Morgunblaðið - 16.02.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979
15
Lundúnum — 15. febrúar — Reuter.
Heldur fór að horfa væn-
legar fyrir James
Callaghan forsætisráð-
herra Bretlands í dag, en
vinsældir hans hafa ekki í
annan tíma verið minni frá
því að hann tók við em-
bætti. Nokkrir starfshópar
Olía
hækkar
um 7%
Dubai — 15. febrúar — AP
SAMEINUÐU furstaríkin við
Persaflóa og Qatar hafa ákveðið 7%
hækkun á verði ýmissa hráolíuteg-
unda, og er búizt við sams konar
tilkynningu frá Saudi-Arabíu þá og
þegar, að því er haít er eftir
áreiðanlegum heimildum.
Michael Blumenthal fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna kvaðst í dag
efast um að gripið yrði til eldsneytis-
skömmtunar í Bandaríkjunum. Taldi
hann ráðlegra að stjórnvöld beittu
sér fyrir því að sparlegar yrði farið
með það eldsneyti, sem völ væri á, og
lægi beinast við að stuðla að slíkum
sparnaði með verðhækkun á olíu.
hafa fallizt á mála-
miðlunarlausn í launadeil-
unni, og hefur það meðal
annars haft í för með sér
að starfsemi sjúkrahúsa er
að þokast í áttina og sama
er að segja um vatnsveit-
una í Liverpool. Þá hefur
samband brezkra iðnrek-
enda fallizt á þátttöku í
kjararáði því, sem nefnt er
„Concordat“ og Callaghan
gerði grein fyrir í gær, en
að því eiga aðild ríkis-
stjórn, samtök launþega og
samtök atvinnurekenda.
Iðnrekendur féllust á þátt-
töku með fyrirvara, en
vilja þó vera með í ráðum
við ársáætlun þá, sem
ætlunin er að úrskurði
hámarkslaunahækkanir.
Ef marka má skoðanakannanir
þá veðja brezkir kjósendur þannig
á stærstu flokkana: Ihaldsmenn
hafa stuðning 53% kjósenda,
Verkamannaflokkurinn er með
aðeins 33% og Frjálslyndi flokkur-
inn með 11%. Þau undur og stór-
merki hafa gerzt að Margaret
Þetta gerðist j
1978 — 20 milljarða dollara
viðskiptasamningur Japana og
Kínverja.
1977 — Erkibiskup og tveir
ráðherrar handteknir í Uganda.
, 1974 — Viðræður við utanríkis-
ráðherra Egypta og
Saudi-Araba um olíubann •
Araba í Washington.
1963 — Óvæntur stórsigur
Wiliy Brandts í kosningum í
Vestur-Berlín. '
1959 — Fidel Castro verður
forsætisráöherra Kúbu.
1953 — Neyðartilskipanavald
samkvæmt almannaöryggislög-
um í S-Afríku.
1945 — Bandaríkjamenn taka
Baatæn, Filippseyjum = Stór-
felldar loftárásir á Tokyo.
1943 — Rússar taka Kharkov.
1936 — Manuel Azana verður
forsætisráðherra Spánar;
stjórnarskráin frá 1931 endur-
reist.
1933 — Fastaráð Litla banda-
lagsins stofnað.
1916 — Rússar taka Erzerum í
Tyrklandi.
1873 — Lýðveldi stofnað á
Spáni.
1871 — Virkið í Belfort gefst
upp fyrir þýzka hernum.
1808 — Frakkar gera innrás í
Spán.
1804 — Samsæri gegn Napoleon
afhjúpað = Bandarískir land-
gönguliðar laumast inn í
Tripoli-höfn og brenna
freigátuna „Philadelphia“, sem
sjóræningjar tóku.
1666 — Hollendingar gera
bandalag við stórkjörfurstann í
Brandenborg.
Afmæli: Gaspard de Coligny,
franskur hermaður (1519—1572)
= Friðrik Vilhjálmur stór-
kjörfursti (1620-1688) = Henry
Adams, bandarískur sagnfræð-
ingur (1838-1927) = G.M.
Trevelyan, brezkur sagnfræð-
ingur (1875-1962).
Andlát: Richard Mead, læknir,
1754.
Innlcnt: Fyrsti landpóstur kem-
ur að Haga á Barðarströnd í
fyrstu póstferð 1782 = d. Böðvar
Þórðarson í Görðum 1187 = Hlíf
stöðvar vinnu 1939 = d. Einar E.
Sæmundsen skógarvörður 1953.
Orð dagsins: Næst á eftir góðri
dómgreind eru demantar og
perlur fágætustu hlutir í heimi
— Jean de la Bruyére, franskur
höfundur (1645-1696).
Frá einni af mörgum skrúðgöngum sem hafa verið farnar í Karachi til að fagna
því að islömsk lög hafa verið innleidd í Pakistan.
Indira
laus gegn
tryggingu
Nýju Delhi — 15. febrúar — Reuter.
INDIRA Gandhi, fyrrum for-
sætisráðherra Indlands, var í dag
látin laus gegn tryggingu eftir að
hún háfði neitað því fyrir rétti að
hafa reynt að falsa heimilisfang
sitt í því skyni að verða sér úti um
kjörseðil í Suður-Indlandi í júní
s.l. Indira reiddi sjálf fram
tryggingarféð, sem nemur um
200 þúsundum íslenzkra króna.
í júní var altalað að Indira
ætlaði að freista þess að ná kjöri
til .efri deildar þingsins fyrir
Karnatake, þar sem Kongress-
flokkur hennar á mikil ítök. Hefði
framboð hennar krafizt búsetu
hennar í kjördæminu, en Indira
bauð sig þegar til kom fram í öðru
kjördæmi og vann þar eftirminni-
legan sigur.
Veður
víða um heim
Akureyri 5 skýjaö
Arnsterdam -4 heidskírt
Berlín +9 snjókoma
Brdssel 1 snjókoma
Chicago +3 skýjaó
Frankfurt 8 rigning
Genf 3 léttskýjað
Helsinki =22 heiöskírt
Jóhannesarb. 26 léttskýjaö
Kaupmannah. =9 léttskýjaö
Lissabon 13 skýjaö
London =1 snjókoma
Los Angeles 16 skýjaö
Madrid 8 skýjaö
Malaga 12 skýjaö
Miami 24 rigning
Moskva =13 heiöskírt
New York =8 snjókoma
Osló +10 léttskýjað
Palma 10 skýjað
París 8 skýjað
Reykjavík 4 skýjað
Róm 14 skýjaö
Stokkhólmur +15 heiöskírt
Tel 'Aviv vantar
Tókýó 13 léttskýjaö
Vancouver 5 skýjaö
Vtnarborg 3 skýjaö
Indira Gandhi.
Gladnar yf ir Callaghan
Thatcher leiðtogi íhaldsflokksins
á nú meiri persónuvinsældum að
fagna en James Callaghan, að því
er niðurstöður The Daily Tele-
graph benda til.
Æ ólíklegra er talið að
Callaghan rjúfi þing og boði til
þingkosninga fyrr en að hausti.
Hann er sagður binda verulegar
vonir við „Concordat", en Ihalds-
flokkurinn hefur lýst vantrú sinni
á kjararáðið þar sem ekki fylgi
með ráðstafanir til að draga úr
valdi verkalýðsfélaga.