Morgunblaðið - 16.02.1979, Qupperneq 14
X 4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979
Ekki farið eftir settum reglum við eftirlit á lagmeti
FRAMLEIÐSLUEFTIRLIT sjávarafurða hefur ekki starfað samkvæmt reglugerð settri af
iðnaðarráðuneytinu 20. maí 1976 um framleiðslu, eftirlit og útflutning á lagmeti. Þetta
kom fram í gær, þegar Mbl. ræddi við þá aðila, sem starfa eiga að eftirliti og sölu á lagmeti
en tilefnið var frétt blaðsins í gær um tug- ef ekki hundruð milljóna króna tjón
niðursuðuverksmiðjunnar K. Jónsson á Akureyri vegna gallaðra gaffalbita, sem seldir
voru á markað í Sovétríkjunum. Eins og fram kemur í samtali við Jóhann Guðmundsson
efnaverkfræðing, forstjóra Framleiðslueftirlitsins, er ástæða þessa sú, að viðkomandi
ráðuneyti hafa ekki gengið frá fjármagnshlið þessa eftirlits.
í reglugerðinni, sem Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra undirritaði, segir m.a. að
Framleiðslueftirlitið skuli yfirfara allan búnað lagmetisverksmiðja og þær megi aðeins
starfrækja, hafi þær vottorð frá eftirlitinu um að settum skilyrðum sé fullnægt varðandi
búnað og hreinlæti. Þá segir ennfremur í reglugerðinni, að hráefni verksmiðjanna skuli
háð eftirliti Framleiðslueftirlitsins. Skuli matsmenn Framleiðslueftirlitsins annast
sýnatöku af framleiðslu þeirra.
Mbl. sneri sér til Gylfa Þórs Magnússonar, framkvæmdastjóra sölustofnunar lagmetis,
Jóhanns Guðmundssonar og Jóns Ógmundssonar eftirlitsmanns Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins með lagmeti og spurði hann um þetta mál og hvernig það mætti vera að
ekki væri farið eftir settum reglugerðum þegar um væri að ræða jafn vandmeðfarna og
verðmæta vöru og lagmeti. Svör þeirra birtast hér á síðunni.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins:
Framleiðslueftirlit sjávarafurða:
„ Verksmiðja K.
Jónssonar aðvöruð
í fyrrasumar”
RANNSÓKNASTOFNUN fisk-
iðnaðarins hafði varað verk-
smiðju K. Jónssonar við því í
fyrrasumar að hráefni verksmiðj-
unnar væri ekki 1. flokks að
hluta. Þetta kom fram í samtali
Mbl. við Jón Ögmundsson eftir-
litsmann lagmetis.
„Við höfum þá reglu,“ sagði Jón,
„að gefa ekki upplýsingar um
niðurstöðu rannsókna hjá okkur á
framleiðsluvörum en þar sem
þetta tiltekna mál hefur verið gert
opinbert er okkur nauðugur sá
kostur að brjóta þessa reglu.
Samkvæmt reglugerðinni frá 1976
eigum við að rannsaka lagmeti
samkvæmt ákveðnum reglum og
eftir þessu höfum við farið og
jafnframt höfum við gefið út-
flutningsvottorð eins og okkur er
uppálagt í reglugerðinni ef við
teljum að framleiðslan standist
gæðakröfur. I reglugerðinni er
Framleiðslueftirliti sjávarafurða
gert að taka sýni af framleiðslunni
og senda okkur. Þessu hefur stofn-
unin algerlega neitað og hafa
verksmiðjurnar sjálfar því sent
okkur sýni til rannsóknar. Þessi
sýni höfum við rannsakað sam-
kvæmt reglugerðinni en í þessu
sambandi hlýtur sú spurning að
vakna hvernig staðið er að ,pýna-
tökunni þegar verksmiðjan sér um
hana sjálf og hvort sú sýnataka
gefi rétta mynd af framleiðslunni.
Hingað til höfum við ekki sett það
fyrir okkur þótt verksmiðjurnar
taki sjálfar sýnin og veitt út-
flutningsvottorð í samræmi við
útkomuna en þetta mál, sem upp
er komið í sambandi við verk-
smiðju K. Jónssonar á Akureyri,
kann að hafa þá breytingu í för
með sér, að við neitum að taka við
öðrum sýnum en þeim, sem tekin
eru nákvæmlega samkvæmt marg-
nefndri reglugerð.
Um framleiðslu K. Jónssonar í
fyrrasumar er það að segja, að við
fengum reglulega sýni af gaffal-
bitaframleiðslunni, sem verk-
smiðjan tók sjálf. I einstaka dós
varð vart við súr, sem fannst við
skynmat, þ.e. lykt gaf til kynna að
ekki væri allt með felldu. Langoft-
ast var fjöldi dósa vel innan við
hættumörk og var þá útflutnings-
vottorð veitt en suma daga var
fjöldi dósa yfir hættumörkum og
fékk sú framleiðsla ekki út-
flutningsvottorð. Vegna þess að í
sumum dósum var súr höfðum við
samband við verksmiðjuna og
létum hana vita af þeim grun
okkar að einhver hluti hráefnisins
væri ekki nógu góð vara og báðum
hana að vara sig sérstaklega á því
en verksmiðjan virðist ekki hafa
farið eftir margítrekuðum aðvör-
unum okkar."
Jón sagði ennfremur, að súr
væri fyrsta stig úldnunar og kæmi
aðeins fram við skynmat. Hefðu
Sovétmenn kvartað yfir súr í
tveimur sendingum frá K. Jóns-
syni. Gerlafjöldi hefði mælst vel
innan við hættumörk enda hefðu
engar kvartanir borizt um of
mikinn gerlafjölda eða rangt salt-
eða sýrustig.
„Aldrei gengið frá
fjármálah liðinni ”
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til Jóhanns Guðmundssonar
forstjóra Framleiðslueftirlits
sjávarafurða og spurði hann
hverju það sætti að stofnun hans
ynni ekki f samræmi við reglu-
gerðina frá 20. maí 1976 fram-
leiðslu, eftirlit og útflutning á
lagmeti.
„Sá háttur hefur verið hafður á
um langl árabil," sagði Jóhann,
„að sýnataka hefur verið tekin af
lagmetisframleiðendunum sjálf-
um. I reglugerð iðnaðarráðuneyt-
isins 1976 er Framleiðslueftirlit-
inu uppálagt að fylgjast með
hráefninu til lagmetisframleiðslu
en ekki sjálfri framleiðslunni. Það
skal tekið fram áður en lengra er
haldið að Framleiðslueftirlitið
heyrir ekki undir iðnaðarráðu-
neytið heldur sjávarútvegsráðu-
neytið. Hvorki sjávarútvegsráðu-
neytinu né Framleiðslueftirlitinu
var tilkynnt um þessa reglugerð.
Til þess að stunda slíkt eftirlit,
sem segir í reglugerðinni, þarf að
ganga frá fjármálahliðinni en það
var aldrei gert. Við tilkynntum
iðnaðarráðuneytinu og Sölustofn-
un lagmetis að við myndum ekki
vinna að þessu eftirliti samkvæmt
reglugerðinni fyrr en fjármálin
væru frágengin.
Enn í dag hafa fjármálin ekki
verið frágengin en eftir að þetta
mál í niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar kom upp hefur verið
hafizt handa um að ganga frá því
máli, en formleg afgreiðsla þess er
í höndum ráðuneytanna. Gaffal-
bitar þeir, er kvartað var yfir, eru
framleiddir úr hráefni frá haust-
inu 1977. Lagmetisiðjan Siglósíld
og niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
sonar á Akureyri létu salta síld til
framleiðslu sinnar á þeirri vertíð.
Síldin til Siglósíldar var keypt í
gegnum Síldarútvegsnefnd og
metin af Framleiðslueftirlitinu
þegar hún var verkuð á sama hátt
og tíðkast um síldarmat. K. Jóns-
son lét salta síld á Hornafirði og
vildi láta skoða hana innan hálfs
mánaðar frá því hún var söltuð og
óverkaða. Slíkt mat er ófram-
kvæmanlegt og hafnaði Fram-
leiðslueftirlitið slíkum vinnu-
brögðum en bauðst til að meta
síldina í sama hátt og fyrir Sigló-
síld. Þetta var gert þrátt fyrir að
ekki hefði verið gengið frá fjár-
veitingu til verksins og varð því
Framleiðslueftirlitið sjálft að
standa straum af verulegum hluta
kostnaðarins."
Jóhann sagði að lokum aðspurð-
ur, að matsmenn frá Framleiðslu-
eftirlitinu hefðu nýlega skoðað
hluta þess hráefnis, sem K. Jóns-
son á eftir af síld frá haustinu
1977 en hann kvaðst ekki vilja
skýra opinberlega frá niðurstöðum
þeirrar skoðunar.
Lítid born hefur
.Jéí" lítið sjónsvið
Lumenition
EKKI BARA
TRANSISTOR-
KVEIKJA
LUMENITION, platínulausa transis-
tor-kveikjan, er meö photocellustýr-
ingu, sem gerir hana óháöa sliti og
slípunargöllum í upphaflegu kveikj-
unni.
Þaö er LUMENITION-kveikjan, sem slegiö hefur í
gegn á íslandi.
HABERG h§
iSkeifunni *e
Unnið að niðurlagningu lagmetis í verksmiðju K. Jónssonar.
Ljósm. Sverrir Pálsson.
Sölustofnun lagmetis:
„Leggjum áherzlu á að
málunum verði kippt í lag ”
„ÞAÐ er algert skilyrði að fram-
leiðslueftirlit sé virkt þegar um er
að ræða jafn vandmeðfarna vöru og
lagmeti og vegna þeirra galla, sem
fram komu f gaffalbitasendingun-
um frá K. Jónssyni. leggjum við
mikla áherzlu á það að þessum
málum verði kippt í lag og eftirlitið
verði í samræmi við setta reglugerð
iðnaðarráðuneytisins." sagði Gylfi
Þór Magnússon framkvæmdastjóri
Sölustofnunar lagmetis, þegar Mbl.
ræddi þetta mál við hann í gær.
„Þegar reglugerðin var sett og
undirrituð af iðnaðarráðherra árið
1976 var hún hugsuð til þess að koma
í veg fyrir að slíkir atburðir gerðust,
sem nú hafa gerst. Var í reglugerð-
inni gert ráð fyrir víðtæku eftirliti
Framleiðslueftirlits sjávarafurða en
það hefur aldrei komizt á og hefur
Framleiðslueftirlitið borið fyrir sig
fjárskorti. Við höfum reynt af
fremsta megni að ýta á það í gegnum
iðnaðarráðuneytið að þessu yrði
kippt í lag en það hefur ekki tekizt,"
sagði Gylfi.
Gylfi sagði ennfremur, að þegar
verksmiðja eins og K. Jónsson á
Akureyri framleiddi fyrir allt að 10
milljónir á dag væri nauðsynlegt að
eftirlit væri í lagi. Það hefði verið
pottur brotinn af hálfu Framleiðslu-
eftirlitsins eins og að framan greindi
en Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
gæti hins vegar ekki hlaupið undan
ábyrgð í málinu. Hún hefði rannsak-
að sýni af gaffalbitunum og afgreitt
útflutningsvottorð án þess að hafa
neina fyrirvara þar á. Síldin, sem
notuð hefði verið til gaffalbitafram-
leiðslunnar, hefði verið 1. flokks og
frá viðurkenndri söltunarstöð á
Hornafirði.
Gylfi Þór Magnússon sagði að
lokum, að hann gæti ekkert sagt
frekar um þetta mál né umfang þess.
Sölustofnun lagmetis stæði ennþá í
samningaviðræðum við Sovétmenn
og þær gengju hægt. Því væri ekki að
neita að þetta tjónamál hefði haft
mjög truflandi og neikvæð áhrif á
samningagerðina. Það væri þó Ijóst
að verksmiðjan K. Jónsson yrði að
bæta Sovétmönnum allmarga fram-
leiðsludaga vegna gallaðrar vöru.