Morgunblaðið - 10.02.1979, Síða 31

Morgunblaðið - 10.02.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 31 „Það eina sem við getum gert er að imdirbúa nœsta vetur” RAGNAR ARNALDS menntamálaráðherra á blaðamannafundimifn í gær. RAGNAR Arnalds menntamála- ráðherra sagði í gær á blaða- mannafundi að ekki væri hægt að ganga til móts við kröfur nem- enda og kennara KHÍ á þessum vetri vegna fjárskorts, nema í einu atriði, hann kvaðst bjart- sýnn á að bókavörðurinn kæmi aftur til starfa bráðlega. Mennta- málaráðherra sagði, að fjárveit- ingar til skólaársins 1978—1979 hefðu verið ákveðnar á f járlögum 1978. Það eina sem hægt væri að gera á þessum vetri. sagði Ragn- ar, væri að undirbúa næsta vetur svo viðunandi væri. „Það eina í vandræðum skólans sem skrifa má á okkar reikning er þetta bókavarðarmál," sagði ráð- herrann. Um húsnæðismál Kennarahá- skólans sagði Ragnar, að vand- ræðaástand hefði skapast í þeim málum á undanförnum árum. Nemendum hefði fjölgað verulega án þess að þeirri fjölgun hefði verið mætt með gagnkvæmum ráðstöfunum varðandi húsnæðið. Ragnar sagði að skólanum yrði að afla húsnæðis og, þá fyrst til bráðabirgða. Hann sagði að menntamálaráðuneytið hefði í huga að taka í notkun á næsta ári færanlegar kennslustofur við Kennaraháskólann og kvað hann það vera ódýra og hagkvæma lausn. Á fundinum kom það einnig fram að reynt hefði verið á síðasta sumri að fá leiguhúsnæði en ekki hefðu tekist samningar um leigu- kjör. „Lausn til langframa verður að bíða,“ sagði Ragnar. „Ef farið verður út í byggingarframkvæmd- ir í vor verður það húsnæði ekki Fœregingar komnir með 4 þús. tonn FÆREYSKU skipin. sem stunda loðnuveiðar hér við land, hafa fengið um 4 þúsund lestir sam- kvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk í Færeyjum í gær. Krunborg hefur landað tvívegis, samtals um 1700 tonnum, Götunes hefur einnig landað tvisvar, um 1400 tonnum. Polaris er kominn með 600 tonn og Sjurdur Tollakson landaði í gær um 250 tonnum, en skipið varð að halda heim á leið með rifna nót. Færeyingarnir hafa heimild til að veiða hér 17.500 lestir á vertíðinni. Þeim er skylt að gefa nákvæmar upplýsingar um afla á hverju kvöldi og tilkynna um ferðir sínar. Á vertíðinni hafa Færeyingarnir ekki staðið sig í stykkinu í þessum málum að því er Mbl. fékk upplýst í gær. Víðishúsið boðið til kaups i næstu viku VÍÐISHÚSIÐ verður auglýst til kaups í næstu viku, að sögn Ragnars Arnalds menntamála- ráðherra. I fjárlögum er heimild til þess að selja húsið og kaupa annað og sagði Ragnar að komið hefði til tals að skipta á Víðishúsinu og öðru húsi en hann vildi ekki að svo komnu máli greina frá því hvaða hús kæmi til greina í skiptin. Ragnar Arnalds skýrði afstöðu menntamálaráðu- neytisins til málefna KHÍ á blaða- mannafundi í gær tekið í notkun fyrr en eftir langan tíma.“ Á fjárlögum fyrir þetta ár eru 50 milljónir króna áætlaðar i byggingarframkvæmdir við Kenn- araháskólann. Á síðasta ári var svipuð upphæð á fjárlögum til þeirra framkvæmda. Indriði Þor- kelsson deildarstjori byggingar- deildar menntamálaráðuneytisins sagði, að árið 1978 hefðu teikning- ar nýs skóla legið fyrir en þurft hefði að endurskoða þær vegna skipulagsbreytinga. Sumarið 1978 voru teikningarnar tilbúnar og lagðar fyrir samstarfsnefnd um opinberar byggingarframkvæmdir seint það sama ár og voru þær samþykktar en ákveðið að fram- kvæmdirnar skyldu ekki þoðnar út fyrr en fjárlögin lægju fyrir. „Nú er það ljóst að fjárveiting- arnar eru 50 milljónir til þessara framkvæmda og er það býsna knappt fé til slíkra framkvæmda," sagði Indriði. Þó sagðist hann búast við því að útboð í verkið færi fram síðast á þessu ári. I sambandi við mál bókavarðar- ins sagði Ragnar að þetta sama mál hefði komið upp 5 undanfarin ár. Stöðuveitingu bókavarðar hefur verið hafnað í fjárlögum en menntamálaráðuneytið hefur bjargað þessu við undanfarin 4 ár. Ég er sammála nemendum og kennurum KHI að bókasafnið sé nauðsynlegt og að þar sé nauðsyn- legt að hafa lærðan bókasafns- fræðing sem getur hjálpað nem- endum við að nýta sér safnið. Ég hafði sjálfur ekki hugmynd um þetta vandamál fyrr en daginn áður en nemendur komu hingað og hefði það verið æskilegra að þeir hefðu látið vita af þessu fyrr. Ég veit hins vegar að það hefur verið unnið að þessu máli hér í ráðu- neytinu síðasta mánuð og ég er bjartsýnn á að þetta mál leysist fljótlega." Varðandi þau mótmæli sem nemendur KHI hafa haft uppi um réttindaveitingu og viðbótarnám réttindalausra kennara sagði Ragnar að þetta mál væri enn á umræðustigi og það væri alls ekki satt það sem nemendur hafa hald- ið fram að það væri ákvörðun ráðherra að þeir kennarar sem hafa starfað við kennslu 8 ár eða lengur gætu fengið réttindi með því að taka þátt í 10 vikna nám- skeiði. Ragnar sagði að þetta væri aðeins tillaga sín sém ætti eftir að ræða í nefnd sem skipuð var í þetta mál á síðasta ári. Ragnar sagðist hafa gert þessar breyt- ingatillögur þar sem honum hefðu ekki fundist tillögur nefndarinnar nógu rökréttar og gera réttinda- lausum kennurum erfitt og jafnvel ókleift að afla sér kennararétt- inda. „Það er stefna ráðuneytisins að sem flestir réttindalausir kennar- ar geti aflað sér rétt og erum við þá fyrst og fremst að hugsa um launaréttindi,“ sagði menntamála- ráðherrann. Gunnar Thoroddsen, formaður þingflokks Sjálfstœðismanna: Við stjórnarmyndun var samið um öryggismálanefnd___________ í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna frá 31. ágúst 1978 var ákveðið að setja upp nefnd til athugunar á öryggis- málum. Skyldi það verða verkefni nefndarinnar að afla gagna og eiga viðræður við innlenda og erlenda aðila um öryggismál íslands, gera úttekt inni þóknaðist, eftir að hún sjálf hafði ekki talið málið meira aðkallandi en svo, að hún hafi haldið að sér höndum á fjórða mánuð. Átti að fara í varnar- málanefnd með Alþýðubandalaginu? Þegar Alþingi kom saman að nýju 25. janúar eftir fundahlé, var þessi ósk um tilnefningu í Brennandi áhugi Alþýðubandalagsins Alþýðubandalagið hefur brennandi áhuga á þessari nefndarskipun eins og komið hefur í ljós í blaði þeirra að undanförnu. Tilnefning stjórnarflokkanna _______ Stjórnarflokkarnir hafa til- Oryggismálanefndin og Sjálfstœðisftokkurinn á stöðu landsins í heimsátökum á núverandi skipun öryggismála og áhrifum á íslenzkt þjóðlíf, framtíð herstöðvanna og fleira. Á fjórða mánuð heyrðist ekkert frá ríkisstjórninni í rúma 3 mánuði var hljótt um þessa nefnd og heyrðist ekkert frá ríkisstjórninni um skipun hennar. En 7. desember síðastliðinn ritaði hún formönn- um þingflokka og óskaði eftir tilnefningu tveggja manna frá hverjum þingflokki í nefndina. Bréf í jólaönnun Á þeim tíma, sem eftir var af þinghaldi fram að jólum, var annríki mikið á Alþingi: fjárlög og skattafrumvörp, og annað kastið virtist algjört upp- lausnarástand í stjórnarher- búðunum, svo háværar voru deilurnar og glíman grimmileg milli stjórnarflokkanna. Var þessi beiðni um tilnefningu ekki tekin til afgreiðslu á þessum tveim vikum frá því er bréfið barst og fram að þingfrestun. Enda var ekki ástæða til þess fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hlaupa til og tilnefna tafarlaust í þessa nefnd, þegar ríkisstjórn- öryggisnefndina tekin til meðferðar. Sjálfstæðisflokkurinn þurfti fyrst að taka afstöðu til þess, hvort hann vildi taka þátt í þessari athugum á varnar- málum landsins í nefnd með Alþýðubandalaginu. Sá flokkur hefur alltaf haft algera sérstöðu í varnarmálum. Töldu sumir það orka tvímælis, hvort rétt væri að eiga aðild að slíku nefndar- starfi. Niðurstaðan varð sú, að verða við tilmælum ríkisstjórnarinn- ar. Á fundi þingflokksins 8. febrúar voru tveir þingmenn valdir í nefndina, þeir Geir Hallgrímsson og Matthías Á. Mathiesen. kynnt tilnefningar sínar í nefndina með bréfum sem hér segir: Alþýðubandalagið fyrst, enda mestur áhuginn þar, með bréfi 28. desember. Framsóknarflokkurinn með bréfi 2. janúar. Alþýðuflokkurinn með bréfi 25. janúar (flokkurinn mun að vísu hafa ákveðið fulltrúa sína fyrr). Með hliðsjón af því sem hér hefur verið greint, eru ekki rök fyrir ámælum í garð Sjálf- stæðisflokksins fyrir drátt á því að nefna fulltrúa í öryggismála- nefndina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.