Morgunblaðið - 21.02.1979, Side 19

Morgunblaðið - 21.02.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979 og síðar og persónulega fyrir öll hans góðu ráð og ábendingar er hann miðlaði mér í okkar stutta en ánægjulega samstarfi. Fyrir mína hönd, móður minnar og systur og hennar fjölskyldu flyt ég aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Kristján Loftsson. LATINN er vinur minn Sveinn Benediktsson. Ætt hans og upp- runa er óþarft að rekja, alla vega ekki fyrir þá, sem fylgjast með þjóðmálum og þjóðskörungum. Kynni okkar Sveins hófust um 1940. Þá var ég starfandi hjá Gísla Jónssyni alþm. Fyrirtæki Gísla hafði selt úr landi mest allt síldar- og fiskimjöl þess árs framleiðslu. Mitt var að sjá um að greiðslur kæmust skilvíslega. Svo mikil var umhyggja Sveins fyrir Síldar- verksmiðjum ríkisins að hann kom tvisvar til þrisvar sinnum á skrif- stofu mína, svona rétt til að vita hvort rétt hefði verið gengið frá skjölum. Þetta voru mín fyrstu kynni af umhyggju Sveins Bene- diktssonar af ísl. útvegi. Síðan átti ég eftir að kynnast Sveini Bene- diktssyni mun betur, sem forsvarsmanni Síldarverksmiðja ríkisins í stjórn L.Í.Ú., F.Í.B..BÚR, síldarútvegsnefndar og síldar- saltendafélagsins. Um 1940 þótti Verzlunarskóla- menntun til verzlunarstarfs góð. En framhaldsmenntun undir handleiðslu manna eins og Sveins Benediktssonar og Gísla Jónsson- ar alþm. var fyrirmyndar fram- haldsskóli. Báðir hugsuðu fyrst fremst um þjóðarhag. Annar meira um síld. Hinn um rækju- vinnslu. Báðir voru þessir menn vinnuharðir, en harðastir við sjálf- an sig. Þeir vildu líka að þeir sem ynnu fyrir þá skiluðu sínu dags- verki. Undir handleiðslu slíkra manna hlaut hver maður að mótast af þeim með nokkru. Birting í ísl. þjóðfélagi hefst upp úr 1905, við komu fyrsta togarans, stofnun íslandsbanka, stofnun Fiskveiðasjóðs og byggingu Reykjavíkurhafnar. Öll þessi þróun, frá því Sveinn var korn- ungur maður, voru hans miklu áhugamál. Hann var þátttakandi í öllu, sem betur mátti fara, fyrir ísl. útveg og fiskvinnslu. Við skul- um minnast að fáir menn hafa unnið jafnmikið að sjávarútvegs- málum og félagsmálum sjávarút- vegsins undanfarin 50 ár og Sveinn Benediktsson. Honum á þjóðin mikið að þakka. Með þessum línum. óska ég vini mínum Sveini fararheilla með þakklæti fyrir góða vináttu. Konu hans Helgu og fjölskyldu vottum við hjónin samúð. Sigurður II. Egilsson. Kveðja frá Skóla ísaks Jónssonar Sveinn Benediktsson fram- kvæmdastjóri lést hinn 12. febrúar s.l., á 74. aldursári. Hann var um aldarþriðjungs skeið formaður skólanefndar Skólá ísaks Jónsson- ar, allt frá því að skólinn varð sjálfseignarstofnun árið 1946 og þangað til kallið mikla kom. Starf sitt sem formaður skóla- nefndar vann Sveinn Benediktsson þannig að skólinn gat jafnan treyst því að eiga í honum þéttan 19 bakhjarl. Sem formaður hafði hann tilsjón með rekstri og bygg- ingamálum skólans og kom þar reynsla hans og sérþekking skól- anum að miklu gagni. Jafnframt hafði hann vakandi áhuga á innra starfi skólans og fylgdist með því. Hann lét sér annt um að börnin lærðu að koma fram og koma fyrir sig orði, að þau kynntust þjóðleg- um fróðleik og kynnu að meta fornar og sígildar dyggðir. Hann vildi hag skólans sem mestan í hvívetna. Skólanefnd Skóla ísaks Jónsson- ar vill þakka langt og ötult starf Sveins Benediktssonar fyrir skól- ann, tryggð hans, stuðning og leiðsögn. Látnum formanni sínum vottar nefndin dýpstu virðing. Eftirlifandi konu hans, börnum og öðrum ástvinum sendir hún hlýj- ustu kveðjur samúðar. • ... . - ..

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.