Morgunblaðið - 14.02.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Tillögur borgarráðs:
mjög alvarlegt þar sem okkur eru
aðeins gefnir þessir tveir hljóð-
nemar um ævina. Það sem kom
einnig fram í myndinni var sú
fullyrðing að í hvert skipti sem við
þurfum að hækka rödd okkar er
hætta á ferðum. Ástandið hlýtur
því að vera slæmt. Sérstaklega tel
ég nauðsynlegt að Heyrnarvernd
fari herferð á hendur skemmti-
stöðum unga fólksins því ef 18 ára
unglingur er með verulega skerta
heyrn hvernig verður hún þá þegar
hann nær hærri aldri?
Hávaðinn er sannarlega skæður
vargur nútímamannsins og svona
að lokum langar mig að geta hér
stuttrar sögu um hve ótrúleg áhrif
hávaði getur haft á manneskjuna
og sjálfsagt einnig aðrar lifandi
verur úr dýraríkinu.
Eftirfarandi sögu sagði mér
Skúli Magnússon líffræðikennari.
Á þessu litla dæmi sjáum við að
brýnna úrræða er þörf.
Skúli vann eitt sinn uppi á
Keldnaholti í húsnæði þar sem
stöðugt var lágvært suð í loft-
ræstikerfi. Hann sagði m.a.:
„Fyrst er inn kemur verður fólk
vart við suðið. En síðan hættir það
að taka eftir því.
En líkaminn bregst við öllum
áreitum frá umhverfinu þó að við
verðum þess ekki vör og glöggt
dæmi um það og í senn sláandi var
það að bestu stundir fólksins á
staðnum var þegar rafmagnið fór.
Þá slokknaði á kerfinu og djúp
kyrrð færðist yfir okkur.“
Kærar þakkir fyrir birtinguna.
Einar Ingvi Magnússon
• Óvenjuleg
tilitssemi
Snemma í janúar í mestu
kuldunum og ófærðinni var ég
staddur í bíl mínum á Skúlagötu á
leið að næstu bensínstöð, þar sem
ég vissi að bíllinn var að verða
bensínlaus. Bensínið þraut fyrr en
mig varði, þar sem bensínmælir-
inn hafði bilað og mikil ófærð
undanfarna daga útheimti meira
eldsneyti en mig óraði fyrir. Bíll-
inn stöðvaðist á versta stað í
hringnum á gatnamótum Skúla-
götu og Borgartúns. Vegna snjó-
þungans var aðeins ein akrein fær
í hvora átt, svo að ég stöðvaði alla
umferð, sem var þó óvenjulítil á
þessum stað bæði vegna ófærðar
og tíma (kl. rúmlega 7 um kvöld).
Eftir að nokkrir bílar höfðu lagt
frá og forðað sér kom einn sem
stöðvaðist hjá mér og gat með
naumindum komist fram fyrir
minn bíl með því að aka utan í
snjóruðninginn á vegabrúninni.
Bílstjórinn vatt sér óðar út tók
orðalaust dráttartaug úr sínum
bíl, festi í minn og dró hann góðan
spöl á næstu bensínstöð. Þegar ég
þakkaði honum fyrir þessa óvenju-
legu tillitssemi og hjálpfýsi sagði
hann: „Mín var ánægjan." Þessi
kurteisi maður ók bílnum R-690.
Slík framkoma er til fyrirmyndar.
Hermann Guðbrandsson
Þessir hringdu . .
• .. syndi í hvers
manns koppi.“
Við lestur á miðopnu Morgun-
blaðsins sl. sunnudag, varð hag-
mæltri konu I.M. að orði:
Virðist mörgum vængbrotnir,
vinstri menn á toppi.
Þótt syndlausir með „sérþarfir"
syndi í hvers manns koppi.
• Ómögulegt að
greina myndina
Sóley Hansen hringdi:
„Mig langaði til að koma á
framfæri kvörtun við útvarpið
vegna þess hve fimmtudagsleikrit-
in eru seint á dagskránni. Þau
byrja oft ekki fyrr en um 9.30 og
eru þá ekki búin fyrr en um 11
leytið. Þetta er nokkuð bagalegt
fyrir þá sem þurfa á fætur
snemma á morgnana en langar
samt til að fylgjast með leikritun-
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á Skákþingi Reykjavíkur 1979,
sem lauk fyrir stuttu, kom þessi
staða upp í skák þeirra Elvars
Guðmundssonar, sem hafði hvítt
og átti leik, og Sævars Bjarnason-
ar.
37. Hcl! — Bxa4? (Nauðsynlegt
var 37... Bd7) 38. Hc8+ - Hf8, (Ef
38... Rf8, þá 39. g6! en ekki 39. Dh6
- Dd6) 39. Dh6! - Dal+, 40. Bcl
og svartur gafst upp. Röð efstu
manna á mótinu varð þessi: 1.
Ásgeir Þ. Árnason 8'/2 v. 2. Omar
Jónsson 8 v. 3. Elvar
Guðmundsson 6 xk v.
Einnig langar mig til þess að
beina því til sjónvarpsins að við
borgum afnotagjöld fyrir að sjá
hvað í sjónvarpinu er, ekki til þess
að geta upp á því. S.l. laugardag
var hljómsveit á skjánum en
ómögulegt vaf að greina á mynd-
unum hvað þetta eiginlega var sem
á skjánum sást. Þetta er nokkuð
sem ekki ætti að koma fyrir.“
HÖGNI HREKKVISI
1979
McNaught Synd.. Im
1HCNUAÍ TlHHST ýóA MLÍOPl EKKI LiöD."
SIGGA V/GGA 2 \iiVtRAM
Nokkuð dregið úr
styrkveitingum til
félaganna í Reykjavík
Á FUNDI borgarráðs Reykja-
víkur sl. föstudag komu til
umræðu styrkveitingar til
hinna ýmsu félaga en allmörg
félög leita á hverju ári eftir
styrkjum til starfsemi sinnar.
Birgir ísl. Gunnarsson tjáði
Mbl. að í heild hefði verið
dregið nokkuð úr fjárhæð
styrkja er félögin nytu, sumir
felldir niður, en aðrir væru
óbreyttir.
Meðal þeirra er lagt hefur
verið til að fengju styrk er
Skátasamband Reykjavíkur til
starfsemi við Úlfljótsvatn 4
milljónir, 6 milljónir til reksturs
skátaheimila og 6 milljóna bygg-
ingarstyrkur vegna heimilis við
Sólheima. Skátasamtökin höfðu
sótt um 36 m. kr. styrk vegna
byggingar skátaheimilis við
Snorrabraut, og lagði Albert
Guðmundsson til að úthlutað
yrði 25 milljónum, en það var
fellt. Þá er tillaga um starfs-
styrk til KFUM að upphæð 5 m.
kr. 1 m. kr. fyrir Pólýfónkórinn,
2 milljónir til Taflfélags Reykja-
víkur sem starfsstyrkur og 500
þúsund fyrir húsnæðiskostnað
og til íþróttabandalags Reykja-
víkur er ráðgert að veita 117
milljónum auk framlags Reykja-
víkur til bráðabirgða fyrir
íþróttamannvirki að upphæð 64
milljónir, íslenzkir ungtemplar-
ar fá 850 þúsund kr. og Félag
einstæðra foreldra 2,2 m. kr. Af
nýjum liðum má nefna styrk til
Leigjendasamtakanna kr. 700
þúsund og Alþýðuleikhússins 4
milljónir.
Utsala
Allskonar fatnaður. Gömlu fötin eru nú nýjasta tískan.
Notið tækifærið. Ungir sem eldri, dömur og herrar.
Andrés Skólavörðustíg 22.
Fyrirlestur
í kvöld kl. 20.30
Kjell Johanson deildarstjóri Æskulýðsráðs
Stokkhólms talar um æskulýðsvandamál í stór-
borgum.
Verið velkomin
Æskulýðsráð Reykjavíkur
NORRÍNA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HUS
Dömur athugiö
Músíkleikfimi í íþrótta-
húsinu Seltjarnarhesi
Nýtt, hressandi, liðkandi og styrkjandi 6 vikna
námskeið í leikfimi fyrir dömur á öllum aldri
hefst þann 19. febrúar n.k. Kennt verður á
mánudags- og fimmtudagskvöldum í íþrótta-
húsinu Seltjarnarnesi. Leikfimi — vigtun —
mæling — mataræði — sturtur.
Innritun og uppl. í síma 75622 eftir kl. 1
alla virka daga.
Audur Valgeirsdóttir.
Geymið auglýsinguna.
V^K5Z)^AN0M V/0
V£^/a!V 4 <bAt\4ÚSINU