Morgunblaðið - 10.02.1979, Side 18

Morgunblaðið - 10.02.1979, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 125 kr. eintakíð. Fjölmiðlakönnun Hag- vangs vakti verðskuld- aða athygli og var endanleg staðfesting á óvenjulegum yfirburðum Morgunblaðsins og sérstöðu þess hvað snert- ir upplag og lestur. Blaðið kemur á 92% heimila í þéttbýlinu og það nær til fleira fólks í landinu en nokkur annar fjölmiðill, jafnvel ríkisfjölmiðlarnir báðir. Það er prentað í 41—42 þúsund eintökum, en greidd eintök eru rétt um 40 þúsund. Þetta er ótvírætt og blaðið þurfti enga könnun til að fá vitneskju um þess- ar staðreyndir. Hún stað- festi einungis yfirburði blaðsins og sýndi að það kemur á 70% heimila á öllu landinu. Næststærsta blaðið, Dag- blaðið, sem hefur lítillega vinninginn yfir Vísi (þó ekki hvað gæði og áreiðan- leika snertir) er rúmlega hálfdrættingur á við Morgunblaðið, en rembist nú eins og rjúpa við staur- inn að sanna yfirburði sína! Það líður varla sá dagur, að Dagblaðs-„drottningin“ sitji ekki við spegilinn og spyrji: „Spegill, spegill herm þú hver, hér á landi fegurst er!“ Vonandi verða örlög Dagblaðsins ekki hin sömu og vondu stjúpunnar í ævintýrinu. Hún dansaði á glóandi kolum þar til hún datt niður dauð. (Það mun að vísu vera rétt að Dag- blaðið er ennþá stærst á mánudögum, að því er bezt er vitað, því að upplýsingar um upplag Mánudagsblaðs- ins liggja ekki fyrir). Morgunblaðið er reiðubú- ið að láta fylgjast með sölu sinni og raunverulegu upp- lagi hvenær sem er og þá mun meðal annars koma í ljós að blaðið liggur ekki hálf- og ólesið í stórum hrúgum í sjoppum og á öskuhaugum hingað og þangað um Iandið. Lestrar- virkni Morgunblaðsins var eitt af því sem kom mest á óvart í niðurstöðum könnunarinnar. Kannski er ein helzta ástæðan sú, að Morgunblaðið situr ekki lon og don og speglar sig, held- ur gerir það sér far um að spegla þjóðlífið og það sem raunverulega skiptir máli í samtíðinni. Ef Hagvangs-könnunin er lögð til grundvallar kemur í ljós að miðað við rétt upp- lag Morgunblaðsins er Dag- blaðið selt í u.þ.b. 24 þúsund eintökum, Vísir rétt innan við 20 þúsund eintökum, en hin blöðin þaðan af minna. Þá er ekki sízt ástæða til að vekja athygli á þeim yfir- burðum, sem sunnudags- blöð Morgunblaðsins hafa, en helgarblað Vísis, sem kemur út á laugardögum eins og Dagblaðið, kemur næst á eftir Morgunblaðinu, svo að ekki er nauðsyn á neinum spegli til að sanna þær staðreyndir, sem við blasa og voru reyndar alkunnar. „Spegill, spegill, herm þú hver...” Birgir ísL Gunnarsson: Þegar hart er í ári, og skera þarf niður fjárveitingar til mal- biks og steinsteypu, þá er eins og ýmsir hafi tilhneigingu til að meta að jöfnu malbikið og ýmsa sjálfsagða þætti í menningar- lífinu. Eitt af því, sem menn vilja þá gjarnan reka hornin í, er Sinfóníuhljómsveit Islands. Hún er þá lögð á niðurskurðar- brettið og sett undir hnífinn og á hana lagður sami mælikvarði og tonn í malbiki eða rúmmetra í steinsteypu. Á síðasta Alþingi var lagt fram frumvarp til laga um Sinfóníuhljómsveit íslands og var tilgangur frumvarpsins sá að tryggja framtíð sveitarinnar, en um hana hafa engin lög gilt, aðeins munnlegir samningar milli ríkis, borgar og útvarps um að kostnaður af rekstri hennar skyldi greiðast í ákveðn- um hlutföllum. Frumvarpið náði ekki fram að ganga, en um það fóru fram hinar kostulegustu umræður, sem jafnvel komust á það stig að verulega mætti spara í rekstri sveitarinnar með því að láta hljóðfæraleikarana spila á sem flest hljóðfæri! ■ Því er þetta rifjað upp hér nú, að framtíð Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í dag virðist vera i nokkurri óvissu. Sem fyrr segir, þá hefur rikt um alllangt skeið munnlegt samkomulag milli rekstraraðila um að þeir greiddu rekstrarkostnað hljóm- sveitarinnar í ákveðnum hlut- föllum. Samkvæmt því skyldi Reykjavíkurborg greiða 21,4% af kostnaðinum og var í frum- varpi til fjárhagsáætlunar fyrir 1979 áætlaður 90 millj. kr. í þessu skyni af hálfu borgar- sjóðs. I þeirri tölu var reiknaður halli vegna fyrri ára. Nú hefur Reykjavíkurborg sent menntamálaráðuneytinu bréf þess efnis, að borgin muni ekki framvegis greiða jafnháa prósenttölu og áður, heldur miða við það að öll sveitarfélög- in hér í nágrenninu taki þátt í þessum kostnaði eftir höfðatölu- reglu. Er það í samræmi við ákvæði lagafrumvarpsins, sem lagt var fram á síðasta Alþingi og aldrei varð að lögum. I samræmi við þetta bréf hefur meirihluti borgarstjórnar nú lagt fram tillögu í borgarráði, sem afgreiða á með fjárhags- áætlun næsta fimmtudag, um að fjárveitingin skuli lækka úr 90 millj. króna í 71,4 millj. kr. eða um 18,6 millj. kr. Eg hygg að ekki sé pólitískur ágreiningur um það í borgar- stjórn, að óeðlilegt sé að Reykja- víkurborg, eitt allra sveitar- félaga hér á svæðinu, greiði hluta af reksturskostnaði hljómsveitarinnar. Ekki þarf annað en að fara á sinfóníutón- leika til að sjá, að Kópavogs- búar, Seltirningar, Garðbæing- ar og Hafnfirðingar kunna eins vel að meta störf sveitarinnar og Reykvíkingar. Hitt kann að valda meiri ágreiningi í borgarstjórn, hversu langt skuli ganga til að tryggja eðlilega starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ýmsar umræður og tillögugerð í borgarstjórn á undanförnum árum benda til þess, að ýmsir myndu gráta það þurrum tárum þótt hljómsveitin hætti starf- semi sinni og víst er að leggja mætti malbik á dálaglegan götuspotta fyrir 90 millj. kr. Einn af forystumönnum Framsóknarmanna í borgarmál- um gerði t.d. Sinfóníuhljóm- sveitina að umræðuefni í Tímanum í vikunni. Hans sjón- armið var það, að þeir sem færu á „skemmtanir" ættu að greiða fyrir það fullu verði. Þess vegna ætti ekki að greiða slíkar skemmtanir niður. Nú efasUég ekkert um, að sú almenna regla gildi í skemmtanaiðnaðinum, að t.d. þeir, sem fara að hlusta á þá ágætu menn „Halla og Ladda“ eða „Brunaliðið" greiði fyrir það fullu verði í einhverju formi. Hér er hinsvegar ólíku saman að jafna. Þeir sem fara á tón- leika Sinfóníuhljómsveitarinnar gera það auðvitað sér til ánægju og yndisauka, en hljómsveitinni er ekki haldið uppi aðeins fyrir þann hóp. Sannleikurinn er sá, að Sinfóníuhljómsveitin myndar grundvöll að tónlistarlífinu í landinu. Hljómsveitin er svo snar þáttur í því, að hér sé lifað tónmenningarlífi, að legðist hún niður, þá hyrfi fleira með, sem ekki má sjá fyrir í fljótu bragði. Þess vegna er það mikið atriði að enginn núverandi rekstrar- aðila stigi nein þau skref, sem orðið gætu til þess að stofna framtíð Sinfóníuhljómsveitar- innar í hættu. Reykjavíkurborg þarf því að knýja á um það, að ríkisvaldið gangi fram af fullri alvöru í því að setja hljómsveit- inni lög og tryggja framtið hennar. Það þarf að gerast á þessu þingi og í því máli þarf menntamálaráðherra að taka forystuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.