Morgunblaðið - 14.02.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
5
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ:
Frumvarpið hættulegt
verði því ekki breytt
„Ég er andvígur vísitöluákvæð-
um frumvarpsins og ég óttast að
sá samdráttur og niðurskurður,
sem frumvarpið boðar, sé of
mikill og ýmis atriði þess beinlín-
is hættuleg. bað er t.d. glæfralegt
að binda það til tveggja ára og
mér sýnist þetta að óbreyttu hafa
í för með sér atvinnuleysi.
Ég vil
ekki eiga þátt í þvi,“ sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, formað-
ur Verkamannasambands ís-
iands, í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Guðmundur kvaðst hafa trú á
því að þetta yrði ekki endanleg
mynd frumvarpsins áður en það
yrði lagt fyrir Alþingi. Hann
kvaðst enga menn hafa á sínum
snærum, sem vildu gerast sjálf-
boðaliðar í atvinnuleysi. „Þeir sem
harðast vilja keyra þetta frum-
varp í gegn og eru sannfærðir um
að það leiði ekki til atvinnuleysis,
þurfa að því er ég tel að hafa
einhverja sjálfboðaliða á bak við
sig. Hins vegar ætla ég engum í
verkalýðshreyfingunni það illt að
hann vilji stefna að því. Málið
verður að skoðast og menn verða
að sannfærast."
Jón Helgason í Einingu:
Erfitt að leggja al-
hliða dóm á frumvarp-
ið á þessari stundu
„Ég er nú rétt að byrja að lesa
frumvarpið og við fyrstu sýn held
ég að þarna sé veruleg breyting
og margt til bóta,“ sagði Jón
Helgason, formaður Einingar á
Akureyri, í samtali við Mbl.,
þegar hann var spurður álits á
frumvarpinu.
„Hinu er ekki að leyna að það
eru ýmsir þættir í þessu frumvarpi
sem snúa að okkur í verkalýðs-
hreyfingunni, sem við vildum
gjarnan að væru öðru vísi en erfitt
er að leggja alhliða dóm á frum-
varpið, eins og er, eða fyrr en
maður er búinn að kynna sér efni
þess betur og verða sér úti um
skýringar á ýmsum þáttum. Ég
held að það sé bezt fyrir alla aðila
að vera ekki að leggja dóm sinn á
hluti fyrr en þeir eru búnir að
kynna sér þá til hlítar," sagði Jón
Helgason.
Guðjón Jónsson, formaður Málm-
og skipasmiðasambandsins:
Eg sé ekki annað
markmið hjá
Ólafi en að sprengja
„ÉG ER í senn furðu lostinn og
harma þessa niðurstöðu máia“,
sagði Guðjón Jónsson, formaður
Málm- og skipasmiðasambands ís-
lands. í samtaii við Morgunblaðið í'
gær. Hann kvað vinstrisinnaða
verkalýðsleiðtoga hafa heilshugar
átt samstarf við þessa ríkisstjórn
um það að halda atvinnulífi og
framleiðslu í fullum gangi og að
reyna að draga úr verðbólgunni.
Hann kvað þetta hvorttveggja hafa
komið fram í sambandi við ráðstaf-
anirnar 1. september og 1. desem-
ber.
Guðjón kvað verkalýðshreyfing-
una hafa skipt á ýmsum launahækk-
uum og niðurgreiðslum og félagsleg-
um umbótum. „Það var ábyggilega
meiningin að við héldum þessu
áfram, að vinna sameiginlega að því
að tryggja fulla atvinnu og einnig að
færa niður verðbólguna án þess að
það skerti kaupmátt. Fulltrúar okk-
ar hafa unnið að þessu m.a. í
vísitölunefndinni og í viðræðum við
ráðherra um fjárfestinga- og láns-
fjármál og annað slíkt. Þess vegna
kemur þetta frumvarp alveg eins og
skrattinn úr sauðaleggnum og ég er
undrandi að fá þetta svona fram, því
að þetta kemur þvert á það, sem
okkur fannst liggja fyrir sem lausn."
Guðjón sagðist ekki sjá betur en
þessa ráðstafanir þýddu verulegan
samdrátt, nái efni frumvarpsins
fram, samdrátt í atvinnu, sem verka-
lýðshreyfingfh telur óhugsandi. „Því
hversu slæm sem verðbólgan er þá er
atvinnuleysi hálfu verra. Þá þýða
tillögur Olafs í vísitölumálunum
stórfellda röskun frá því sem hugs-
anlegt var á kaupmætti. Er ég furðu
lostinn, því að ég tel að þegar hafi
náðst nokkur árangur í baráttunni.
Eg get ekki ályktað annað en að
Ólafur Jóhanesson sé að stefna
samstarfinu í hættu og hann sé bara
að sprengja. Annað markmið sé ég
ekki. Við höfum starfað saman í 6
mánuði, en frumvarpið gengur þvert
á allt sem gert hefur verið til þessa.
Því er ég undrandi og harma að
þetta skuli fara svona,“ sagði Guðjón
Jónsson.
Guðríður Elíasdóttir, form. Framtíðar:
Haldið opnu í frumvarpinu
að ræða vísitölumálin frekar
„Það er svo til ekkert farið að
ræða frumvarpið sjálft í miðstjórn
Alþýðusambandsins,“ sagði Guðríð-
ur Elíasdóttir, formaður Verka-
kvennafélagsins Framtfðarinnar í
Ilafnarfirði.
„Við fengum ekki plaggið í hend-
urnar fyrr en í dag þegar við komum
á miðstjórnarfundinn og ég verð að
segja fyrir mig, að ég er ekkert í
stakkinn búin til að gefa neina
umsögn um efni frumvarpsins sem
slíks. Við Alþýðuflokksfólkið í mið-
stjórninni sátum hjá við atkvæða-
greiðsluna í dag, þar sem við lá að
ætti að samþykkja bókun um að
störfum vísitölunefndar væri lokið
sem var þó ekki sagt beinum orðum.
Við töldum hins vegar að svo væri
ekki, þvi að það væri opið samkvæmt
frumvarpinu í kaflanum um kjara-
málin að ræða mætti þessi mál
frekar," sagði Guðríður.
Guömundur Jón
Hvaö
segja þau
um
frumvarpið
Pétur Guðjón
Pétur Sigurðsson, Alþgðu-
sambandi Vestfjarða:
Ekki hægt að gefa eftir
á 3ja mánaða fresti
PÉTUR Sigurðsson, formaður
Alþýðusambands Vestfjarða,
kvaðst ekki hafa haft aðstöðu til
að kynna sér frumvarpið að
neinu marki enn sem komið væri.
„Menn hafa auðvitað verið að
bíða eftir því að þessi stjórn gerði
eitthvað raunhæft til að vinna
bug á verðbólgunni, eins og lofað
var,“ sagði Pétur, „en þjóðin
hefur ekki séð mörg teikn á lofti í
þá veru ennþá. Ef menn hins
vegar eygja einhverja von í þessu
frumvarpi, komast að raun um að
það sé lykillinn að þeim skrám
sem þeir vilja opna, þá er auðvit-
að ekki nema gott eitt um það að
segja.“
Pétur kvaðst ekki geta fjölyrt
um verðbótaþátt frumvarpsins að
svo stöddu. „Ég get aðeins sagt það
eitt, að ef menn álíta að það sé
eitthvert vit í þessu frumvarpi á
annað borð, þá tel ég það alveg
geta komið til greina að gefa
þessari ríkisstjórn, eins og raun-
verulega öðrum ríkisstjórnum alla
tíð, eitt tækifæri með eftirgjöf á
einhverri vísitölu eða öðrum
breytingum tii að rétta hlutina
við.“
Pétur sagði þó, að raunverulega
hefði þessi stjórn þó fengið þetta
tækifæri með því sem verkalýðs-
hreyfingin hefði gefið eftir í des-
ember sl. en ennþá væri þess ekki
farið að sjást merki í þjóðarbú-
skapnum og vekalýðshreyfingin
hefði enn séð iítið af félagsmála-
pakkanum, sem þá var boðað.
Fordæmi væru fyrir eftirgjöfum
af þessu tagi frá fyrir árum, t.d. á
viðreisnarstjórnarárunum. „Þetta
er hins vegar ekki hægt að gera á
þriggja mánaða fresti og það er
vandamálið," sagði Pétur. „Þessir
menn sem núna sitja ætlast raun-
verulega til þess að verkalýðs-
hreyfingin geri slíkt og það er
hlutur sem við í verkalýðsforust-
unni verðum að staldra aðeins við
og athuga nánar. Ég held að miðað
við þær spár um það sem fram-
undan er og þær blikur sem eru á
lofti í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar, þá geti fólkið í lægstu launa-
flokkunum varla gefið mikið eftir
af sínum launum og þess vegna
held ég að ef um einhverja eftir-
gjöf verður núna að ræða að þá
eigi það ekki að koma fram í
lægstu launaflokkunum. Við vitum
að verkalýðshreyfingin sjálf hefur
löngu gefizt upp við launajöfnun-
arstefnu og þess vegna væri það
þakksamlega þegið, ef stjórnvöld
tækju af skarið og kæmu henni á.“
sími: 27211
★ Fermingarföt með eða án vestis
Allar stærðir.
★ Efni: — Rifflað flauel, margir litir.
★ Slaufa — rifflaö flauel
★ Skyrtur — margir litir, ailar stæröir
★ Skór — ýsmar gerðir
Kr. 39.500
Austurstræti