Morgunblaðið - 21.02.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979
og síðar og persónulega fyrir öll
hans góðu ráð og ábendingar er
hann miðlaði mér í okkar stutta en
ánægjulega samstarfi.
Fyrir mína hönd, móður minnar
og systur og hennar fjölskyldu flyt
ég aðstandendum okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Kristján Loftsson.
LATINN er vinur minn Sveinn
Benediktsson. Ætt hans og upp-
runa er óþarft að rekja, alla vega
ekki fyrir þá, sem fylgjast með
þjóðmálum og þjóðskörungum.
Kynni okkar Sveins hófust um
1940. Þá var ég starfandi hjá Gísla
Jónssyni alþm. Fyrirtæki Gísla
hafði selt úr landi mest allt síldar-
og fiskimjöl þess árs framleiðslu.
Mitt var að sjá um að greiðslur
kæmust skilvíslega. Svo mikil var
umhyggja Sveins fyrir Síldar-
verksmiðjum ríkisins að hann kom
tvisvar til þrisvar sinnum á skrif-
stofu mína, svona rétt til að vita
hvort rétt hefði verið gengið frá
skjölum. Þetta voru mín fyrstu
kynni af umhyggju Sveins Bene-
diktssonar af ísl. útvegi. Síðan átti
ég eftir að kynnast Sveini Bene-
diktssyni mun betur, sem
forsvarsmanni Síldarverksmiðja
ríkisins í stjórn L.Í.Ú., F.Í.B..BÚR,
síldarútvegsnefndar og síldar-
saltendafélagsins.
Um 1940 þótti Verzlunarskóla-
menntun til verzlunarstarfs góð.
En framhaldsmenntun undir
handleiðslu manna eins og Sveins
Benediktssonar og Gísla Jónsson-
ar alþm. var fyrirmyndar fram-
haldsskóli. Báðir hugsuðu fyrst
fremst um þjóðarhag. Annar
meira um síld. Hinn um rækju-
vinnslu. Báðir voru þessir menn
vinnuharðir, en harðastir við sjálf-
an sig. Þeir vildu líka að þeir sem
ynnu fyrir þá skiluðu sínu dags-
verki. Undir handleiðslu slíkra
manna hlaut hver maður að
mótast af þeim með nokkru.
Birting í ísl. þjóðfélagi hefst upp
úr 1905, við komu fyrsta togarans,
stofnun íslandsbanka, stofnun
Fiskveiðasjóðs og byggingu
Reykjavíkurhafnar. Öll þessi
þróun, frá því Sveinn var korn-
ungur maður, voru hans miklu
áhugamál. Hann var þátttakandi í
öllu, sem betur mátti fara, fyrir
ísl. útveg og fiskvinnslu. Við skul-
um minnast að fáir menn hafa
unnið jafnmikið að sjávarútvegs-
málum og félagsmálum sjávarút-
vegsins undanfarin 50 ár og
Sveinn Benediktsson. Honum á
þjóðin mikið að þakka.
Með þessum línum. óska ég vini
mínum Sveini fararheilla með
þakklæti fyrir góða vináttu. Konu
hans Helgu og fjölskyldu vottum
við hjónin samúð.
Sigurður II. Egilsson.
Kveðja frá Skóla
ísaks Jónssonar
Sveinn Benediktsson fram-
kvæmdastjóri lést hinn 12. febrúar
s.l., á 74. aldursári. Hann var um
aldarþriðjungs skeið formaður
skólanefndar Skólá ísaks Jónsson-
ar, allt frá því að skólinn varð
sjálfseignarstofnun árið 1946 og
þangað til kallið mikla kom.
Starf sitt sem formaður skóla-
nefndar vann Sveinn Benediktsson
þannig að skólinn gat jafnan
treyst því að eiga í honum þéttan
19
bakhjarl. Sem formaður hafði
hann tilsjón með rekstri og bygg-
ingamálum skólans og kom þar
reynsla hans og sérþekking skól-
anum að miklu gagni. Jafnframt
hafði hann vakandi áhuga á innra
starfi skólans og fylgdist með því.
Hann lét sér annt um að börnin
lærðu að koma fram og koma fyrir
sig orði, að þau kynntust þjóðleg-
um fróðleik og kynnu að meta
fornar og sígildar dyggðir. Hann
vildi hag skólans sem mestan í
hvívetna.
Skólanefnd Skóla ísaks Jónsson-
ar vill þakka langt og ötult starf
Sveins Benediktssonar fyrir skól-
ann, tryggð hans, stuðning og
leiðsögn. Látnum formanni sínum
vottar nefndin dýpstu virðing.
Eftirlifandi konu hans, börnum og
öðrum ástvinum sendir hún hlýj-
ustu kveðjur samúðar.
• ... .
-
..