Morgunblaðið - 03.02.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979
11
BLÚM
VIKUNNAR \ \\ s.
UMSJÓN: ÁB. @
Stofualparós
(Rhododendron simsii)
Alparósir eru rómaðir garð-
runnar sakir blómauðgi og
blómfegurðar. Blöð margra
þeirra eru einnig sérkennilega
falleg, oft sígræn, leðurkennd
og gljáandi svo af ber.
Alparósaættkvíslin ber heitið
Rhododendron, en hún tilheyr-
ir lyngættinni. Nákominn ætt-
ingi hennar er hinn dverg-
vaxni SAUÐAMERGUR sem
vex hér í þúfnakollum í ófrjó-
sömu mýrlendi og á grýttum
melum til fjalla. Hann skartar
örsmáum rauðbleikum blóm-
um snemma sumars. Alparós-
inni tilheyrir urmull tegunda, 1
en flestar vaxa þær villtar í
skógi klæddum fjallahlíðum í
Austur-Asíu, oft í 3000—4500
m hæð yfir sjávarmáli. Þar
gætir mikillar úrkomu og loft-
raka, en jarðvegur er gljúpur,
loftríkur og súr. Slíkt hentar
best flestum alparósum.
Ein af viðkvæmari tegund-
unum er STOFUALPAROSIN,
sem oftast gengur undir nafn-
inu AZALEA í nágrannalönd-
algilt því sumir framleiðendur
annast öll stig ræktunar sjálf-
ir. Stofualparósin er mjög
lágvaxin runni, myndar hún
blómhnappa á eindum árs-
sprotanna sjðla sumars við
10—15°C, en við venjulegar
aðstæður opna þeir sig síðan
að nokkrum mánuðum liðnum.
Stofualparósin hefur smám
saman náð að vera framúr-
skarandi vinsælt stofublóm
enda hefur mikið verið aðhafst
til þess að bæta ýmsa eigin-
leika hennar, ekki síst litskrúð
og blómstærð. Litir eru frá
hvítu og yfir í rautt eða fjólu-
blátt. Einnig eru tvílit blóm
algeng.
Þar til fyrir 10—15 árum
sáust stofualparósir nær
eingöngu á markaði síðla vetr-
ar og fram eftir vori. A þessu
hefur orðið veruleg breyting
vegna aukinnar þekkingar á
stjórnun blómmyndunar. Víða
hafa framleiðendur verið
fljótir til að hagnýta sér þetta
og þannig víkkað blómgunar-
um okkar. Skal þess þó getið
að AZALEU-heitið er ekki hið
rétta lengur, en mun þó trú-
lega haldast áfram sakir þess
að það er lipurt í munni og
minni
Forfeður stofualparósarinn-
ar bárust til Evrópu frá Japan,
Indlandi og Kína í byrjun 19.
aldar. í Belgíu náði alparósin
skjótum vinsældum sem stofu-
blóm og þar tóku ýmsir brátt
að kynbæta þær. Síðan fylgdu
Þjóðverjar á eftir og allt fram
á þennan dag hafa þessar
brautryðjendaþjóðir staðið í
fylkingarbroddi um fram-
leiðslu á nýjum afbrigðum og
smáplöntum. í dag er t.d.
svæðið umhverfis Gent í
Belgíu eitthvert hið mikil-
vægasta og umfangmesta
varðandi ræktun stofualpa-
rósa. En þaðan eru plöntur
seldar um víða veröld til garð-
yrkjumanna, sem síðan rækta
þær til blómgunar handa
kaupendum. Ekki er þetta þó
skeiðið, sem raunverulega
mætti láta spanna yfir allt
árið. Trúlega verður þó svo
enn um skeið, að stofualpa-
rósin verði boðberi hækkandi
sólar, vors og yls. Mesta
ánægju veitir sú alparósin
sem keypt er á því stigi að
blómhnappar eru rétt að byrja
að springa út. Síðan þarf að
koma henni fyrir á björtum
stað og gæta vökvunar vel.
Jarðvegur er venjulega mjög
torfkenndur og má því aldrei
þorna, ella skrælna blöð og
blóm hrynja af. Skal því dag-
lega hafa gát á vökvun en
forðast samt ofvökvun. Svalt
pláss að nóttu lengir mikið
blómgunartímann sem er 4—6
vikur.
Alparósinni má koma fyrir á
skyggðum stað úti í garði um
hásumartímann. Hinsvegar er
áframhaldandi ræktun vanda-
söm og aðeins fyrir snjöllustu
ræktendur að glíma við. Sama
gildir um fjölgun. Ó.V.H.
Magnús R. Gíslason:
Flugmenn — Yaristslysin
Undanfarna mánuði hafa birst
okkur í blöðum og útvarpi nær
daglega fréttir af svonefndri flug-
mannadeilu. Man ég ekki eftir
sambærilegum reglulegum frétta-
flutningi síðan í Viet-Nam stríð-
inu illræmda. Það sem rekur mig
til að leggja orð í belg er, að ég tel
að fréttaflutningurinn sé orðinn
svo hættulega persónulegur, að ég
er orðinn hræddur um, að slys
hljótist af.
í hita umræðna á félagsfundum
getur ýmislegt komið fram, en
þegar fulltrúi stjórnar stéttarfé-
lags flugmanna lætur fjölmiðla
koma þeirri skoðun á framfæri, að
forsvarsmenn Flugleiða þurfi að
fara í sálfræðilega rannsókn og
starfsbróðir hans dregur fram
meir en 13 ára gamla ræðu til að
sanna að aðalforstjóri Flugleiða sé
með árásir á Loftleiði, þá er hatrið
farið að hlaupa með menn í gönur
og getur orðið hættulegt. Eg hefi
lengi verið undrandi á að nokkur
skuli vilja vera forstjóri hjá ís-
lensku flugfélagi.
Þegar Félag Loftleiðaflugmanna
var að þvinga stjórn Flugleiða til
að breyta fyrri ákvörðun sinni, um
hverjir ættu að fljúga nýju þot-
unni, þá heyrðist ekkert í tals-
mönnum F.I.A. Þar held ég að
F.Í.A. hafi gert vitleysu, því að
deilan stóð jú aðallega milli þess-
ara tveggja litlu hagsmunahópa og
starfsbræðra. Það var ekki fyrr en
eftir að Loftleiðaflugmenn, sem
eru aðeins 56 af 1350 manna
starfsliði, voru búnir að nota
aðstöðu sína til að skaða félag sitt
um 90 milljónir, eftir þeirra eigin
upplýsingum, og virtust tilbúnir
til að fórna farsælum rekstri
félagsins til að fá öllum sínum
kröfum fullnægt, að stjórn félags-
ins varð að láta undan til að stofna
ekki félaginu og atvinnuöryggi
annarra starfsmanna í voða. Til
samanburðar má geta þess, að
áætlað er að sundlaug fyrir lam-
aða og fatlaða í Hátúni muni kosta
um 80 milljónir.
Það var fyrst eftir að stjórn
Flugleiða hafði orðið að láta und-
an Loftleiðaflugmönnum, að
stjórn F.Í.A. rankaði við sér og
réðst á stjórn félagsins.
Hefði ekki verið nær að leggja
fyrr orð í belg og reyna að styðja
við bakið á löglegri stjórn félags-
ins. Ég efast um, að þá hefði farið
sem fór.
Stjórn Flugleiða hefur verið
ásökuð af flugmönnum fyrir of
mikla linkind, en hvernig hefði
farið, ef flugmenn hefðu stöðvað
allt Ameríkuflugið um lengri tíma.
Einhvern tíma hlýtur að koma að-
því í öllum samningaviðræðum, að
sá vægir, sem vitið hefur meira.
Áður hefur þessi fámenni hópur
Loftleiðaflugmanna heimtað að
Flugleiðir haldi gamla nafninu,
Loftleiðir, eins og þeir séu eini
aðilinn, sem komi það við.
Flugmenn hafa að mínu mati
misnotað aðstöðu síns fámenna
hóps til að þvinga fram óeðlilegar
kröfur í skjóli sérstæðrar einokun-
araðstöðu. Ég tel því eftir þá
reynslu, sem við höfum haft af
starfsaðferðum þeirra, mjög var-
hugavert að ekkert erlent flugfé-
lag flýgur hingað áætlunarflug.
Þetta er kaldhæðnislegt. Núver-
andi ástand skapar óeðlilega |
sterka aðstöðu fámennum hópum r
sérhagsmunafólks, sem hefur ver-
ið beitt óvægið.
Ég tel óþolandi að fámennur
hópur geti þvingað fram hvaða
kröfur sem hann langar til með því
að koma í veg fyrir ferðir til og frá
landinu.
Nú hefur F.Í.A. hafið verkföll og
skæruhernað, sem skaða Flugleið-
ir svo að enginn veit hver endirinn
verður. Ég skora því á forsvars-
menn þessara tveggja þrýstihópa
að reyna að halda deilumálunum
utan við persónulegu mörkin, svo
að ekki verði fleiri slys.
Reynið að gleyma gömlum deilu-
málum. Staðreyndin er sú, að það
er þjóðinni fyrir bestu að félögin
voru sameinuð og það veit enginn
hver annan grefur ef þau illindi,
sem nú hefur verið kynt undir, fá
að magnast.
Innritun frá kl. 10.00 til kl. 19.00
Brautarholti 4, sími 20345 <
Drafnarfelli 4, sími 74444.
Skírteini afhent sunnudaginn 4.
febrúar frá kl. 16.00 til kl. 19.00 í
Brautarholti 4 og Drafnarfelli 4.
Kennslugjöld fyrir námskeiöiö
greiöist viö afhendingu skírteina.
Verið með og lærið
toppdansana í dag.