Morgunblaðið - 21.02.1979, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979
27
ISiml 50749I
Geföu duglega
áann
Bud Spencer, Terense Hill.
Sýnd kl. 9.
Hnefi reiðinnar
meö Bruce Lee.
Sýnd kl. 7.
ÍÆJpBÍP
—*“=*■=- Sími 50184
Derzu Uzala
íslenzkur texti
„Fjölyrða mætti um mörg atriði
myndarinnar en sjón er sögu rfkari
og óhætt eraö hvetja alla, sem unna
góöri list, aö sjá þessa mynd\
S.S.P. Morgunblaöið 28/1 '79.
★★★★ Á. Þ. Vísi 30/1 '79
Sýnd kl. 9.
NÝ KYNSLÓÐ
Snúningshraðamælar meö raf-
eindaverki engin snerting eöa
tenging (fotocellur). Mælisviö
1000—5000—25.000 á mín-
útu.
Einnig mælar fyrir allt að
200.000 á mínútu. Rafhlöðudrif
léttir og einfaldir í notkun.
Siliyiiíflatyigjiyii1
<it
Vesturgötu 16,
simi 13280.
Fyrirlestur
í kvöld kl. 20:30
Prófessor MATTI KLINGE frá Helsinki-háskóla:
„Om centrum och periferi i Finlands och Sveriges
historia".
Veriö velkomin.
NORRÍNA HUSIO POHPLAN TAIO NORDENS HUS
— 1x2
26. leikvika — leikir 17. febrúar 1979.
Vinningsröð: xxx — x11 — 2xx — 222
1. vinningur: 10 réttir — kr. 208.000.-
510+ 32746 33030+ 36992+
2. vinningur: 9 réttir — kr. 17.800.-
2288 5569+ 31418 32960+ 33679 36572 55134
3549 6581(2/9)32046 32968+ 35699 36598
5089 7648 32415 33174 36106 42411
Kærufrestur er til 12. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrif-
stofunni. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur verða teknar til
greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
fyrir greiösludag vinninga.
GETRAUNIR — ípróttamiðstööin — REYKJAVÍK
Develop
Develop Ijósritunarvélar
Ný sending. Pantanir óskast sóttar
1. Sérstaklega ódýrar. 2. Sterkar. 3. Lítið viöhald. 4.
Taka mjög lítið rúm á borði. 5. Einfaldar að vinna á.
DEVELOP
vél sem öll fyrirtæki geta eignast.
Skrifvélin hf.
Suöurlandsbraut 12.
Sími 85277 Pósth. 1232.
Skákmótid í Wijk aan Zee:
Polugajevsky
hrósaði sigri
verið iðnir við skákmótahald
og nú í síðustu viku lauk hinu
árlega Wijk aan Zee móti. Að
venju var mótið mjög vel skip-
að, af tólf þátttakendum voru
aðeins tveir alþjóðlegir meist-
arar, hinir voru allir stórmeist-
arar.
Það var sovézki stórmeistar-
inn Lev Polugajevsky sem sigr-
aði örugglega, heilum vinningi
á undan næstu mönnum, þeim
Andersson, Miles og Sosonko.
Undanfarinn áratug hefur
Polugajevsky óumdeilanlega
verið í hópi 10 sterkustu skák-
manna 1 heimi, þó að heldur
hafi dregið af honum eftir
tapið í einvíginu við Korchnoi.
Með þessum sigri sfnum sannar
hann samt að hann ætti að eiga
öruggt sæti í áskorendaeinvígj-
unum á næsta ári ef allt helst
óbreytt.
Úrslit á mótinu urðu annars
þessi:
1. Polugajevsky, Sovétríkjun-
um 7>/2 v, af 11 mögulegum.
2.-4. Miles, Englandi, Anders-
son, Svíþjóð og Sosonko, Holl-
andi 6V2 v. 5.-7. Hort,
Tékkóslóvakíu, Timman, Hill-
andi og Hiibner, V-Þýzkalandi
6 v. 8.-9. Ree, Hollandi og
Dzindzindhashvili, ísrael 5 v.
10. G. Garcia, Kúbu 4 v.
11, —12. Gaprindashvili, Sovet-
ríkjunum og Nikolac,
Júgóslavíu 3»/2.
Það sést bezt af þessari upp-
talningu hversu feikisterkt mót-
ið var og fyrir fram hefði helm-
ingur þátttakenda getað komið
til greina sem sigurvegarar.
Helst kemur á óvart ágæt
frammistaða Sosonkos, sem
hingað til hefur haft orð á sér
fyrir að vera dæmigerður miðl-
ungs stórmeistari. Landi hans
Jan Timman hefur" hins vegar
oft verið nær verðlaunasætum
en nú og sama má segja um þá
Hort, Hiibner og Dzindzind-
hashvili. Eini norðurlandabúinn
á mótinu, Ulf Andersson, stóð
sig mjög vel og hann hefur
fyllilega náð sér upp úr þeim
öldudal sem einkenndi tafl-
mennsku hans á árunum 1976 og
77. Á þetta mót kom Andersson
beint frá Hastings, þar sem
hann var efstur á hinu árlega
jólaskákmóti.
Nona Gaprindashvili fyrrum
heimsmeistari kvenna byrjaði
mjög vel, vann t.d. Dzindzind-
hashvili auk þess sem hún mát-
aði Nikolac í glæsilegri skák.
Seinna fór þó að halla undan
fæti og löndum sínum til mikilla
vonbrigða varð hún að lokum að
sætta sig við neðsta sætið. Nona
hefur löngum verið orðlögð fyrir
mikla sókndirfsku sína og hún
hefur teflt margar ógleymanleg-
ar skákir. Skákin sem hér fer á
eftir er í þeim hópi og hún fékk
einmitt fegurðarverðlaunin á
mótinu.
Hvítt: Gaprindashvili (Sovét-
ríkjunum)
Svart: Nikolac (Júgóslavíu)
Caro-Kann vörn
I. e4 - c6, 2. d4 - d5, 3. Rd2
— dxe4, 4. Rxe4 — Bf5, 5. Rg3
- Bg6, 6. h4 - h6, 7. h5 -
Bh7, 8. RÍ3 - Rd7, 9. Bd3 -
Bxd3,10. Dxd3 - e6
(10. ... Dc7 hefur löngum verið
talinn nákvæmasti leikurinn í
stöðunni, en afbrigðið sem
Nikolac velur í þessari skák er
einnig vel þekkt)
II. BÍ4 - Da5+, 12. c3
(í skák sinni við Portisch í
Bugojno í fyrra lék Tal hér 12.
Bd2, en komst lítt áleiðis eftir 12
... Dc7, 13. De2 - Rgf6. jr
þessari skák ákveður
Lev Polugajevsky gekk betur
en á Reykjavíkurskákmótinu í
fyrra.
Gaprindashvili hins vegar að
láta langhrókun lönd og leið)
Rgf6, 13. a4! - c5, 14. 0-0 -
Hc8
(Ekki 14.... cxd4,15. b4! - Dd5,
16. c4 með yfirburðastöðu)
15. Híel - c4?
(Mun betra var 15. ... cxd4, því
að nú er hægt að svara 16. b4
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
með Dd5. Eftir hinn gerða leik
lokast drottningarvængurinn og
hvítur getur snúið allri athygli
sinni yfir á kóngsvænginn)
16. Dc2 - Be7
(Upprunalega hefur svartur
áreiðanlega ætlað að leika hér
16. ... Rxh5, önnur skýring get-
ur ekki verið á hinum slæma 15.
leik hans. En nú sér hann
skyndilega að eftir 16. ... Rxh5,
17. Rxh5 - Dxh5, 18. De4! er
drottningarvængur hans með
öllu óvarinn og taflið hartnær
tapað. E.t.v. hefur hann fyrst
aðeins reiknað með 16. ... Rxh5,
17. Hxe6 — fxe6, 18. Dg6+ —
Kd8, 19. Rxh5 — Df5! en með
slíkum handakúnstum kemst
hvítur auðvitað ekkert áleiðis)
17. Re5 - 0-0
(Úr því sem komið var hefði
svartur líklega átt að leika hér
17.... Rxe5, þó að eftir 18. Hxe5
— Dd8,19. Hael hafi hvítur alla
stöðuna)
18. Rf5! - nfe8, 19. Rxg7!! -
Kxg7, 20. Bxh6+ - Kxh6, 21.
Rxf7+ — Kxh5
(Eftir 21. ... Kg7, 22. Dg6+ -
Kf8, 23. h6 er stutt í mátið. T.d.
23, ... Hd8, 24. Dg7+ - Ke8, 25.
Rd6+! — Bxd6, 26. Hxe6+ og
mátar í næsta leik)
22. g4+! - Kh4
(Eða 22. ... Kxg4, 23. Dg6+ -
Kh4, 24. Kg2! - Dd5+, 25. f3 og
mátar)
23. £3!, - Rxg4, 24. He4 og
svartur gafst upp.
Sigurvegarinn á mótinu, Lev
Polugajevsky, hefur löngum ver-
ið nafntogaður fyrir frábæran
skilning sinn á byrjunum. Það
hefur þannig mátt segja um
marga óreyndari andstæðinga
hans að þeir hafi verið búnir að
tapa skákinni áður en hún byrj-
aði. Sterkasti sakkmaður Kúbu-
manna, Guillermo Garcia, varð
að bíta í þetta súra spli í Wijk
aan Zee.
Hvítt: Polugajevsky (Sovétríkj-
unum)
Svart: Garcia (Kúbu)
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
— b6, 4. g3 — Ba6, 5. b3 — d5,
6. Bg2 - Bd6
(Bezta framhaldið hefur hér
lengi verið talið 5. ... Bb4+, 6.
Bd2 — Be7. Þessi skák rennir
stoðum undir þá skoðun)
7. 0-0 — Rbd7, 8. Bb2 - Hc8?
(Þessi leikur er orsökin fyrir
öllum erfiðleikum svarts, Nauð-
synlegt var hér 8. ... c6 til þess
að geta svarað 9. cxd5 með cxd5)
9. cxd5! — exd5
(Ef 9. ... Rxd5 þá 10. Hel —
Bb4,11. Rfd2!)
10. Re5 - c6, 11. Rd2 - De7,
12. Hel! Bb4?!
(Skárra var 12. ... 0-0. Eftir 12.
... Rxe5, 13. dxe5 — Bxe5, 14.
Bxe5 — Dxe5, 15. e4 — d4, 16.
Rf3 hefur hvítur hins vegar
yfirburðastöðu)
13. a3 - Bxd2,14. Dxd2 - 0-0,
15. Dg5!
(Hótar 16. e4)
Hfe8,16. b4 - Rxe5
(Svartur á mjög erfitt uppdrátt-
ar í endataflinu sem nú kemur
upp. Hann varð því að reyna 16.
... h6 og bíða og sjá)
17. dxe5 - Rd7, 18. Dxe7 -
Hxe7,19. f4 - Í5
(Annars leikur hvítur 20. e4)
20. Hacl — Hee8
21. Bh3! - Iíf8, 22. g4
(Nú kemst svartur ekki hjá
liðstapi, því 22. ... g6 gengur
ekki vegna 23. gxf5 — gxf5, 24.
Kf2 og g-línan opnast hvítum í
hag)
fxg4, 23. Bxg4 — Rb8
(Skiptamunstap var óumflýjan-
legt. Ef 23. ... Hcd8 þá 24. e6 —
Rf6 25. e7)
24. Be6+ - Kh8, 25. Bxc8 -
Bxc8, 26. e4 — dxe4, 27. Hxe4
- Be6, 28. Ild4 - Kg8, 29.
Hcdl - Bd5. 30. b5 - Bf3, 31.
Hld3 — Be2, 32. Hd2 og svartur
gaf. Eftir 32. ... Bxb5, 33. a4 -
Ba6, 34. Hd8 er mannstap óum-
flýjanlegt.