Morgunblaðið - 04.02.1979, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1979
LANDBUNAÐUR
Flótti úr
sveitum
er alþjóð-
legt
fyrirbæri
Inokkra áratugi hefur víða um
lönd verið stöðugur straumur
fólks úr sveitum á mölina og
heldur aukizt með árunum. Verður
ekki séð að draga muni úr honum í
bráð, og reyndar telja spámenn
úm búsetu og þvíumlíkt að þessi
straumur á mölina muni haldast
til aldamóta að minnsta kosti.
í nýlegri skýrslu frá Alþjóða—
vinnumálasambandinu er talið að
mannafli til sveita í iðnríkjum
hafi minnkað um hvorki meira né
minna en 60 milljónir á árunum
1950—1970. Muni svo halda áfram
og verkfærum mönnum til sveita
enn fækka um 60 milljónir fram til
aldamóta. Er þá reyndar talið frá
1970, fækkunin sem sé 2 milljónir
á ári.
Eflaust eru fjölmargar ástæður
til þessarar mannfækkunar í
sveitum. En sennilega veldur það
miklu, að ungu fólki þykir flest
sveitavinna illur starfi miðað við
vinnuna sem býðst í bæjum og
borgum, menn eru miklu bundnari
við verk sín í sveitum en bæjum,
mest að gera á sumrum, einmitt
þegar borgarbúar eru í sumarfríi
að skemmta sér o.s.frv.
Tölurnar sem nefndar voru hér
að framan kunna að virðast
ískyggilegar. Það er þó til huggun-
ar þeim sem sýnist að til land-
auðnar horfi í sveitum, að þessi
mannfækkun, þótt gífurleg sé,
virðist engin áhrif hafa haft á
matarframleiðslu í heiminum.
Hún eykst. Mannfækkunin bætist
sem sé upp og meira til, með
aukinni landbúnaðarframleiðni
sem stafar af bættu sáðkorni,
framförum í áveitu og kannski þó
helzt af stóraukinni vélvæðingu.
Bændum hefur tekizt að auka
framleiðsluna jafnt og þétt þrátt
fyrir síminnkandi vinnuafl, og er
þar sömu sögu að segja bæði úr
þeim löndum þar sem markaðs-
Vélin og kusa: Framleiðslan eykst
sífellt þó að fólkinu fækki.
búskapur í einhverri mynd er við
lýði og hinum þar sem áætlanir
ráða.
- NORRIS WILLATT
HEILBRIGÐISMÁL
Dauðsföll
um f ækkaði
þegar lækn-
ar fóru
í verkfall!
að bar til í fyrra, að læknar í
Los Angeles og grennd fóru í
verkfall. Þetta' verkfall stóð í
mánuð og lengur þó. Greip um sig
nokkur skelfing þegar ljóst varð að
það kæmi til framkvæmda og var
því þegar spáð, og þurfti varla
spámann til, að dauðsföllum
mundi stórfjölga meðan á því
stæði.
En það fór nú á annan veg. A
þessum rúmum mánaðartíma sem
læknar „héldu að sér höndum" —
til að mótmæla hækkun iðgjalda
af tryggingum við vanrækslu í
starfi sem oft spretta mál af þar
vestra — snarlækkaði dánartala í
Los Angeles og nágrenni.
Nú er of snemmt að draga þá
ályktun af þessu að þjóðfélaginu
kæmi bezt að allir læknar settust í
helgan stein ellegar fengju sér
vinnu þar sem þeir gætu ekkert af
sér gert. Hins vegar væri ráð, að
því er segir Milton nokkur
Roemer, starfandi við Kaliforníu-
háskóla og hefur athugað þetta
mál, að nokkur hluti skurðlækna
legði breddurnar á hilluna. Þannig
er, að meðan stóð á læknaverkfall-
inu fækkaði uppskurðum í Los
Angeles um 60% (Það var að
sjálfsöðu ekki hægt að leggja
niður alla læknisþjónustu) — en
þegar verkfallið tók enda og skurð-
lækningar komust aftur í eðlilegt
horf snarhækkaði dánartalan í
borginni úr 19 í 26 af hverjum 100
þúsund ... Telst það varla djúpt
tekið í árinni að Roemer lét svo
ummælt á þingi samtaka um
heilsugæzlu að ekki væri útilokað
að meðalaldur í Bandaríkjunum
kynni að hækka ef skurðlæknar
minnkuðu ofurlítið við sig vinnu
Það er löngu vitað að í Banda-
ríkjunum er mikið skorið upp að
óþörfu. Þingnefnd sem tók sér
fyrir hendur að kanna það mál
komst að þeirri niðurstöðu m.a. að
óþarfir uppskurðir yrðu 10 þúsund
Bandaríkjamönnum að bana á ári
hverju og kostnaðurinn nálægt
fjórum milljörðum dollara. Það
fylgdi að þessar tölur virtust hafa
staðið nokkurn veginn í stað
síðustu fimm árin.
Á undanförnum árum hafa
reyndar farið fram margar
kannanir sem bent hafa til þess, að
bandarískir skurðlæknar væru
duglegri að skera en góðu hófi
gegndi og ber þessum könnunum
yfirleitt saman að mestu, a.m.k. í
höfuðatriðum. Oft eru bornar
saman tölur frá Bretlandi og
Bandaríkjunum. Bretar verja
aðeins 5.6% þjóðarframleiðslu til
læknishjálpar, Bandaríkjamenn
hins vegar 8.6%. I Bandaríkjunum
fara að tiltölu fram tvöfalt fleiri
uppskurðir en í Bretlandi. Samt
sem áður er dánartala ungbarna
og mæðra mun lægri í Bretlandi
en Bandaríkjunum; en dánartala
ungbarna og mæðra er viður-
kenndur mælikvarði á heilsugæzlu
ríkja.
I Bandaríkjunum er skorið upp
einu sinni á hverjum tveim þriðju
pörtum ú sekúndu. Hafa skurð-
læknar haldið svo vel á, að t.a.m.
er fjórðungur Bandaríkjamanna
laus við hálskirtlana. Því miður
telja ýmsir sem athugað hafa
málið að hér hafi verið farið
heldur geyst í sakirnar og einungis
8% þessara aðgerða sannarlega
nauðsynleg...
Jafnvel skurðlæknaráðið banda-
ríska viðurkennir það, að starfandi
skurðlæknar muni vera þriðjungi
fleiri en þörf sé á. Nú munu vera
u.þ.b. 350 þúsund læknar í Banda-
ríkjunum. Skurðlæknaráðinu telst
svo til, að 90 þúsund þeirra skeri
upp að staðaldri — en fjórðungur
þessara 90 þúsunda hafi ekki
sómasamlega æfingu í sérhæfðum
skurðlækningum.
Mönnum hefur komið ýmislegt í
hug til skýringar þessu „skurðæði"
sem svo má kalla og hér hefur
verið frá sagt. Ein nærtækasta
ástæðan er peningagræðgi. Á það
er bent að uppskurðir gefi mest í
aðra hönd allra læknisverka. En
við það er því að bæta, að tveir
þriðju allra skurðlækna í Banda-
ríkjunum eru ólaunaðir, þ.e. hafa
ekki fastakaup, en taka þóknun
fyrir hvern uppskurð, misjafna að
sjálfsögðu. Það kann þá að verða
freistandi að skera sem allra
mest... Hafa enda sumir brennt
sig á því að vinna yfir sig. M.a. er
nú fyrir rétti í Kaliforníu skurð-
læknir sakaður um það að hafa
skorið 50 manns upp að óþörfu,
flesta í baki, og ekki að vita nema
fleiri leggi inn kærur. Hann er
þegar búinn að tapa þremur mál-
um og má hann aldeilis halda á
hnífunum ef hann ætlar að greiða
miskabæturnar sem upp eru
settar. Þær hæstu námu 3.7
miiljónum dollara.
—WILLIAM SCOBIE.
Petta gerðist líka ....
Misjaínir dómar
Hvaða ritdómara lestu? liggur stundum beinast við að spyrja
pegar einn lofar skáldverkiö upp í hástert en annar finnur pví flest
til foráttu. Sama lögmál sýnist gilda um mat kunnáttumanna á
bifreiöum, ef marka má yfirlitið um kosti og lesti á fjölmörgum
bílategundum í Lesbók á dögunum og svo svipaða könnun, sem
skýrt var frá í Bretlandi fyrir
skemmstu. Lesbókarkönnunin
var bandarískrar ættar en fyrir
hinni stóð tímaritið „Which?“,
sem er málgagn bresku
neytendasamtakanna; og er
skemmst af að segja að sér-
fræöingar bessara aðila eru alls
ekki sammála um allt í niður-
stöðum sínum. Breska könnunin
spannaði eitt ár og var meðai
annars fylgst með bilanatíöni
yfir 20.000 bíla af ýmsum gerð-
um á pessu tímabili. Þar póttu japanskir bílar eins og Datsun,
Honda, Mazda og Toyota bera af og eins hinir evrópsku BMW,
Saab, Volvo og VW-Audi, en einmitt sænsku bílarnir höfnuöu aftur
á móti aftarlega á merinni í könnun Bandaríkjamanna. Citroen,
Fiat og Peugeot náðu ekki miðlungseinkunn hvað bilanatíðni
viðvíkur í fyrrgreindri könnun Bretans og Austin Morris fékk
meöaleinkunn slétta, en Allegro 1100 og 1300, Marina og Princess
dæmdust undir meöallagi. Loks fékk Chrysler busaverðlaunin, aö
segir í stuttri Guardian-frétt af pessu „hæfnisprófi".
Vitlaust gefið
Allt fór í handaskolum en endalokin urðu samt stórum betri en
útlit var fyrir, segir í AP-frétt af systrabrúökaupi sem fram fór í
Jedda í Saudiarabíu fyrir skemmstu. Brúðirnar báru að sjálfsögðu
blæju aö hætti góðra Arabakvenna, en svo illa tókst til fyrir
bragðið að kallinn faðir peirra ruglaðist í ríminu og fékk vitlausum
brúðguma vitlausa brúði ef svo mætti að oröi komast. Al Bilad,
sem er dagblað parna suðurfrá, segir aö veslings pabbinn hafi par
aö auki magnaö vitleysuna meö pví að ruglast líka á nöfnum
hjónaleysanna pegar hann var að láta ganga frá pappírunum
vegna vígslunnar. En sem fyrr segir fékk málið samt farsælan endi
og ekki purfti að grípa til pess aö efna til tvöfalds hjónaskilnaöar.
Al Bilad upplýsir nefnilega að hinar nýgiftu hafi tilkynnt föður
sínum nokkrum dögum eftir aö slysiö varö að pær væru hinar
ánægöustu meö röngu makanal
„Neyðarúrræði“ Indiru
í skýrslu sem Amnesty International birti í síðastliönum mánuði
segir að á árunum 1975—77, pegar Indira Gandhi hafði sem næst
tekið sér alræðisvald á Indlandi í skjóli yfirlýsingar um
„neyðarástand“, hafi ekki einasta allt að 100.000 manns verið
haldið í fangelsum af pólitískum ástæðum og án pess að fá aö
verja sig fyrir dómstólum heldur hafi pynding-
um veriö beitt viö sumt af pessu fólki í
pokkabót. Amnesty rekur dæmi um
pyndingarnar, sem voru margskonar og einatt
hinar viðbjóðslegustu. Auk líkamlegra mis-
pyrminga gripu böðlarnir til sálræns ofbeldis
af ýmsu tagi, svosem eins og pess fantabragðs
að búa fórnarlambið undir aftöku, sem síðan
var aflýst á síðustu stundu. Þess voru og dæmi
að bandingjar væru pyndaöir til bana, og sumum kvenföngum var
nauðgað. — Þessar upplýsingar Amnesty eru að allra dómi áfall
fyrir Indiru Gandhi, sem hefur einatt kallaö allar ásakanir landa
sinna af pessu tagi lygar og óhróður. En skýrslur Amnesty eru
einmitt jafn pungar á metunum og raun ber vitni vegna hins
algjöra hlutleysis sem alpjóðasamtökin ástunda.
Sitt lítið afhverju
Breski lögfræðingurinn og rithöfundurinn Michael Eddowes
hefur formlega óskað eftir pví að meintar líkamsleifar Lee Harvey
Oswalds (myndin), banamanns Kennedys forseta, verði grafnar
upp og rannsakaðar. Eddowes fullyrðir nefnilega aö paö sé alls
ekki Oswald sem sé grafinn í Rose Hill kirkjugarði í Fort Worth
heldur sovéskur njósnari sem hafi notað nafn
hans og skilríki til pess aö fremja myrkraverk
sín í Bandaríkjunuml... Samkvæmt skoðana-
könnun sem fram hefur farið í Bretlandi á
vegum samtaka, sem aðhyllast líknardráp, er
nú meirihluti Breta pví meömæltur aö læknum
verði heimilað aö hjálpa fólki til að stytta sér
aldur, sem pjáist af ólæknandi sjúkdómum og
er orðið satt lífdagu ... Svo segir í annarri frétt
frá Bretlandi að karlakór lögreglunnar í Sussex sé kominn í pvílíkt
meölimahrak að forráðamenn hans hafi gripiö til pess ráðs aö
augiýsa eftir nýjum félögum — meöal kvenlögreglupjóna...
Samkvæmt skýrslu stjórnardeildar peirra í Suður-Afríku sem fer
með fangelsismál, voru 132 hengdir par í landi á síðastliðnu ári,
p.e. 105 blökkumenn, 26 kynblendingar og einn hvítur. Allt voru
petta karlmenn ...