Morgunblaðið - 16.02.1979, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979
• Tákn mótsins.
Tropicana-mótið
i badminton
TROPICANA-mótið í badminton
verður háð um næstu helgi. Mótið
er kennt við hinn þjóðkunna
drykk „Tropicana1*, enda ku hann
vera ákjósanlegur fyrir íþrótta-
fólk. sem og auðvitað alla aðra.
Davíð Sch. Thorsteinsson er einn
af helstu áhugamönnunum um
badminton í TBR og fyrir til-
stuðlan hans er mótið haldið.
Gestir mótsins að þessu sinni
eru tveir enskir badmintonleikar-
ar, Nick Yates, 16 ára gamall
unglingameistari, og Tim Stokes,
20 ára gamall B-landsliðsmaður
Englands.
Talið er að gestirnir séu svipaðir
að styrkleika og þeir Duncan
Bridge og Brian Wallwork, sem
komu á „Tropicana-mótið" í fyrra.
Badminton í Englandi er í
fremstu röð í heiminum, einkum
eiga Bretar sterk lið í tvíliða- og
tvenndarleik, svo og í einliðaleik
kvenna. Virtasta badminton-
keppnin í heiminum, „All
England", er að jafnaði haidin þar,
og hafa heimamenn oft á tíðum
unnið stóra sigra.
Fremstu badmintonmenn okkar
eru í góðri þjálfun um þessar
mundir, enda mörg stórmót á
næstunni. Landsiiðið er nýkomið
úr keppnisferð til Austurríkis og
hafa sumir úr þeim hópi átt við
meiðsli að stríða, en við því er þó
að búast að þeim erfiðleikum sé nú
lokið.
Jóhann Kjartansson og Sigurður
Haraldsson keppa saman í „Tropi-
cana-mótinu“ og verður fróðlegt
að fylgjast með viðureign þeirra
og Englendinganna. Einnig keppir
Jóhann í einliðaleik, svo og allir
aðrir sterkustu leikmenn landsins.
I kvennaflokki verður keppnin
vafalaust hörð að vanda. Lovísa
Sigurðardóttir og Hanna Lára
Pálsdóttir, Islandsmeistararnir í
tvíliðaleik, keppa nú saman á ný,
en Lovísa hefur verið erlendis að
undanförnu. Þær Kristín Magnús-
dóttir (íslandsmeistarinn í ein-
liðaleik) og Kristín Berglind fá nú
tækifæri til að sýna hvað í þeim
býr og verður vafalaust gaman að
sjá þær keppa við þær eldri.
„Tropicana-mótið“ verður eins
og áður er sagt haldið um næstu
helgi í TBR-húsinu, Gnoðarvogi 1.
Hefst keppnin i einliðaleik kl. 15 á
laugardag, en síðan verður keppt í
tvíliðaleik. Á sunnudag kl. 15 fara
fram undanúrslit í einliðaleik, en
síðan verða úrslitaleikarnir í
öllum flokkum. Áhugamenn um
badminton ættu ekki að láta mót
þetta fara fram hjá sér.
- þr.
Lumenition
YFIR
5000 BÍLAR
Á 3 árum hafa selzt yfir 5000
LUMENITION kveikjur á íslandi.
Þetta væri óhugsandi, nema
ánægöir kaupendur heföu mælt
meö ágæti búnaöarins.
Hefur Þú kynnt pér kosti LUMENTION platínu-
lausu kveikjuna?
éSm HABERG hS
■Skeifunni ie
) j
Landflótta Sovétmenn
gætu hrellt landann
„Líkurnar á því að við vinnum
ísraela tel ég vera 50 á móti 50,
en það er það sem við stefnum
markvisst að að gera. Ég tel, að
ísraelar muni fórna fyrri leik
sínum í riðlinum, leiknum gegn
Tékkum. Ég tel að þeir muni ekki
sýna fullan stvrkleika í þeim leik,
þar sem við Islendingar verðum
meðal áhorfenda, ég tel að þeir
leggi, eins og við, mesta áherslu á
innbyrðisviðureign okkar og
þeirra.“ Þetta sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson landsliðseinvaldur í
handbolta um möguleika íslands
í B-keppninni á Spáni sem hefst
innan skamms. Lokaundirbún-
ingurinn fyrir keppnina eru nú
að hefjast og því hélt HSÍ blaða-
mannafund.
Jóhann Ingi lúrði á ýmsum
upplýsingum um fyrstu mótherja
íslendinga, ísraela og Tékka.
Landflótta Rússar
burðarásar ísraela
Israelar leika mjög hraðan og
ógnandi handbolta, það sást á
Videobandi sem HSÍ fékk frá
viðureign ísraela og Finna á
C-keppninni fyrr í vetur. Þar unnu
þeir Finna með 11 marka mun,
22-11. Þá sigruðu þeir í sömu
keppni Norðmenn með 5 marka
mun og Austurríkjamenn með 6
marka mun. Sem sagt verðugir
mótherjar og vel það. I liði ísraela
eru þrír landflótta Sovétmenn og
eru þeir burðarásar liðsins. Þjálf-
arinn er Tékki. Það eru einkum
tveir Sovétmannanna sem virðast
sterkir, báðir örvhentir, annar
hornamaður og hinn útspilari.
Þjálfari liðsins er Tékki og æfir
lið hans mjög mikið, nánast eins
og um atvinnulið væri að ræða.
Þeir hafa að vísu ekki leikið
landsleiki síðan í C-keppninni, en
æft þeim mun meira.
Tékkar með nýtt lið
Tékkar hafa næstum gerbreytt
liði sínu á síðustu misserum og
þeir hafa einnig skipt um þjálfara.
Segir Jóhann Ingi þá spila mjög
taktískan handbolta og líkti
sóknarleik þeirra við sóknarleik
Víkinga, þ.e.a.s. að 5-6 leikkerfi
væri í gangi út allan leikinn. Hið
nýja unga landslið Tékka tók þátt í
miklu móti í Sovétríkjunum eigi
alls fyrir löngu. Fyrst vann liðið
lið Georgiu 34-23, gerði síðan
jafntefli við unglingalið Sovét
24-24, vann því næst landslið
Júgóslava 30-26, gerði þá jafntefli
við A-landslið Sovétmanna 22-22
eftir að hafa verið allt að 5
mörkum undir í fyrri hálfleik.
Loks unnu Tékkar Rúmena 25-24
eftir að hafa verið undir 11-13 í
hálfleik. Af þessu má sjá, að
sóknarleikurinn er í góðu lagi, en
öðru máli gegnir um varnarleik-
inn. Vitað er þó að markverðirnir
báðir eru mjög leikreyndir,
hávaxnir og stórsnjallir.
Lúrir á frek-
ari upplýsingum
Þá sagði Jóhann Ingi, að hann
hefði orðið sér úti um töluverðar
upplýsingar, bæði um lið Hollands
og Spánverja, en komist Islending-
ar í milliriðil, er næsta víst að
þjóðir þessar verði mótherjar okk-
ar. Jóhann sagðist þó ætla að lúra
á þeim upplýsingum fyrst um sinn.
Lokasprettur-
inn hafinn
Lokaundirbúningurinn er nú
hafinn, en á fundi HSÍ var lögð
fram æfingaáæltun næstu daga,
eða þar til lagt verður í hann á
þriðjudaginn í næstu viku.
Hápunkti nær spretturinn þegar
landsliðið heldur í æfingabúðir til
Selfoss. Þar mun liðið m.a. leika
tvo æfingarleiki, annan við Hauka
í dag klukkan 20.15 og hinn gegn
Fram á morgun klukkan 15.00.
Hjátrú?
Að lokum vakti Jóhann Ingi
athygli á einni staðreynd, sem
kann að auka á bjartsýni fyrir
frammistöðu landsliðsins. Hún er í
því fólgin, að í þeim þremur
utanlandsferðum sem landsliðið
hefur farið í vetur, hefur liðfð
alltaf unnið fyrsta leikinn í keppn-
inni. I Færeyjum unnust náttúru-
lega báðir leikirnir. I Frakklandi
vann íslenska liðið Túnis í fyrsta
leik sínum í mótinu og síðast en
ekki síst vann landinn Dani í
fyrsta leik sínum í Baltic Cup. Nú
vona menn að allt verði þegar
fernt er.
— gg-
„Það má enginn
fara
eftir minni spá“
„Ætía einrt
%
Spá Hermans:
Aldershot — Shrewsb. x
Cryst. Pal —
Newcastle/Wolves 1
Ipswich — Brist. R. 1
Liverp. — Burnley/ Sunderl. 1
Leeds/WBA — Shouth. 1
Colchester — Man Utd. 2
(að sjálfHÖgðu)
Notthingh. — Forest Arsenal 1
Bristol C — QPR x
Chelsea — Derby 1
Manch. City — Birmingh. 1
Millwall — West Ham x
Nots County — Cardiff 1
að vera með 11
— Jú. jú, mikið meira en sjálf-
sagt að tippa fyrir ykkur þarna á
Mogganum. En það verður að
koma skýrt fram að það má
enginn fara eftir minni spá, því
að ég ætla að vera einn með 12
rétta, sagði Hermann Gunnars-
son íþróttafréttamaður ríkisút-
varpsins er við slógum á þráðinn
til hans í gær og óskuðum eftir
því að hann yrði spámaður vik-
unnar.
— „Það er einna verst hvað
uppáhaldsliði mínu Man. Utd.
hefur gengið illa í vetur.“ — En nú
erum við á uppleið, tveir enskir
landsliðsmiðherjar þeir Joe
Jordan og Stuart Pearson eru að
koma inn í liðið, og því verður
seinni hlutinn í ensku deildar-
keppninni léttur hjá mínum
mönnum.
— Man. Utd. hefur alltaf verið
mitt uppáhaldslið. Og ég hef fylgst
með þeim síðan ég var smástrákur.
Kringum þá hefur aldrei verið
nein lognmolla. Stemmningin sem
fylgir stuðningsmönnum þeirra er
einstök (þó svo að stundum gangi
of langt) og ekkert félag á Bret-
landseyjum fær fleiri áhorfendur
á völlinn en MU.
Þá hefur félagið náð að skapa
frábæra einstaklinga, og það kann
fólkið að meta. Þeir gleðja áhorf-
endur meir en nokkuð annað. Til
að nefna nokkra sem skarað hafa
fram úr hjá Man. Utd., get ég
nefnt Duncan Edwards sem knatt-
spyrnusérfræðingar Bretlands
fullyrtu að hefði orðið besti knatt-
spyrnumaður heims ef hann hefði
ekki farist í flugslysinu mikla
rétta“
1958, þegar meira en hálft lið Man.
Utd. fórst á hörmulegan hátt. Nú á
árunum 1965 til 1969 eru snill'ngar
eins og fyrirliði liðsins Pat
Crerand, Alex Stepney, Dennis
Law, Bobby Charlton, og snilling-
urinn George Best. Einn besti
knattspyrnumaður fyrr og síðar að
mínu mati. En öfundarmenn og
slæmar tungur lögðu stein í götu
hans, þar á meðal ýmsir samherj-
ar hans sem gátu ekki unað við þá
miklu snilli sem hann sýndi.
— Hverjir sigra í keppnum
vetrarins í Énglandi, Hermann?
— Liverpool sigrar í deildar-
keppninni eftir harða keppni við
Notthingham Forest. Hins vegar
sigrar Forest í deildarbikarnum.
Nú liðið mitt Man. Utd. vinnur svo
FA-bikarinn á Wembley. Ekki
spurning.
— Tekur þú reglulega þátt í
getraununum?
— Já, ég tippa svo til alltaf. Hef
ég meira að segja hlotið nokkra
vinninga. Það var í fyrra, en þá
vorum við tveir saman með kerfi
og gekk ljómandi vel.
— I vetur hefur hins vegar ekki
gengið eins vel. Það er eitthvað
bogið við teninginn hjá vini mín-
um Einarssyni eftirlitsmanni. Og
slíkt er ekki happadrjúgt fyrir
sérfræðinga, sagði þessi fyrrum
snjalli knattspyrnumaður og
núverandi eldhress íþróttafrétta-
maður útvarpsins.
Að lokum er rétt að ítreka fyrir
fólki ósk Hermanns að það api
ekki eftir seðli hans, því að hann
ætlar einn að sitja að 12 réttum ^g
hreppa þar með stóra vinninginn.
- þr.