Morgunblaðið - 16.02.1979, Blaðsíða 9
9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979
unum í þessu samhengi en kenning-
ar hafi veriö uppi um aö flugumenn
og áróöursmeistarar kommúnista
hafi kynt undir og átt sinn þátt í því
aö ýfa upp ólgu og ala á sundrungu.
Hafa menn þVí taliö aö svo kunni aö
fara að íran færist á næstunni yfir á
áhrifasvæöi kommúnistaríkja. Um
þetta segir hann: „Sovézkir stjórn-
málamenn hafa oröið margsaga í
afstööu sinni og þeir eru einnig
klofnir í þeirri afstööu. Þeir hafa
ekki beinlínis hlutast til um innan-
ríkismál írans síöustu ár, og í
samræmi viö tímann hafa þeir beðiö
átekta og fylgzt meö og taliö aö
tíminn ynni meö þeim. Á meðan eru
Bandaríkjamenn aö fá sína skelli og
sínar skrámur. Rússar telja aö sýni
þeir nóga þolinmæði og muni
Bandaríkin eyöa sér meö því aö
halda til streitu rangsnúinni stefnu."
í niöuriagi viðtalsins segir Bill
þessi athyglisverðu orð: „Ef Banda-
ríkjamenn gera þau afdrifaríku mis-
tök aö halda áfram aö styöja viö
bakið á harðlínumönnum í hernum
og vinna gegn Khomeini gætu
Sovétríkin reynt aö koma einhverri
hreyfingu á. Kannski myndu Sovét-
menn ekki þurfa þess, íranska
þjóöin myndi sjá til þess upp á eigin
spýtur. Hin raunverulega ógnun er
ekki frá Sovétríkjunum, heldur sú
ömurlega mynd af Bandaríkjunum
sem blasir viö írönum. Því meira
blóöi sem íranir þurfa að úthella, því
meiri veröa sakargiftirnar gegn
Bandaríkjunum. Og því er betra aö
tapa einum keisara en heilli þjóö."
íranskir kommún-
istar spá sam-
vinnu við Khomeini
Ekki þarf aö orðlengja þaö, aö
Khomeini hefur allar stundir óspart
látið í Ijós andúö sína á kommúnist-
um og gengið hefur veriö út frá því
sem gefnu aö Tudehflokkurinn yröi í
banni hér eftir sem hingað til. Þó
hefur Khomeini ekki nýveriö kveðiö
upp úr með hvaö hann hyggst fyrir,
enda vefst það og líka fyrir mönnum
oft og tíðum aö fá botn í þaö hvaö
klerkur meinar nákvæmlega meö
oröum sínum. Newsweek segir:
„Síöustu mánuöi höfum viö alltaf
ööru hverju lagt fyrir hann
afmarkaðar spurningar. Hann svar-
ar af miklum þrótti og í löngu máli.
En þegar viö reynum að finna
kjarnann í því leysist þaö upp í
islamíska þoku...“
En hvaö sem því nú líður munu
margir bíöa í ofvæni eftir því hver
framvindan verður. Mbl. þótti
ástæða til aö segja lítillega frá
viðtali sem einnig birtist í News-
week fyrir skömmu, við formann
Tudehflokksins í íran, en hann hefur
veriö bannaður í nærfellt þrjá ára-
tugi. Nourreddin Kianouri er for-
maður flokksins og lætur yfirleitt
ekki mikiö á sér bera opinberlega af
eðlilegum ástæöum. Hann var
spuröur aö því hvernig heföi gengiö
aö halda flokknum saman þennan
tíma sem hann hefur veriö bannaö-
ar. Kianouri sagöi, aö þrátt fyrir
verulega erfiöleika, einkum áriö
1970, þegar SAVAK hóf skipulega
útrýmingarherferö á hendur
meðlimum hans, hafi flokkurinn
Nourreddin Kianouri
„Hann er ekki
brjálaður kennimað-
ur, heldur lærður,
heiðarlegur og vin-
sæll,“ segir banda-
rískur sérfræðing-
ur um írönsk mál
Kommúnistar reyna
að ná raunhæfum
tengslum við
Khoumeini, að sögn
formanns
Tudehflokksins
Betra að tapa
einum keisara
en heilli pjóð ...
samt sem áður starfaö. „Flokkurinn
sækir stuöningsmenn sína m.a. í
verkalýösstétt [rans, sem hefur
mjög þroskaöa pólitíska vitund.
Margir af eldri kynslóöinni sem hafa
setið í fangelsi og reynt sitt af hverju
hafa reynt aö vera þeim yngri
leiðbeinendur. Síöustu mánuði
valda tíma síns var keisaranum
loksins fariö aö skiljast aö verka-
menn í olíuiðnaðinum hlýðnuðust
einvöröungu fyrirmælum frá Tudeh-
flokknum. En flokkurinn nýtur og
fylgis í rööum menntamanna og hjá
borgarastéttinni," sagöi Kianouri.
„ Við veittum strax
stuðning frum-
kvæði Khomeinis
gegn keisaranum“
Þegar hann var síðan spuröur
hvort þessi orö hans ætti aö túlka á
þann veg að megnið af þeim mót-
mælendum og byltingarmönnum,
sem ruözt heföu um stræti og torg í
íran síðustu vikur og haft uppi
slagorð til stuðnings Khomeini væru
ef til vill félagar í Tudeh. Hann sagöi
að þaö væri of mikið sagt. En þaö
sem hann ætti viö væri aö Khomeini
heföi barizt gegn keisaranum og
heimsvaldastefnu hans í hvaða
mynd sem hún heföi birzt síðast
liöin tuttugu ár. Tudehflokkurinn
styddi frumkvæöi hans, en þó
einkum hugmynd hans um islamískt
lýðveldi, afnám keisararíkisins,
stjórnlagaþing er fengi það verk aö
draga upp nýja stjórnarskrá og eins
þaö aö auðlindir írans væru aöeins
nýttar í þágu þjóöarinnar.
Aðspuröur um það hvort allt
trúartaliö hjá Khomeini færi nú ekki
ofurlítið í taugarnar á honum sem
gallhöröum marxista sagöi
Kianouri, að þjóöir, sem fylgdu
shiita, heföu einnig mjög sterkar
lýðræöislegar rætur. Af þessari
ástæöu hefði raust Khomeinis fljót-
lega náð eyrum Tudehfylgismanna
og alit væri gert af þeirra hálfu til að
ná raunhæfum tengslum viö klerk-
inn, því að þeir skynjuöu, að afskipti
hans að þróun írans myndi veröa
þaö sem sköpum skipti. Trúlega
gætu Khomeini og kommúnistar
unaö saman í sátt og samlyndi „þar
sem margt er líkt með
shiita-múhameðstrú og sósíalisma".
Sovétríkin munu
fagna því að
vinveitt pjóð
er í suðri...
Blaðamaður benti formanninum á
aö margir óttuöust aö þróunin yröi
sú, aö íran myndi smátt og smátt
færast inn á áhrifasvæöi Sovétríkj-
anna. Kianouri var ekki á því og
sagöist sannfærður um aö
kommúnistaríki myndu ekki láta sér
detta í hug aö hlutast til um málefni
írans, svo fremi íran héldi í heiöri
meginreglur lýðræðis. Sovétríkin
myndu án efa verða Ijómandi
ánægö með aö hafa viö suður-
landamærin vinveitta þjóð, þar sem
engar erlendar herstöðvar væru og
heimsvaldastefna ráðamanna úr
sögunni. Gæti slík staöa styrkt
öryggi beggja ríkja, írans og Sovét-
ríkjanna.
Eins og meö samtaliö viö próf.
Bill var einnig rætt viö Kianouri áöur
en Khomeini kom til Irans og var þá
ekki Ijóst hversu fljótt bylting hans
gengi yfir. Því var formaöur
kommúnistaflokksins inntur eftir því
hvort menn hans myndu blása til
orrustu og kveðja menn til vopna ef
á þyrfti aö halda og svaraði hann
því aö nokkru játandi en sló þó
ýmsa fyrirvara. Hvaöan yröu þá
vopn fengin? „Gegnum tíöina hafa
byltingarhreyfingar jafnan leyst þaö
vandamál eftir sínum leiöum. Vopn
má alltaf finna eöa kaupa. Þaö er
yfrið nóg af vopnum til í íran...“
(h.k. tók saman).
Orðgnóttin leysist upp í islamíska þoku
43466 — 43805
OPIÐ VIRKA DAGA
TIL KL. 19 OG
LAUGARDAGA KL.
10—16.
Úrval eigna á
söluskrá.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
2ja herb.
60 fm. 1. hæö við Njálsgötu.
Sér inngangur. Verð 8.5 millj.
3ja herb.
95 fm. 1. hæö við Fannborg.
Verð 16 millj.
4ra herb.
100 fm. 4. hæð viö Hrafnhóla.
Suður svalir.
4ra herb.
108 fm. 1. hæð viö Fífusel. Útb.
12 millj.
4ra herb.
108 fm. 4. hæð viö Vesturberg.
Vönduö eign.
4ra herb.
110 fm. 3. hæð við Hraunbæ.
4ra—5 herb.
104 fm. 1. hæö viö Fífusel.
4ra herb.
110 fm. 4. hæö við Suðurhóla.
4ra herb.
115 fm. jaröhæð viö Háaleitis-
braut. Vandaöar nýjar inn-
réttingar. Ný teppi. Falleg eign.
125 fm. 1. hæð
í tvíbýlishúsi viö Kastalageröi.
Allt sér. Hagstætt verö.
ífASTElCNlB
AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆÐ
STmi 24850 og 21970.
Heimasími 38157.
EIGNASALAIM
REYKJAVÍK
Ingólfsstræti 8
V/MIÐBORGINA
EINBÝLISHÚS
Vorum aö fá í einkasölu stein-
hús sem er um 85 fm að
grunnfleti. Á hæðinni er mjög
góð nýstandsett 3ja herb. íbúð.
Risið er óinnréttaö og þarfnast
lagfæringar. Samþykkt teikning
fyrir yfirbyggingu. Húsið býður
upp á mjög mikla möguleika.
Það stendur á góðum og róleg-
um staö í Þingholtunum. Mögu-
leiki á bílskúrsrétti. Teikning og
allar upplýsingar á skrifstof-
unni, ekki í síma.
EI6IMASALAIM
REYKJAVÍK
Ingólfsstræti 8
Haukur Bjarnason hdl.
Sími 19540 og 19191
Magnús Einarsson, Eggert Eiíasson.
Kvöldsími 44789.
26600
Ný söluskrá
er komin út.
Ragnar Tómasson hdl.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17, s. 26600.
4
4
9
0
4
44904 — 44904
Þetta er síminn okkar.
Opiö virka daga, til kl.
19.00.
Úrval eigna á söluskrá.
4
4
Orkin s.f
Fasteignasala. V
Simi 44904. j
Hamraborg 7. . 4
Kópavogi.
44904 — 44904
Otrateigur
raðhús á tveimur hæðum. Húsið skiptist þannig: 1.
hæð stofa, borðstofa, eldhús, búr, ytri og innri
forstofa. 2. hæð 4 svefnherb. og bað. Tvennar suður
svalir. Uppl. í skrifstofunni.
Haraldur Magnússon,
viðskiptafræðingur,
Sigurður Benediktsson,
sölumaður.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM JÓH. Þ0RÐARS0N HDL
Til sölu og sýnis m.a.
Úrvals íbúð í Fossvogi
Vorum á fá í sölu 4ra herb. íbúö viö Dalaland um 98 ferm. á
1. hæö. Teppalögð meö mjög góðri haröviöarinnréttingu.
Sér inngangur, sér ióö, sólverönd. Nánari uppl. á
skrifstofunni.
í tvíbýlishúsi við Lyngbrekku
neðri hæö um 100 ferm. 3ja herb. Harðviöur, teppi, útsýni.
Allt sér.
Einbýlishús í Þorlákshöfn
nýlegt timburhús um 120 ferm., bílskýli. Góö eign.
Eignaskipti möguleg.
í Hlíðunum eða Vesturborginni
Óskast góö 2ja—3ja herb. íbúö. Ennfremur sér hæð 5—6
herb.
Fjársterkur kaupandi óskar
eftir góöri hæö, ris eöa
kjallari parf aö fylgja.
ALMENNÁ
fasteigwasaTTB
LAÚGAvÉGMTsí!»AR,2m!r2Í37Ö