Morgunblaðið - 16.02.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979
17
kertliggja á
hagsvandann
mrœðum utan dagskrár í gœr
kulda, sem gengið hafa yfir og
kalla á meira eldsneyti. Þess vegna
eru menn e.t.v. ekki á eitt sáttir
um það, hversu varanleg sú olíu-
verðhækkun verður, sem nú er
fyrirsjáanleg og við þurfum við að
glíma. Það eru e.t.v. einhverjar
vonir til þess að með hlýnandi
veðurfari dragi úr eftirspurninni
og ennfremur að ástandið í Iran
eigi eftir að batna og olíufram-
leiðslan þar að aukast eða að
önnur olíuframleiðslulönd auki
framleiðslu og framboð aukist
þannig að nýju, svo að jafnvægi
komist á.
Aftur eru til þeir sérfræðingar,
sem halda því fram að þetta sé
aðeins vísbending um það, að
olíuverð verði varanlega töluvert
hærra í framtíðinni og fulltrúar
OPEC-landanna munu hafa ráð-
gerðan fund fyrir vor, þar sem
hætt er við að þeir muni ákvarða
enn frekari hækkun en varð niður-
staða fundar þeirra seint á síðasta
ári, en ef ég man rétt var ákvörðun
þeirra 14%.
Viðræður við
Sovétríkin
Spurningin er þess vegna þessi,
hvort hér verður um sveiflu að
ræða í verðlagi olíu og sem þá á
eftir að jafn^st út eða olíuverð-
hækkunin verður varanleg. En
hvort heldur sem er þá er spurn-
ingin þessi, hvort ekki sé ástæða
til fyrir ríkisstjórnina að óska
eftir viðræðum við seljendur, So-
vétríkin, um það að breyta verð-
viðmiðun olíu og þá á þann veg, að
í farvatninu olíuhækkanir meðal
annarra þjóða og jafnvel olíu-
skortur.
Eg vil taka fram, að þessi
ábending mín er sögð og látin í té
algerlega án allrar gagnrýni á
ríkisstjórnina varðandi samninga
við Sovétríkin og ákvörðun hvað
snertir viðmiðun við Rotterdam.
Þetta er algjörlega samhljóða
ákvæði og var gert á ábyrgð
síðustu ríkisstjórnar. En hins
vegar held ég að í því sé engin
áhætta fólgin heldur miklu fremur
brýn nauðsyn og eðlileg sanngirni
að teknar séu upp viðræður við
seljendur um þessi mál til þess að
draga úr alvarlegum afleiðingum
fyrir sjáanlegri olíuverðhækkun.
Ástand fiskstofnanna
Geir Hallgrímsson vék síðan að
ástandi fiskstofnanna. Hann sagð-
ist minnast þess, að sjávarútvegs-
ráðherra hefði svarað spurningu
fréttamanns svo, að nauðsynlegt
væri að gera gagngerar ráðstafan-
ir, en hins vegar yrðu þær að vera
þannig, að þær kæmu sem minnst
við hag landsmanna. Ráðherra
varð ekki skilinn öðru vísi en svo,
að það væri unnt að koma því fyrir
svo með sókn í aðra fiskstofna en
þorskinn og ýmsum hliðarráðstöf-
unum, að þetta þyrfti ekki að
snerta okkur alltof alvarlega.
Um þetta sagðist þingmaðurinn
ekki ætla að fjölyrða, enda sjávar-
útvegsráðherra fjarverandi. Hins
vegar vakti hann athygli á því að
gefnu tilefni frá forsætisráðherra,
að óskað hefði verið eftir því í
fullskapað til umsagnaraðila.
Frumvarpið getur að sjálfsögðu
tekið breytingum, með hliðsjón af
umsögnum. Deila má um réttmæti
slíks samráðs við aðila utan þings,
en það er engin nýjung í þingsög-
unni, þó oft hafi reynzt erfitt í
framkvæmd. Ég get tekið undir
það, sagði forsætisráðherra, að úr
því sem komið er, sé rétt að birta
frumvarpið í heild,. með og ásamt
greinargerð, svo þjóðinni gefist
kostur á að kynnast efnisatriðum
þess óbrengluðum.
Forsætisráðherra sagði getgát-
ur um höfunda frumvarpsins
óþarfar. Hann bæri á því alla
ábyrgð og væri einfær um að setja
sama lagafrumvörp, þótt sjálfsagt
væri að leita til ráðgjafa.
Hann vék að „kjaralögunum"
frá því í september og „viðnáms-
lögunum“ frá því um mánaðamót
nóvember-desember, og kallaði
þau fyrstu aðgerðir. Bráðabirgða-
aðgerðir væru rangnefni. Niður-
felling söluskatts og niðurgreiðsl-
ur væru ekki til bráðabirgða. Þessi
löggjöf hefði eytt 15 V2 prósentu-
stigi vísitölunnar, sem horfin væru
og kæmu ekki aftur. Að sjálfsögðu
hefðu þessar aðgerðir kostað fjár-
útvegum í formi aukinnar skatt-
heimtu, sem ekki væri víst að væri
heldur til bráðabirgða. Það frum-
varp, sem hann hefði lagt fram í
ríkisstjórninni, væri síðan fram-
hald fyrstu aðgerða, miðað við
lengri tíma, byggt á vinnu ráð-
herranefndar, stefnumörkun í
greinargerð með viðnámslögunum,
og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar. Það væri svo stjórnarflokk-
anna að tryggja framhaldið. Það
undir ýmislegt, sem fram hefði
komið í máli forsætisráðherra um
frumvarp hans en fram til þessa
hefði farið mest fyrir bráðabirgða-
ráðstöfunum. Síðan vitnaði ræðu-
maður til ævintýris H.C. Andersen
um nýju fötin keisarans og taldi,
að núverandi 'rikisstjórn væri ekki
í neinum fötum, í þessum málum,
samstöðulega séð. Hér hefur verið
lagt fram frumvarp, sagði hann,
nei, það hefur enn ekki verið
formlega lagt fram, og um það er
ekki samstaða í ríkisstjórninni.
Annaðhvort verður það lagt fram
óbreytt, og einn stjórnarflokkur-
inn gengur út, eða ekki lagt fram,
og þá áfram hangið við það hey-
garðshornið að gera ekki neitt sem
máli skiptir. Það er kominn tími
til að berja aftur í borðið og segja:
hingað og 'ekki lengra í sundur-
þykkju. Ég vil að frumvarpið verði
lagt formlega fram og við sýnum
að okkur sé alvara að taka á
marktækan hátt á aðsteðjandi
vandamálum þjóðarinnar.
Kratar mega
klæðast Þeim flíkum
Svavar Gestsson, viðskiptaráð-
herra. sagðist hlaupa undir árar
með forsætisráðherra, að því er
varðar svör um olíumál. Hins
vegar vildi hann ekki róa á því
fleyi, sem stefndi í þá átt sem
frumvarp forsætisráðherra vísaði
í. Alþýðuflokkurinn má klæðast
þessum frumvarpsflíkum, af
blygðunarástæðum, ef hann kýs.
Við Alþýðubandalagsmenn höfn-
um frumvarpinu af tveimur meg-
inástæðum: 1) það lögbindur sjálf-
virkar kauplækkunaraðgerðir, 2)
það stefnir í keðjuverkandi sam-
drátt og atvinnuleysi.
Ráðherra sagði olíuverð, miðað
við Rotterdammarkað, hafa hækk-
að mjög verulega, eða frá því verði,
sem nú gilti, í það verð, sem reikna
mætti með: um 56% að því bensíni
viðvéki og 70% að því gasolíu
viðvéki. Hins vegar væri ekki ljóst,
hvort þessi hækkun yrði viðvar-
andi. Hún hefði stafað af ýmsum
ástæðum: m.a. þróun mála í íran
og kuldakasti í Evrópu, sem aukið
hefði á eftirspurn. Þetta gæti
breytzt og auðveldara yrði að átta
sig á þeirri þróun er kæmi fram í
apríl. Ljóst væri hins vegar að
þessi verðhækkun erlendis stór-
hækkaði tekjur ríkissjóðs, m.a. af
benzínsölu. Þar mætti e.t.v. koma
við takmörkunum, t.d. beita
hún sé annaðhvort bundin við
framleiðsluverð olíuríkjanna eða
OPEC-landanna að viðbættum
eðlilegum vinnslukostnaði eða að
Rotterdam-viðmiðunin sé áfram í
gildi, en með einhvers konar há-
marki eða þaki. Það verður að
telja, að báðir aðilar telji eðlilegt,
að um sanngjarnt verð sé að ræða
fyrir olíuna. Ekki ætla ég seljanda
að vilja nota sér sérstakar aðstæð-
ur til þess að hreppa skammvinn-
an eða skjótfengan gróða með því
að hér er um langtímaviðskipta-
samning að ræða, sem að ramma
til er gerður til 4 eða 5 ára. Þessum
samningum svipar mjög til olíu-
viðskipta almennt í heiminum, en
þar er um langtímasamninga að
ræða, sem miðast þá fyrst og
fremst við framleiðsluákvörðunar-
verð OPEC-landanna og sann-
gjarnan vinnslukostnað.
Sérstaða okkar Islendinga er sú,
að hér fer ekki fram vinnsla olíu.
Þetta er e.t.v. orsökin fyrir því
með verðmiðuninni við Rotterdam
að sveiflan á olíuverðinu kemur
harðar niður á okkur en öðrum
þjóðum, þótt einnig sé talað um og
tilefni af skýrslu fiskifræðing-
anna, að þingflokkkur Sjálfstæðis-
flokksins tilnefndi fulltrúa ásamt
fulltrúum annarra þingflokka til
þess að fjalla um hvaða ráðstafan-
ir ætti að gera og hvaða vinnu-
brögð ættu að vera við ::kýrslu
fiskifræðinganna.
Þarna væri af ríkisstjórnarinn-
ar hálfu óskað eftir samráði við
stjórnarandstöðuna gagnstætt því
sem forsætisráðherra hefði sagt
að væri hlutverk stjórnarandstöð-
unnar.
Engin tímamörk um
framlagningu
né afgreiðslu
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði m.a, að ríkis-
stjórnin hefðu hvorki tekið
ákvörðun um, hvenær umspurt
frumvarp yrði lagt fram formlega
né um það, hvenær afgreiðslu þess
skyldi lokið. Hann sagði samráð
hafa verið höfð við samráðsaðila
utan þings, bæði gegnum ráð-
herranefnd, sem unnið hefði að
undirbúningi frumvarpsins, og nú
með því að senda frumvarpið
er mín von, sagði ráðherra, að þing
og þjóð sýni, að menn hafi meint
það sem þeir sögðu um hættur
verðbólgunnar og nauðsynlegar
mótaðgerðir — og að þau orð hafi
ekki bara verið efni í framboðs-
ræður, heldur alvara, sem menn
væru reiðubúnir að standa við.
Keisarinn er ekki
í neinum fötum
Bragi Sigurjónsson (A), sem
einnig hafði kvatt sér hljóðs utan
dagskrár, fékk að koma máli sínu
á framfæri, að fyrirmæli forseta
S.þ., í þessari utandagskrárum-
ræðu. Hann minnti á tillögu þeirra
Braga Níelssonar um orkusparnað,
sem flutt hefði verið snemma í
haust, en ekki hlotið fullnaðaraf-
greiðslu enn. Bar hann fram ýms-
ar spurningar varðandi orku-
sparnað, bæði á sjó op; landi, til
iðnaðarráðherra.
Þá minnti BrS að hann hefði
barið í borðið með óvenjulegum
hætti (sagði af sér forsetaembætti
í efri deild), til að gagnrýna
aðgerðarleysi stjórnvalda í efna-
hagsmálum. Hann gæti nú tekið
30% -reglunni, en um það væri enn
ekki samstaða, málið þó ekki
afgreitt í ríkisstjórninni.
Þessi hækkun kæmi mjög illa
við sjávarútveginn og heimili, sem
hituðu hús með olíu.
Ráðherra þakkaði ábendingu
Geirs Hallgrímssonar (S) um við-
ræður við Sovétmenn og Portúgala
um breytta verðviðmiðun, og taldi
hana verða athugunar.
Olíuhækkunin
nemur míll-
jörðum króna
Iljörleifur Guttormsson,
iðnaðarráðherra, vísaði til orða
Svavars Gestssonar, um afstöðu
sína til frumvarps forsætisráð-
herra.
Hann sagði innflutt eldsneyti
nema 500—600 tonnum á ári, ef
flugvélabenzín væri ekki með talið.
Þar af væri benzín 17%, gasolía
59%, svartolía 24%. Olían færi að
22% til húshitunar, 27% til
iðnaðar, 27% til fiskveiða og 24%
til samgangna. Kostnaðarhækkun
fiskiskipa, miðað við verð fyrir og
eftir hækkun, næmi 5.8
milljörðum króna og samsvarandi
hækkun í húshitun 3.6 milljörðum
króna.
Ráðherra vék síðan að ýmsum
orkusparandi aðgerðum: svartolíu
hjá togurum, réttri stillingu
húshitunartækja, nýtingu kæli-
vatns frá aflvélum, skipulagningu
veiða og vinnslu, minni notkun
einkabíla, fjarhitun, aukinni leit
og nýtingu jarðvarma. Þá vék
hann að hugsanlegum greiðslum
úr sameiginlegum sjóði tii að létta
undir með oliuhitun húsa, t.d.
50.000 kr. framlagi pr. hús eða
íbúð, en áætluð hækkun næmi
rúmum 200 þús. kr. á ári.
Ráðherra sagði hækkun bif-
reiðakostnaðar áætlaða 87.000 kr.
á bifreiða, auk 24,000 kr. aukning-
ar á vegagjaldi. Tekjuhækkun
ríkisins næmi röskum 2 mill-
jörðum króna að óbreyttri sköttun
á þessu sviði.
Þá vék ráðherra að mótun
framtíðarstefnu í orkumálum,
hugsanlegri framleiðslu vetnis
með rafgreiningu. Úr vetninu
mætti framleiða metanól
(tréspíritus) sem nota mætti til
íblöndunar benzíni. Til framleiðslu
metanóls í 15% íblöndun benzíns
þyrfti orkufrekan iðnað sem nýtti
15—30 MW, til að koma alveg í
stað benzíns 150—200 MW.
Fullbúiö
frumvarp
Vilmundur Gylfason (A) sagði
að forsætisráðherra hefði lagt
fram fullbúið frumvarp um
ráðstafanir í efnahagsmálum, sem
tæki í meginatriðum á verðbólgu-
vandanum. Þetta frumvarp hefði
ekki fæðst á einni nóttu, það væri
árangur viðræðna, sem fram hefðu
farið milli stjórnarflokkanna allar
götur frá því skömmu eftir
kosningar. Hann get um umfjöllun
þingflokks og flokkstjórnar Al-
þýðufl. á frumvarpinu, en þessir
aðilar væru sammála um að
frumv. skyldi lagt fram sem fyrst.
Engan tíma mætti missa. Það er
mat forsætisráðherra, að ég hygg,
sagði þingmaðurinn, að þetta
langt væri hægt að komast
VG sagðist skilja aöfinnslu
stjórnarandstöðunnar, þess efnis,
að henni hefði borið að fá frv. í
hendur a.m.k. samtímis aðilum
utan þings. Þá vék hann að afstöðu
Alþýðubandalagsins, sem m.a.
héldi því fram, að frv. stefndi í
atvinnuleysi. Sannleikurinn væri
hins vegar sá, að atvinnuleysið
blasti við ef ekki yrði gripið til
verðbólguhjöðnunar af því tagi,
sem frv. fæli í sér. Éf þessi
ríkisstjórn gugnaði á frumvarp-
inu, fengi hún sömu eftirmæli og
vinstri stjórnir '56—58 og '71—'74,
að þær hefðu ekki ráðið við efna-
hagsmál. Andstaðan gegn frv.
byggðist á fljótfærni, ónógri skoð-
un og íhugun málavaxta.
Þingið og
pingmenn fyrst
og fremst
samráðsaðilar
Matthías Á. Mathiesen (S)
þakkaði það, að gagnrýni hans frá
í gær hefði borið árangur, frv.
væri komið í hendur þingflokks
stjórnarandstöðunnar. Leiðrétta
yrði þó, svo ekki færi á milli mála,
að hann hefði ekki gagnrýnt í
neinu, að frumvarpið væri sent
„samráðsaðilum" utan þings, held-
ur hitt, að stjórnarandstaðan fengi
ekki samtímis frumvarpið, ekki til
umsagnar heldur upplýsingar, svo
sem þingvenja væri. Þessi gagn-
rýni hefði fengið ajmennar undir-
tektir. Þá sagði MÁM að forsætis-
ráðherra hefði sagt, að þótt
stjórnarandstaðan á Alþingi væri
góðra gjalda verð, væri hún þó
ekki „samráðsaðili" ríkisstjórnar.
Þá hef ég numið illa þau fræði, er
forsætisráðherra kenndi mér í
eina tið, sagði þingmaðurinn, ef
þingið og þingmenn eru ekki sam-
ráðs- og ákvörðunaraðilar um
löggjafarstarf á Alþingi.
Framhald umræðna verður
rakið á þingsíðu Mbl. á morgun.