Morgunblaðið - 21.01.1979, Side 35

Morgunblaðið - 21.01.1979, Side 35
\ Incantations INCANTATIONS Mike Oldficld (Virtcin) tviiföld 1978 Rétt fvrir áramótin kom út ný plata frá Mike Oldfield en síðasta breiðskífa hans, „Ommadawn" kom út 1975, svo hér ætti að ligtíja merkilejcur tónlistarskerfur. Reyndar virðist svo vera eftir að hafa hlustað á plötuna í tæpan mánuð með hléum. Tónlistin vinnur vel á or Rerist hufjlaeR sér í lagi hlið 3 or 4, en þar fer Oldfield ekki jafn troðnar slóðir og á þeirri fyrri. Mike Oldfieid, sem er með yngri mönnum í bransanum, aðeins 25 ára Ramall. Hann byrjaði unRur að leika með systur sinni Sally Oldfield, en þau Ráfu út plötu 1968 sem féll undir þjóðlög. Síðar gekk Oldfield til liðs við Kevin Ayers or var með honum á einni breiðskífu. Eftir það ævintýri lokaði Oldfíeld sig af um hríð or kom síðar fram með fullunnið verk „Tubuiar Bells“ sem hann kynnti fyrir hverju útfjáfufyrirtækinu af öðru en enginn vildi gefa það út fyrr en Richard Branson, eigandi Virgin búðahringsins sem þá var að setja á laggirnar hljómplötuútgáfu. Reyndin varð sú að Branson þurfti ekki að sjá eftir útgáfunni því platan „Tuhular Bells“ er enn söluhæsta plata fyrirtækisins. Eftir „Tubular Bells", sem kom út 1973 kom „Hergest Ridge" 1974 og þótti harla lítil breyting hjá honum. Oldfield átti næst þátt gerð tveggja platna sem David Bedford átti hugmyndina af, en Bedford var hjá Kevin Ayers á sama tíma og Oldfield. F.vrri platan var „Star's End“ undir nafni Bedfords og hin seinni hljómsveitarútgáfa á „Tubular Bells“ sem hét einfaldlega „Orchestral Tubular Bells.“ Þriðja „alvöruplata" Oldfields kom svo út 1975, „Ommadawn" og þótt spor í rétta átt. Síðan kom út 4 platna albúm „Boxed“ þar sem „Ommadawn" var óspillt, „Tubular Bells“ og „Hergest Ridge" endurblandaður og svo ein plata með blönduðu efni sem meðal annars hafði komið út á litlum plötum. í viðtölum upp á síðkastið hefur Oldfield svarað hressilega og er talinn mjög ólíkur því sem hann hefur virtst blaðamönnum áður. Tónlistin og uppbyging hennar er líka ekki hin sama og áður. í andstöðu við fyrri plötur er ekki neitt gegnumgangandi „þema“ í tónlistinni, heldur bregður fvrir ýmsum myndum og hugmyndum alla plötuna út án þess að það sé verið að byggja upp í eitthvað „klimax“ (hápunkt, útrás). Fyrsta hliðin byrjar til dæmis í „klimaxi" og er öll hressileg. Oldfield galdrar fram alls Jtyns hljóma á marguppteknum gítar, strengjasveit undir stjórn David Bedfords kemur við sögu á fyrstu hliðinni og stúlknakór undir stjórn sama, flautuleikur leiðir margar melódíur í cndalausum röðum alls kyns slagverk-hljóma á ljúfan máta. Fyrsta hliðin er eiginlega samantekt á fyrri plötum fullkomnuð, þó ekki sé tónlist eins. Önnur hliðin byrjar á tónum sem tengja mætti við sálma, enda leikið á hljómborð og flautu sem allt í einu bre.vtist í truflandi strengi og hljómborð, sem deyr fljótt út í stað kom gítarfrasar, kórsöngur og loks syngur Maddy Prior, fyrrum söngkona Stelley Span. Þriðja hliðin byrjar á spili sem einna helst í ætt við tónlist Jethro Tull, létt, leikandi, en full af gildrum og glettum ef svo má að orði komast! Mike Oldfield leikur sér hér allríflega á gítarinn og finnst undirrituðum þessi hlið skemmtilegust hlustunar þó sú síðasta sé kannski merkilegust. Fjórða hliðin byrjar ósköp milt og blítt með píanói og gítarhljómsveit, sem breytist í gítarsóló sem endar í víbrafónleik Pierre Moerlan, sem er einn af nierkilegri köflum plötunnar. Gítarfrasar frá Oldfield sameinast svo víbrafóninum og hættir aftur, eftir víbrafóninum kemur svo bassagítar og gítarsóló stutta stund og að lokum syngja Maddy Prior og Saliy Oldfield plöluna út. Mike Oldfield greinilega enn í framför og er þessi plata sú besta sinnar tegundar síðan Pink Floyd gáfu út „Atom Heart Mother“ hér um' árið. Ilia. J akob Magnússon er væntanlegur til landsins með vorinu JAKOB MAGNÚSSON,. ,sem mun á næstu mánuAum hrjútast inn á bandaríkjamarkaú með breiðskífu og eigin hljómleikaferð. átti stutta viðdviil hérlendis fyrir skiimmu. Við það tækifæri bjóst Slagbrandur til viðtals við kappann en vegna þess hve tíminn var naumur varð ekkert úr. Engu að síður fékk Slagbrandur að vita það að til stendur að gefa plötuna út hérlendis um það bil mánuði áður en hún kemur út í Bandaríkjunum og við það tækifæri mun Jakob fljúga heim og gefa sér tíma til að kynna hana fyrir landslýð. Eftir það, fer hann í hljómleikaferð um Bandaríkin og standa jafnvel vonir til þess að hljómsveitin heimsæki ísland að hljómleikaferðinni lokinni. Meðlimir í hljómsveit Jakobs eru eftirtaldir: Manuel Bedrena, slagverk, Gary Herbert, saxófónn, Carlos Rios, gítar, David Logeman, Irommur, og Steve Anderson, bassagítar. Bankastrætí7 Símí 2 9122 Aóalstræti4 Sími 150 05

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.