áramótin, þá setti niður talsverðan snjó, þó að ekki sé hann neitt óvenjulega mikill á skagfirskan mælikvarða. Framan af vetri hefur jafnvel verið óvenjusnjólétt austur með, til dæmis í Fljótum, þó að þar sé nú allmikill snjór. Spörum ekki ökuljósin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.