Morgunblaðið - 21.01.1979, Page 25

Morgunblaðið - 21.01.1979, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1979 25 Sýniiig Guðbergs Auðuns- sonar í Gallerí Suðurgötu 7 Það má til sanns vegar færa, að myndir Guðbergs Auðunssonar, sem um þessar mundir sýnir í sýn- ingarsalnum að Suðurgötu 7, séu „ný bókun á gömlum sannleika“. Að hagnýta sér rifrildi af veggspjöldum er sígilt myndefni og hefur verið útfært á margan veg í myndlist, listiðnaði og ljós- myndun. Hér er nefnilega um mjög myndrænt við- fangsefni að ræða, sem sjálfgefið var að sjónlistar- menn uppgötvuðu fljótlega, því að veggspjöld setja sérstakan, mannlegan svip á umhverfið. Eru hreint lífsnauðsynleg til að vega upp á móti kaldri ómannúð- legri steinsteypu stórborg- anna. Fyrir utan rifrildi af veggspjöldum leitar Guð- bergur uppi sérstæð mynd- ræn fyrirbæri úr umhverf- inu svo sem nöfn myndanna gefa greinilega til kynna: „T á ÍR-húsinu við Tún- götu“ (I), „Lítið m við bílastæðið fyrir framan sjónvarpið" ( og „9 eða lítið g sem hangir á öskutunnu í miðbænum.“ Þetta voru jafnframt -þær myndir er vöktu einna mestu athygli mína. Ljósmyndavélin gegnir meginhlutverki í tilurð Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON þessara mynda ásamt myndrænu auga fremjand- ans og þannig séð virkar sýningin stórum meira á skoðandann sem ljós- mynda- en myndlistarsýn- ing. Hvort það sé kostur eða galli er svo að sjálfsögðu algjört matsatriði en ég segi fyrir mig, að ég sakna hér áferðar þeirrar og efniskenndar, sem hand- unnar myndir búa yfir. Slíkar myndir þykir mér safaríkari ef svo má að orði komast og jafnframt meir í ætt við hið upprunalega. Ljósmyndir virka sem spegilmynd hlutanna — endurvörpun þeirra. Það er t.d. eitt að verða fyrir áhrifum af brotabroti til- verunnar og vinna út frá því á meira eða minna huglægum forsendum, — annað að endurvarpa fyrir- bærinu af filmu eða með „súperrealistískum" vinnu- brögðum í málverki. Þetta eru skemmtilegar og mjög vel útfærðar ljós- myndir hjá Guðbergi — vinnubrögðin bera þess greinilegan vott, að hér er vandaður fagmaður á ferð. Eins og menn vita þá er Guðbergur auglýsinga- hönnuður að mennt og hann notfærir sér vissulega óspart faglega þekkingu sína — líkast til um of í mörgum tilvikum. Ósjálf- rátt fýsir mann að sjá hraustlegri og umbúðalaus- ari vinnubrögð frá hendi Guðbergs og maður treystir honum vel til árangurs á þeim vettvangi. Væri t.d. fróðlegt að sjá útkomuna af samtengdum vinnubrögð- um t.d. málverk — grafík — ljósmynd. Eitt er athyglisvert við þessa sýningu og það er hve hún er ólík öllu öðru sem maður hefur séð á þessum stað og sem slík hefur hún sérstakt gildi og eykur áfjölbreytnina. Sýningarskrá er einföld og vel úr garði gerð og gæti hægast þjónað sem fyrir- mynd og tákn sýningarsal- arins. Bragi Ásgeirsson. Frá Reykjavík. heimtu ríkis og sveitarfélags kemur mjög illa við veika rekstrarstöðu atvinnuvega í borg- inni — og vegur þann veg að atvinnuöryggi — því fleiri krónur sem teknar eru úr launaumslögum fólks í opinbera skattheimtu, þeim mun færri verða eftir til frjálsrar ráðstöfunar og framfærslu heimila og einstaklinga. Skatt- heimtan er því veigamikið kjara- atriði fyrir hvern og einn, þótt vinstri flokkar haldi því lítt á loft. Mismunandi álagningarreglur Sveitarfélög beittu mjög mis- munandi álagningu fasteigna- gjalda 1978. Hér á höfuðborgar- svæðinu voru gefnir afslættir frá 0,5% reglunni: 15,8% í Reykjavík, 20% í Garðabæ og Seltjarnarnesi, 25% í Hafnarfirði og Mosfells- sveit. Kópavogur var þó aðeins með 10% afslátt. Nú liggur nokkuð ljóst fyrir að Reykjavík verður ekki með neinn fasteignagjaldaaf- slátt, Kópavogur verður líklega með álag (10%) í stað afsláttar en önnur sveitarfélög munu halda afslætti áfram, frá 10% upp í 20%, jafnvel 25%. Hér skapast strax nokkur aðstöðumunur eftir því, hvers konar meirihluti fer með stjórn hvers sveitarfélags. Svipuðu máli gegnir með aðstöðugjöldin. Seltjarnarnes og Mosfellssveit munu t.d. halda sömu álagningarreglu eða hlutfalli og þar hefur gilt allar götur frá árinu 1973. Reykjavík mun hins vegar hverfa að fullri aðstöðu- gjaldaálagningu og eins Kópa- vogur. Þetta þýðir rúmlega 30% hærri aðstöðugjöld í vinstri stjórnar sveitarfélögum en t.d. á Seltjarnarnesi og í . Mosfellssveit. Hér verður því mikill aðstöðu- munur varðandi hvers konar atvinnurekstur, sem aftur tengist almennu atvinnuöryggi, eins og rekstrarstöðu fyrirtækja er háttað í dag. Ekki liggur enn ljóst fyrir, hvort horfið verður almennt að 12% útsvari af brúttótekjum í stað 11%. Ef 12%-reglan verður heimiluð er næsta víst, að bæði Reykjavík og Kópavogur hverfa að henni. Líklegt er að sveitarfélög, sem sjálfstæðismenn stjórna hér á höfuðborgarsvæðinu, haldi sig þá við 10% eða 11% útsvör. Seltjarnarnes hefur þegar gengið frá fjárhagsáætlun með 10% útsvörum, eins og á s.l. ári. Allavega verða útsvör fólks, sem býr við Nesveg, mismunandi há, eftir því hvort það býr í þeim hluta götunnar sem tilheyrir Reykjavík eða Seltjarnarnesi. Hinn nýi borgarstjórnarmeiri- hluti er dýr á fóðrum og hefur þegar skapað verulegan aðstöðu- mun fólks eftir búsetu hér á höfuðborgarsvæðinu. En skatt- borgarinn er reynslunni ríkari. „Skattaherópið“ Þjóðviljinn, ver til þess heilum leiðara sl. fimmtudag að réttlæta hærri skattheimtu, hvort heldur sem er á sviði útsvara, aðstöðu- gjalda eða fasteignagjalda í Reykjavík en nágrannabyggðum. Þetta höfuðmálgagn hækkandi skattheimtu í þjóðfélaginu er heldur betur í essinu sínu hvert eitt sinn, sem greiða þarf gjald- heimtu leið ofan í launaumslög almennings. Að þessu sinni varð þó lítið úr því högginu sem hátt var til reitt, enda vígstaðan bágborin. Það á m.a. að réttlæta hærri gjöld í Reykjavík að þar sé „tiltölulega miklu meira af iág- tekjufólki og öldruðu fólki“. Þetta er skrítin kenning í „málgagni verkalýðshreyfingar", eins og blaðið kallar sjálft sig! Þá er reynt að hengja sig í það hálmstráið að „svefnbæirnir" veiti minni þjón- ustu en höfuðborgin og þiggi að auki sitt hvað af henni. En hvér er sannleikurinn í því efni? Ýmsar þjónustustofnanir í Reykjavík, s.s. strætisvagnar, hitaveita og slökkvilið, selja þjón- ustu út fyrir borgarmörkin, með samningum sveitarfélaga á milli. Fyrir þessa þjónustu kernur að sjálfsögðu full greiðsla og sam- vinnan réttlætist af gagnkvæmum hagnaði, sem leiðir til ódýrari rekstrar en í minni starfseining- um. Þetta er því hæpin réttlæting skattavaxtar í höfuðborginni. Snýst jafnvel við ef vel er að gáð. Enda reynir „skattaherópið“ ekki að skýra það, hvers vegna þessi þörf mismunandi skattheimtu kemur fyrst fram, eftir að vinstri meirihluti er kominn í borgar- stjórn. Hvers vegna var haldið til jafns við nágrannabyggðir um afslátt af fasteignagjöldum og aðstöðugjöldum meðan Sjálfstæð- isflokkurinn réð ferð? Átján hundruð milljónir króna Birgir ísleifur Gunnarsson, fv. borgarstjóri, sagði m.a. við fyrstu umræðu um fjárhagsáætlun borg- arinnar 1979, að bæjarbúar stæðu nú frammi fyrir tillögum um auknar álögur sem næmu samtals um 1800 milljónum króna, auk 320 milljóna viðbótar á íbúðaeigendur. í stað þess að sveigja útgjöld borgarinnar að tekjum hennar eins og áður væri nú siglt í stóraukna skattheimtuátt. Hann vakti athygli á því að hækkun fjárhagsáætlunar milli ára næmi um 55% frá endurskoð- aðri fjárhagsáætlun í júlí 1978 og G2.9% frá samþykktri fjárhags- áætlun í janúar 1978. Frá desem- ber 1977 til desember 1978 hefði framfærsluvísitala hækkað um 46.9% svo hér væri um verulega meiri hækkun að ræða en sem næmi verðlagsþróun í landinu. Vinstri meirihlutinn ætlaði sér því að verða frekari á fjármuni Reykvíkinga en góðu hófi gegndi. Birgir Isleifur vakti sérstaka athygli á því, hvar hækkun aðstöðugjalda kæmi þyngst niður: þ.e. á rekstri fiskiskipa, kjötiðnaði, matvöruverzlun, matsölum og tryggingastarfsemi. Hún bitnaði því þyngst á atvinnugreinum, sem tengdar væru nauðþurftum fólks. Hætt væri við að þessi hækkun færi með tímanum út í verðlagið, yki á útgjaldaþunga fólks og verðbólguvandann. Þrátt fvrir þessar gífurlegu hækkanir tekjupósta væri stefnt í stórkostlegan rekstrarhalla borg- arsjóðs. Ekki væri reiknað -með eðlilegum verðhækkunum í áætl- uninni eins og áður hefði verið gert. Þegar á heildina væri litið væri ljóst, að hina pólitísku forystu við gerð þessarar fjárhags- áætlunar hefði skort. Kosningaúrslitin frá sl. vori eru smárn saman að birtast almenn- ingi á skattseðlum ríkis og Reykja- víkurborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.