Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 11 40 ára söngafmæli Gudrúnar Á. Símonar Hún syngur í Dómkirkjunni á sunnudag af því tilefni Á þessu ári á hin þekkta óperusöngkona, Guðrún Á. Símonar, 40 ára söngafmæli. Hún hóf að syngja aðeins 15 ára gömul, mest meðal vina og kunningja. en svo heyrði Bjarni Böðvarsson hana syngja, og eftir það söng Guðrún mikið með hljómsveit hans og kom þá fyrst fram í útvarpi 17 ára gömul Hreif hún Reykvíkinga þá þegar með söng sinum og var stundum nefnd „Deanne Durbin Reykja- víkur.“ Jafnframt hóf Guðrún að syngja í Kirkjukór Nessóknar undir stjórn Jóns Isleifssonar. Þar heyrði ég hana syngja fyrst, og ég man, að mikið var um það rætt, hvað hljómfögur rödd hennar nyti sín vel í því góða sönghúsi, Háskólakapellunni. Var og oft hrein unun að hlýða á messuflutning þar á þessum árum, hjá ágætum kór og einum besta söngmanni íslenskrar prestastéttar, sr. Jóni Thoraren- sen. Guðrún var aðeins tvítug að aldri, er hún fór fyrst utan til söngnáms, en áður hélt hún 9 einsöngstónleika hér heima, 5 í Reykjavík, tvenna á ísafirði og aðra tvenna á Akureyri. Tíundu tónleikana hélt hún svo hér í borginni með Karlakór Reykja- víkur. Hin unga og vinsæla reyk- víska söngkona varð brátt með námi og reynslu einn okkar .bestu söngvara og hefur sett sterkan og skemmtilegan svip á íslenzkt sönglíf þessa fjóra ára- tugi, og enn er söngur hennar Guðrún Á. Símonar. hrífandi. Guðrún hefur ekki síst sungið kirkjulega tónlist, og nú hafa forráðamenn Dómkirkjunnar óskað eftir því, að hún syngi einsöng í messunni á morgun sunnudaginn 11. febrúar kl. 2 e.h. Þetta verður að sjálfsögðu aðeins örlítið „praeludium" að miklu söngári hjá Guðrúnu, því bæði væntum við þess að hún muni halda sjálfstæða tónleika, og svo tel ég víst, að útvarp og sjónvarp minnist þessara tímamóta á listferli hennar. En í messunni á morgun syng- ur Guðrún með Dómkórnum uppáhaldslag sitt Allsherjar Drottinn, og sem stólvers syng- ur hún Lascia Chio Pianga eftir Hándel. Eg vænti, þess, að Reyk- víkingar fjölmenni til messunn- ar á morgun til þess að njóta góðrar stundar í Guðshúsi, og þar ekki síst söngsins, og sam- fagna Guðrúnu með hennar gifturíka skref til íslensks tón- listarlífs. Þórir Stephensen. V erkalýðsskóli Sjálfstæðis- f lokksins hef st þann 24. febrúar Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að Verkalýðsskóli Sjálfstæðisflokksins verði haldinn 24. febrúar—3. marz 1979. Megintilgangur skólans er að veita þátttakendum fræðslu um verkalýðs- hreyfinguna uppbyggingu hennar, störf og stefnu. Ennfremur þjálfa nemendur í að koma fyrir sig orði, taka þátt í almennum umræðum og ná valdi á hirfum fjölbreyttu störfum í félagsmálum. Meginþættir námsskrár verða sem hér segir: 1. Saga og hlutverk verkalýðshreyfingarinnar Leiðbeinandi: Gunnar Helgason, forstöðumaður. 2. Kjarasamningar, fjármál og sjóðir verkalýðsfélaga. Leiðbeinandi: Björn Þórhallsson, formaður L.t.V. 3. Fræðslustarfsemi á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Leiðbeinendur: Hersir Oddsson, varaform. B.S.R.B. og Magnús L. Sveinsson, varaform. V.E. 4. Stjórnun og uppbygging verkalýðsfélaga. Leiðbeinandi: Hilmar Jónasson, form. Rangæings, Hellu. 6. Efnahagsmál — vísitölur. Leiðbeinendur: Brynjólfur Bjarnason, rekstrarhagfræðingur og Þráinn Eggertsson, hagfræðingur. 7. Fjölmiðlunartækni. Leiðbeinendur: Magnús Finnsson, blaðamaður og Markús Örn Antons- son, ritstjóri. 8. Framkoma í sjónvarpi. Leiðbeinandi: Hinrik Bjarnason, framkv.stj. 9. Þjálfun í ræðumennsku, fundarstjórn og fundarreglum. Leiðbeinendur: Kristján Ottósson, form. Félags blikksmiða og Skúli Möller, kennari. 10. Félagsmál-kjaramál. Leiðbeinendur: Ágúst Geirsson, form. Félags ísl. símamanna, Guðmundur H. Garðarsson, form. Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Pétur Sigurðsson, fyrrv. alþingismaður. Skólinn verður helgar- og kvöldskóli frá kl. 09:00—19:00 laugardag og sunnudag með matar- og kaffihléum, og frá kl. 20:00—23:00 mánudag, þriðjudag og fimmtudag. Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðum og leiðbeinendum og hringborðs- og panelumræðum. Skólinn er opinn sjálfstæðisfólki á öllum aldri, hvort sem það er flokksbundið eða ekki. Það er von skólanefndar, að það sjálfstæðisfólk, sem áhuga hefur á þátttöku í skólahaldinu, láti skrá sig sem fyrst í síma 82900 eða 82398, eða sendi skriflega tilkynningu um þátttöku til skólanefndar, Háaleitisbraut 1, Reykjavík. Gunnar Helgason Sverrir Garðarsson Magnús Finnsson Skúli Möller Björn Þúrhallsson Hilmar Jónasson Markús örn Antonsson ÁKÚSt Geirsson Hersir Oddsson Magnús L.' Sveinsson Brynjúlfur Bjarnason Þráinn EgKertsson Hinrik Kristján Bjarnason Ottússon Guúmundur H. Garðarsson Pétur Sigurússon. M.S. félag- ið 10 ára KOMIÐ er , út afmælisrit M.S.-félags íslands, sem er styrktarfélag sjúklinga með sjúkdóminn heila- og mænusigg sem svo hefur verið nefndur á íslenzku og er einnig þekktur undir nafninu Multiple Sclerosis. Styrktarfélagið er 10 ára um þessar mundir og er afmælisins minnzt í ritinu. Aðalhvatamaður að stofnun félagsins var Kjartan heitinn Guðmundsson prófessor og yfir- læknir sem fylgdist náið með sjúkdómnum hér á landi. I afmælisritinu sem fyrst og fremst er fræðslurit félagsins eru almennar upplýsingar um sjúk- dóminn og væntir ritstjórinn þess að þær geti orðið sjúklingun- um til hjálpar og leiðbeininga svo og aðstandendum auk þess sem þær geta komið heilbrigðisstétt- um að gagni og öðrum er vilja fræðast um sjúkdóminn. Meðal þeirra er skrifa í ritið eru Sverrir Bergmann læknir um sjúkdóminn, Haukur Þórðarson yfirlæknir um endurhæfingu MS-sjúklinga, María H. Þor- steinsdóttir skrifar um sjúkra- þjálfun við M.S. Ásgeir B. Ellertsson yfirlæknir skrifar um þverlögun og iðjuþjálfararnir Guðrún Árnadóttir og Vallery Tennenbaum skrifa um þátt iðju- þjálfunar í meðhöndlun MS-sjúklinga, auk fleiri greina. Núverandi formaður MS-félags- ins er frú Gréta Morthens. allra, allra síöasti dagur — og opið til hádegis Rýmingarsalan er í Vörumarkaönum, Ármúla SG-hijómpiötur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.