Morgunblaðið - 16.02.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979
5
Benedikt og
Ólafur ekki til
Stokkhólms
RÁÐHERRARNIR Ólafur
Jóhannesson og Benedikt Gröndal
hafa ákveðið að fara ekki utan til
Stokkhólms um helgina, en þar hefst
þá þing Norðurlandaráðs. Benedikt
Gröndal utanríkisráðherra kvaðst
hafa tekið þessa ákvörðun vegna
þess hvernig „staða efnahagsmál-
anna og frumvarpsins í ríkisstjórn-
inni“ væri. „Tel ég mér því ekki kleift
að fara að heiman eins og sakir
standa, en ætlunin var að einir 5
ráðherrar færu utan. Ég ákvað að
fara ekki.“
Benedikt kvað Kjartan Jóhanns-
son hafa verið í leyfi ytra og kvað
hann sennilega fara til fundarins. Þá
mun og ætlunin að Ragnar Arnalds
og Hjörleifur Guttormsson fari tíl
fundarins.
Hafréttarráð-
stefnunni
fram haldið í
Genf 19. mars
Áttundi fundur þriðju hafrétt-
arráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
hefst í Genf þann 19. mars og
stendur til 27. apríl næstkom-
andi. Fulltrúar íslands á ráð-
stefnunni verða:
Hans G. Andersen, sendiherra
sem er formaður sendinefndarinn-
ar, Guðmundur Eiríksson, deildar-
stjóri í utanríkisráðuneytinu,
varaformaður, Jón Arnalds, ráðu-
neytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu og Guðmundur Pálmason,
forstöðumaður jarðhitadeildar
Orkustofnunar.
Þá verður hverjum þingflokki
um sig gefinn kostur á að tilnefna
einn fulltrúa í sendinefndina.
Hafskip hf.:
Magnúsi
vikið sem
stjórnar-
formanni
HALDINN var almennur hlut-
hafafundur í Hafskip hf. á mið-
vikudaginn. Fundurinn sóttu hlut-
hafar, sem fóru með rúmlega 90%
atkvæða í félaginu. Gerð var grein
fyrir kæru stjórnar félagsins á
hendur Magnúsi Magnússyni. í
fundarlok lagði stjórn félagsins
fram tillögu um að Magnús
Magnússon viki sem stjórnarfor-
maður en Ólafur B. Ólafsson for-
stjóri Miðness hf. í Sandgerði yrði
kjörinn í hans stað. Var tillaga
þessi samþykkt mótatkvæðalaust.
Magnús Magnússon sat fundinn.
Barnagleði
skagfirzkra
kvenna
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík heldur
skemmtun fyrir börn Skagfirð-
inga í Reykjavík og nágrenni nk.
sunnudag eða á konudaginn kl.
14 í Félagsheimilinu Síðumúla
35. Verður þar ýmislegt til gam-
ans og gleði fyrir börn og hafa
félagskonur unnið að undirbún-
ingi þessarar samkomu. Þetta er
önnur Barnagleðin, sem félagið
heldur.
VI (a.YSINCASIMINN El(:
22480
No.1 40p
Við erum
í takt við
tímann og
tökum upp í dag:
Buxur
fyrir dömur og herra
úr sérlega góöu
kakhi-efni.
Myndir á boli
Belti
Boli
úr óvenju góöum
bómullarefnum
Væntanlegt í næstu viku:
Satinbuxur og vesti
Merki margar gerðir Greiður og krem
Hljómplöturnar
"'i
Satin pils m/vösum
Kjóla
Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 28155.
Unglingadeild
KARNABÆR
W
Austurstræti 22. Sími frá skiptiborði 28155